Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
Útlönd
Uppboð í Moskvu
Uppboðsfyrirtækið Sotheby’s hélt í gær uppboð f Moskvu og fékkst
metverð fyrir sovéskt avant-garde verk. Símamyixt Reuter
Rússneskt avant-garde verk, sem af sérfræðingum var metið á allt að
200 þúsund dollara, seldist í gær fyrir þrefalda þá upphæð á listaverkaupp-
boði í Moskvu. Um var að ræða fyrsta alþjóðlega uppboð Sotheby’s í
Sovétríkjunum. Verkiö, sem seldist fyrir metverð, er olíumálverk eftir
Alexander Rodchenko, málaö 1920.
Samtais seldust 119 myndir á uppboöinu, þar á meöal 19 avant-garde
verk frá árunum 1920 til 1940. Hin voru eftir sovéska nútímamálara.
Hundruö sovéskra borgara voru viöstaddir uppboöiö en allir þeir sem
tóku þátt í uppboöinu virtust vera Vesturlandabúar.
Útgöngubann í Jerevan
Sovésk yfirvöld hafa sett út-
göngubann í Jerevan í Armeníu
eftir klukkan 22 á kvöldin f kjölfar
róstanna sem þar hafa orðið und-
anfarið. Tuttugu og tveggja ára
gamall maöur var skotinn til bana
í óeirðum þar á þriöjudag.
Útgöngubanniö hefur rikt frá því
á miðvikudagskvöld er brynvaröir
íbúum Jerevan í Armenfu er nú sovéskir bflar óku inn í borgina.
mefnað að vera úti við efffr klukkan Allt athafhalíf þar hefur vérið lam-
22 á kvöldin. Sfmamynd Reuter að vegna allsheijarverkfaUs sem
staðiö hefúr yfir fráþvfá mánudag.
Rósturnar hófúst á þriðjudag er unglingar réöust inn á flugvöU borgar-
innar og komu I veg fyrir að flugvélar gætu lent eða hafið sig á loft.
Hungurdauði í Víetnam
Tuttugu og einn Vietnami hefur látist úr hungri í norðurhluta lands-
ins, að því er segir í málgagni kommúnistaflokks landsins. Hungur er
sagt hxjá tíu miUjónir manna í noröurhéruðunum. Hjá fjórum miUjónum
er ástandið sagt alvarlegt
Embættísmeim segja að uppskerubrestur sé ein af orsökum hungurs-
neyðarinnar í Víetnam. Yfirvöld þar í landi fóru í apríl síðastliðnum fram
á aðstoð frá erlendum ríkjurn.
íbúar Víetnam eru 64 miUjónir og fiölgar þeim ört. Samkvæmt tölfræði-
legum uppiýsingum minnkar aUtaf sú fæða er hver og einn hefúr yfir
að ráða.
Reuter
Sovéska geimferjan sem nú er á
leið til Mars. Simamynd Reuter
Sovéskri geimferju var skotið á
loft S gær til reikistjömunnar Mars
og á geimfeijan að lenda á einu af
tunglum hennar. Er þaö liöur í
áætlun um aö senda mannað geim-
far tíl reikistjömunnar.
Ekki er þó gert ráð fyrir aö úr
því verði fyrr en snemma á næstu
öld þar sem enn er of lítiö vitaö um
reiMstjörmma. Kanna þarf yfir-
borð hennar og teikna kort af því
til þess að hægt verði að velja lend-
ingarstaö. Einnig þarf að gera
kannanir á loftslagi og jarðvegi og
reyna að finna út hvort taka þurfi
með súrefúi frá jöröu.
Neyðarfundur í Burma
Yfirvöld í Burma hafa boðaö
neyðarfund vegna blóðugra óeirða
sem efiit hefur veriö til undanfarið
i landinu. Reyna á að komast aö
samkomulagi um efnahagslegar
umbætur og endurskipulagningu á
flokknum.
Tilkynnt var í útvarpinu í Ran-
goon í gær að láta ættí lausa þá
þijú hundmð og níutíu sem hand-
teknir voru i sambandi við rósturn-
ar í nokkrum borgum í mars síðast-
liðnum. Aö minnsta kostí tvö
hundruð manns létu Jífið í óeirðun-
um, aö sögn vestrænna sijómarer-
indreka sem uröu vegna reiði
manna yfir versnandi lífsgæöum
og hörðum aðgerðum stjómarinn-
ar gegn öllum andstæðingum
hennar.
/ |) Bumia
I Rangoon
Bengal-
flói
í Burma á nú að funda um hvemig
bæta megi efnahagsástand lands-
ins en það hefur orðið tilefni blóð-
ugra óeiröa.
