Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 40
52
MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 1988.
Jarðarfarir
Hrafnborg Guðmundsdóttir, Hvassa-
leiti 48, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 9.
ágúst kl. 15.
Steingrímur örn Steingrimsson,
Hlíðargötu 13, Neskaupstað, verður
jarðsettur þriðjudaginn 9. ágúst kl.
13.30 frá Fossvogskirkju.
Gústaf M. Guðmundsson, Réttar-
holtsvegi 93, lést í Borgarspítalanum
27. júlí sl. Jaröarfórin hefur farið
' fram í kyrrþey.
Ásta Sigvaldadóttir Jónsson, Ham-
arsstíg 12, Akureyri, verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 7. ágúst kl. 13.30.
Málfríður Sigurðardóttir, Þórólfs-
götu 12a, Borgarnesi, verður jarð-
sungin frá Borgarneskirkju þriðju-
daginn 9. ágúst kl. 14.
Ólafur Jóhann Sigurðsson, rithöf-
undur, Suðurgötu 15, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík þriðjudaginn 9. ágúst kl. 13.30.
Útför Guðlaugar Valdimarsdóttur
talsímavarðar, Rauðalæk 35, verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag, 8.
ágúst, kl. 15.
Menrting
Norrænt
Bengt S. Eriksson - Víðidalur í Noregi.
Nú um helgina var opnuð á
göngum Kjarvalsstaða sýning 50
ljósmynda eftir sænskan mann,
Bengt S. Eriksson. Þetta eru mynd-
ir af landslagi eða smáatriðum í
náttúrunni, svo sem steinum og.
grösum. Myndirnar eru teknar á
norðlægum slóðum, þ.e. í Skandin-
avíu og á Bretlandseyjum, í Fær-
eyjum og hér á íslandi.
Bengt Eriksson er fæddur árið
1948 og hefur stundað ljósmyndun
í tvo áratugi. Hann mun vera kunn-
ur ljósmyndari í heimalandi sínu
og hefur haldið margar einkasýn
Ljósmyndir
Davíð Þorsteinsson
ingar og unnið til ýmissa viður-
kenninga og verðlauna.
Myndir hans eru allar í lit'og eru
flestar teknar á 6x6 cm mynd-
format en nokkrar á 35 mm filmu.
Þær viröast kópíeraðar með cibac-
hrome tækni sem gefur sterka og
mettaða Uti með mikilh skerpu.
Tæknileg gæði myndanna eru mik-
il og bera vott um vandvirkni og
kunnáttu.
Þeir sem hafa ánægju af náttúru-
Ijósmyndum munu njóta þess að
skoða þessa sýningu. Ljósmyndar-
inn takmarkar sig yfirleitt við
þröngt sjónsvið annaðhvort í nær-
mynd eða þá með aðdráttarlinsu
úr fjarlægð og stillir litrófi mynd-
anna mjög í hóf. Vegna þessarar
hófsemi verða heildaráhrif sýning-
arinnar ekki óreiða og leiði eins og
svo oft vill brenna við á litmynda-
sýningum. Ennfremur er lofsvert
að hér er um raunverulegar lit-
myndir að ræða; flestar myndanna
lifa fyrir lit sinn en væru áhrifa-
minni í svarthvítu.
Sem dæmi um þann góða árangur
sem Eriksson nær meö ströngum
aga má benda á þijár myndir sem
allar eru nær einlitar, blátóna.
Þetta eru myndir nr. 26 frá Víðidal
í Noregi, nr. 29 af Heimakletti og
nr. 31 af skófum á steini, allar mjög
hreinar og fallegar. Enn mætti
nefna mynd nr. 36 frá sænsku
vatni, dökkbrún og korngul sterk
mynd. Víða notar Eriksson sér
óvenjuleg birtuskilyrði til að
magna upp áhrif, svo sem í nr. 7
af Seljalandsfossi og nr. 22 úr Land-
mannalaugum. Dæmi um það þeg-
ar honum tekst vel upp í nærmynd
er nr. 47 af blálilju í sandinum við
Dyrhólaey og nr. 14 af steinfléttum
abstraktform í finlegum tónum.
