Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988. 43 Afmæli Jóhann Jónsson Jóhann Jónsson, fyrrverandi kenn- ari, Sunnubraut 9 í Garði, er sjötug- ur í dag. Jóhann er fæddur og uppalinn á Seyðisfirði. Jóhann gekk í barna- og unglingaskóla á Seyðisfirði og sat tvo vetur á námsbekk í Alþýðuskól- anum á Eiðum. Hann byrjaði að kenna á Seyðisfirði árið 1944 og kenndi þar í 16 ár. Haustið 1960 réðst Jóhann að Gerðaskóla í Garði og kenndi þar síðan, allt þar til hann komst á eftirlaun. Síðustu árin var Jóhann stundakennari. Jóhánn var í hreppsnefnd Seyðis- fjarðarhrepps frá 1944 til 1960 og sex síðustu árin oddviti hreppsins. Hann er heiöursfélagi í knatt- spyrnufélaginu Víði í Garði og starf- aði með Látla leikfélaginu í Garði. Jóhann gerði út vélbátinn Trausta frá Seyðisfirði (Eyrunum) um nokk- urra ára skeið ásamt frænda sínum, Hallgrími Hallgrímssyni. en í tvö ár var Jóhann einn með bátinn. Jóhann er kvæntur Önnu Birnu Björnsdóttur, f. 28.9.1921, húsmóð- ur. Hún er dóttir Björns Björnsson- ar, bónda á Stóra-Steinsvaði og síðar verkamanns, og Grímlaugar Mar- grétar Guðjónsdóttur. Mæður Jó- hanns og Önnu voru alsystur. Böm Jóhanns og Önnu eru Ásta Borg, f. 5.7.1940, gift Ragnari Christ- iansen, og búa þau í Hverageröi með fjórum börnum; Björn Bergmann, f. 6.3.1945, kvæntur Önnu Svein- bjömsdóttur, þau búa að Lyngási 5 í Holtahreppi og eiga tvær dætur en hann átti tvo drengi áður; Margrét, f. 13.9.1946, gift Guðmundi B. Har- aldssyni og eiga þau tvö börn; Guðný Helga, f. 18.9.1947, gift Agli U. Kristinssyni og eiga þau þrjú börn en hún átti eina dóttur áður; Ólafur Ómar, f. 31.12.1951, kvæntur Ingu Stefánsdóttur og eiga þau eina dóttur; Unnur, f. 7.6.1953, hún á tvö börn; Þórný, f. 9.11.1960, gift Ólafi Ólafssyni og eiga þau einn dreng. Systkini Jóhanns eru Guðný, f. 19. október 1914, látin, var gift Einari Söring Þórarinssyni frá Seyðisfiröi, þau bjuggu í Keflavík og áttu sex böm; GunnarBjörgvin, f. 1.8.1916, látinn, var giftur Ebbu Jóhannes- dóttur og eignuðust þau þrjú börn, skildu. Faöir Jóhanns var Jón Bergmann Guðmundsson,f.21.7.1893 d. 21.9. 1939. Jón var sjómaður, oftast vél- stjóri á bátum. Hann var bróðir Jón- asar Guömundssonar, fyrrum kennara og alþingismanns. Móðir Jóhanns er Sesselja Sigur- borg Guðjónsdóttir, f. 19.12.1894, húsmóðir, matráðs- og saumakona. Hún og Hjálmar, faðir Vilhjálms fyrrverandi ráðherra, voru þre- menningar. Jón og Sesselja bjuggu lengst af á Sjávarborg í Seyðisfjarð- arhreppi. JóhannJónsson Jóhann tekur á móti gestum í Golfskálanum í Leiru í dag frá kl. 16.30 tilkl. 20. Páll Ólafsson Páll Ólafsson, rafvirki, Njarðvíkur- braut 11 í Innri-Njarðvík, er fimm- tugurídag. Páll fæddist og ólst upp í Keflavík. Hann lærði rafiðn og hefur lengst af starfað hjá Aðalverktökum. 