Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aöstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STE'NSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Ólympíuleikarnir Á milli þess sem fólk fær fréttir af nýjustu atburðum í ríkisstjórnarleikritinu situr það fyrir framan sjón- varpið og fylgist með keppninni í Seoul. Að vísu er tíma- munur slíkur milli Kóreu og íslands að keppnin stendur yfir að nóttu til hér heima en það hefur ekki aftrað fjöld- anum frá því að vaka og fylgjast með. Kemur þar tvennt til. Annars vegar vill fólk fylgjast með frammistöðu ís- lensku þátttakendanna og þá einkum handknattleiks- liðsins og hins vegar er ástæðan sú að nú eru í fyrsta skipti beinar útsendingar frá leikunum. Ríkisútvarpið á lof skihð fyrir hina viðamiklu dag- skrá sína frá ólympíuleikunum. Gildi þess að horfa á íþróttaviðburði í sjónvarpi er að geta séð þá jafnóðum og þeir eiga sér stað. Augnablikið skiptir máli vegna þess að þá er það spennan og eftirvæntingin eftir úrsht- unum sem laðar fólk að. Það er th að mynda ólíkt skemmtilegra að sjá í beinni útsendingu þegar þeir Carl Lewis og Ben Johnson heyja einvígi sitt í hundrað metra hlaupinu heldur en að lesa fyrst um úrshtin og sjá hlaup- ið löngu síðar. Sjónvarpsvélarnar flytja okkur inn á miðja hlaupabrautina þar sem andrúmsloftið er rafmagnað og taugamar þandar til hins ítrasta, bæði hjá keppendum og áhorfendum. Við erum öh stödd í Seoul þessa dagana, þökk sé tækninni og framtaki ríkissjónvarpsins að sýna beint, jafnvel þótt á óvanalegum tíma sé. Það eru miklir afreksmenn sem keppa á ólympíuleik- unum og gaman að fylgjast með þeim. Sama hvar grip- ið er niður. Hver dáist ekki að Biondi, Otto eða Evans í sundinu? Hver fehur ekki í stafi yfir leikni fimleika- fólksins og hver tók ekki þátt í gleði hinnar fótfráu bandarísku stúlku, Florence Joyner, þegar hún táraðist á verðlaunapallinum? Afrekin eru mörg og þá má ekki gleyma að þau em ekki fyrirhafnarlaus. Þrotlausar æfmgar og einbeiting, sjálfsagi og andleg sem líkamleg uppbygging eru að skha sér í verðlaunapeningunum í Seoul. Þarna er samankominn ijóminn af því æskufólki sem best er í heiminum. Gallinn er sá að smám saman gemm við kröfur th þess að allir hinir nái sama ár- angri. Meðalmaðurinn verður skussi í augum okkar og venjuleg íþróttakeppni heima við verður óspennandi og flatneskjuleg. Þessi viðhorf bitna á íslensku þátttakendunum. Þeir hafa ekki verið 1 fremstu röð og á mæhkvarða ólympíu- leikanna er árangurinn heldur dapur. Menn henda jafn- vel gaman að útkomunni. En er þetta sanngjarnt? Er við því að búast að lítil þjóð tefh fram íþróttafólki sem keppir um verðlaunasæti? Er ekki hitt jafn mikhs virði að geta verið með og taka þannig þátt í þessari einstæðu hátíð sem ólympíuleikamir em. Manni er th efs að nokkur einn atburður tengi þjóðir heims saman á jafn áhrifaríkan hátt eins og að leiða æskufólk allra landa inn á einn og sama leikvanginn. Og láta síðan gervaha heimsbyggðina fylgjast með leiknum heima í stofu hjá sér. Ólympíuleikarnir tengja ólíkar þjóðir saman, knýta bræðrabönd og hræra upp í tilfmningum, gleði og sorg, án þess að nokkur beri skarðan hlut frá borði. Það ganga alhr jafn heilir frá þessum