Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
5
Fréttir
Heimsókn Vigdísar til Vestur-Þýskalands
Verður æ Ijósara mikilvægi
heimsókna sem þessarar
Forseti íslands, trú Vigdís Finnbogadóttir, skoöar hér forláta slaghörpu
á tónlistarrannsóknasafninu í Berlín, en það er líka hljóöfærasafn. Utan-
ríkisráðherra, Steingrímur Hermannsson, og börnin skoðuðu líka af at-
hygli. DV-mynd HV
„í mínum huga ber það einna hæst
að hafa hitt dr. von Weizceker og
eiginkonu hans, frú Marienne.
Þjóðverjar eru lánsamir að eiga
hann að forseta og Evrópa er lán-
söm að hafa slíkan mann meðal
leiðtoga sinna,“ sagði forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, í við-
tali við DV í gær.
Heimsók forseta íslands til Ber-
línar lauk í gær og hélt frú Vigdís
þá flugleiðis til Frankfurt.
„Dr. von Weizceker blandar sér
sjaldan í stjórnmálaumræður
hinna ýmsu flokka,“ sagði Vigdís
ennfremur í gær „en hagar frekar
málum sínum þannig að hann fær
fólk til að íhuga það sem við blasir.
Hann er í senn víðsýnn og vitur
maður sem minnir á samhengi sög-
unnar og þann arf þjóðar sem við
viljum ekki að falli í skuggann í
kappræðum liðandi stundar. Rödd
hans heyrist um alla Evrópu og þar
með um hinn víða heim, því öll
getum við verið ásátt um að þjóð-
menningin liggur til grundvallar
öllum stjórnmálum, atvinnuvegum
og hverju því sem við tökum okkur
fyrir hendur.
í samræðum við dr. von Weiz-
ceker ber þessi mál alltaf á góma.
Þá einnig þá spurningu sem veröur
æ áleitnari þegar Efnahagsbanda-
lag Evrópu er að verða að veruleika
innan tíðar, hvemig leggja eigi
áherslu á að viöhalda menningar-
legum sérkennum svo Evrópa
verði jafnmargbreytileg og fyrr. í
þeim efnum sýnist mér að við dr.
von Weizceker séum nokkuð sam-
mála og í umræðum sem verða í
Hamborg á laugardaginn hef ég
fullan hug á að koma mínum við-
horfum þar að lútandi til skila.“
Forseti sagðist telja að ferð þessi
til Vestur-Þýskalands hefði veriö
mjög árangursrík til þessa.
Heimsóknir sem þessi mikil-
vægar
„Heimsóknir af þessu tagi eru
afar mikilvægar," sagði Vigdís, „og
mér verður ljósara með hverjum
degi sem líður hversu mikilvægar
þær eru. Þar sem forsetaembætti
okkar er ekki stjómmálalegt er það
í mínum verkahring að kynna
málefni og viðhorf íslensku þjóðar-
innar frá eilítið öðrum sjónarhóh
en stjórnmálamenn. Ég tel mig
fylgjast grannt með áhugamálum
og sjónarmiðum íslensku þjóðar-
innar og get þvi væntanlega rætt
ýmis málefni á breiðum grund-
velli. Utanríkisráðherra okkar ís-
lendinga er alltaf með forseta í op-
inberum ferðum erlendis og hann
ræðir viö starfsbræður sína um
stjórnmálaviðhorf og hagsmuna-
mál. Með þessu móti næst ágætt
jafnvægi.
í þessari ferð til dæmis höfum við
hitt ipjög áhrifa- og valdamikla að-
ila og þaö er áríðandi að geta kynnt
þeim viðhorf okkar íslendinga frá
mörgum sjónarhornum. Meö því
er ef til vill hægt aö ljúka upp gátt-
um sem elia væru luktar. Það er í
tengslum við opinberar heimsókn-
ir forseta sem utanríkisráðherrar
viðkomandi landa hittast í tveggja
þjóða tali, umfram fundi þar sem
fleiri þjóðir koma saman.
