Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. DV Höfundar bókarinnar, þeir Magnús Jóhannsson læknir, Helgi Kristbjarnarson læknir og Bessi Gíslason lyfjafræó- ingur. DV mynd GVA íslenska lyfjabókin: Bráðnauðsynleg upplýsingagjöf Petidínklóríö Lyfjaverslun ríkisins________________N 02 Svona mynd er í upphafi umfjöllunar um hvert lyf. Á myndinni kemur fram nafn lyfs, við hvaða sjúkdómum það er notað, nafn framleiðanda og sölu- skilmálar. Út er komin ný útgáfa íslensku lyflabókarinnar, en fyrri útgáfan seldist í um 12 þúsund eintökum. Slíkar bækur hafa nokkra sérstöðu hér á landi þar sem þær eru eina leiðin sem lyfjanotendur hafa til að komast að verkan þeirra lyfja sem þeir neyta. Mjög hefur veriö vandaö tii upp- setningar bókarinnar og er hún mun aðgengilegri en fyrri bækur um sama efni. Þetta er gert með sérstæðum framsetningarmáta sem auðvelt er að setja sig inn í og skilja. í bókinni eru ýmsir sérkaflar með alls kyns upplýsingum, s.s. um bólu- setningar, aukaverkanir, aukefni o.fl. Einnig er í bókinni sérkafli um náttúrulyf, en um þau hefur skort raunsæja umfjöllun. Upplýsingamiðlun I bókinni má sjá nokkra viðhorfs- breytingu. Áður var viðhorf lækna- stéttarinnar gjarnan á þá leið að al- menning varðaði ekkert um verkan lyfja. Læknar og lyíjafræðingar væru til þess að meta slíkt. í bókinni má hins vegar sjá algera kúvendingu á þessu. Reynt er að ýta undir að fólk geti myndað sér sjálfstæða skoð- un á lyfjum og þá á grundvelh ítar- Neytendur legra upplýsinga. Reyndar hafa höf- undar eftir ónefndum lækni: „Þetta er einhver mesta vaiddreifing sem átt hefur sér stað í heilbrigðiskerfinu í seinni tíö.“ Bókin kostar kr. 1.960, en eigi menn fyrri útgáfu bókarinnar gefst þeim kostur á að skila henni og fá þessa á hálfvirði, eða kr. 980. -PLP Svona er ástandið hjá Olís í Álfheimum, nýir kústar og slöngur á stóru plani og nýmáluðu. Þegar DV var þar á ferð síðast var nýbúið að mála planið og hvorki kústar né slöngur úti enda þurfti málningin að þorna. DV-mynd S _________________________________Lífsstfll Upplýsingar um lyf: Seðlamir eru fjarlægðir úr lyfjaumbúðum - enginn veit hver ákvað það Upplýsingaseðlar eru ávailt tjar- lægðir.úr lyQaumbúðum hérlendis. í öðrum löndum er hins vegar skylt aö láta slíka seðla fylgja lyíjum. DV spurði Ólaf Ólafsson landlækni hvers vegna seðlar væru fjarlægðir úr lyfjaumbúöum hérlendis. „Eg hef mótmælt því að þetta sé gert. Þetta er ákvöröun sem ein- hver tók einhvem tímann og sjálf- sagt ómögulegt að komast að því hver það var.“ ; Ólafur sagði ennfremur að athug- anir hefðu sýnt að því meira sem sjúklingar vissu um eðh sjúkdóma og lyfja því betnr fylgdu þeir ábend- ingum lækna um lyfjameðferð. „Það er vandamál að fólk fylgir ekki ráöum lækna. Á þetta sérstak- lega við um eldra fólk sem er kannski ekki jafhvel upplýst ilm eðli sjúkdóma og yngra fólk.“ Ástæða þess að seðlar eru fjar- lægðir er því greinilega ekki.sú að vitneskja geti torveldað meðferð sjúklinga. DV spurði Ólaf hvort engin þekkt ástæða væri fyrir því að fjarlægja seölana: ,JV!eð hveiju lyfi, sem skráö er hér á landi, eru gefhar ábendingar og i sumum til\dkum geta verið frá- vik frá þeim ábendingum sem eru á erlenda seðlinum. Þetta er þó smáatriði." - Er það ekki á valdi landlæknis- embættísins að ráða shkum hlut- um? „Þetta er allt komið meira eða minna í samráð. Ég er margoft búinn að reyna að fá seðlana aftur inn í umbúðimar.-Það hefur bara ekki gengið. Við erum hins vegar ekki með einræöisfyrirkomulag á þessumhlutum." -PLP Landlæknir hefur margoft reynt að fá seólana setta aftur i umbúðirn- ar. í öörum löndum er skylt að láta slfka seðla fylgja lyfjum. Bílaþvottaplön: Ótrúleg skemmdar- fýsn - slæm umgengni stórvandamál Ótrúieg skemmdarfýsn ásamt hörmulegri umgengni eru helstu ástæðurnar fyrir slöku ástandi á bílaþvottaplönum borgarinnar. Menn víla ekki fyrir sér að skera slöngur og brjóta kústa og virðist eyðileggingarástríðan einráð. Sumir ganga meira að segja svo langt að hafa slöngurnar með sér heim til að nota í garðinum. Einnig er algengt að menn skeri sér bút til að sjúga upp bensín. Hár rekstrarkostnaður Samkvæmt upplýsingum ohufélag- anna er ekki svo lítið mál aö halda úti góöu bílaþvottaplani. Eitt þeirra, Ohs, hefur eytt á bilinu 600-700 þús- und krónum í kústa og slöngur þaö sem af er árinu. í sumum hverfum borgarinnar hefur þurft að grípa til þess ráðs að loka plönum á kvöldin og um helgar og setja inn slöngur og kústa. Ekkert fær að vera í friði fyr- ir skemmdarvörgum. Grein DV um ástand bílaþvotta- plana vakti verulega athygh. Daginn sem hún birtist var hringt frá nokkr- um bensínstöðvum í blaðið. Erindið var að tilkynna að búið væri að kippa því í lag sem var ábótavant. Þessa dagana er því ástandið óvenjugott á bílaþvottaplönunum. Spurningin er bara hvort það helst þannig áfram eða hvort sóðaskapur almennings og skemmdarfýsn færir ekki aht til fyrra horfs. Ástandið væri mun betra ef fólk gengi vel um plönin, tæki klemmumar ekki af, gerði upp slöng- ur og hengdi kústa á sinn stað. Það er hagur allra að aht sé í lagi. -PLP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.