Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988. 7 dv Viðtalið Fréttir Tekjuskatturínn 20 pró- sent fram úr fjáriögum Þurfti forsetaleyfi fyrir grftingu 'v . ....... .. : j Nafn: Garðar Ingvarsson Aldur: 51 ár Starf: Framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu iðnað- arráðuneytisins og Lands- virkjunar , JÉg er fæddur á ísafirði en þeg- ar ég var tveggja ára flutti ég tíl Reykjavíkur en bjó næstu fimm árin bæði í Reykjavík og Vest- mannaeyjum og sóttí skóia á báö- um stöðum. Þegar ég varð 7 ára var ég alkominn til Reykjavíkur. Eftír skólaskylduna fór ég í Verslunarskólann, sem þá var 6 ára nám, og varð stúdent þaðan árið 1957. Sama ár giftist ég og þurftí forsetaleyfi fyrir gifting- unni þar eð ég var svo ungur þá. Löglegur giftingaraldur á þeim tíma var 21 ár. Kona mín heitir Unnur Kjartansdóttir og við eig- um fjögur böm saman á aldrin- um 30-12 ára. Þau heita Karen, Sigríður Anna, Ingvar og Ingi- björg Elísabet. Eftír aö ég varð stúdent vann ég í tvö ár við end- urskoöun til að safna fyrir fram- haldsnámi. í árslok 1959 fór ég síöan til Þýskalands og stundaði þar nám í hagfræði viö þrjá há- skóla, í Marburg, Vestur- Berlín og KÖln. Ég útskrifaðist árið 1966. Á sumrin skrapg ég alltaf heim á vertíð á íslandi. Ég náði því meira að segja einu sinni að verða aíla- kóngur með Svaninum. Eftír að ég kom til íslands fór ég aö starfa í Seðlabankanum og hef gegnt margvíslegum störfum þar,“ sagði Garðar. Óendanleg áhugamál Áhugamálin hjá mér eru hreint óendanleg og langt mál aö telja þau öll upp. Ég hef unnið mikið við kennslu og kennslumál og því má sœja að það sé áhugamál híá mér. Eg hef einnig mikinn áhuga á sagnfræði og hef sankaö aö mér miklum fjölda bóka til aö lesa í ellinni. íþróttir eru í uppáhaldi hjá mér, hef stundaö badminton í yfir tuttugu ár, er mikið á skíö- um í Bláfjöllum og hef starfaö mikið við skíðadeild Ármanns. Ég var í stjóm skátafélagsins Dalbúa, hef stímdað mikiö fjaiia- ferðir og fair fjallvegir sem ég hef ekki farið. Ég var einnig í stjóm Feröafélags Islands. Veiöi hef ég einnig nokkuö stundað, lax og einkanlega silung. Einnig hef ég talsverðan tónhstaráhuga. Framundan hjá mér er nýja starfiö þar sem ég mun einbeita mér fyrst í stað að því aö veita starfshópum um stækkun álvers faglega aöstoð við vinnu að samn- ingum um nýtt álver 1 Straum- svík. Ég hef reyndar verið ritari starfshóps um stækkun álvers frá 1983 og starfaö að stóriöjumálum frá 1971 svo ég er orðinn vel kunnugur þeim málum,“ sagöi Garöar Ingvarsson að lokum. Ríkissjóður innheimtir á þessu ári 4,2 milijörðum meira í skatta en ráð- gert var samkvæmt fjárlögum. Þetta jafngildir 7,1 prósenti í aukna skatt- heimtu. Mest munar um rúmlega fimmtungs hærri innheimtu á bein- um sköttum. í ár er áætlað að inn- heimtir verði 1,7 milljarðar umfram það sem gert var ráð fyrir í fjárlög- um. Óbeinir skattar verða 2,5 mill- jörðum hærri en ráðgert var. Þaö jafngildir 5 prósent aukningu. Þetta kemur fram í endurskoðaðri áætlim um afkomu ríkissjóðs sem Jón Baldvin Hannibalsson fjármála- ráðherra hefur lagt fyrir ríkisstjórn. Tekjur ríkissjóðs hækka þó ekki sem Staðgreiðslukerfið: Kemur upp um skattsvikara Starfsmenn skattrannsóknarstjóra fylgjast nú grannt með innheimtu ríkissjóðs á tekjuskattí einstaklinga og fyrirtækja. Ástæðan er sú að með staögreiðslukerfmu hafa borist skattgreiðslur frá mönnum sem lítið eða ekkert hefur áður borið á áður á listum frá innheimtumönnum ríkis- sjóðs. Skattrannsóknarmenn hafa því unnið aö því aö bera saman nafna- lista fyrri ára við lista yfir þá sem greiða staðgreidda skatta. Þeir sem hafa tekiö óeðlilegt stökk í nýja kerf- inu mega því búast við að lenda und- ir smásjá skattrannsóknarstjóra. -gse Kaupmannahafnarháskóli: íslenskur heiðursdoktor Gizur Helgason, DV, Reersnaes: Nú hafa fiórir einstaklingar verið útnefndir tÚ þess að hljóta heiðurs- doktorsnafnbót við háskólann í Kaupmannahöfn í haust. Tveir verða útnefndir heiðursdoktorar í raun- vísindum, einn í lögum og einn í læknavísindum. Samkvæmt