Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Qupperneq 14
14
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
Frjálst, óháö dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoöarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr.
Nýtt álver
Fréttirnar af fyrirhuguöu álveri og orkuframkvæmd-
um í því sambandi eru ánægjulegar. Gerður hefur verið
samningur milh íslenskra stjórnvalda og fjögurra er-
lendra fyrirtækja um hagkvæmnisrannsóknir, og enda
þótt máhð sé enn á byrjunarstigi virðast flestir bjartsýn-
ir um árangur. Ef af þessum framkvæmdum verður
mun nýtt álver rísa, sem verður mun stærra en núver-
andi álver, og virkjanir verða teknar í gagnið, sem hing-
að til hafa legið á teikniborðum. Orkusala mun marg-
faldast. Tekjur Landsvirkjunar eru áæatlaðar um einn
milljarður á ári, atvinnutækifæri verða ærin og nýtt
tímabil hefst í virkjanamálum íslendinga, eftir langan
afturkipp.
Þessar fréttir eru ánægjulegar vegna þess að ástand-
ið hefur því miður verið uggvænlegt í atvinnumálum
að undanfórnu. Hver atvinnugreinin á fætur annarri
lýsir yfir rekstrarerfiðleikum og ríkisstjórnin hefur
þurft að heyja varnarbaráttu þar sem hörfað er úr einu
víginu í annað. Jákvæð uppbygging í atvinnulífi hefur
verið afar takmörkuð og misheppnuð að flestu leyti
þegar nýjar atvinnugreinar eru annars vegar.
Það kann að virðast kaldhæðnislegt að erlenda stór-
iðju þurfi til að halda uppi arðvænlegum fjárfestingum
hér á landi, en þá er á það að líta að sú stefna hefur
verið löngu viðurkennd að íslendingar eigi að nýta sér
þá auðlind sem felst í fallvötnunum og orkunni í iðrum
jarðar. Sú auðlind verður ekki virkjuð að neinu gagni,
nema með því að selja orku til stóriðju sem greiðir við-
unandi verð fyrir raforkuna. Væntanlegir samningar
varðandi nýtt álver eru að sjálfsögðu háðir því og undir
því komnir að orkuverðið skih okkur hagnaði.
Enda þótt flestir séu sjálfsagt sammála um að sam-
komulagið við hin fjögur erlendu álframleiðslufyrirtæki
séu góð tíðindi er því heldur ekki að neita að á því eru
einnig neikvæðar hhðar. Nýtt álver og virkjunarffam-
kvæmdir í tengslum við það mun valda sprengingu á
vinnumarkaði, auka þensluna í þjóðfélaginu og raska
byggðajafnvæginu enn frekar. Sagt er að nýtt álver, af
þeirri stærð sem um er talað, þarfnist þrjú til flögur
hundruð starfsmanna. Er þá ekki minnst á vinnuafhð,
sem þarf vegna virkjunar- og byggingarframkvæmda.
Við getum gert því skóna að póhtísk, efnahagsleg og
þjóðfélagsleg togstreita muni fylgja í kjöharið. Ekki mun
verðbólgan verða viðráðanlegri, ekki mun landsbyggð-
arflóttinn minnka og ekki munu deilurnar um erlent
fjármagn og íhlutun í íslenskt atvinnuhf hjaðna með
tilkomu nýrrar stóriðju.
Gert er ráð fyrir að nýja álverið rísi á ahmörgum
árum. Virkjunarframkvæmdir munu haldast í hendur.
Þennan tímaþarf að nýta til að draga sem mest úr félags-
legum afleiðingum svo stórra framkvæmda. Aðalatriðið
er auðvitað að tryggja viðunandi orkuverð og íslenska
hagsmuni í viðskiptum við útlenska viðsemjendur okk-
ar, en hitt er ekki síður áríðandi að stóriðjan og orku-
virkjunin sporðreisi ekki landið í þeim skilningi að flár-
magn og fólk setjist að á einum stað og sprengi af sér
öh bönd. Meðan sérffæðingar annast samningana við
álfyrirtækin fiögur eiga stjórnmálamenn og aðstoðar-
menn þeirra að setjast niður og gefa sér tíma til að
huga að efhahagslegum og félagslegum áhrifum.
