Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Qupperneq 28
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
S6
^Húsnæðisstofnun rikisins
Frjálst,óháð dagblað
Askrifendur!
Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin.
Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna.
Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti.
Meðþessum
boðgreiðsJum
vinnst margt:
# Þærlosaáskrtfendur
viðónæðivegnainn-
heimtu.
# Þæreiuþægilegur
greiðslumátísem
tiygglrskilvísar
greiðslur þrártt fyrír
annireðafjarvistir.
e Þærlétta biaðberan-
umstörfinenhann
heldurþóóskertum
tekjum.
e Þæraukaoryggi.
Blaðberarerutíl
dæmisoftmeðtólu-
verðarfiáihæðirsem
getaglatast
Hafið samband
við afgreiðslu DV
kl. 9-20 virka daga,
laugardaga kl. 9-14
í sima 27022
eða við umboðsmenn okkar
ef óskað er nánari
upplýsinga.
Húsnæðisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD________________
Simi 696900
Útboð
Stjórn verkamannabústaða, Ólafsfirði, óskar eftir til-
boðum í byggingu tveggja einbýlishúsa úr stein-
steypu, verk nr. A. 01.02. úr teikningasafni tækni-
deildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál hvors húss 125 m2.
Brúttórúmmál hvors húss 410 m3.
Húsin verða byggð við götuna Mararbyggð 10-12,
Ólafsfirði, og skal skila fullfrágengnum, sbr. útboðs-
gögn.
Afhending útboðsgagna er á bæjarskrifstofu, Ólafs-
vegi 4, 625 Ólafsfirði, og hjá tæknideild Húsnæðis-
stofunar ríkisins frá þriðjudeginum 27. sept. 1988
gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en þriðju-
daginn 4. okt. 1988 kl. 11.00 og verða þau opnuð
að viðstöddum bjóðendum.
F.h. Stjórnar verkamannabústaða á Ólafsfirði
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
Fréttir
ísaflörður:
Guðmundur Gíslason Vest-
fjarðameistari í skák
Enska atvinnmmölimin:
Norskir og isfirskir pennavinir við Sjóminjasafnið á ísafirði.
ísaflöröur:
Norskir pennavinir
í heimsókn
Sigmjón J. Sigurðsson, DV, Isafirði:
Sjöundi bekkur grunnskólans á
ísafiröi fékk skemmtilega heimsókn
í síöustu viku, en þá komu til þeirra
um 30 norskir pennavinir þeirra úr
Semskóla í Tönsberg í Suöur-Noregi.
Þau hafa skipst á bréfum í tvo vetur
aö frumkvæöi dönskukennara þeirra
úr 5. bekk, Ástu Björnsdóttur. Meö
krökkunum í för voru þrír kennarar
og gistu Norðmennirnir á heimilum
ísfirsku krakkanna frá föstudegi til
laugardags.
„ísfirsku börnin hafa tekið vel á
móti okkur en þau hefðu mátt vera
duglegri við að skrifa," sagði Marit
Halvordsen, kennari norsku barn-
anna, við DV. „Þetta er mjög lær-
dómsríkt fyrir okkur og eflaust verð-
ur auöveldara fyrir þau aö skrifa
næsta vetur.“
Börnin skoðuðu sig um á ísafirði á
föstudag. Meðal annars heimsóttu
þau nýja Stjórnsýsluhúsið og Sjó-
minjasafnið. Um kvöldið var svo
dansað í Sponsinu og daginn eftir var
farið í sundferð til Bolungarvíkur.
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði:
Vestíjarðamótið í skák fór fram um
síðastliðna helgi í Súðavík og það var
ísfirðingurinn Guðmundur Gíslason
sem fór heim með titilinn Vestfjaröa-
meistari 1988. Jón Garðar Viðarsson,
Reykjavík, Björgvin Jónsson, Kefla-
vík, og Guðmundur voru efstir og
jafnir með 4 og 1/2 vinning af 6 mögu-
legum, en þar sem Guömundur var
eini Vestfirðingurinn hlaut hann tit-
ilinn, auk farandbikars og annars til
eignar.
Peningaverðlaun fyrir þrjú efstu
sætin voru samtals 32.000 krónur og
skiptu þremenningarnir þeim á milli
sín. í 4.-5. sæti voru Guðmundur
Halldórsson, ísafirði, og Róbert
Garðarsson, Reykjavík, báðir meö 4
vinninga.
Guðmundur Gislason, nýbakaður
Vestfjaróameistari í skák 1988,
þungt hugsi við taflborðið.
Einnig fór fram hraðskákmót á
laugardagskvöldið og var Guðmund-
ur Gíslason einnig efstur þar.
Dreifir nöfnum fyrirtækja
að þeim forspurðum
Enska atvinnumiðlunin, sem DV
hefur fjallað um að undanfórnu, aug-
lýsir nöfn íslenskra fyrirtækja að
þeim forspurðum. í bæklingi, sem
miðlunin hefur látið gera og dreifir
í Englandi, er að finna nöfn all-
margra íslenskra fyrirtækja í fisk-
vinnslu, iðnaði, málningarfram-
leiðslu, sápuframleiðslu og rafiönaði.
Ekki vissu þeir forsvarsmenn fyr-
irtækja, sem DV ræddi við, að þeir
væru á lista hjá ensku atvinnumiðl-
uninni. Kváðust þeir aldrei hafa
heyrt miðlunina nefnda en har hins
vegar saman um að óvenjumikið
hefði borist til þeirra af atvinnuum-
sóknum frá Englandi. Ekki sögðust
þeir hafa ráðið fólk eftir þessum
umsóknum en stæði hins vegar á
sama þótt miðlunin væri með fyrir-
tæki þeirra á skrá.
Þeir útlendingar, sem fá lista hjá
atvinnumiðluninni með nöfnum ís-
lensku fyrirtækjanna, svo og leið-
beiningar um hvernig sækja skuli
um vinnu á íslandi, greiða 6 pund
fyrir. Þar með eru þeir orðnir með-
limir svokallaðs „ísklúbbs" og geta
fengiö frekari upplýsingar sér aö
kostnaðarlausu hjá miðluninni. í
leiðbeiningum, sem meðlimir „ís-
klúbbsins" fá, er m.a. sagt að þeir
skuli sækja um vinnu a.m.k. til árs.
Það líti betur út og vinnuveitendur
séu þá líklegri til að ráða útlending-
ana heldur en til skemmri tima. Enn
fremur segir aö viðkomandi geti hins
vegar snúið heim fyrr, eða innan
árs, sýnist honum svo. Þá bendir
miðlunin á að vænlegt sé að nefna í
vinnuumsóknihni, að viðkomandi
hafi áhuga á að læra íslensku. íslend-
ingar séu mjög stoltir af landi sínu
og menningu og fyllist ánægju viti
þeir af útlendingum sem hafi áhuga
á landi og þjóð. Séu þeir þá líklegri
til að bita á agnið. .jss
IUMFEROAR
Práð
brosum/
og w
alltgengurbetur *