12-3 ár vann Páll við rafvirkjun hjá Lundberg á Norðfirði en kom aftur til Keflavíkur og starfaöi á teikni- stofu varnarliðsins. Síðastliðin tíu ár hefur Páll starfaö sem ráfvirki á verkstæöi varnarliðsins á Miðnes- heiði. Páll er kvæntur Arngunni Jóns- dóttur, f. 13. júlí 1942, og vinnur hún við afgreiðslu í Fríhöfninni á Kefla- víkurflugvelli. Faðir hennar er Jón Steingrímsson og móðir Þórgunnur Ársælsdóttir. Þórgunnur er látin og er Jón núna kvæntur Guðbjörgu Þórhallsdóttur og búa þau í Kefla- vík. Páll og Arngunnur eiga eina dótt- ur, Maríu Erlu, f. 23.4.1975. Páll bjó áður meö Grétu Jónsdóttur og átti með henni börnin Guðnýju, f. 24.7. 1959, og Svölu, f. 24.10.1960. Guöný er gift Sveini Ámasyrú og búa þau. á Kópaskeri með tveim börnun sín- um. Svala er gift Randveri R. Ragn- arssyni, þau búa í Keflavík og eiga þijúbörn. Systkini Páls em Hannes Þór, f. 22.2.1931, d. í mars 1982; Árni, f. 22.7.1937; Gunnar, f. 28.4.1946. Faðir Páls var Ólafur A. Hannes- son, f. 25.12.1904, d. 27.10.1964, rennismiöur og verkstjóri í Slippn- um í Keflavík. Fööurforeldrar Páls voru Hannes Guðmundsson í Gróf- bæ (Garðastræti 1) í Reykjavík og Þómnn Ólafsdóttir Ingimundarson- ar, bónda í Bygggarði á Seltjarnar- nesi. Páll Ólafsson Móðir Páls var Guðný, f. 10.6.1910, d. í janúar 1977, Árnadóttir, bónda í Reykhólasveit, og Guðbjargar Loftsdóttur. Aðalsteinn Elías Jónsson Aðalsteinn Elías Jónsson bifreiða- stjóri, Naustabúð 12 á Hellissandi, ersextugurídag. Aðalsteinn er fæddur og uppalinn á Hellissandi. Hann hefur tekið sér margt fyrir hendur um ævina. Ung- ur fór hann til sjós og seinna ók hann vörubíl og vann við verslunar- störf. í sex ár var Aðalsteinn vél- stjóri á Gufuskálum, en síðastliðin 16 ár hefur hann ekið skólabflnum sem fer á milli Gufuskála, Rifs og Hellissands. Alla sína búskapartíð var Aðal- steinn með flár- og hestabúskap. Þá sá hann um rekstur félagsheimilis- ins á Hellissandi og hefur einnig unnið sem matsmaður í fiskverkun- arhúsi. Aðalsteinn sat í sveitarstjórn á Hellissandi og hefur tekið að sér ýmis félags- og trúnaðarstörf. Eiginkona Aðalsteins er Aldís Stefánsdóttir, f. 19.4.1934, og vinnur hún á Leikskóla Hellissands. Aldís er ættuö frá Neskaupstað, dóttir Guðnýjar Guönadóttur og Stefáns Eiríkssonar. Stefán er látinn en Guðný býr á Neskaupstað. Börn Aðalsteins og Aldísar eru Sólveig Jóna, f. 5.9.1951, fiskverkun- arkona í Ólafsvík, gift Pál Mortens- en og eiga þau þrjú börn; Stefán Guðni, f. 5.2.1953, húsasmiður, kvæntur Aöalbjörgu Sigtryggsdótt- ur og eiga þau flögur börn;'Svanur, f. 1.7.1954, bifreiðastjóri á Hellis- sandi, kvæntur Kristjönu Halldórs- dóttur og eiga þau tvö börn; Heið- brá, 30.9.1955, húsmóöir í Noregi, gift Kjell K. Nflsen og eiga þau eitt bam; Ásdís, f. 7.3.1957, málara- meistari í Noregi, gift Hans Cr. Mathisen og eiga þau eitt barn; Rut, f. 8.12.1959, bankaritari í Reykjavík, gift Sigurþóri Þórólfssyni og eiga þau tvö böm; Þór, f. 30.8.1962, hús- vörður á Hellissandi, sambýliskona hans er Hrafnhildur Tómasdóttir og eiga þau eitt