Á þessu stigi málsins er þó ástæðulaust að mikla fyr-
ir sér vandamálin. Nýtt tímabil er vonandi að hefjast í
atvinnu- og orkumálum þjóðarinnar, sem gefur guh í
mund. Ellert B. Schram
„Gislatökur hafa verið pólitískt stjórntæki ajatollanna og fylgismanna þeirra i Líbanon". - Ayatollah Ruhollah
Khomeini við komu til Teheran úr útlegð í Frakklandi fyrir 15 árum.
Himnasending
við Persaflóa
Þótt kaldhæönislegt sé er árás
Bandaríkjamanna á flugvélina á
Persaflóa um helgina góöar fréttir
fyrir írana. Fréttum frá stríðinu í
Persaflóa ber saman um að íranar
séu aö missa móðinn, þeim hefur
gengið þar allt í óhag á síðustu
mánuðum og baráttuviljinn í stríð-
inu við írak er að bresta. Þeir tæp-
lega 300 menn, sem fórust með flug-
vélinni, eru kærkomnir píslarvott-
ar fyrir klerkastjómina í íran.
Stríðiö byggðist í upphafi á píslar-
vætti en mannfallið hefur verið svo
mikið að þeim fækkar ört sem til-
tækir eru á vígvellina. Þessi at-
burður kyndir upp hatrið á ný og
gefur klerkunum tilefni til múgæs-
inga sem eru forsenda þess að tak-
ist að manna herliðiö með nýjum
píslarvottum.
Varðliðar byltingarinnar, sem
svo eru kallaðir, hafa hingað til
verið undir sérstakri stjórn utan
hersins og þeir kepptust í upphafi
að minnsta kosti við að verða þess
heiðurs aðnjótandi að deyja þús-
undum saman fyrir Allah og Khó-
meini í vonlausum, og stundum
vopnlausum, áhlaupum á harðlega
víggirtar stöðvar Iraka. Nú var
þessum píslarvottum farið að
fækka og flugvélin fellur þá af
himnum ofan og logar hatursins,
sem voru farnir að dofna, blossa
upp á ný. í fyrsta sinn, síðan bylt-
ingin var gerð í íran fyrir tíu árum,
geta íranir gert tilkall til samúðar
umheimsins, einmitt þegar þeir
þurfa mest á henni að halda.
Röð ósigra
Nýlega beið íranski herinn fjórða
ósigur sinn á þremur mánuðum
gegn írökum, þegar þeir misstu
landamæraborgina Mehran í íran.
Sú borg, sem er nú mannlaus, var
ein sú fyrsta sem féll í stríðinu og
írakar og íranar hafa skipst á að
ráða yfir henni. í þetta sinn vakti
athygli að íranski herinn lagði á
skipulagslausan flótta undan Irök-
um. Reyndar voru það aö sögn her-
sveitir útlaga frá íran, manna sem
hafa snúið baki við Khómeini og
gengið í lið með írak sem tóku
Mehran. í apríl misstu íranar tök
sín á Faw skaganum fyrir botni
Persaflóa, en bækistöðvarnar þar
voru forsenda allra sóknaraðgerða,
og þar áður misstu þeir vígstöövar
sínar umhverfis hafnarborgina
Basra sem hundruð þúsunda írana
hafa fómað lífinu fyrir. Gagnsókn
í Kúrdahéruöunum í norðri mis-
tókst og var snarlega brotin á bak
aftur. Þar við bætist að íranar fóru
haUoka gagnvart írak í eldflauga-
stríðinu í vetur. írakar og íranar
skiptust á eldflaugaárásum á borg-
ir og í ljós kom að írakar eiga fleiri
og stærri eldflaugar en íranar. Eit-
urgashemaður íraka er talinn eiga
verulegan þátt í sigmm þeirra að
undanfomu en minnkandi baráttu-
Kjallariim
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
vilji er sagður meginástæðan.
Stríðið hefur nú staðið í sjö og hálft
ár. Upphafið var að írakar gerðu
innrás og ætluðu að ná yfirráðum
yfir Shatt-al-Arab árósunum þar
sem Eufrates og Tigris renna sam-
an á landamærum ríkjanna og
Basra stendur viö. Ríkin höfðu um
árabil skipt yfirráðum yfir þessari
siglingaleið en írakar héldu að ír-
anar væm nú veikir fyrir vegna
byltingarinnar og vopnasölubanns
Bandaríkjastjórnar og ætluðu að
neyta færis. Svo fór þó aö íranar
snem vörn í sókn og írakar hafa
síðustu ár verið í vörn þar til ný-
lega að stríðsgæfan gerðist þeim
hliðholl.
