Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 1988.
SNOM'GJP
45 lítra frystir
235 lítra kælir
Hæð 145, breidd 57, dýpt 60
Verð 29.900,- stgr.
Oi.
Skipholti 7, sími 26800
Fréttir
Keppni í ökuleikninni á Grundarfirði var hörð.
Láttu fara vel um þig
/ n /• 1 o
ífrunu.
Þú átt það skilið.
Edduhótel er ávallt skammt undan.
Farðu Edduleiðina í sumar og þér mun líða vel.
Frá 8.-30 ágúst býður Hótel Edda þér að gista nóttina fyrir
aðeins 863.- krónur á mann í tveggja manna herbergi m/handlaug.
Tilboð þetta gildir fyrir minnst fjórar nætur, sem hægt er að gista allar á
einu hóteli eða eina nótt á hvcrjum stað.
Gistingu má einungis panta með tveggja daga fyrirvara eða skemmri.
Leitaðu nánari upplýsinga hjá Ferðaskrifstofu ríkisins
í síma: 25855 eða á Edduhótelunum.
Frumraun ökuleiknmnar í Grundarfíröi
270 keppendur
hafa tekið þátt
Það var fóstudaginn 8. júlí að við
komum við í Grundarfirði og héldum
keppni í ökuleikni og hjólreiðum.
Grundfiröingar tóku yel í þessa*
nýjung og fjölmenntu. í hjólreiða-
keppninni voru 17 keppendur sem
skiptust í yngri og eldri riðil og urðu
úrslit þannig aö i fyrsta sæ'ti yngri
riðils lenti Vignir Már Runólfsson
og hafði hann 91 refsistig. í öðru
sæti lenti Árni Elvar Jónsson með
101 refsistig. í því þriðja lenti svo
Rúnar Pálmason með 102 refsistig og
hefur toppbaráttan sjaldan verið eins
hörð. í eldri riðli lenti í fyrsta sæti
Jón Guðnason með 119 refsistig. í
öðru sæti lenti Valdís Fransdóttir
með 129 refsistig og í þriðja sæti lenti
Birna Björk Níelsdóttir með 145
refsistig. Tvær konur reyndu með
sér á hjólum, þær Sigrún Hauks-
dóttir og María Steinþórsdóttir, og
náðu þær mjög góðum árangri .1 öku-
leikninni sjálfri voru aðeins tveir
kvenmenn og gengu þriðju verðlaun
ekki út. Það voru þær Þóra Karls-
dóttir, sem lenti í fyrsta sæti, og
Oddrún Sverrisdóttir sem lenti í öðru
sæti. í karlariðli lenti í fyrsta sæti
Pálmar Gunnarsson og hafði hann
einnig besta tímann í brautinni sem
færði honum Timex úr frá Nesco í
Kringhmni. í öðru sæti lenti Friðgeir
Hjaltalín og í því þriðja lenti Krist-
björn Rafnsson. yerðlaun í hjólreiða-
keppnina gaf reiðhjólaverslunin
Fálkinn en í ökuleiknina gaf hraö-
frystihúsið' verðlaunin. • AG
Fyrrverandi eigendur Gests, ásamt forráðamönnum Byggðasafnsins. F.v.:
Jón Páll Halldórsson, Óskar Óskarsson, Bjarni Baldursson, Sigurður Bjarna-
son, Jón Sigurpálsson, Baldur Bjarnason og Arndís Bernharðsdóttir.
DV-myndir BB
ísafjörður:
Sjóminjadeildin fær Gest úr Vigur
Sigmjón J. Sigurdsson, DV, ísafiðri:
Ekkert lát er á gjöfum til sjóminja-
deildar Byggðasafns Vestíjarða. Fyr-
ir stuttu barst ein stórgjöfin enn. Þá
fékk safnið til eignar bátinn Gest úr
Vigur sem smíðaöur var áriö 1906.
Gestur er fyrsti raunverulegi mótor-
báturinn sem smíðaöur er við Djúp
og þykir fyrir.þær sakir merkisgrip-
ur. Fljótlega éftir að smíði hans lauk
var settur í hann Alfa-mótor.
Hús Hilmars Þ. Björnssonar á Selfossi. DV-mynd Kristján
Krislján Einaisson, DV, Selfossú
Nú, þegar halla tekur sumri, eru
flestir sem mála húsin sín búnir að
því. Hilmar Þ. Björnsson, bygginga-
meistari á Selfossi, er einn af þeim
en hann er þó frumlegri en flestir. Á
húshornin hafa verið málaðar „tré-
skrúfur" þannig að nú lítur út fyrir
aö húsið sé skrúfað saman á hornun-
um.
Það var séra Sigurður í Vigur sem
keypti bátinn í byrjun og hefur hann
verið í eigu fjögurra ættliða síðan.
Gestur hefur verið notaður til flsk-
veiöa og mannflutninga allt fram á
daginn í dag.
Það var fríður hópur Vigurmanna
sem kom með Gest að landi fyrir
neðan Turnhúsið. Þar tóku á móti
þeim safnvöröurinn, Jón Sigurpáls-
son og formaöur stjórnar Byggða-
safnsins, Jón Páll Halldórsson.