Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1988, Qupperneq 37
MÁNUDAGUR 8. ÁGÚST 1988.
49
Sviðsljós
Fullir íkornar
Þegar vatn skortir er ekki um annað að ræða en notfæra sér aðra vökva.
Eitthvað var undariegt við íkorn-
ana í bænum Marshalltown í Iowa-
fylki í Bandaríkjunum. íkornar
eiga að vera með ærsl og læti en
þessir slepptu sér alveg_Þeir hopp-
uðu og skoppuðu út um allar
grundir og voru á allan hátt kæru-
lausari en gott var fyrir þá sumarið
1956. Bæjarbúar báðu um hjálp tii
að lagfæra ástandið.
Náttúrufræðingar komust fljótt
að þvi hvað olli þessum hegðunar-
vandamálum íkornanna. Miklir
þurrkar geröu þaö að verkum að
eikartré vesluðust upp og það or-
sakaði sVo efnabreytingu í hnetun-
um. Efnið, sem myndaðist, virkaði
á íkornana eins og viskí. Þeir höíöu
því ekki gengið af göflunum heldur
voru þeir draugfullir.
Þetta sýnir að áhrif þurrka geta
verið fjölbreytileg og mjög óvænt.
Áhrifanna gætir helst á ökrunum
en dýr, byggingar og mannleg sál-
fræði taka öll sinn toll. Þurrkasum-
ur hafa valdið skrýtnum uppákom-
um í Iowa.
Fiskur veiddur með dínamíti
Bændamarkaðurinn var opnaður
í miðjum júnímánuði 1977 en eng-
inn bóndi mætti á staðinn. Sama
ár og íkomarnir fóru á fyllirí söfn-
uðu tveir menn undirskriftum til
aö biðja ríkisstjórann um að banna
tilraunir til regngeröar. Á endan-
um ákvað þingið að tilraunir til
þess að fá rigningu væru þess viröi
að reyna.
Árið 1934 var svo lítið í ám að
fiskar fóldu sig í smáholum þar sem
enn var vatn. Leiddi þetta til þess
að ráða varð fleiri veiðiverði því
fólk veiddi fiskinn meö því að
henda dínamíti í holurnar.
Hvað horfum um góða uppskeru
viðkemur á þessu ári sagði Busi-
ness Week tímaritið að hreint út
sagt myndi annað þurrkaár leiða
til þess að svæðiö milli Mississippi
og Klettafjallanna yrði óræktanlegt
og um 4 milljónir íbúa yrðu að
flytja eitthvað annaö. Nokkrir veð-
urfræðingar í Bandaríkjunum hafa
spáö slíkum þurrkasumrum næstu
60 árin.
Kannast ekki allir við að þurfa að
gera tvo hluti i einu og hafa báðar
hendur bundnar? Þessi var bara svo
(ó)heppinn að Ijósmyndari náði að
festa vandræði hans á filmu.
DV-mynd Hanna
Léttleiki lífsins
Sá sem hefur gott auga fyrir mann-
líflnu í kringum sig, og tekur vel eft-
ir, getur oft komið að fólki í vand-
ræðálegum aðstæðum. Það er þó
verra ef sá hinn sami er ljósmynd-
ari. Hefur margur maðurinn lent í
klípu vegna Ijósmynda sem ekki
reyndust sýna sparihliðina. Hitt er
svo annað mái að margar þessara
ljósmynda eru bráðsniðugar og opna
augu okkur fyrir því sem við annars
tökum ekki eftir í okkar daglega lífi.
Það er vissulega margt skoplegra við
líflð en margur heldur.
Fljótt á litið viröist sem handtaka eigi sjálfa lögregluna þar sem allir hafa þeir hendur aftur fyrir bak. Það vantar
bara handjárnin. Raunveruleikinn er þó annar. Þessir lögreglumenn voru i liði því sem stóðu heiðursvörð við
innsetningu forsetans. DV-mynd Hanna
SUMARGJALDDAGl
HÚSNÆÐISLÁNA VAR l.MAÍ SL.
w
í
FORÐIST ÓÞARFA AUKAKOSTNAÐ ?
VEGNA DRÁTTARVAXTA
oj Húsnæðisstofnun ríkisins
LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 6969 00
'• y-r-»Pira!«rHeg
Hörpuskjól
- varanlegt skjól.
Skúlagötu 42, Pósthólf 5056
125 Reykjavík, Slmi (91)11547
HARPA
lífinu lit!