Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 1988. Fréttir Séra Gunnar Bjömsson giftir: Bíður safnaðarfundar með óþreyju Eins og fram kom í DV á laugardag hefur séra Gunnar Björnsson haft mikið að gera þrátt fyrir að búið sé að reka hann úr starfi sínu við Frí- kirkjuna. Á laugardag gaf hann sam- an ung hjón í Háteigskirkju en hann hefur einnig gert töluvert af að fram- kvæma athafnir í Fríkirkjunni. Hef- ur hann haft mikiö að gera við jarð- arfarir, skírnir og giftingar aö imd- anfornu. „Ég bíö þess með óþreyjuað stjóm- in fari að boða til safnaðarfundar og hef gert í rúman mánuð eins og fleiri. Þar vonast ég til að stuðningsmenn mínir muni fjölmenna og vonandi verður þá hægt að varpa skýrara ljósi á allt þetta mál og ganga frá því innan safnaðarins," sagði séra Gunnar í samtali við DV. Um þessar mundir eru stuðnings- menn Gunnars að safna undirskrift- um honum til stuðnings og liggja slíkir listar frammi á Skóvinnustofu Gísla Ferdinandssonar, Lækjargötu 6, og í versluninni Hárprýði í Miðbæ við Háaleitisbraut. „Auk þess er öll- um stuðningsmönnum mírtum vel- komið að hafa samband við mig heima,“ sagði Gunnar að lokum. -gh Séra Gunnar Björnsson að gefa brúðhjónin, örnu Vignisdóttur og Rúnar Þórissson, saman í Háteigs- kirkju á laugardag. DV-mynd JAK Asgeir B. Kristinsson i versluninni Sautján og Skúti G Jóhannesson { Tékk-Kristal, tvelr af leigjendum Laxár i Kjós, með lax fyrir neðan Lax- foss fyrir nokkrum dögum. DV-mynd Á. Veiðifélagið Lax-á leigir aftur Laxá í Kjós „Árleigan mun hækka sem nemur vistitölunni,“ segir Ámi Baldursson „Jú, það er rétt aö við höfum gert samning um Laxá í Kjós suraa- rið 1989 og var gengið frá því fyrir nokkrum dögum," sagði Árai Bald- ursson, einn af þeim sera leigja ána, í samtali við DV í gærdag. Hann hefur tekið ána aftur á leigu með þeim Ásgeiri B. Kristinssyni og Skúla G. Jóhannessyni annað sumariö. „Þetta hefur gengið ákaf- lega vel og þess vegna tókum við ána á ieigu aftur. Þaö stefnir í met- veiði í sumar og við erum bjartsýn- ir með næsta sumar. Þeir útlendingar sem komu til okkar í sumar voru mjög hressir með veiðina og ætla að koma aftur næsta sumar. Við greiddum 15,8 miUjónir í sumar og það verður visitöluhækkun á milli ára. G. Bender Vörusýning í Laugardalshöll: Heimsins stærsta limósína í Höllimii Eftir tæpan mánuð hefst í Laugar- dalshöllinni 18. vörusýning Kaup- stefnunnar hf. en þar verður um al- menna fjölskyldusýningu aö ræða. Sýningin hefst 1. september og stend- ur til 11. þess mánaðar og ber heitið Veröldin ’88 - innan veggja og utan. Er um almenna neytendasýningu að ræða og allt sem viðkemur heimilinu er innan ramma sýningarinnar. Er sérstök áhersla lögö á svefnherbergi og stofur. Ýmislegt verður annað en hin al- menna sýning og sem dæmi má nefna að hönnuð hefur verið 200 fer- metra íbúð sem Stuðmennimir Ragnhildur Gísladóttir og Jakob Magnússon velja innbúiö í. Sérstök skemmtidagskrá mun verða í gangi á skemmtipalli og hingaö kemur stærsta og fullbúnasta limósína í heimi. Bíllinn kallast „Ameríski draum- urinn“ og er 18 metra langur á 16 hjólum. Vélarnar eru tvær túrbó 500 kúbika Cadillac. Bíllinn er fram- hjóladrifinn og í honum er sundlaug meö stökkbretti, heitur pottur, vatnsrúm, lendingarpallur fyrir þyrlu, gervihnattarskermur, krist- alsljósakróna og ýmislegt fleira enda er bíllinn 10 tonn að þyngd. -JFJ tiann er ekki amalegur, ameríski draumurinn sem hér sést en ætli hann yrði ekki i erfióleikum með beygjur á íslenskum fjallvegum. Ef einhver hefur áhuga á aö kaupa bílinn þá kostar hann einungis rétt rúmar 90 millj- ónir króna. í dag mælir Dagfari Eins og lesendur muna kom í ljós fyrir nokkru aö Landakotsspítali var rekinn með umtalsverðum halla. Tvö hundruð milljónir vant- aöi upp á að endar næðu saman og fjármálaráðherra var svo vondur aö hann