leik, líka þeir sem tapa og verða undir. Að þessu leyti em íþróttirnar meira en hlaup og stökk. Þær em máttugt vopn í þágu friðar. Ólympíuleik- amir færa okkur íslendingum kannski enga sigra í sek- úndum, mörkum eða verðlaunapeningum tahð. En þeir færa okkur nær öhum hinum þjóðunum í heiminum og þjóðimar nær ókkur. í því felst sigur þessara leika. Ehert B. Schram „Hitt hefur ekki breyst að vísindi eru órjúfanlega tengd samfélaginu," segir i inngangi greinarinnar. - Frá ráðstefnunni „Maður og vísindi" sem haldin var á Kjarvalstöðum fyrir nokkrum árum. Vísindin fyriralla? - Ertþúekkijarðvísindamaður? spurði gömul kona mig fyrir mörg- um árum. Ekki gat ég svarið það af mér. Þá vildi sú gamla að ég þýddi fyrir sig leiðbeiningar við rafhitað teppi sem hún hafði keypt sér. Þarna birtist það viðhorf í hnotskum að vísindi séu eins kon- ar fjölfræði eða víðtæk kunnátta, rétt eins og var fyrr á öldum. Vissu- lega eru nútímavísindi sammerk víðtækri kunnáttu en þau hafa líka breyst í þá veru að sérhæfast og tilrauna- eða rannsóknaþáttur þeirra hefur stækkað mjög hratt. Hitt hefur ekki breyst að vísindi eru órjúfanlega tengd samfélaginu. Vísindi og samfélag Gróf skilgreining á vísindum er í þá veru að telja þau taka yfir alia markvissa starfsemi, byggða á hugsun, rannsóknum og tilraun- um, sem miðar að því að auka þekkingu iðkandands og samfé- lagsins sem hann tilheyrir. Hug- myndirnar og aðferðirnar spretta ekki „að innan“ og koma ekki „að ofan“ heldur úr samfélaginu, bæði í nútíð og fortíð. Tengslin við sam- félagið og stéttir þess eru mjög flók- in og þau em meira að segja oft mörkuð hagsmunatogstreitu, rétt eins og flest það sem samfélag manna nær yfir. Vísindagreinar em mismikið tengdar þjóðfélagsbaráttunni eða framvindunni. Þaö getur farið eftir iðkandanum hve tengslin em náin eða eftir því hvort vísindin fjalla til dæmis um sögu manna, hag- fræði og siðfræði eða um steina, foman kveðskap og veðrið. Til dæmis er engin hagfræöi hlutlaus stéttunum eða hafin yfir ríki og hagsmunahópa. Jafnvel þótt fjallað sé um dauð efni, t.d. í ólífrænni efnafræði, og þótt inntak tiltekinna vísinda sé ekki stéttbundið er notk- un fræðigreinarinnar í verki bæði hápólitisk og stéttbundin í mörgum tilvikum. Auðvitað má finna dæmi um engin tengsl af þessu tæi við samfélagið ef svo ber undir en þau eru fá. Allar tilraunir til þess að fá fólk til að trúa því að heil vísinda- grein sé óháð samfélaginu eða hlut- laus i þjóðfélagsbaráttu eru jafn- vondar blekkingar og þær sjald- séöu öfgar sem fela í sér aö stétta- átökin ein marki vísindum farveg. Ekki mælistika gróðans Þessar hugleiðingar em hér fram settar sem rammi að umfjöllun um tvö atriði í íslenskum vísindum: Stýringu fjár til vísinda og ofur- áhersluna á hagsmuni fyrirtækja í þeim efnum. Á íslandi hefur það tíðkast að „óaröbær" vísindi séu fjársvelt og eru þá skammtímasjónarmiðin KjaUarinn Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur, kennari í MS ríkjandi. Nefna má sem dæmi að fornleifarannsóknir eru hér með minnsta móti þótt landið gegni lyk- ilhlutverki í sögu allstórs heims- hluta. Annað dæmi er lítiö fé til vísindastarfa sem miða að því að minnka áhrif náttúruhamfara; yfirvofandi Suðurlandsskjálfti