Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1988, Side 26
42
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1988.
Menning ___________x>v
Svavar Guðnason -
síðasti frumherjinn
Með Svavari Guðnasyni er burt-
kallaöur síðasti frumherjinn í
stuttri myndlistarsögu okkar ís-
lendinga. Með sýningu þeirri sem
Svavar hélt hér í Reykjavík árið
1945, eftir áratugar útivist í París
og Danmörku, tendraði hann slíkt
bál í íslenskri myndlist að nægði
til að eyða feysknum viðum þeirrar
stöðnuðu náttúrustælingar sem
hér hafði viðgengist um nokkurt
skeið og beina sjónum íslenskra
listamanna að rótrnn allrar list-
sköpunar, milliliðalausri glímu
andans við efnið.
Jafnframt var sköpunargáfa Sva-
vars, ásamt með öðrum gáfum
hans, svo óvenjuleg og römm að
hún fældi menn frá því að feta slóð-
ann á eftir honum en ýtti í staðinn
undir sjálfstæð átök við eigindir
myndlistarinnar. Slíkir brautryðj-
endur eru ómetanlegir lítilli þjóð í
leit að menningarlegri fótfestu.
Það er ógæfa íslenskrar hstsögu-
ritunar að ekki skyldi takast að
gera myndhst Svavars verðug skh
á bók meðan hann lifði. Veit ég að
nokkrir forleggjarar höfðu áhuga á
að standa að slíku verki eh fóru
undan í flæmingi er þeim var gerð
grein fyrir því rannsóknarstarfi
MyndJist
Aðalsteinn Ingólfsson
sem það hlýtur að útheimta, bæði
hér á landi sem annars staðar á
Norðurlöndum, svo og eltingarleik
við lykilmyndir Svavars í einka-
söfnum og opinberum söfnum aht
frá Ítalíu til Suður-Ameríku.
Frumkraftar
Hér á undan er nefnd glíma and-
ans við efnið. Þá ghmu háði Svavar
ævinlega með þeim ásetningi að
magna upp frumkrafta, jafnt í sjálf-
um efniviðnum, htum og línu sem
í þeirri myndsýn sem kveikti af sér
átökin á striganum.
Því eru myndir Svavars sjaldnast
„þæghegar” í viðteknum skhningi
heldur skapmiklar, jafnvel hvefsn-
ar og uppfullar með kjarnmikið lík-
ingamál, rétt eins og hstamaðurinn
sjálfur. En þær venjast vel, verða
manni ótrúlega hjartfólgnar.
Fyrir okkur yngri hstspekúlanta,
sem vorum að snudda í kringum
hetjur íslenskrar hstasögu, virtist
hyldýpi milh ástríðufullra mál-
verka eins og „íslands lag” og höf-
undar þess sem gekk um fremur
ókræshegan Síðumúlann með
meðfæddum virðuleika eðalbor-
inna Spánverja.
Eldur undir niðri
Ekki man ég hvort það var Sig-
urður Örlygsson eða einhver annar
hinna mörgu ungu aðdáenda Sva-
vars úr listamannastétt sem fyrst
fór með mig á fund hstamannsins
og Ástu Eiríksdóttur, konu hans,
fyrir tæpum fimmtán árum. Þá, og
ávaht síðar, var tekið á móti okkur
af elskulegri háttvísi. Stundum
fékk ég upphringingar frá Svavari
og eitt sinn dularfuht boð um að
mæta á hans fund. Erindið var þá
að biðja mig að gera hstamannin-
um „þann greiða” aö þiggja af hon-
um vatnshtamynd, í þakklætis-
skyni fyrir einhver orð sem ég
hafði látið falla um hst hans á opin-
berum vettvangi.
En undir háttvísinni kraumaði
ósjaldan í Svavari. Meðalmennsku
og undirlægjuhátt þoldi hann ekki.
Kurteislega orðaðar athugasemdir
gátu þá hljóðað eins og naprasta
háð.
Þá fórum við græningjanúr loks
að skynja hljóöfallið í „íslands
lagi”.
Kraftaverkamaður
Oft barst tahö að Kóbra-hreyfmg-
unni og æ oftar eftir því sem árin
höu. Hvort það var eftirsjá eftir
frægðinni eða horfmni tíð veit ég
ekki.
Síðustu árin voru Svavari erfið.
Hann hætti að geta beitt pensli eða
krít.
Ahar kveðjustundir drógustmjög
á langinn. Gesturinn gekk hægt
niður hringstigann í blokkinni við
Háaleitisbrautina meðan Svavar
stóð efst uppi og kastaöi shtróttum
kveðjum tíl hans.
Þannig vh ég geyma minningu
Svavars þar sem hann ber við
kringlótta festinguna eins og þeir
kraftaverkamenn sem prýða býs-
anskarloftmyndir. -ai
Svavar Guðnason, 1909-1988.