barn; Dís, f. 12.5.1964, bankaritari í Reykjavík; Aðalsteinn Örn, f. 25.7.1965, lögreglumaður á Hellissandi, hann á eitt barn. Systkini Aðalsteins em Jenný, býr í Njarðvík; Ingibjörg, býr í Keflavík; Andrés, býr á Hellissandi; Kristín, býr á Hellissandi og Jóhann Gunn- ar, býr í Bandaríkjunum. Aðal- Aðalsteinn Elias Jónsson steinn missti bróður sinn fimm ára gamlan þann 16. janúar 1947. Faðir Áðalsteins var Jón Bjarna- son Oddsson, f. 6.6.1905 d. 7.7.1972, verkamaður. Móðir Aðalsteins er Sólveig Andrésdóttir, f. 2.5.1905. - Aðalsteinn verður á heimili sínu á afmælisdaginn. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir Sigríður Erla Þorláksdóttir Sigríður Erla Þorláksdóttir hús- móðir, Arnarhrauni 31 í Hafnar- firði.ersextugídag. Sigríður er fædd og uppalin í’ Hafnarfirði. Faðir hennar var Þor- lákur Guðlaugsson, f. 1.2.1903 d. 19.10.1982, og móðir hennar var María Jóna Þorkelsdóttir, f. 15.8. 1900 d. 20.6.1971. Sigríður er gift Kjartani Steinólfs- syni smyrjara, f. 10.10.1926, syni Steinólfs Benediktssonar og Jó- hönnu Bjarnadóttur. Böm Sigríðar og Kjartans eru Erla María, f. 16.10.1946, gift Guðmundi Sigurbjörnssyni; Jóhanna Guðrún, f. 27.11.1948, gift Brynjari Ö. Braga- syni; Þórir, f. 24.12.1949, kvæntur Unni K. Sveinsdóttur; Birgir, f. 7.4.' 1951, sambýliskona hans er Arn- þrúður G. Björnsdóttir; Þorlákur, f. 16.11.1958, kvæntur Maríu Péturs- dóttur; Guömundur, f. 30.3.1970. Barnabörn Sigríðar eru 14 og Sigríður Erla Hjörleifsdóttir barnabarnabörnin 2. Sigríður tekur á móti gestum á heimili sínu næstkomandi fóstu- dagskvöld, 30. sept., eftir klukkan 20. Til hamingju með daginn! 80 ára Lukka Elisdóttir, Suöurgötu 8, Seyðisfirði. Auðbjörg Albertsdóttir, Árbraut 3, BlönduósL 75 ára Aðalheiður Guðgeirsdóttir, Borgarholtsbraut 68, Kópavogi. 70 ára Bröttugötu 7, Vestmannaeyjum. Páll Torfason, Nausti, Eyrarsveit. Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Safamýri 48, Reykjavik. Árni Guðgeir Sveinsson, Kirkjustræti 2, Reykjavík. Jón Friðriks Oddsson, Næfurási 5, Reykjavík. 50 ára Kristín S. Stefánsdóttir, Vesturvangi 14, Hafnarfirði. Þorsteinn Brynjólfsson, Hagamel 48, Reykjavík. Helga Sveinbjörnsdóttir, Norðurgötu 2, Akureyri. Guttormur Sigurbjörnsson, Sunnubraut 10, Kópavogi. Elín H. Frimannsdóttir, Álftamýri 38, Reykjavík. 60 ára Sigurður Gunnarsson, Brimhólsbraut 33, Vestmeyjura. Nanna Guðjónsdóttir, Heiöarvegi 61, Vestmannaeyjum. Guðrún Elín Kristjánsdóttir, Kárastíg 13, Hofsósi. Þórunn Pálsdóttir, 40 ára Sigríður G. Jóhannsdóttir, Laufásvegi 52, Reykjavík. Óðinn Gunnsteinn Gunnarsson, Faxatúni 30, Garðabæ. Þóra Sveinsdóttir, Brimhólabraut 25, Vestmeyjum. Adolf Thoraiensen, Gjögri II, ÁmeshreppL Tryggvi Árnason, Stapasíðu 1, Akureyri. Óraar Sigurðsson, Seljabraut 22, Reykjavik. Hanna Lísbet Jónmundsdóttir, Bröttukinn 24, Hafnarfirði. Valþór Sigurðsson, Ölduslóð 47, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.