Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 16
16
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
Fréttir
Bensínstöð breytt
Bensínstööin í Borgarnesi sem breytt var í kjötbúð.
DV-mynd JAK
Ingigeröur Jónsdóttir mundar kjöthnífinn faglega. Hún mun kappkosta að
meðhöndla kjötið eftir óskum kaupandans.
Eg er mjög bjartsýn á að þetta
gangi vel, annars væri maður ekki
að þessu. Ég er þegar búin að gera
nokkra sölusamninga og mun kapp-
kosta að vinna kjötið fyrir fólk eftir
óskum þess,“ sagði Ingigerður Jóns-
dóttir kjötiðnaðarmaður.
Ingigerður nam við Iðnskólann í
Reykjavík, fór síðan á samning hjá
kaupfélaginu í Borgamesi og ætlar
nú í samkeppni við kaupfélagið. Hún
segist þó kaupa kjötið í kaupfélaginu
og eitthvað beint frá framleiðendum
og síðan muni hún meðhöndla það
eftir kúnstarinnar reglum.
Kjötvinnslan og kjötbúðin eru til
húsa þar sem áður var bensínstöð
og síðan bifreiðaeftirlit inni í Borgar-
nesbæ. Á einungis mánuði var húsið
gert upp að utan og innan, komið upp
frystiklefa, vélum og öðm slíku.
Annað yfirbragð er yfir húsinu og
nú vinnur Ingibjörg þar ásamt
tveimur starfsmörmum en starfsem-
in hófst 16. júní. „Ég fór út í þetta til
að skapa mér atvinnu og auka fjöl-
breytni í atvinnulífinu. Selt verður
til Eddu-hótela, verslana fyrir sunn-
an og hér í nágrenninu og auðvitað
getur fólk svo skroppið hingað í búð-
ina til mín,“ sagði Ingigerður.
-JFJ
Nú ætlar þú líka að v:
- nýju skafmiðahapr