Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1988, Blaðsíða 48
FRETT ASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið f hverri viku greiðast 5.000 krón- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn- Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 1988. Kosningaskjálfti á Suðuriandi? í grennd viö Selfoss og Eyrarbakka varð vart viö jaröskjálfta aðfaranótt sunnudagsins. Stærsti skjálftinn mældist tæpir 3 á Richter. .j* „Þaö var þegar klukkuna vantaði tíu mínútur í þrjú sem fólk varö vart við jaröskjálfta," sagöi Páll Halldórs- son hjá jarðeðlisdeild Veðurstofunn- ar. „Svo fundust einnig minni skjálft- ar bæöi fyrir og eftir þann tíma. Þaö hringdi til okkar fólk sem varð vart við einhvern titring. Eflaust hafa margir veriö vakandi á þessum tíma vegna forsetakosninganna. En það hreyfðist ekkert - þetta fannst bara. Fyrr um kvöldið mældust reyndar smáskjálftar við Kleifarvatn. En við vitum ekki hvort þarna er um eitt- hvert samspil að ræða. Þetta var bara lítilræöi,“ sagði Páll Halldórs- son. -ÓTT Hrinti afgreiðslu- stúlku niðurstiga „Viðskiptavinur" brást illa við er honum var meinaö að hringja úr síma innan við afgreiðsluborð í sölu- tumi viö Vesturgötu. Fyrir hádegi í gær kom maður í söluturninn að Vesturgötu 27. Af- greiðslustúlkunni þótti maðurinn undarlegur. Hún veitti honum leyfi til að nota salemið. Að því loknu vildi maöurinn fá að hringja. Tveir símar em í sölutuminum, annar fyr- ir framan afgreiðsluborðið og hinn fyrir innan. Afgreiðslustúlkan vildi að maöur- inn hringdi úr þeim síma sem ætlaö- ur er fyrir viðskiptavini. Maðurinn vildi það alls ekki og brást illa við. Hann réðst að stúlkunni, tók af henni lykla og hrinti henni niður stiga sem hggur í kjallara hússins. Stúlkan fékk heilahristing og skrámaðist nokkuð. Hún komst ekki út fyrr en hún hafði náð símasam- bandi við vinnufélaga sinn sem kom og opnaði fyrir henni. Magnús Geirsson, eigandi sölu- tumsins, segir aö hver sem '**geti gefið upplýsingar um hvaða maður réðst að afgreiðslustúlkuani fái 5.000 króna verðlaun. Skipta þurfti um skrár í öllu huröum þar sem ekki þótti treystandi á að hinn viðskotailli „viðskiptavinur“ mis- notaði ekki lyklavöld sín. _sme Hátún 10 í Reykjavík: Eldur kom upp í íbúð á áttundu hæð - einn íbúi var fluttur á síysadeild ■■ ; , ' : > Eldur varð laus í íbúð á áttundu hæð háhýsisins að Hátúni 10 í nótt. Einn íbúi var í íbúðinni. Hann komst út úr íbúðinni og kall- aði eftir aðstoð. Kona sem býr í næstu íbúð var flutt á slysa- deild. Slökkvistarf gekk vel. DV-mynd S Eldur kviknaöi í íbúð á áttundu hæö að Hátúni 10 í nótt. Einn íbúi var í íbúðinni. Honum tókst að komast fram og gera viðvart um eldinn. Slökkvilið og lögregla fengu boð um brunann klukkan rúmlega tvö í nótt. Slökkvilið kallaði þegar út aukavaktir. Slökkviliðsmenn notuðu vatns- slöngu á gangi hússins við slökkvi- starfið. Körfubíllinn var reistur við húsið en ekki kom til þess að hann væri notaöur. Slökkvistarfið gekk mjög vel og tók skamman tíma. Skemmdir á íbúðinni voru tölu- verðar og eins komst reykur á ganga hússins. Kona sem býr í næstu íbúö var flutt á slysadeild. Ekki þótti víst hvort hún hefði orð- ið fyrir reykeitrun. Við skoöun kom i Ijós að svo var ekki. Háhýsi Öryrkjabandalagsins og Sjálfsbjargar við Hátún eru ekki nema aö litlum hluta til í beinni tengingu við slökkvistöðina. Margt fatlaö fólk býr í húsunum. -sme 100 þúsund laxa- seiði drápust Um 100 þúsund laxaseiði drápust nýlega í tveimur kerjum hjá íslands- laxi við Grindavík. Ekki var um sjúk- dóm að ræða, að sögn Sigurðar Frið- rikssonar, framkvæmdastjóra stöðv- arinnar, heldur er talið að of mörg seiði hafi verið í kerunum. „Það stóð ekki til að flytja seiðin út þannig að þama er ekki um mikið tjón að ræða. Þetta voru lélegustu seiðin í stöðinni og hluti þeirra var kynþroska hængur sem er mjög verðlítill. Til lengri tíma litið er þetta undir eðlilegum affóllum. Ætlunin var hins vegar að eiga þessi seiði sem eins konar varasjóð ef til þess kæmi að okkur vantaði seiði fyrir okkar eigið fiskeldi," segir Sigurður. Að sögn Sigurðar drápust seiðin ekki öll í einu heldur gerðist þetta á töluverðum tíma. „Við hefðum átt að vera búnir að grisja í kerunum." -JGH Hótel Öik og Hveragerðisbær: Tíu milljónir felldar Bæjarstjórn Hveragerðis og Helgi Þór Jónsson, eigandi Hótel Arkar, eiga nú í samningaviðræðum. Haf- steinn Kristinsson, forseti bæjar- stjómar, segir að til standi að bjóða Helga Þór að greiði hann helming skulda við bæjarsjóð fyrir 1. sept- ember næstkomandi þá falli hinn helmingurinn niður. Skuldir Helga Þórs, við bæjarsjóð- inn, er um 25 milljónir króna. mður? „Hann hefur aldrei fengiö neina fyrirgreiðslu frá okkur. Honum var lofað fyrirgreiðslu í upphafi og því þykir ástæða að ræða málin á þess- um nótum," sagði Hafsteinn Krist- insson. Helmingur af skuldum Helga Þórs er nærri 15 prósentum af áætluðum heildartekjum bæjarsjóðs á þessu ári. -sme LOKI Svona skuldaviðskiptum hef- ur maður lengi beðið eftir. Veðrið á moigun: Hæg suðvestan- átt Hæg suðvestan- eða breytileg átt. Skýjað suðvestantil og smá- skúrir á stöku staö en bjartviðri um landið austan- og norðanvert. Hiti 8 til 10 stig suðvestanlands og á Vestfjörðum en 12 til 18 stig í öðrum landshlutum. Húsavík: Óká brúarstólpa Bíl var ekið á brúarstólpa við Mýr- arkvísl, skammt sunnan við Húsavík í gær. Tveir voru í bílnum sem hent- ist þversum yfir brúna. Ökumaður- inn öklabrotnaði en farþeginn slapp með skrámur. Bíllinn er mikið skemmdur. Aö sögn lögreglunnar á Húsavík er líklegt að bílbeltin hafi forðað stórslysi. í gærmorgun velti drukkinn öku- maður bíl á Húsavík. Hann var að aka eftir Þverholti þegar hann missti stjórn á bílnum. Ökumanninn, sem var einn í bílnum, sakaði ekki. Bíll- inn skemmdist töluvert. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.