Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Qupperneq 20
20 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. Fréttir Röð óhappa hjá Hraðfvystihúsinu í Ólafsvík: Læt ekki deigan síga „Ég hef nú ekki fengið neina happdrættisvinninga þennan tíma sem ég hef verið hér í Ólafsvík. Mesta óáranin fyrir utan slys á mönnum og skemmdir á tækjum er þó efnahagsstefna ríkisstjómar- innar. Tap af hennar völdum er meira en af nokkm öðru." - segir Olafur Gunnarsson framkvæmdasljóri Þetta em orð Ólafs Gunnarsson- ar, aðaleiganda og framkvæmda- stjóra Hraðfrystihúss Ólafsvikur. Það er ekki laust við aö orð eins og hrakfallabálkur eða óheilla- kráka hafi hrotið af vörum Ólafs- víkinga síðustu misseri þegar rætt er um aðkomumanninn sem stjómar frystihúsinu. Bilanir og slys Ólafur tók \1ð frystihúsinu í okt- óber síðastliðnum og á þeim tima sem síðan er liðinn er vertíðar- bresturinn efstur í huga flestra. Brást vertíðin í fyrsta skipti í mörg ár og var hin versta í manna minn- um. Eitt fyrsta verk Ólafs var að selja annan skuttogara frystihúss- ins til að bæta skuldastöðuna. í desember bilaði gír í einum bá: tanna og snemma í vor bræddi vél annars úr sér. Alvarlegasta atvikið er þó banaslys þar sem verksmiðju- stjórinn fórst. Var hann við log- suðu á tanki í fiskimjölsverksmiðj- unni þegar tankurinn sprakk. Hafði maðurinn umgengist þessa hluti alla æfi og haldið fjöldamörg öryggisnámskeið svo að menn vom algerlega skilningsvana gagnvart slysinu. Loks kom upp eldur í frystihúsinu 1. júní þar sem tölu- verðar skemmdir tirðu. Frystikerf- , ið slapp þó við skemmdir svo að frystihúsið stöðvaðist aðeins í rúma viku. Þessi atburöarás á aðeins átta Ólafur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Ólafsvíkur, segir fólk hafa staóið saman um að koma mánuðum hefði sennilega fengið starfseminni i gang aftur. „Mikill afli og mikil vinna er aðalatriði hér.“ DV-mynd hlh einhveija til að taka pokann sinn og kveðja. Fólkið stendur saman þegar á bjátar „Engir af þessum atburðum vora fyrirbyggjanlegir eöa fyrirsjáan- legir. Eg var áður framkvæmda- stjóri síldarvinnslunnar á Nes- kaupstað og það kom ýmislegt fyrir meðan ég var þar án þess að maður yrði sleginn út af laginu. Það þjón- ar engum tilgangi að láta deigan síga og vorkenna sjálfum sér. Ann- ars stendur fólk saman þegar eitt- hvað bjátar á. Eftir branann hér hefur fólk verið mjög samtaka um að koma öllu í gang aftur. Staðir eins og Ólafsvík, þar sem atvinnu- líf er mjög einhæft, em mjög háðir því að atvinnutækin keyri á fullu. Þessir staðir mega við mjög litlu. Hér er dýrt að búa ef litið er á raf- magns- og hitakostnað og fleira. Fólk lifir á miklum afla og mikilli vinnu.“ Ólafur sagði það lán að enginn mannskaði skyldi hafa orðið í brunanum. Hvað veraldiega hluti áhrærði fælist mesti skaðinn í þvi að komast ekki í gang og því væri gott að koma starfseminni í gang á rúmlega viku. Fjárhagstjónið, um 60 milljónir, yrði þó aldrei aö fullu bætt. Hefði vélarkram eins og fry- stikerfi farið í brunanum hefði stöðvun reksturins orðið mun lengri eða 2-3 mánuðir. „Staðan leyfir ekki stöðvun og því er gott að komast í gang þó að útlitið sé ekki gott. Vertíðarbrestur og rekstrarerfiöleikar