kallaði Landakotsmenn síbrotamenn og hótaði gæslusveit- um inn á spítalahn og kringum hann til að koma í veg fyrir frekari afbrot innan spítalaveggja. Sameig- inlega lofuðu bæði heilbrigðisráð- herra og fjármálaráðherra að greiða upp tapiö á spítalanum ef spítalastjómin lofaöi á móti aö ráð- herramir hefðu eftirlit með rekstr- inum. Þaö áttu gæslusveitimar að gera. Nú hafa Landakotsmenn svarað fyrir sig. Þeir skUja ekki tilboðið sem ráðherramir gerðu spítalan- um og hafa óskað eftir viðræðum við ráðherrana til að skiija þaö. Landakotsmenn viðurkenna ekki nein síbrot og segja að hallarekst- urinn á spítalanum sé skuld ríkis- sjóðs við spítalann og þeir þurfi ekki aö þiggja neina gjafmildi af hálfu ráðherra. Helst er aö skilja að ráðherramir eigi að biðja spít- alamerin afsökunar á ónæðinu og borga reikningana orðalaust og skipta sér ekki frekar af málinu. Óbreyttir skattborgarar þessa lands skilja ekki alltaf hvernig ráð- herrar hafa leyfi til að verðlauna afbotamenn fyrir sóun á almannafé með því að greiða meira fé úr ríkis- sjóði eftir því sem meiru er eytt. En þetta mun hafa tíðkast átölu- laust þrátt fyrir afbrot og síbrot. Læknar og sjúkrahúsforstjórar eru þar að auki göfugir menn sem líkna og lækna veikt fólk. Þaö þykir því sjálfsagt aö þeir eyöi peningum eins og þeim sýnist, borgi sér laun eins og þeim sýnist og segi hvað sem þeim sýnist þegar ráðherrar setja sig á háan hest. Af þessum sökum dettur Landa- kotsmönnum ekki í hug að ansa jafnfáránlegu tilboði ráðherranna og því að greiða halla á spítalanum með skilyrðum. Annaðhvort greið- ir ríkissjóður það sem upp á vantar eða læknarnir og sjúkrahússtjóm- in ganga út og skilja sjúklingana eftir, lasburða og dauðvona. Ætlar ríkisstjómin að bera ábyrgð á fjöldamorðum fyrir það eitt að hún timir ekki að borga læknastarfið? Og ætlar ríkisstjórnin að hóta ein- hverjum gæslusveitum inn á spít- alann þegar hún veit að læknar vinna ekki undir eftirliti og eru yfir það hafnir að aðrir en þeir spítalavink sjálfir ráðskist með þeirra eigin laun? Nei, læknamir á Landakoti láta ekki slíkt yfir sig ganga. Þeim er meira annt um sjúklingana en rík- issjóð og skilja ekki afskiptasemi ráðherra af spítala sem þeir hafa ekkert með að gera nema það eitt aö borga reikningana sem lækn- arnir setja upp. Landakotsmenn eru móðgaðir, sármóðgaðir og ætl- ast til að ráðherramir dragi tilboð sitt til baka og útskýri nánar hvað- an þeim komi leyfi til að skipta sér af Landakoti. Það versta við þetta er að ráð- herrarnir móðguðust á móti. Sér í lagi fjármálaráöherra sem hefur ekkert við þá á spítalanum að tala. Annaðhvort taka þeir tilboðinu eða þeir taka ekki tilboðinu, segir Jón Baldvin og er hinn versti. Landa- kotsmenn móðguðust þá aftur og upplýsa að þetta sé sosum ékkert nýtt. Þeir hafi aldrei heyrt eða séð ráðherrann, hann hafi aldrei látið svo litið aö tala við Landakots- menn, hvað þá aö leggjast þar inn, og samt er hann að skipta sér af spítalarekstrinum og þykist hafa vit á honum! Ekki er gott að sjá hvernig þessi deila endar og ekki heldur hveijir eru mest móögaðir. Kannski væri ráð að leggja Jón Baldvin inn, ef ske kynni að hann neyddist til að ræða við læknana og læknarnir við hann. En eftir stendur að ráðherrar geta lent í miklum vandræðum þegar þeir skipta sér af því þegar spítalar fara tvö hundruð milljónir fram úr fjárlögum. Þeir þurfa að minnsta kosti aö útskýra það vel og rækilega hvað þeim komi það við. Annars móðga þeir læknastétt- ina og sjúkrahússtjórnirnar. Mað- ur móðgar ekki svo göfuga stétt að ástæðulausu. Þetta mál kennir fjármálaráð- herra og reyndar þjóðinni allri að tvö hundruð mfiljón króna um- frameyðsla almannafiár þarfnast ekki skýringar. Það er hitt sem þarf að útskýra, hvað ráðherrar eru að skipta sér af því. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.