Mesta olíuslys
á Norðursjó
Rúmlega 165 manns eru nú taldir af
eftir að gífurlega öflug sprenging
varð á olíuborpallinum Piper Alpha
í Norðursjó aðfaranótt fimmtudags.
Pallurinn var um 190 kílómetra frá
ströndum Skotlands og var nær-
stöddum olíuborpöllum lokað í kjöl-
far slyssins. Orsök sprengingarinnar
er talin vera gasleki í þéttirými palls-
ins.
Þetta slys er talið vera mesta olíu-
slys sögunnar síðan ohuleit hófst í
Norðursjó á sjöunda áratugnum.
Alls voru 232 menn á pallinum þegar
sprengingin átti sér staö. Snemma í
morgun höfðu sautján lík fundist og
67 mönnum haíði verið bjargað. Ólík-
legt er talið að mennirnir eitt hundr-
að sextíu og fimm sem enn er saknað
séu á lífi.
Margir hinna slösuðu hlutu slæm
brunasár á palhnum sjálfum og aðrir
slösuðust illa þegar þeir reyndu, í
örvæntingarfullri tilraun til að
bjarga sjálfum sér, að stökkva niður
af honum í ólgandi sjóinn. Ekki liíðu
ailir falhð af.
Flestir starfsmenn pallsins voru
breskir en einnig voru tveir Banda-
ríkjamenn, tveir Kandamenn, einn
Frakki, Suður-Afríkumaður, V-Þjóð-
verji, Spánverji og Portúgali á pallin-
um þegar sprengingin varð.
Að sögn talsmanna Occidental ol-
íufyrirtækisins í Bandaríkjunum,
sem eiga pallinn, er talið að orsakar
sprengingarinnar sé að leita í gasleka
í þéttirými olíuborpallsins en form-
legrar niðurstöðu er ekki að vænta
fyrr en að nokkrum mánuðum hðn-
um. Talið er að sprengingin hafi átt
sér stað nálægt vistarverum starfs-
manna en margir þeirra voru í fasta-
svefni þegar slysið varð.
Þetta er í annað sinn á fjórum árum
í forgrunni myndarinnar sést olíuborpallurinn í Ijósum logum en i baksýn
má sjá björgunarskipið Tharos. Símamynd Reuter
sem sprenging á sér stað á þessum Alls hafa hátt í þijú hundruð
olíuborpalli en árið 1985 slösuðust 55 manns látið lífið síðan olíuleit og ol-
manns í sprengingu. Orsök þeirrar íuvinnsla hófst í Norðursjó á sjöunda
sprengingar eru ekki kunnar. áratugnum. Reuter
Tvær sprengjur
springa á íriandi
Þrír, þar af kona á sextugsaldri
og breskur hermaður, létu lífið og
fjórir slösuðust þegar tvær sprengj-
ur sprungu fyrir utan sundlaug í
kaþólska hluta Belfast á írlandi í
gær. Sprengjumar sprungu með
innan við klukkustundar millibili.
Fjöldi bama var í lauginni þegar
sprengjurnar spmngu.
Fyrri sprengjan sprengdi gat á
vegginn á sundlauginni, en sú síð-
ari sprakk fyrir utan laugina. Tahð
er að sprengjunni hafi verið beint
að lögreglu og breskum hermönn-
um á svæðinu.
Enginn hefur lýst ábyrgðinni á
tilræðinu á hendur sér.
Reuter
Þakið hrandi vegna
mikilla rigninga
Óttast er aö átta manns hafi látið
lífið og 41 slasast þegar þak á stór-
verslun í smábænum Brownsville í
Texas hmndi. Um 150 viðskiptavinir
verslunarinnar lokuðust inni þegar
þakið hmndi og lögreglan óttaðist
Óttast er um afdrif vióskiptavina verslunar f Texas i Bandaríkjunum eftir
aó þak verslunarinnar hrundi í kjölfar mikilla rigninga þar í gær.
Símamynd Reuter
aö tala látinna ætti eftir að hækka.
Ástæöan fyrir hruni þaksins er tal-
in vera miklar rigningar sem voru í
þessum smábæ nálægt landamærum
Mexíkó. Margir íbúar bæjarins leit-
uðu í skjól inni í versluninni þegar
rigningamar hófust.
Dean Poos, lögregluforingi í
Brownsville, sagði fréttamönnum,
nokkmm klukkustundum eftir að
slysið varð, að ólíklegt væri tahð að
einhveijir væru enn á lífi inni í
rústunum. Hann sagöi einnig aö ótt-
ast væri að fleiri lík fyndust á stétt-
inni fyrir utan verslunina.
Að sögn sjónarvotta sprungu vegg-
ir verslunarinnar þegar þakið
hrandi. Rigningar hömluðu mjög
björgunarstarfi.
Reuter