Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988. Fréttir Ólafur Ragnar Grímsson: Alþýðubandalagið mun tiyggja átta atkvæði Skúli Alexandersson: „Þaö er alveg ljóst aö Alþýðu- bandalagiö mun tryggja átta atkvæði í atkvæðagreiöslum um stjórnar- frumvörp og gegn vantrauststillög- um. Menn geta haft ýmsar skoðanir innan ílokksins en í atkvæðagreiðsl- um á Alþingi mun flokkurinn tryggja átta atkvæöi," sagði Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, í morgun. Þingflokkur Alþýöubandalagsins fundaði frá klukkan níu í gærkvöldi og fram eftir nóttu. A sunnudag höföu stjórnarmyndunartilraunir Framsóknar, Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Samtaka um jafnrétti og félagshyggju meðal annars strandað á því að tveir þingmenn Alþýðubandalagsins studdu ekki að fullu stjórn þessara flokka. Skúli Alexandersson sagðist ekki ætla að greiða atkvæði gegn vantrauststil- lögu á stjórnina. Geir Gunnarsson sagðist vera andsnúinn þessari stjórnarmyndun en sagðist hins veg- ar tilbúinn að beygja sig undir flokksaga og hlíta vilja meirihluta þingflokksins. „Við erum ekki tilbúnir að segja það á þessari stundu,“ sagði Ólafur, aðspurður hvort Alþýðubandalagið hefði náð fram einhverjum breyting- um á bráðaaðgerðum stjórnarinnar og stefnuyfirlýsingu hennar. „Við höfum fundið gífurlegan þrýsting frá fólki víða um land til að reyna til þrautar myndun vinstri stjórnar. Ég hef fundið mjög greini- lega fyrir því að það er sterk krafa fólks að slík stjórn veröi mynduð. Menn vilja fá þáttaskil í íslenska póhtík. Ég held að þetta hafi þrýst viðræðunum í gang. Ég held að þaö hafi einnig haft áhrif á vilja fólksins að sjá Þorstein Pálsson birtast aftur á sviðinu," sagði Ólafur Ragnar Grímsson. -gse Alþýðubanda- lagið hefur styrk átta þingmanna „Alþýðubandalagið mun sýna fram á styrk átta þingmanna ef til þessa stjómarsamstarfs verð- ur gengið,“ sagði Skúli Alexand- ersson, þingmaður Alþýðu- bandalagsins, þegar hann var spurður hvort hann myndi styðja ríkisstjóm Alþýðubandalags, Al- þýðuflokks, Framsóknarflokks og Stefáns Valgeirssonar. Afstaða Skúla hefur lengst af verið sú að hann sé andvígur þessu samstarfi og hefur hann ekki sagst vilja verja hana van- trausti. En er þá afstaða hans breytt? „Þaö stóð aldrei annaö til en aö ég styddi stjórn sem Alþýðu- bandalagið væri aðili aö,“ sagði Skúli Alexandersson. -SMJ Forsetinn kallaði fyrir sig for- menn stjórnmáia- flokkanna Forseti íslands kallaði 1 gær fyrir sig forsvarsmenn allra þeirra sfjómmálaflokka sem síeti eiga á Alþingi. Fyrstur kom Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, og tók hann aö sér aö kanna möguleika á myndun stjóm- ar. Á eftir Þorsteini komu þeir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýöuflokksins, Steingrímur Her- mannsson, formaöur Framsóknar- flokksins, og Ólafur Ragnar Gríms- son, formaður Alþýðubandalags- ins. Þegar Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, mætti var Þorsteinn kominn aftur til aö skiia umboðinu. Á eftir Albert komu síðan Kristín Einarsdóttir, fulltrúi Kvennahstans, og Stefán Valgeirsson, formaður Samtaka um jafnrétti og félagshyggju. Eftir þessa fundi meö forsvars- mönnum stjórnmálaflokkanna fól forsetinn engum umboðið til stjórnarmyndunar. -gse Þá er vetur konungur kominn til landsins en fyrstu ummerki eftir hann mátti greina á Ólafsfirði i gær og reyndar víðar á Norðurlandi. Það hefur mikið gerst hjá Ólafsfirðingum að undanförnu en nú hefur hvít slikja breiðst yfir öll ummerki skriðufallanna miklu. Er ekki laust við að sumum Ólafsfirðingum þyki léttir að fá sinn gamla óvin, snjóinn, aftur. DV-mynd Kormákur Ráðherrar í startholunum JL-húsinu lokað í gær vegna greiðsluerfiðleika Ef Steingrími Hermannssyni tekst að fá Stefán Valgeirsson eöa ein- hvem annan sem þrítugasta og ann- an þingmanninn til að styðja stjórn sína er búist við að hún muni taka við í fyrramáliö. Enn hefur ekki ver- ið gengið frá skiptingu ráðuneyta mifli flokkanna en á undanfornum dögum hefur skýrst hverjir eru ráö- herraefni þeirra. Steingrímur Hermannsson verður forsætisráðherra. Halldór Ásgríms- son er