upplýsingum Berl- ingske Tidende í gær er einn fiór- menninganna stærðfræðingurinn Sigurður Helgason prófessor. Hann lagði stund á framhaldsnám við há- skólann í Kaupmannahöfn með frá- bærum árangri. Hlaut hann meðal annars gullverðlaun fyrir frammi- stöðu sína. Sigurður Helgason er prófessor við Massachusetts Institute of Techno- logy í Bandaríkjunum. Hinir þrír eru Urs Leupold, próf- essor í líffræði, Svíinn Bertil Bengt- son, prófessor í borgararétti, og Dan- inn Halvdan Mahler, fyrrverandi forstjóri hjá Alþjóða heilbrigðis- málastofnuninni. Auglýsingaskittin: „Nu, var því ekki stolið?“ „Nú, var því ekki stolið. Ég vissi ekki af þessu,“ sagði Anna Samúels- dóttír, starfssúlka á Sól saloon. Sól saloon á eitt þeirra skilta sem gatna- málastjóri Reykjavíkur lét fiarlægja af gangstéttum í miðborginni. Anna sagðist ekki vita til þess að þeir sem lögðu hald á skiltið hefðu látið vita hvað varð af því. -sme nemur skattahækkuninni því aðrar tekjur ríkisins lækka frá fiárlögum um 500 milljónir. Samkvæmt þessari áætiun verður skattheimta ríkissjóðs í ár um 25,5 prósent af landsframleiðslunni eins og hún er áætluð í þjóðhagsspá. Heildartekjur ríkisins eru hins vegar um 27 prósent af landsframleiðsl- unni. Þetta er mun hærra hlutfall en undanfarin ár og hærra en greint var frá í frumvarpi til fiárlaga. Það er álit sérfræðinga fiármála- ráðuneytisins að skattbyrði einstakl- inga muni ekki þyngjast þótt tekju- skattur þeirra verði nú 20 prósentum hærri en ráðgert var í fiárlögum. Sérfræðingarnir segja hana þá sömu og í fiárlögunum og ívið minni ef eitt- hvað sé. Samkvæmt upplýsingum fiármála- ráðuneytisins er gert ráð fyrir að skattbyrði einstaklinga af tekjuskatti verði um 3,3 prósent af heildartekj- um. í þessu dæmi er fundið hlutfall tekjuskatts af heildartekjum ein- staklinga samkvæmt spá. Þetta hlut- fall var í fyrra 2,7 prósent. Sérstök ástæða liggur að baki því þar sem við ákvörðun skattprósentu var ekki gert ráð fyrir eins miklu launaskriði og raun varð á. Á árinu 1986 var þetta hlutfall 3,9 prósent, 1985 3,0 prósent og 1984 4,0 prósent. Þegar litið er til óbeinu skattanna kemur í ljós að í ár er áætlað að inn- heimta 32 milljarða í söluskatti. Það er 1,6 milljörðum meira en ráðgert var í fiárlagafrumvarpinu. Hins veg- ar er það 11,7 milljöröum, eða 58 pró- sentum, meira en í fyrra. Á sama tíma er ekki gert ráð fyrir nema um 28 prósenta hækkun verðlags og þá hækkun má aö hluta til rekja til sölu- skattsins. Eftir sem áður hafa tekjur ríkissjóðs af söluskattinum hækkað um rúm 23 prósent frá því í fyrra. Þaö er að hluta til skýringin á því hversu mikið tekjur ríkissjóðs hækka miðað við landsframleiðslu. -gse á Suðuríandi: UUendingar undrandi og skilja ekkert Núraerinu heftír verið breytt. Upplýsingar er að finna í simaskrá. Eitthvað á þessa leið hljóða skila- boö til þeirra sem hringja í gömlu símanúmerin á Suöurlandi. „Erlent fólk skilur ekkert i þessu. Þegar hringt er í gamla númerið þá heyrist rödd á símsvara, sem talar einungis íslensku, og tilkynn- ir að númerinu hafi verið breytt og upplýsingar sé að fá í síma- skrá,“ sagöi Helgi Þór Jónsson, eig- andi Hótel Arkar. Helgi Þór sagöi aö margir af sín- um erlendu viðskiptavinum hefðu reynt langtimum saman að ná símasambandi en án árangurs. „Þetta stórskaðar fyrirtæki sem hafa mikil samskipti viö útlönd. Fólk er búiö aö reyna aö hringja itrekað eri fær ekki önnur svör en að númerinu hafi verið breytt Og þetta er einungis tilkynnt á ís- lensku," sagði Helgi Þór. Ólafur Tómasson, póst- og sima- málastjóri, sagöi að hann þakkaði þessa ábendingu. í máli hans kora fram að þessum möguleika hefðu menn hreinlega ekki áttaö sig á. Ólafur sagði aö þessu yrði breytt og skilaboðin líka lesin á ensku. -sme ÞVOTTAVÉLAR Á FRÁBÆRU VERÐI KR. 24.600 STGR. 5 KG • HEITT OG KALT VATN • 14 PRÓGRÖMM • 500 SNÚN- INGAR • TVÖ SPARNAÐARKERFI • ÍSLENSKUR LEIÐARVÍSIR SENDUM í PÓSTKRÖFU UMBOÐSMENN UM LAND ALLT. SKIPHOLTI 7, SIMAR 20080 OG 26800.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.