Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 38
MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. afa kín- í Kóreu SMÁAUGLÝSINGAR DV MARKADSTORG TÆKIFÆRANNA Þú átt kost á aö kaupa og selja allt sem gengur kaupum og Sölum. Bara aö nefna þaö í smáauglýsingum DV, hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna. Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug- vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesiö. Einkamál. Já, paö er margt í gangi á markaöstorginu, en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins. Sumir borga meö fínpressuöum seölum. Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera. Gaetu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur. Smáauglýsingar DV eru markaður meö mikinn mátt. Þar er allt sneisafullt af taekifærum. Þaö er bara aö grípa þau. Þú hringir... 2 70 22 Viö birtum... Það ber árangurl HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG Sími12725 RAKARASTOFAN KLAPPARSTIG Simi 13010 IL HWA Ginsengte og -þykkni til forvarnalækninga (drykkir er auka athafnaþrótt) 1. Vinnur ginseng gegn of háum blóðþrýstingi? 2. Vinnur ginseng gegn vöðvabólgum? 3. Vinnur ginseng gegn of háu kólestroli í blóði? 4. Vinnur ginseng gegn liðagigt? 5. Vinnur ginseng gegn stressi? 6. Vinnur ginseng gegn þunglyndi? Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11. Oplð: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00 laugardaga, 9.00—14.00 sunnudaga, 18.00—22.00 Margt bendir til þess að svo sé. í 5000 ár hafa verskir læknar gefið ginseng við fjölda kyilla. er gestum gefið ginsengte svo þeim liði sem best hjá gestgjafanum. Dreifing LlJlinUtt, Skemmuvegi 6, Kópavogi Útsölustaðir: Hagkaup, heilsubúðir, apótek og nokkrar betri matvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu. I bV*J Frjáist.óháð dagblað ER SMÁAUGLÝSINGABLACHD Hvort sem sagan er skoðuð frá sjónarhóli alþýðunnar í gegnum munnmæli og minni eða lesin með augum fræðimannsins af blöðum annála, dómabóka og annarra heimilda rekum við okkur óhjá- kvæmilega endrum og sinnum á dæmi þess að menn hafa látið kjark og áræði til stórra verka ráða gjörðum sínum umfram vit - þeir hafi reynst meiri kjarkmenn en vitmenn. Við, sem horfum augum nútímamannsins á fimbulfamb áa vorra brosum gjarna góðlátlega út í annað og gefum þeim þær ein- kunnir sem okkur finnst við hæfi. Að sjálfsögðu skaðar það ekki löngu dauða menn þó að sagan felli sinn dóm en þó býður mér í grun að lifandi hafi þeir haft metnað til annarra eftirmæla en sagan gefur þeim - þó að þeir megi reyndar vel við það una að koma út brosinu á síðari alda mönnúm. Orkar tvímælis Þrátt fyrir það að nútímaþjóð- félagið geri sitt besta til að steypa sem flesta í sama mótið - gera alla jafnasnalega óg eins á svipinn, eins og strákurinn sagði um gestina forðum, eru sem betur fer ennþá til menn sem rísa upp úr og fremja gjörðir sem orka tvímælis - leggja það undir dóm sögunnar - eða sam- tíðarinnar í versta falli - hvort gjörðir þeirra mótast fremur af kjarki eða viti. Oftast nær rís ein- ungis stormur í vatnsglasi af gust- inum sem umrædd gjörð veldur, stundum gerist það að samtíðinni hnykkir við og hún setur snöggvast í brýnnar, örsjaldan setjumst við upp og spyijum okkur sjálf hvort þetta og þetta hafi nú verið nauð- synlegt, vitandi það þó innra meö okkur að sagan á eftir að dæma manninn og málefnið. Nú