hef- ur verið smáaura virði. Samtímis hefur orðið til þrýstihópur embætt- ismanna, atvinnurekenda og vís- indamanna sem leggur ofuráherslu á vísindi í þágu atvinnuveganna. Ég segi ofuráherslu vegna þess að þau atriði eru tekin út úr sem kunna að gefa sem mest og skjótast af sér hvort sem það er nú tölvu- fræði eða þekking á jarðhita. Sam- ræmi skortir (því vissulega eiga vísindi að gagnast framleiðslu eða þjónustu) eins og sést t.d. á jökla- fræðinni sem verið hefur hálfgerð hornreka þótt jöklar séu aðalforða- búr allra helstu vatnsaflsvirkjan- anna. Og „mjúku“ vísindin sem ekki gefa af sér aura eru jafnafskipt og áður, jafnvel afskiptari. Arðbærari viðhorf Það er hvorki hægt að krefja þá sem sáttir eru við mat vísinda- starfa eftir mælistiku gróöans um annað viðhorf né bíða eftir að menn uppgötvi af sjálfum sér hvernig skipta skuli fé til vísinda í landinu. Arðbærari viðhorf (til langs tíma litið) verða til með vaxandi afskipt- um almennings af vísindum og með deilum um hugmyndafræði. Til þess þarf að minnsta kosti almenn- ingur að líta æ meira á vísindi sem sér viðkomandi og alþýða manna verð'ur að setja fram kröfur um vísindastarfsemi. Fræðimennirnir, sem ekki eru of uppteknir af fram- gangi einstarkra verkefna í þágu fyrirtækja, verða líka að taka til hendi. Þar má nefna þrjú mikilvæg atriði: Kynna fræðigrein sína al- menningi (eins og stundum hefur sést gert), fræða fólk jafnóðum um rannsóknir, gang þeirra, tilgang, framvindu og niðurstöður (meö aðstoð fjölmiölanna og t.d. frétta- bréfa/tímarita) og kynna enn betur stofnanir og þörfma fyrir tiltekin vísindi; ekki aðeins áhrif þeirra á fjárhag manna eða vellíðan heldur og á skilning á sjálfum sér, þjóð- félaginu, náttúrunni og veröldinni. Margvísleg verkefni Hér er aðeins rúm til að nefna fáein verkefni er þarf að vinna að í ljósi þess sem fram kom hér á undan. Okkur vantar ráðuneyti sem stjórnar umhverfismálum og vís- indastarfsemi. Hún þarf aö losna út úr stjórnunar- og tjárhagstengsl- um við efnahags- og þjónusturáðu- neytin. Okkur vantar samræmdan verkefnalista og fé til þess að sinna öllu sem lýtur aö náttúruhamför- um er tengjast eldstöðvum, jarð- skjálftasvæðum, jöklum, skriðu- föllum og veðri. Okkur vantar ein- faldari uppbyggingu og skýrari verkaskiptingu en felst í núverandi vísinda- og rannsóknastofnunum - og sumar greinar, sem hvergi eiga inni, þurfa líka sinn bás. Okkur vantar fræðslustofnanir á borð viö margumrætt náttúrufræðisafn og ekki bara samvinnu íjölmiðla og vísindamanna heldur vantar bein- línis miðla sem samtök vísinda- manna (og þau eru mörg) sjá um og hafa þannig beint samband viö almenning. Það ætti að liggja í aug- um uppi að án stuðnings almenn- ings í þágu vísinda komast vísinda- menn ekki langt með kröfur um aukið fé og meiri athygli. Reyndar þarfnast alþýða manna líka margra vísindamanna í sinni baráttu fyrir bættum hag. Það merka mál er efni í annan pistil. Ari Trausti Guðmundsson „ Jafnvel þótt fjallað sé um dauð efni, t.d. í ólífrænni efnafræði, og þótt inntak tiltekinna vísinda sé ekki stéttbundið er notkun fræðigreinarinnar í verki bæði hápólitísk og stéttbundin í mörg- um tilvikum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.