Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 1988. Sandkom Myndbandastríð á Akureyri Grimmilegt stríðgeisai'nú á AkurevTi a milliíjeirraað- ilasemleigja útmyndbónil tiifólks.Mynd- bandaieigurn- arerumargarí bænum.alltof margaref markamál>að semhefurverið að gerast að undanfömu. Uppasíð- kastið hafa þeir sem þessa ieigu stunda verið að hamast við að undir- bjóða hvern annan og er óhætt að segja að „gósentíð" hafi verið hjá þeim sem nota þessa þjónustu mikið. Sumar myndbandaleigumar bjóða öll myndbönd fyrir 50 krónur. Aörir hafa verið með verð eins og 30 krónur og 20 krónur, og heyrst hefur um ein- staka myndbandaleigur þar sem fá má lánaðar myndir fyrir 10 krónur! Sennilega gengur þetta ekki lengi, og hætt er við að einhverjar mynd- bandaleigumar „rúlli“ á næstunni. Jón í stól Vals? Núlíðursenn aðþvíaðstjóm KaupfélagsEy- firðingataki ákvörðunum þaðhververði næstikaupfé- lagsstjóri, en ValurÁrnþórs- .sonsestístól bankastjóra Landsbankans viðhhðSverris Hermannssonar um næstu áramót Altalað er á Akureyri, bæði innan KEA og utan þess, að Jón Sigurðar- son, forstjóri Álafoss, muni hreppa síól Vals sem þykir Jeitur stóll“. Allir aðilar verjast þó frétta af mál- inu. Jón er „góður“ framsóknarmað- ur, hann er maður sem Valur er sagð- ur mæla með, hann er röggsamur stj ómandi og þetta ásamt ýmsu öðra er tahö munu ráða úrshtum. En ef Jón fer ekki í stóhnn, sem þykir ólík- legt, þá er tahð mjöglíklegt að Magn- ús Gauti Gautason, Qármálastjóri fé- lagsins, hljóti hnossið. Landakotslæknar Þessimunvera dagsönruTveir Landakots- læknarvoruað leikagolfáNes- vehinumádög- unumoggekk misjaf'nlega. Annárþeirra hitti aldreí kul- unasínaal- mennilegaog hinum varfar- ið að blöskra og sagði skyndilega: „Heyrðu vinur, Nú skalt þú ímynda þér að golfkúlan sé höfuðið á Jóni Baldvin ráöherra og við skulum sjá h vort þetta batnar ekki hjá þér.‘‘ - Og það stóð ekki á því. Hvert höggið á fætur öðru skall á kúlunni af mikl- um krafti og deginum var bjargaö. „Flugvallarslag- ur" i uppsiglingu? Hætterviöþvi aöþegar íikvörðun verð- urtekinumþað áAlþingihvar varaflugvöUur fyrirmilh- landaflugskuh staðsettur, komitilýmis sjónarmið, þvi margirvilja þennanvöU heim í sitt hérað. Nefnd, sem hefur kannað máhð, mælti með Egilsstöð- umogþará eftir Akureyri og Sauðár- króki. Þingeyingar, sem vilja þennan vöU í sitt heimahérað í Aðaldals- hraun, hafa nú gefið í skyn að þeir æth að setja pressu á þingmenn sina um að berjast fyrir þá í þessu máli. Hætt er við að vf ða verði pressað á þingmennina og að umræður í þing- inu geti oröið liflegar þegar máhð kemur til kasta þingsins. Ums]ón Gytfi Kristjénsson Fréttir__________________________di íbúar við Lágholtsveg kæra til byggingamefndar: Frágangur ekki í sam- ræmi við teikningar - segja íbúar Það er nokkuð hátt upp í bílskúrinn og íbúarnir segja hann vera upp á annarri hæð enda komast bílar ibúanna ekki í húsaskjól. DV-mynd JÁK „Það er fyrst og fremst samstöðu- leysi íbúa sem ræður því að ekkert hefur verið gert í þessu ennþá. Nú hins vegar ætlum við að kæra það að rennur og frágangur