Ekki eru allar nærmyndanna þó
jafnvel heppnaðar. Mér þótti ekki
mikið koma til mynda eins og nr.
11 af sóldögg og 17 af rabarbara.
Slíka hluti hefur maður séð betur
útfærða af öðrum, auk þess sem
litirnir eru heldur velgjulegir. í
stöku tilfellum tel ég að betri mynd
hefði náðst með því að sleppa litn-
um taka í svarthvítu til dæmis í
mynd nr. 34 af vindsorfinni jörð og
skýjafari við Mývatn; ef aukaatriði
eins og blámi himinsins hefðu þar
verið látin víkja fyrir grátón hefði
formiö talað þeim mun sterkar.
Ljósmyndun í lit gefur tiltölulega
„raunsanna" mynd af veruleikan-
um, a.m.k. ef miðað er við tækni
eins og vatnsliti eða blek. Þetta er
bæði styrkur hennar og veikleiki.
Með nútímatækjum er tiltölulega
einfalt úrvinnsluatriði að taka
„fallega" ljósmynd af failegu mótífi
enda er til nóg af slíkum myndum
sem aðeins eru eins konar uppbót
fyrir að vera ekki á staðnum eða
auglýsing til að selja land. Það að
ljósmyndun er að vissu marki vél-
ræn afritun af mótífi gerir mynda-
smiðnum hins vegar erfiðara að
skyggnast bak við yfirborð hlut-
anna og tjá hið ósýnilega. Að mín-
um dómi er Bengt Eriksson ágætur
fagmaður en er hann skyggn?
Davíð Þorsteinsson
Andlát
Poodlehundur í óskilum
Þessi litli poodlehundur er enn ófundínn.
Hann týndist nálægt Hraunfossum í
Borgarfiði. Konan sem hringdi í síma
52401 og sagðist hafa ekið yfir hann er
vinsamlegast beðin um að hringja í sama
síma aftur.
Guðlaug Högnadóttir, Austurgötu 9,
Hafnarfirði, lést að kvöldi 5. ágúst.
Ingibjörg Thors andaðist 5. ágúst.
Jónas Haraldsson, Völlum, Skaga-
firði, lést í sjúkrahúsi Skagfirðinga
'5. ágúst.
Hlutavelta
Þessir krakkar héldu nýlega hlutaveltu
í Smáibúðahverfinu til styrktar Rauða
krossi íslands og söfnuðu þau alls 2.820
krónum. Þau heita frá v.: Telma Sæ-
mundsdóttir, Þorbjörg Gunnarsdóttir,
Jón Andrés Gústafsson og Elmar Sæ-
mundsson.
á laugardögum
Á bílamarkaði DV á laugardögum
auglýsir fjöldi bílasala og bílaumboða
fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum
og öllum verðflokkum.
Auglýsendur, athugið! Auglýsingar í
bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi
fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum.
Ofris-flokkurinn á ferð og flugi
Hljómsveitin Ofris frá Suðumesjum
geröi viðreist um verslunarmannahelg-
ina í þeim tilgangi að auglýsa fyrstu
hljómplötu sína sem stefnt er á að komi
út nú seinnipart ágústmánaðar. Á fóstu-
dagskvöldinu spilaði hún í Galtalækjar-
skógi, á laugardag í Vík í Mýrdal og á
sunnudagskvöldinu á þjóðhátið Vest-
mannaeyja. Þar sem hljómsveitin á vax-
andi vinsældum að fagna, tókust tónleik-
ar þessir í alla staði vel. Hljómsveitina
skipa: Magnús Þór, bassi, Víglundur Lax-
dal, básúna, Þröstur, gitar og söngur,
Kristján Manna, saxafónn og píanó,
Kristin Gerður, söngur, Veigar, trompet,
og Helgi, trommur. Hljómplatan, sem ber
nafnið „Skjól í skugga", inniheldur 15
lög, útgefandi er Hljóðaklettur, en dreif-
ingu annast Skífan. Á meðfylgjandi mynd
vantar þá Víglund Laxdal og Veigar Mar-
geirsson.
Umferðarreglur eru til okkar vegna
—Virðum reglur
vörumst slys.
yUMFEFffiAR
RAÐ