berast þau tíðindi af vettvangi skóla- og fræðslumála aö við stöldr- um við og setjum í brýnnar: Af- skipti ýmissa óskyldra aðila af skipan í æðstu stöðu við grunn- skóla einn veldur því aö nú spyrj- um við okkur sjálf hvort vegur þar meira, kjarkur eða vit. Og er málið reyndar allt með þeim hætti að hér hæfir hið fomkveöna: Mjög emmk tregt tölvu að hræra eður loftvætt langhundara. Þó get ég ekki stillt mig um að rekja - svona frá mínu persónulega sjónarmiði - þátt nokkurra einstaklinga í þessu máli þar sem spurningin um kjarkinn og vitið verður hvað áleitnust. Sameiginleg ábyrgð Það fer ekki á milli mála að vissu- lega ber öll þjóðin sameiginlega ábyrgð á uppeldi barnanna okkar. Kerfiö er sköpunarverk og sameign allra íslendinga og ber aö með- höndlast út frá því sjónarmiði. Samt höfðum við löngum haft viss- ar tilhneigingar til aö varpa ábyrgðinni á þann sem er „kjörinn til“ eða „hefur vit á“ þegar mál hafa komist í kreppu. Sem betur fer hefur þróun síðustu ára fært okkur svo langt í átt til raunverulegs lýð- ræðis að fólk tekur ekki lengur þegjandi við því sem þeir „kjömu“ eða „sem vitið hafa“ rétta aö þeim. Þó finnst manni kannski öðrum þræði að afskipti manna af ein- hverju séu bundin návist viðkom- andi viö þetta eitthvað. Það veldur því svo að maður verður næsta sperribrýnn og les með nokkurri furðu greinarstúf sem lektor nokk- ur sendir Morgunblaðinu til birt- ingar um svonefnt Ölduselsskóla- mál: Lektorinn er ekki starfsmaður skólans, á mér vitanlega ekki böm í skólanum, er ekki „kjörinn til“ eða neitt af því taginu. Blessaður lektorinn skyldi nú ekki „hafa vit á“? Við lestur greinar lektors Sig- KjaUariim Friðrik Guðni Þórleifsson kennari rúnar Klöru kemur reyndar í ljós að henni hefur einfaldlega runnið til rifja það sem henni finnst vond meðferð á kynsystur sinni og rís hún nú upp til að veija hana með því ráði sem hún kann best: að skrifa í blöðin. En tvennt rak ég augun í sem mér þótti óvarlega mælt í því skrifi: Sigrún Klara gef- ur það í skyn - hvemig sem hún nú hefur komist að þeirri niður- stöðu - að starfsfólk við Öldusels- skóla hafi verið beitt einhvers kon- ar þvingunum til að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við annan umsækjanda um skólastjórastöðu við téðan skóla. Ennfremur að ein- mitt sá umsækjandi, Daníel nokkur Gunnarsson, hafi misnotað að- stöðu sína sem stjórnarmaður í Félagi skólastjóra og yfirkennara til að koma á framfæri véfangi á rétti annars umsækjanda til að gegna skólastjórastööu! Kjarkmaður, Sigrún Klara. Reyndar verður að telja Sigrúnu Klöru það til tekna að í umræddri grein leiðir hún sterk rök að því að fullyrðingar þeirra félaga í stjórn skólastjóra- og yfirkennara- félagsins um hæpin réttindi Sjafn- ar Sigurbjörnsdóttur til skóla- stjórnar séu lítt á rökum reistar. Og bendir það til þess að þeir Kári Arnórsson og félagar hafi farið of- fari í stuðningi sínum við hinn umsækjandann. Hafi reyndar gleýmt þeirri sjálfsögðu reglu að í slíkum málum - og ekki síst í okk- ar viðkvæma frændsemis- og kunningsskaparþjóðfélagi - ber að sjálfsögðu að viðhafa ýtrustu var- kárni og fullyrða ekkert sem ekki stenst nákvæmustu athugun - jafn- vel dómsrannsókn! Kjarkmaður, Kári. Dómur birtur En hvað sem nú um þaö allt sam- an er að segja hefur hæstvirtur menntamálaráðherra birt sinn dóm og er sú niðurstaða byggð á áliti sérfræðinga, rétt