Hefndir í nafni spámannsins
Síðustu ár, aUt frá því nokkrum
mánuðum eftir að stríðið hófst,
hefur ekkert nema ósveigjanleiki
Khómeinis og hans manna komið
í veg fyrir að endi væri bundinn á
blóðbaðiö. Alarlega áætlað ‘ hefur
um milljón manns fallið í stríðinu,
langflestir þeirra eftir að innrás
íraka var hrundiö og ekkert til að
berjast fyrir lengur. En síðan 1981
hefur hefnd verið eina markmiö
Khómeinis. Þaö takmark, sem
hann boðar með stríöinu, er hefnd-
ir í nafni Allah og spámannsins á
Saddam Hussein Iraksforseta. Síð-
ustu sex ár hefur hundmðum þús-
unda mannslífa verið fórnað ein-
göngu fyrir þann tilgang aö hrekja
Saddam Hussein frá völdum. Sadd-
am Hussein hefur aftur á móti
margoft boðist. til aö semja um
vopnahlé og frið en þaö kemur ekki
til greina hjá Khómeini. Saddam
skal refsaö og íslamskt lýðveldi
skal stofnað í írak, þangað til verð-
ur barist. Hingað til hefur þjóðin
hlýtt þessu kalli. í trúarbrögðum
shíta múslíma er hver sá ömggur
um vist í paradís án viökomu í
hreinsunareldinum sem fómar lífi
sínu í heilögu stríði fyrir málstað
Allah og til skamms tíma hefur
verið nóg framboð af sjálfboðalið-
um. Þess eru mörg dæmi að for-
eldrar sendi bamunga syni sína á
vígvellina til að deyja og tryggi
þeim þannig ömgga og tafarlausa
vist í paradís, allt fyrir orðastaö
Khómeinis. Á síðustu mánuðum
hafa þó heyrst raddir um að tíma-
bært sé að huga að jarðneskum
hlutum og binda enda á stríðið.
Stuðningsmenn Bazargans, fyrrum
forsætisráðherra, gengu svo langt
nýlega aö senda Khómeini opið
bréf þar sem hvatt var til friðarvið-
ræðna þar sem efnahagslíf landsins
væri að sligast undan stríðsrekstr-
inum. Ofan í þetta ástand hrapar
nú írönsk farþegaþota með nærri
300 píslarvotta sem aö sjálfsögðu
dóu í heilögu stríði við sjálfan sat-
.an, fuUtrúa alls hins illa, Bandarík-
in.
Gíslar og einangrun
íran hefur verið útlagi meðal
þjóða síðan í byltingunni, einangr-
aö og án bandamanna, að undan-
teknu Sýrlandi. Gíslatökur hafa
verið pólitiskt stjómtæki ajatoll-
anna og fylgismanna þeirra í Lí-
banon. Fyrir bandaríska gísla hafa
þeir fengið bandarísk vopn, sem
frægt er orðið, og í vor fengu þeir
Frakka til að taka upp stjómmála-
samband með því að sleppa frönsk-
um gíslum í Beirút. Þeir hafa reynt
að nota þá bandaríska og breska
gísla, sem enn em í Beirút, í póht-
ískum tílgangi. Þeir em þeim vænt-
anlega of dýrmætir til að fóma
þeim, eða að minnsta kosti mörg-
um, í hefndarskyni fyrir írönsku
farþegaþotuna. Þótt Ula gangi á víg-
vöUunum hefur árásin á farþega-
þotuna bætt það upp með því að
gefa írönum þann stærsta sigur
sem þeir hafa unnið í áróðursstríö-
inu við Bandaríkin. Það er langt
síðan íranar hafa unnið svo mikið
fyrir aðeins 300 mannslíf.
Gunnar Eyþórsson.
„Þeir tæplega 300 menn, sem fórust
með flugvélinni, eru kærkomnir píslar-
vottar fyrir klerkastjórnina í íran.“