hér er ekki í samræmi við teikningar til bygging- arnefndar Reykjavíkurborgar. Fyr- irtækiö er tveimur árum á eftir með frágang á rennum, malbiki og niður- faUi. Það er alltaf lofað að bæta úr en aldrei staðið við það. Eitt besta dæmið um handvömmina eru bíl- skúrarnir en þeir eru nánast uppi á annarri hæð, gólfið í þeim er 60-80 sentímetra yfir jörðu," sagði íbúi við Lágholtsveg í Reykjavík. Fyrirtækiö, sem byggði umrædd húsakynni við Lágholtsveg, er Stein- tak hf. en forstjóri þess er Vignir Benediktsson. Vignir sagðist hafa heyrt um einhverja óánægju en sagði að mistökin væru frá hendi verk- fræðinga fólksins en verið væri að vinna að lagfæringu á pípulögnum og hann væri að reyna að koma í kring lagfæringu á niðurfóllum af þökum. „Þetta með bílskúrana er alveg rétt, þeir eru hærri en gatan. Arkitektinn og byggingaryfirvöld kasta þessu á miUi sín og snýst deilan um 'pað hvort arkitektinn hafi fengið réttan hæöarpunkt. Viö byggjum eft- ir þeim hæðarkvóta sem við fáum frá arkitektinum. Þetta mál er á við- kvæmu stigi því borgin vUl leiðrétta þetta með því að veita heimild fyrir því að þarna verði einhvers konar herbergi," sagði Vignir. Um það að frágangur væri ekki í samræmi við teikningar og kæruna til byggingarnefndar sagði Vignir að fiöldi kærumála kæmi fyrir bygging- arnefnd á hverjum fundi frá óánægðu fólki. Hann byggði ein- göngu eftir samþykktum teikningum og því myndi byggingamefnd ekki hafa áhuga á að sinna því. Fólk ofætlar völd byggingaryfirvalda „Teikningar eru almennt óljósar og taka ekki á smáatriðum eins og malbikun og efni. Við höfum því lítið vald til að skipa mönnum að gera eitthvað sem ekki er samkvæmt teikningu. Fólk virðist oft halda að við höfum meiri völd en er í raun. Aðalatriðið er að ganga þarf tryggi- lega frá samningum á mUli aðila þar sem hlutir eru nákvæmlega tilteknir. Þetta er erfiðast með hús sem eru í smíðum, hvað þýðir til dæmis orðið „fullklárað". Oft er kveðið á um aö hús séu seld fokheld og fengið sUkt vottorð um það frá okkur. Það þýðir frá okkar hendi að húsið sé upp- steypt, pappi sé á þakinu og búið að loka gluggum, þess vegna með plasti. Þetta segir ekkert um frekari frágang eða fylgihluti," sagði Gunngeir Pét- ursson, skrifstofustjóri hjá bygging- arfulltrúa Reykjavíkurborgar. Gunngeir sagði að fyrir lægi kæra eins íbúa viö Lágholtsveg vegna frá- gangs. Yrði sú kæra tekin fyrir næsta fimmtudag á fundi byggingarnefnd- ar. í bréfi íbúans væri vakin athygU á óánægju annarra íbúa götunnar. Sagði Gunngeir að væntingar kaup- enda og samningsatriði þeirra við seljanda í liúsakaupum, svo sem dag- setningar, heyrðu ekki undir bygg- ingarnefndina nema hugsanlega að um væri að ræða skort á öryggi. Um bílskúrana á „annarri hæð“, sagöi Gunngeir: „Þaö gæti verið að arkitektinn heföi fengið vitlausan hæðarpunkt en það veröur að kanna betur. Hins vegar verður það ekki mikið mál aö fá leyfi fyrir herbergi þama.