Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Side 9
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
9
UtLönd
Heilbric|ðismálaráðherra Frakklands, Leon Schwartzenberg, neyddist í gær
til að segja af sér. Simamynd Reuter
Ráðherra neyddist
til að segja af sér
Herða sóknina
gegn írökum
Bandariski fáninn rekinn í gegn í mótmælaskyni við árásina á írönsku
farþegaþotuna. Simamynd Reuter
Bjami Hinriksson, DV, Bordeaux:
Leon Schwartzenberg, heilbrigöis-
málaráðherra Frakklands, sagöi af
sér embætti í gær eftir aðeins nokk-
urra daga setu. Þar með lýkur því
kreppuástandi sem ríkt hefur í ríkis-
stjóminni frá því fyrr i vikunni.
Michel Rocard forsætisráðherra
hefur tekið í taumana, brugðist við
atburöum sem gefiö hafa stjórnar-
andstöðunni góð skotfæri.
Brottfor Schwartzenberg úr rikis-
stjóminni er áfall fyrir þá stefnu
Rocards að fá ópólitískum sérfræð-
ingum embætti og völd í stjóminni.
Schwartzenberg er læknir og
krabbameinssérfræðingur.
Fyrmefnd kreppa hófst með yfir-
lýsingum Arpaillange dómsmálaráð-
herra sem tekið hafði þá ákvörðun
að hætta skyldi einangrun pólitískra
fanga í frönskum fangelsum. Þessi
ákvörðun vakti mikla reiði hjá miöju
og hægri mönnum og undrun hjá
samstarfsmönnum dómsmálaráð-
herrans í ríkisstjórninni sem ekki
vissu um þetta eða bjuggust alla vega
ekki við svo afgerandi yfirlýsingu í
þessu viðkvæma máli.
Michel Rocard brást skjótt við og á
miðvikuda'ginn gaf hann út yfirlýs-
ingu eftir viðræður við dómsmála-
ráðhérrann þar sem mjög var dregið
í land og málinu slegið á frest. Litið
var á þessa atburði sem klaufaskap
hjá dómsmálaráðherranum, yfirsjón
hægs manns sem þekkir ekki raun-
veruleika stjómmálanna.
í gær vandaðist svo málið.
Schwartzenberg lýsti því yfir aö
hann ætlaði að beita sér fyrir því aö
allar bamshafandi konur gengjust
undir eyðnirannsókn, að til greina
kæmi að yfirvöld útveguöu eitur-
lyfjasjúklingum lyfin í sumum tilfell-
um og að allir legusjúklingar fengju
eins konar heilbrigðisskírteini.
Þá rauk stjómarandstaðan upp til
handa og fóta, sakaði ríkisstjórnina
um að sleppa hryðjuverkamönnum
lausum og stuöla að aukinni eitur-
lyfjaneyslu.
Forsætisráðherrann hafði í byrjun
stjómartiðar sinnar gefið fyrirmæli
þess efnis að ráðherrar þyrftu að
hafa samstöðu og samvinnu innan
stjórnarinnar. Ótímabærar yfufýs-
ingar um aðgerðir, sem ætti eftir að
samþykkja, væra ekki velkomnar og
því væri honum nauðsynlegt áð sýna
vald sitt. Schwartzenberg fundaði
með Rocard og í opinberum yfirlýs-
ingum var sagt að heilbrigöismála-
ráðherrann sjálfur hefði sagt af sér
en í raun bauðst honum enginn ann-
ar kostur.
Bæði dómsmálaráðherrann og
heilbrigðismálaráöherrann fylgdu
innri sannfæringu þegar þeir tóku
þau skref sem pólitískir kollegar
þeirra álitu óraunhæf og kjánaleg.
Annars vegar má líta á þetta mál sem
staðfestingu á því að stjómun lands
eigi að vera í höndum atvinnustjórn-
málamanna en hins vegar má segja
sem svo að ekki veiti af þeim mönn-
um sem eru í nánum tengslum viö
þjóðfélagið og standa ekki í endalaus-
um málamiölunum og hrossakaup-
um.
Fyrir Michel Rocard boða þessar
uppákomur ekki lygnan sjó næstu
mánuði.
Iranir hvöttu í gær til aukinnar
sóknar gegn írak í Persaflóastríð-
inu jafnframt því sem þeir söfnuð-
ust saman í Teheran til að minnast
þeirra sem létu lífið er bandarísk
freigáta skaut á farþegaþotu á
sunnudaginn.
Forseti landsins, Ali Khameini,
kvað bestu lausnina til aö hefna
þessa hörmulega atburðar vera þá
að beijast enn harðar gegn írak.
Talaði hann þá fyrir munn Kho-
meinis, andlegs leiðtoga þjóðarinn-
ar.
Um tíu þúsund manns stóðu fyrir
neðan tröppur þinghússins í gær
þar sem komið hafði verið fyrir
rúmlega sjötíu kistum fómarlamb-
anna. Héldu syrgjendur á myndum
af þeim sem fómst.
írakar tilkynntu í morgun að þeir
hefðu gert loftárásir á þijú skip
undan strönd írans í nótt. Talsmað-
ur hersins sagði að eitt skipanna
hefði verið risaoliuflutningaskip og
logar nú eldur í því. Skotið var eld-
flaug á grískt olíuflutningaskip
seint í gærkvöldi.
Þessi loftárás íraka á skip á
Persaflóa er sú fyrsta síðan Banda-
ríkjamenn skutu niður farþegaþot-
una á sunnudaginn. íranskir
byssubátar hafa tvisvar gert árásir
á skip frá því á sunnudag. í fyrra
skiptiö skutu þeir á norskt skip og
í það seinna varð rúmenskt flutn-
ingaskip fyrir árás.
Yfirmaður flughersins í íran seg-
ir að tuttugu og ein mínúta hafi
veriö til umráða til að greina um
hvers konar flugvél var að ræða á
sunnudaginn en skipstjóri banda-
rísku freigátunnar kveðst hafa sko-
tið á flugvélina í þeirri tru að um
orrustuþotu í árásarferð væri aö
ræða. Fullyrti yfirmaðurinn að far-
þegaþotan hefði verið skotin niður
af ásettu ráði. Bandaríkjamenn
segja að skipstjórinn hafi einungis
haft fjórar mínútur til að úrskuröa
um hverrar tegimdar vélin væri.
Yfirmaðurinn kvaðst leggja fram
segulbandsupptökur frá flugtum-
inum í Bandar Abbas, þaöan sem
farþegaþotan kom, sem sýndu að
hún hefði veriö á réttri leið, hefði
verið að hækka flugið og sent frá
sér merki um að farþegaþota væri
á ferð.
Reuter
íranskir syrgjendur við kistur fórnarlamba árásarinnar á farþegaþotuna
á Persaflóa á sunnudaginn. Símamynd Reuter
>GARDENA
Eigum fyrirliggjandi margar gerdir
af kantklippum og sláttuorfum,
bæði rafdrífnum og með hleðslu
rafhlödum. Að sjálfsögðu
eigum við gömlu góðu
handkiippurnar.
^ GARDENA gerir garðinn frægan
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16, s. 691600.
Umboðsmenn
um land allt.