Jaröarfarir
Páll Halldórsson lést 30. júní sl. Hann
fæddist í Hnífsdal 14. janúar 1902.
Foreldrar hans voru Hahdór Pálsson
og Guðríður Mósesdóttir. Páh tók
kenriarapróf 1925 og nam orgelleik
og önnur músíkfræði hjá hinum virt-
ustu kennurum. Seinna dvaldi hann
u.þ.b. árlangt við framhaldsnám í
Basel og Kaupmannahöfn. Hann
gerðist kennari viö Austurbæjar-
skólann þar sem hann starfaði tæpa
þrjá áratugi. Eftir að hann hætti
kennslu gerðist hann bókavörður í
Borgarbókasafhi og gegndi þar störf-
um á annan áratug th hhðar við org-
anistastörfin. Páh starfaði sem org-
anisti Hahgrímskirkju í 37 ár. Eftir-
lifandi eiginkona hans er Hulda Guð-
mundsdóttir. Þau hjónin eignuöust
tvö börn. Útfór Páls veröur gerð frá
Fossvogskirkju í dag kl. 16.30.
Hermann Aðalsteinsson fram-
kvæmdastjóri lést 1. júií. Hann fædd-
ist 14. október 1945. Hann var sonur
hjónanna Ehnrósar Hermannsdótt-
ur og Aðalsteins Sæmundssonar.
Hermann lærði prentiðn og rak síðan
Prentþjónustuna hf. með öörum.
Hann seldi hlut sinn í því fyrirtæki
er hann lauk stúdentsprófi frá öld-
ungadehd Menntaskólans við
Hamrahhö og innritaðist í viðskipta-
dehd Háskóla íslands. Cand. oceon
varð hann 1984. Árin 1984-1986 starf-
aði hann hjá Iðntæknistofnun ís-
lands. Hann var ráðinn fram-
kvæmdastjóri Umbúðamiðstöðvar-
innar hf. í byrjun árs 1987. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Hrönn Helga-
dóttir. Þau hjón eignuðust tvo syni.
Útfor Hermanns verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag kl. 15.
Sigurvin Bergsson, frá Krossnesi við
Grundarfjörð, sem lést sunnudaginn
3. júh, verður jarðsunginn frá
Grundarfj arðarkirkj u laugardaginn
9. júh kl. 15.30.
Útför Jóhönnu Blöndal verður gerð
frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn
9. júlí kl. 14.
Minningarathöfn um Ingveldi EU-
mundardóttur verður í dag, 8. júh,
kl. 13.30 í nýju Fossvogskapellunni.
Jarðarförin fer fram frá Staðarfells-
kirkju laugardaginn 9. júh kl. 14.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur í Fornleifasal
Þjóðminjasafns íslands
Mánudagirm 11. júli heldur Thomas H.
McGovem fyrirlestur i Fomleifasal Þjóð-
minjasafns íslands. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku og hefst kl. 20.30. Hann er
öllum opinn. Fyrirlesturinn heitir
„North Atlantic Zooarchæology: Green-
land and Iceland" á frummálinu, og fjail-
ar um rannsóknir McGovems á dýra-
beinum, sem fundist hafa við fomleifa-
rannsóknir á Norður-Atlantshafssvæð-
inu, einkum á Grænlandi og á íslandi.
Thomas McGovem er aðstoðarprófessor
við mannfræðideild Hunter College í New
York. Hann hefur stundað uppgröft og
rannsóknir á dýrabeinum frá Norður-
Atlantshafssvæðinu á bænum Svalbarða
við Þistilfjörð ásamt hópi Bandaríkja-
manna og íslendingi.
Tilkyimingar
Fréttatilkynning frá Biskups-
stofu
Vísitasía setts biskups íslands, sr. Sigurð-
ar Guðmundssonar, í Austfj arðaprófasts-
dæmi í júlí 1988. Laugardaginn 9. júlí kl.
14, guðsþjónusta að Hofi í Álftafirði.
Sama dag kl. 21, guðsþjónusta á Djúpa-
vogi. Sunnudaginn 10. júlí kl. 16 guðs-
þjónusta í Beruneskirkju. Mánudaginn
11. júlí kl. 21 guðsþjónusta í Heydala-
kirkju. Þriðjudaginn 12. júli kl. 21 guðs-
þjónusta í Stöðvarfjarðarkirkju. Mið-
vikudaginn 13. júlí kl. 21 guðsþjónusta í
Fáskrúðsfjarðarkirkju. Fimmtudaginn
14. júlí kl. 21 guðsþjónusta í Reyðarfjarð-
arkirkju. Föstudaginn 15. júlí kl. 21 guðs-
þjónusta í Eskifjarðarkirkju, laugardag-
inn 16. júli kl. 14 guðsþjónusta í Brekku-
kirkju í Mjóafirði. Sunnudaginn 17. júlí
kl. 14 guðsþjónusta í Norðfjarðarkirkju.