“ -JFJ Fjöldi manns safnaðist saman við Reykjavíkurtjörn á föstudagskvöld og fleytti kertum til minningar um fórnarlömb kjarnorkjusprengjanna er varp- að var á Hirósíma og Nagasaki tyrir 43 árum. Safnaðist fólkiö saman um kl. 22.30. Fór þá fram stutt dagskrá þar sem Viðar Eggertsson leikari flutti Ijóð meðal annars. Kertunum var síðan fleytt nákvæmlega á þeirri stundu er sprengjunni var varpað á Hírósíma. -gh/DV-mynd JAK „Karlamir em alveg yndislegir" Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Ég kann mjög vel viö þetta starf, sérstaklega eftir að ég var búin aö venjast vinnutímanum,“ sagði Þór- unn Alfreösdóttir, forstööukona í veiöihúsinu Vökuholti viö Laxá í Aðaldal, er DV leit þar inn á dögun- um. Þórunn hóf störf í Vökuholti 10. júní í vor en undanfarin ár hefur hún séð um mötuneyti grunnskólans á Hallormsstað og einnig unniö á Edduhótelum. Þegar okkur bar að garði skömmu fyrir hádegi var mikið um að vera í Vökuholti, Þórunn og tvær stúlkur, sem vinna meö henni, voru á þönum aö hafa til matinn og sérstök þrif voru gerð á öllu húsinu því um „skiptidag" var að ræða. „Skiptidagarnir eru alltaf öðruvísi en aðrir dagar,“ sagði Þórunn er hún var beðin um að lýsa starfinu einn dag. „í morgun fór ég á fætur klukk- an hálfsex og fór þá að taka til morg- unmatinn. Síöan fór ég að útbúa kalt borð fyrir hádegið en við höfum allt- af kalt borð í hádeginu fyrir þá sem eru að fara á skiptidegi og þeir geta þá gengið að þvi þegar þeir koma inn. Þá gefst mér líka tími til þess áður en þeir fara að gera upp við þá fyrir fæðiö hér og húsgjaldið. Ég vakti stúlkurnar klukkan átta og þær fóru þá strax í að skipta á rúmunum og taka allt húsið í gegn, frá herbergjunum og alveg út í fiski- geymslu. Þegar þessu öllu er lokið liggur næst fyrir að taka á móti þeim sem eru að koma og eiga að hefia veiðar klukkan fiögur en viö tökum alltaf á móti þeim meö kaffi og ástar- pungum. Þegar þeir nýkomnu eru famir til veiöa, um klukkan fiögur, getum við hvílt okkur til klukkan átta um kvöldið en þá förum við aö taka til kvöldmatinn. Viö erum alltaf meö þríréttað á kvöldin, fiskiforrétt, steik og eftirrétt, en í hádeginu erum við yfirleitt með fisk. En þegar klukkan er komin fram yfir miðnætti getum viö farið að sofa.“ - Eru karlarnir fljótir að fara að sofa eftir matinn eða „taka þeir í glas?“ „Yfirleitt setjast þeir niður inni í setustofu og fá sér eitt glas eða svo á meðan þeir ræða málin. Við skiptum okkur aldrei neitt af þeim þá og þeir eru nær undantekningarlaust fljótir aö koma sér í háttinn enda þreyttir eftir daginn." - Hvað eru margir karlar hér í einu hjá ykkur? „Hér eru í hvert skipti 24 veiði- menn því alltaf veiða tveir og tveir saman. Þá kemur fyrir að eitthvað er með af fólki þar fyrir utan. Karl- amir eru alveg yndislegir og engin vandamál .sem koma upp hér.“ - Og þú kannt vel við starfið? „Já ég get ekki sagt annaö. Að vísu gerir maður .gkki neitt nema að vinna og sofa en þrátt fyrir það er aldrei neitt „stress" hér. Við vitum alltaf nokkurn veginn hversu stór hópur kemur hingaö næst og svo rúllar þetta svona áfram dag frá degi,“ sagöi Þórunn. Þórunn í eldhúsinu ásamt aðstoðarstúlkum sínum. DV-mynd gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.