Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Page 21
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988.
21
U HÖLDUM VIÐ í AUSTUR
Fréttir
Aratuga ending - margir litir
Ólafsvík:
Frá höfninni í Ólafsvik. Þarna sést aðeins hluti smábátanna er leggja að í Ólafsvík og liggja þeir hver utan á
öðrum. Kvarta sjómenn sáran undan þrengslunum og telja þörf á úrbótum. DV-mynd hlh
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
Mikil þrengsli í höfninni
- allt að 90 trillur leggja þar að
Mikil þrengsli eru í höfninni í Ól-
afsvík og kvarta margir sáran undan
því ástandi. Aö sögn trillukarla liggja
trillurnar hver utan á annarri og í
brælu eigi stærri bátar erfltt með aö
leggja aö vegna þrengslanna.
Siguröur Arnfjörö Guðmundsson,
sem rekur veitingastaö við höfnina,
taldi 58 trillur í höfninni fyrir ekki
alllöngu og var þá von á fleiri trillum.
Eru þetta trillur alls staöar aö og
flestar yfir sumariö.
Bæjarstjórinn í Ólafsvík, Kristján
Pálsson, játti því að mikil þrengsli
væru í höfninni. Um 25-30 stærri
bátar legðu þar aö, einn skuttogari
og milh 50 og 70 trillur. Þessi umsvif
kölluðu á framkvæmdir og væri ver-
iö að íhuga möguleikana á aö bæta
aöstööu smábátanna. Annars yrði
110 metra langt stálþil rekið niður
viö hafnargarö sem gerður var ný-
lega og viö það myndi aðstaða stærri
bátanna batna töluvert. Myndu hafn-
arframkvæmdirnar í sumar kosta
um 34 milljónir króna. -hlh
Það er kannski ofsögum sagt að Sjálfstæðishúsið sé í skugganum af Fram-
sókn en heldur virðist þó lítið fara fyrir því að baki maddömunnar. Þykir
einhverjum sjálfsagt súrt i broti að þetta skuli líta út fyrir að vera einhvers
konar hjáleiga. Það skyldi þó aldrei vera að sjálfstæðismenn í Borgarnesi
heföu tekið borgarstjórann í Reykjavik bókstafiega og reist sér „litið og
hóflegt" hús. DV-mynd JAK
6. Næsti áfangastaður er skiðaskálinn í Hveraauium. t-ai verður
tekið á móti hópnum með veglegri víkingaveislu. Ef vel viðrar
verður grillað úti.
7. Áætlaður komutími til Reykjavíkur er kl. 23:00.
Reyndir leiðsögumenn verða á hverjum viðkomustað. Fararstjóri
verður Guðmundur Einarsson framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins.
Miðaverð er kr. 1800 og 800 fyrir 12 ára og yngri.
Greiðslukortaþjónusta. Skráning fer fram á skrifstofu
Alþýðuflokksins að Hverfisgötu 8-10, s: 29244 frá 10 -16 alla virka
daga og á Suðurnesjum í síma 13966. Skráningu lýkur
þriðjudaginn 28. júní.
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík og Reykjanesi fara í sameigm-
lega sumarferð laugardaginn 2. júlí, og að þessu sinni er haldið
í austurátt.
FERÐ AÁÆTLUN:
1. Lagt af stað frá B.S.Í. kl. 9:30.
2. Komið við í Hveragerði kl. 10:30 og á Selfossi kl. 11:00. Þar
bætast í hópinn hressir félagar af Suðurlandi.
3. Ekið sem leið liggur í Þjórsárdal. Þar verður snætt nesti sem
hver og einn tekur með sér. Við skoðum þjóðveldisbæinn og
rústirnar að Stöng. Farið í sund (munið að taka með sundföt).
4. Eftir hressandi sundsprett höldum við upp á hálendið og
virkjanirnar við Hrauneyjarfoss og Sigöldu heimsóttar.
5. Haldið af stað til Hveragerðis þar sem gerður verður stuttur
stans og litast um undir leiðsögn heimamanna.