í tengslum við guðsþjónustumar verða
fundir með sóknamefndum.
Arkitektúr og skipulag
Tímaritið Skipulagsmál sem gefið hefur
verið út í 8 ár hefur nú tekið gagngerum
breytingum og mun héðan í frá heita
Arkitektúr og skipulag. Blaðið mun fjalla
um byggingarlist, byggingarmál, hönnun
og umhverfismótun auk skipulags. Upp-
lagið hefúr verið aukið verulega, blaðið
prentaö í lit og verður nú einnig selt á
almennum markaði. Enn sem fyrr er
ráðgert að blaðið komi út fjórum sinnum
á ári.
Hallgrímskirkja
Sr. Jón Bjarman, sem þjónar í fjarveru
sr. Ragnars Fjalars Lámssonar, er til við-
tals í kirkjunni mánudaga til fimmtudaga
kl. 13.30-14.30.
Styrkir úr vísindasjóði
Borgarspítalans
Hinn 14. júní sl. fór fram úthlutun styrkja
úr Vísindasjóði Borgarspítalans. Að
þessu sinni var úthlutað styrkjum, sem
voru samtals að upphæð kr. 600.000. Eft-
irtaldir aðilar hlutu styrki nú: 1. Guðrún
Ámadóttir, iöjuþjálfi, kr. 200 þús., til að
fúllvinna og ganga frá rannsóknum er
lúta að þróun iðjuþjálfamats. Vegna fjar-
veru Guðrúnar tók Ingibjörg Ásgeirs-
dóttir, yfiriðjuþjálfi, viö styrknum fyrir
hennar hönd.
2. Gunnar Sigurðsson, yfirlæknir, kr.
150.000, tíl rannsóknar á „immunoglobul-
inum“ á sermi sjúklinga með ofstarfsemi
í skjaldkirtli.
3. Haraldur Erlendsson, læknir, kr. 100
þús., til að meta árangur „intravenous
infusionar" geðdeyfðarlyfja á kroniska
verki á stoðkerfis- eða taugagrunni.
4. Jónas Magnússon, læknir, kr. 150 þús.,
til að vinna að doktorsritgerð \dö háskól-
ann í Lundi.
Vísindasjóður Borgarspítalans var stofn-
aður 1963, til minningar um þá Þórð
Sveinson lækni og Þórð Úlfarsson flug-
mann. Tilgangur sjóösins er að örva og
styrKja visindalegar athuganir, rann-
sóknir og tilraunir er fara fram á Borgar-
spítalanum eða í náinni samvinnu viö
hann.
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra
„Framkvæmdastjóm Sjálfsbjargar, l.s.f.,
skorar á stjómvöld að gera stórátak í þvi
að rjúfa nú þegar félagslega einangrun
heyrnarlausra. Sjálfsbjörg leggur
áherslu á að tölvur, sem koma í stað
textasíma, verði almenningseign og að
heyrnarlausum verði tryggð þjónusta
táknmálstúlka. Sjálfsbjörg telur eðlilegt
aö íslenskt efni í sjónvarpi sé gert öllum
skiljanlegt - einnig heymarlausum.”
Ný og glæsileg Heilsuvernd
Tímaritið Heilsuvemd er komið út. Blað-
ið fjallar um heilbrigt llfemi, hreyfingu
og hollt mataræði í takt við tíðarandann.
Hollir lifshættir em lífsstíll sem meiri
hlutí fólks vill tileinka sér og því þykir
tímabært að efla útgáfu tímarits sem
einkum sérhæfir sig í umfjöllun um heil-
brigða lifshætti, birtír fróðleik og
skemmtileg viðtöl um allt sem nöfnum
tjáir að nefna og varðar heilsuvemd.
Heilsuvemd er í raun nýtt blað á gömlum
grunni, gefið út af Náttúrulækningafélagi
Islands. Ritstjóri er Anna Ólafsdóttir
Björnsson og útlitsteiknari Björgvin Ól-
afsson.
Andlát
Ragnar Ketilsson, Vík í Mýrdal, and-
aðist þriðjudaginn 5. júlí.
Maria Þorsteinsdóttir, Njarövíkur-
braut 19, Innri-Njarðvik, lést á Borg-
arspítalanum 5. júlí.
Sigurður Gunnlaugsson, Hlíðar-
hvammi 11, Kópavogi, lést í Borgar-
spítalanum 6. júlí.
Þórhildur Bárðardóttir, Ásavegi 2,
lést í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6.
júlí.
fæst á
járnbrautar-
stöðinni
í Kaup-
mannahöfn
SMÁAUGLÝSINGAR
Mánudaga — föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga, 18.00 — 22.00
Þverholti 11
s: 27022