Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 24
24 MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. Menning SIMGREIÐSLUR Figuruverk „Maðurinn í forgrunni" að Kjarvalsstóðum En það sem skiptir hér meira máli er að í mörgum þeirra er „maðurinn" langt frá þvi að vera „í forgrunni" heldur er hann not- aöur til uppfyllingar eða eins og hvert annað afstrakt form og hefur þarafleiðandi lítil sem engin áhrif á endanlega merkingu verkanna. Yfirsjónir í þeim flokki eru til dæmis bronsskúlptúrar Helga Gíslasonar, tréskúlptúr Sigrúnar Guðmunds- dóttur, málverk Kristins G. Harö- arsonar, myndir Ómars Skúlason- ar, klippimyndir Siguijóns Jó- hannssonar og málverk Steingríms Eyflörð. í annan staö virðist þekking aö- standenda á því tímabili, sem um ræðir, af svo skornum skammti að þeir láta sér sjást yfir marga lista- menn sem eiga allt sitt undir fíg- úratífri tjáningu. Hér verður maður tilfinnanlega var viö flarvist Einars Hákonar- sonar sem teljast verður einn af lykilmönnum í fígúratífri list hin síðari ár. Flogið hefur fyrir að Einar hafi ekki viljað taka þátt í sýningunni og hafi sá kvittur við rök aö styöj- ast hefði verið kurteisi af sýningar- nefnd að upplýsa sýningargesti um það. Ekki skil ég heldur hvernig hægt er að búa til mynd af fígúratífri myndhst á íslandi eftir 1960 án þess að geta um eða sýna hina drama- tísku myndröð Jóhannesar Geirs af jarðartor á Króknum frá 1963 eða nýrri stórmyndir hans af vega- vinnuverkamönnum. Það er víst tómt mál að tala um mannamyndir Baltasars; hann er persona non grata á Kjarvalsstöð- um, en hvað um málverk Margrét- ar Jónsdóttur, Grétars Reynisson- ar, Jóns Reykdal (sem heföu tekið sig vel út í námunda við verk Ei- ríks Smith...), Erlu Þórarinsdótt- ur, já, jafnvel málverk Bjarna Þór- arinssonar? Eða hausamyndir Páls Guðmundssonar frá Húsafelli? ... á hátindi ferils? Á einhverju stigi málsins hefur sýningarnefnd síðan tekið þá ákvöröun að hafa meö þá Kjarval, Scheving og Jóhann Briem vegna þess að „um miöjan 7. áratuginn voru þeir... á hátindi ferils síns sem fígúratífir listmálarar", eins og segir í aðfaraorðum Gunnars B. Kvaran. Nú vil ég leyfa mér aö efast um að þessi fullyröing eigi við rök að styðjast. Alltént ættu myndir þess- ara listamanna á sýningunni að styðja við hana - sem þær gera ekki - allra síst verk Kjarvals. Hvaöa tilgang hefur það svo að sýna í þessu samhengi myndir eftir Braga Ásgeirsson frá 1954 og 1958-59 eöa skúlptúr Ólafar Páls- dóttur, Son, frá 1955? Skyldi það vera til þess að tryggja sýningunni gott veður í stærsta dagblaöi landsmanna? Upphenging verka er svo alveg sérstakur kapítuli en þar viröist allt gert til að höggva á tengslin milli mynda, í stað þess aö leyfa þeim að njóta sín í eðlilegu sam- hengi. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson hafa gildar ástæður fyrir vali á akkúrat þessu stefi og tímabili. Val á listamönnunum þarf og að vera á hreinu frá byrjun. Sömuleiðis verða aðstandendur að ákveða hversu fígúratíf mynd- verkin þurfa að vera til að fá inni á sýningunni, hvort þeir listamenn, sem meðhöndla manninn eða lík- amsparta sem væru þeir óhlut- bundin form, eigi þar heima eður ei. Þegar kemur að framsetningu þarf að ákvarða hvort sýna eigi fram á tengsl við fortíðina, hvort leggja eigi áherslu á innbyrðis tengsl listamannanna eða sérkenni þeirra, og svo framvegis. Ógöngur En auövitað er líka hægt að spara sér alla þá hugarorku, sem í þetta fer, með því að grípa nokkur nær- tæk verk með margvíslega fígúra- tífu yfirbragði og láta síðan nagla og spotta ákvaröa bæði upphengi og samhengi. Þessa leið, eða ógöngur, virðast þeir hafa farið, staðarhaldarar að Kjarvalsstöðum, þegar þeir settu upp sýninguna „Maöurinn í for- grunni" sem átti að vera tromp staðarins á Listahátíð. Að minnsta kosti er ekki hægt að sjá heila brú í þessari sýningu, hvernig sem á hana er litið. Er ekki að sjá að menn hafi .lært neitt af þeim mistökum sem gerð voru við uppsetningu fyrri þema- sýninga að Kjarvalsstöðum heldur hafi þeir drifíð sig í að endurtaka þau öll og gott betur. í fyrsta lagi gera þeir ekki upp við sig hvemig þeir vilja túlka hug- takið „fígúratífur" sem hefur í för með sér að inn á sýninguna rata alls konar myndverk á fölskum forsendum - eða alls engum. í framhaldi af því má geta þess að nær flóröungur mynda á sýn- ingunni er gerður utan þess tíma- bils sem hér um ræðir, það er 1965-85. Helgi Þorgils - Hið eilifa ferðalag, olía, 1987. Ekki meir, ekki meir Formáli í sýningarskrá hefur á sér yfirbragð skólaritgerðar þar sem mál- og hugsanavillur ganga ljósum logum. Er til dæmis hægt að tala um að listamenn „yfirgefi tjáningu“ til að taka upp annars konar listsköpun? Ég hélt að eina leiöin til að „yfirgefa tjáningu“ væri að hætta listsköpun eða hrökkva upp af. Á grundvelli þessarar sýningar, svo og afstraktsýningarinnar í fyrra, verður að efast um að við núverandi aðstæður séu staöar- haldarar þess umkomnir að standa fyrir stórri úttekt á SÚM-hreyfing- unni á næsta ári. Látum Stein Steinarr hafa síöasta oröiö að þessu sinni: „Ekki meir, ekki meir.“ Þú hringir — við birtum og auglýsingin verður færð á Nú er hægt að hringja smáauglýsingar og ganga frá öllu í sama símtali. EUROCARO Við skipulagningu myndlistarsýn- mga, sem og í annars konar upp- fræðslu- og menningarstarfsemi, gildir sú þumalfingursregla að því víðari forsendur, sem menn gefa sér, þeim mun rýmri tíma þurfa þeir til að vinna úr þeim. Þaö er til dæmis tiltölulega auð- gert að setja saman sýningar á verkum einstakra listamanna þar sem æviferill þeirra færir skipu- leggjendum allar helstu forsendur upp í hendur. Ætli menn hins vegar að búa til sýningar í kringum ákveðin stef, „þernu" eða tímabil, verða þeir að gefa sér góðan tíma til að leggja niður fyrir sér markmið, leiðir og framsetningu. Ef markmiðiö er að setja saman sýningu um „Manninn í íslenskri myndlist, 1965-85“, þurfa menn að Sverrir Olafsson - Godiva, olia á stál, 1985. Hafið tilbúið: Nafn - heimilisfang - síma - nafnnúmer - kortnúmer og gildistíma og að sjálfsögðu texta auglýsingarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.