eins og geð- bilun Jónasar forðum. Sérfræö- inga, sem reyndar eru „kjömir til“ og maður skyldi þá ætia að „hefðu vit á“. Niðurstaðan er sú, eins og alþjóð veit, að Sjöfn Sigurbjöms- dóttir skuli veröa skólastjóri í Ölduselsskóla. Og þá setjum við í brýnnar og veltum fyrir okkur þeirri háalvarlegu spumingu hveijum hinum kjöma fulltrúa á hinu háa Alþingi - og sem er um leið valinn til setu í háttvirtri ríkis- stjóm - ber að sýna trúnað. Er það hinn almenni kjósandi, sem treyst- ir umræddum fulltrúa til að ganga erinda sinna í landsstjórninni, eða er það flokkur samsærismanna um stjórn landsins? Með vísan til þess sem fyrr er sagt í þessari grein um að almúginn taki ekki lengur þegj- andi við því sem háttvirtir ráða- menn rétta að honum hygg ég að þeir sömu ráðamenn hljóti að hugsa sig um tvisvar, jafnvel þrisv- ar, áður en lagt er í að styggja hinn almenna kjósanda, ekki síst á hin- um síðustu og verstu tímum þegar fylgi rokkar ótæpilega á milli flokka og líf blessaðrar ríkisstjóm- arinnar - hjálpi henni Drottinn að deyja - er af sumum talið hanga á bláþræði og kosningar á þessu herrans ári sjálfsagðar í margra munni. Og hljótum við nú að spyija okkur sjálf hvort háttvirtur menntamálaráðherra hafi ekki með umræddri skipan móðgað svo mörg atkvæði í Seljahverfinu að fylgi flokksins og þar með þingsæti hans sjálfs sé í stórri hættu! Kjarkmaður, Birgir ísleifur. Þvert á væntingar En það er nú einu sinni svo með blessað kerfiö að þrátt fyrir sam- eiginlega ábyrgð okkar íslendinga á því, og væntanlega þá um leið hlýðni þess við vilja okkar, tekur það stundum upp á því að hegða sér undarlega, jafnvel þvert á væntingar fjöldans. Það er ekki að spyrja aö kerfinu, sagði ráðherr- ann forðum. Og nú hefur það ein- mitt gerst að kjömir fulltrúar fjöld- ans í kerfinu hafa í refskák stjóm- málanna gripið til peðsleiks sem veldur mörgum furðu og jafnvel gremju. Og er sá leikur varla til annars gerður en að koma í veg fyrir að sá vinsæli og ágæti skóla- maður, Daníel Gunnarsson, hljóti stöðu skólastjóra við Öldusels- skóla. Reyndar er varla við því að búast að kerfið treysti til ábyrgöar- starfa manni sem hefur ekki nema allan þorra samstarfsmanna og rúmlega níu tíundu foreldra bama í skólanum á bak við sig. Sussunei. En það er reyndar ekki það sem vekur mér mesta furðu heldur hitt að sú ágæta dugnaðar- og mann- kostakona, Sjöfn Sigurbjömsdótt- ir, skuli láta misnota sig svona hrapallega til að pólitískur vilji nokkurra einstaklinga í kerfinu nái fram að ganga - og ætli svo vænt- anlega að ganga sigri hrósandi til starfa í stofnun þar sem yfirgnæf- andi meirihluti aðstandenda er yfirlýstur stuðningsmaður hins umsækjandans! Kjarkmaður, Sjöfn Sigurbjöms- dóttir. Og ætli sé þá ekki mál til komið að nema staðar. Vonandi eigum við íslendingar eftir aö njóta um langa framtíð þeirra manna sem láta ekki skynsamlegt vit íþyngja sér en skemmta samtíö sinni og framtíð með kjarkmiklum viðbrögöum og ákvörðunum. Að vísu kann slíkt að valda nokkrum sviða en með tímanum lærum við aö brosa að fimbulfambi þeirra Kjarkmanna sem við eigum að samferðamönn- um. Friðrik Guðni Þórleifsson „Reyndar er varla viö því aö búast aö kerfið treysti til ábyrgöarstarfa manni sem hefur ekki nema allan þorra sam- starfsmanna og rúmlega níu tíundu foreldra bama í skólanum á bak við sig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.