Á fundinum með Kohl var eink-
um rætt um málefni sem tengjast
Evrópubandalaginu og stöðu okkar
gagnvart því. Þau mál eru auðvitað
rædd á öllum fundum hér en mest
þó við Kohl, kanslara Vestur-
Þýskalands, enda ærin ástæða til.“
í þessari ferð hefur fæðst sú hug-
mynd hvort ekki væri snjallt að
setja á stofn íslenska menningar-
miðstöð í Vestur-Þýskalandi. Að-
spurð sagði Vigdís forseti: „Dr. von
Weizceker drap á þetta mál í ræðu
sinni í hátíöarkvöldveröi. Mér vit-
anlega hefur það ekki verið rætt
heima en það er vissulega verðugt
til íhugunar. Við getum aldrei of
víða látiö til okkar heyra."
Fleiri konur í áhrifastöðum
Á ferð þessari um Vestur-Þýska-
land hefur Vigdís forseti hitt fyrir
margar áhrifakonur. Nægir þar að
minna á dr. Irmgard Adam-
Schwatzer aðstoðarutanrikisráð-
herra og dr. Hanna-Renate Lauri-
en, aðstoðarborgarstjóra í Berlín.
Aðspurð hvort henni þætti konum
fara fjölgandi í slíkum stöðum
svaraði forseti: „Já, þær verða
greinilega æ fleiri eftir því sem árin
líða. Þær eru miklu fleiri nú en upp
úr 1980 þegar ég fór í mínar fyrstu
opinberu ferðir sem forseti ís-
lands.“
SDMARÞRENNNAN
SKÍFAN KYNNIR ÍSLENSKU SUMARSKÍFURNAR
BJARNI ARASON - ÞESSI EINI ÞARNA
INNIHELDUR M.A. ÞAÐ STENDUR EKKIÁ MÉR,
UNDIR TUNGUNNAR RÓT, í AÐGÉRÐ 0G Á HVERJUM DEGI.
MANNAKORN - BRÆÐRABANDALAGIÐ
INNIHELDUR M.A. EKKI DAUÐUR ENN, VÍMAN,
ÉG ELSKA ÞIG ENN 0G BRÆÐRABANDALAGIÐ.
KÁTIR PILTAR - EINSTÆÐAR MÆÐUR
INNIHELDUR M.A. FEITAR KONUR, Á FJÖLLUM,
HINUMEGIN 0G (ARE YOU) BITTER (IN MY GARDEN).
NÝJAR ERLENDAR SUMARSKÍFUR
MORE DIRTY DANCING - ÚR KVIKMYND
THOMAS DOLBY - ALIENS ATE MY BUICK
BOBBY McFERRIN - SPONTANEOUS INVENTIONS
CLIMIE FISHER - EVERYTHING
TINA TURNER - LIVE IN EUROPE
ERIC CLAPTON - CROSSROADS
ASWAD - DISTANT THUNDER
HARRY BELAFONTE - PARADISE IN GAZANKULU
SCORPIONS - SAVAGE AMUSEMENT
THE CHRISTIANS - THE CRISTIANS
HOT HOUSE FLOWERS - PEOPLE
TAYLOR DANE - TELL IT TO MY HEART
IRON MAIDEN - SEVENTH SON OF...
CHUCK BERRY - HAIL! HAIL! ROCK 8 ROLL
SMOKEY ROBINSON - ONE HEARTBEAT
LEONARD COHEN - l'M YOUR MAN
SGT. PEPPER KNEW MY FATHER
NATALIE COLE - EVERLASTING
S-K-l-F-A-N
KRINGLUNNI • BORGARTUNI • LAUGAVEGI
PÚSTKRÖFUSfMI
SKÍFIHAR ER 680685
OPINN ALLAN SÓLARHRINGINN!
SKÍFAN - EITTHVAÐ FYRIR ALLA