öruggur sem annar ráðherra Framsóknar. Guðmundur Bjarnason er einnig talinn öruggur með ráð- herrastól. Jón Helgason verður hins vegar ekki ráðherra nema Fram- sóknarflokkurinn fái landbúnaðar- ráðuneytið sem er ólíklegt. Ef Fram- sókn fær íjórða ráðherrann er talið líklegt að Páll Pétursson hijóti þann stól. Ráðherrar Alþýðuflokksins verða þeir sömu. Flokkurinn gerir sterkar kröfur um aö halda bæði fjármála- ráðuneytinu og félagsmálaráöuneyt- inu. Alþýðubandalagið hefur hins veg- ar gert kröfur um mikla uppstokkun og á erfitt með að sætta sig við að sömu ráðherrar gegni sömu störfum í hinni nýju stjórn. Þeir hafa meðal annars lagt áherslu á að fá fjármála- ráðuneytið sérstaklega þar sem ut- anríkisráöuneytið mun líklega falla Alþýðuflokknum í skaut. Þó eðlilegt væri að formaður Alþýðuflokksins fengi það embætti er vitað að Jón Sigurðsson hefur mikinn hug á því og horfir þá'- sérstaklega til þeirra breytinga sem verða á Evrópumark- aði árið 1992. Talið er víst að bæði Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson verði ráðherrar. Þeir eru fulltrúar þeirra tveggja höfuðfylkinga sem takast á innan flokksins. Sú skipting gerir val á þriðja ráðherranum erfitt. Guðrún Helgadóttir þykir og mikill stuðn- ingsmaður Olafs Ragnars en hins vegar er mikil þörf fyrir Alþýðu- bandalagiö að velja konu sem ráð- herra. Vegna aðstæðna er þó talið líklegt að Ragnar Arnalds fái stól og jafnvel Steingrímur J. Sigfússon. Eins og fram kemur í DV í dag ger- ir Stefán Valgeirsson skýlausa kröfu um samgönguráðuneytið fyrir stuðning sinn við stjórn Steingríms. -gse JL-húsinu hf., Hringbraut 121, var lokaö um klukkan fjögur í gær vegna greiösluerfiðleika fyrirtæk- isins. Starfsfólkinu, um 30 manns, hefur ekki veriö sagt upp en þaö er atvinnulaust á meðan fyrirtækið er lokað. Innan viðskiptalífsins hafa lengi verið sögusagnir um slæma rekstr- arstöðu Jón Loftssonar hf. - JL- hússins hf. og vitað er að reynt hefur verið að selja fyrirtækið. „Jón Loftsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, mætti á fund hjá okkur starfsfólkinu eftir að versluninni var lokað í gær. Hann sagði okkur að við fengjum launin okkar fyrir september send í pósti. Meiru lofaði hann ekki,“ sagði Sól- veig Bjartmars, verslunarmaður hjá JL-húsinu, við DV í morgun. Að sögn Sólveigar hefur engum starfsmanni verið sagt upp ennþá. „Jón ræddi um aö hann vonaðist til að hægt yröi að opna verslunina aftur, hvort sem þeir myndu gera þaö eða einhverjir aðrir,“ sagði Sólveig. -JGH Fundað í Ölduselsskóla: Sjöfn sat undir ádrepum foreldra - fundað 1 fræðsluráði í dag „Sjöfn fékk ádrepur á fundinum og það var heitt í fólki. Viö viljum fá kennara barnanna aftur skiiyrð- islaust. Það er ekki hægt aö taka umyröalaust af börnunum þann kennara sem þau hafa haft frá því þau byijuðu í skóla. Ef ákveðnum skilyröum verður fullnægt innan skólans ætti aö takast að fá kennar- ann aftur til starfa. Það er umfram allt í hendi Sjafnar skólastjóra aö skapa þau skilyrði," sagöi foreldri barns í einum 9 ára bekk Öldusels- skóla við DV. Sjöfn Sigurbjömsdóttir boðaði foreldra bama í bekknum, þar sem kennarinn hafði ákveðið að hætta störfum, á funcj í skólanum í gær- kvöld. Nefndi kennarinn sam- skiptaörðugleika við Sjöfn sem aö- alástæðu uppsagnar sinnar. Fun- duðu foreldrar um máliö á laugar- dag og sendu bréf um samskipta- örðugleika Sjafnar við samstarfs- fólk sitt til fræðslustjóra, mennta- málaráðuneytisins, fræðsluráðs og hennar sjálfrar. Á bréfið að hafa hvatt Sjöfn til fundarhaldanna í gærkvöldi. „Við tókum fram á fundinum að Sjöfn yröi framvegis aö hafa höml- ur á skapsmunum sínum og lofaöi hún því. Varðandi ádrepur foreldra svaraði hún eins og pólitíkusar ein- ir geta svarað og því er ekki hægt að segja að nein ákveðin niðurstaða hafi fengist af fundinum. Það verð- ur fundað um máliö í fræðsluráði í dag og hafa foreidrar áhyggjur af afdrifum málsins þar vegna hinnar pólitísku hliöar þess. En málinu verður ekki gleymt og við munum gera allt tii aö fá kennara barnanna okkar aftur til starfa." -h)h

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.