eru meira en nóg. Það hefur verið 6-10 prósent tap á frystingunni og gengisfelling- in var afgreidd með einu skeyti frá Coldwater þar sem tilkynnt var að þorskurinn hefði lækkað meira en sem nam gengislækkuninni." -hlh Vönir fýrir hestamenn: Byrjaði í bílskúmum Olafur Guðjónsson, járnsmiður á Akranesi, sem sérhæfir sig í smíði á varningi fyrir hestamenn, handleikur sýnishorn vinnu sinnar. DV-mynd JAK „Ég er búinn aö gera við ístöð í 10 ár en það eru ekki nema tæp 3 ár síðan ég gerði þetta að alvöru starfi og var þá með þetta í bílskúmum hjá mér,“ sagði Ólafur Guðjónsson. Ólafur er 33 ára, innfluttur Skaga- maður. Hann flutti í janúar í iönaðar- húsnæði, þar sem hann framleiöir beislisstangir, stangamél og ístöð. Ólafur er hestamaður sjálfur, á 6 hesta og segir að í þá fari allur frí- tíminn. Hugmynd hans að þessari framleiðslu hafi vaknað út frá hest- unum og smám saman hafi þetta undið upp á sig og sé loks orðið aö fyrirtæki með 3 menn í vinnu. „Það hafa margir gutlað yið slíka framleiðslu og gera ennþá. Ég fór út í þetta af alvöru og hef náð sæmileg- asta markaði á stærstu stöðunum, það em þó einkum verslanir sem kaupa. Eins og stendur hef ég ekki undan innanlandsmarkaði og því er alveg ókannað með útflutning, mað- ur hefur þó gælt við slíkt í hugan- um,“ segir Ólafúr. Eitthvað mun þó vera flutt út af afurðum Ólafs en hann segir það ekki markvisst. Þar sé um að raeða útlendinga sem komi hingað til lands og taki með sér og vUji ef til vill meira. „Ég hef nú reyndar sérstaka form- úlu sem ég fylgi við smíöamar. Ég fer eftir gömlum beislisstöngum sem voru mjög vinsælar, svonefndar Sindrastangir. Þetta hefur gengið vel og þær verið vinsælli en þær inn- fluttu, enda eru mínar úr ryðfríu efni, en í þeim innfluttu er oft lélegt efni sem vill hreinlega brotna,“ sagði Ólafur Guðjónsson jámsmiður. JFJ Kristinn Guðlaugsson, framkvæmdastjóri UDN, við merki og verðlaunagripi sambandsins. DV-mynd hlh Búðardalur: Bikar og fimm skeið- klukkur í afmælisgjöf Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga varð 70 ára 24. maí í ár. Var þeim tímamótum fagnað með miklu afmælishófi í mars þar sem fjöldi manns mætti. Innan þessa sambands starfa fimm félög og er Ólafur pá í Búðardal þeirra stærst. Blaðamaður hitti Kristin Guðlaugsson, framkvæmda- stjóra UDN, í Dalabúð á dögunum þar sem hann var að taka nýja tölvu upp úr kassa. „Félögin innan UDN ákváðu að taka ekki út lottóskiptinguna frá síð- asta ári en gáfu ungmennasamband- inu hana í afmælisgjöf þess í stað. Var þá fjárfest í tölvu en öll vinna við héraðsmót og félagaskrá kostar mikla pappírsvinnu. Þar að auki fékk sambandið bikar og fimm skeið- klukkur á afmælinu." Er ungmennasambandið nýflutt inn í Dalabúð og gáfu sveitarfélögin í kring 60 þúsund til húsgagna og áhalda á skrifstofuna. Kristinn sagði að mikil vöntun væri á íþróttamannvirkjum á sam- bandssvæðinu og keppnisaðstaða ut- anhúss engin. Átti sambandið að fá 600 þúsund króna fjárveitingu til íþróttamannvirkjagerðar í ár en fékk aðeins eitt hundrað þúsund. Hafi þingmönnum Vesturlands því verið sent bréf til að undirstrika þörfina fyrir íþróttamannvirki. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.