Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Page 36
44
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
Andlát
Bjarni Þórarinsson eirsmiöur, Nes-
vegi 56, Reykjavík, andaðist í Landa-
kotsspítala þann 25. september.
Hallbera Bergsdóttir, Vífilsgötu -5,
Reykjavík, andaðist í Landspítalan-
um 24. þ.m.
Ingibjörg Dagsdóttir, Austurvegi 34,
Selfossi, andaðist í sjúkrahúsi Suöur-
lands 26. september.
Sólrún Guðbjgrtsdóttir frá Drangs-
nesi, Esjuvöllum 14, Akranesi, and-
aðist í gjörgæsludeild Landspitalans
25. september.
Óskar Sigurðsson bóndi, Hábæ,
Þykkvabæ, andaðist í sjúkrahúsi
Suðurlands sunnudaginn 25. septem-
ber.
Ingólfur Helgason, Birkihlíð 20, Vest-
mannaeyjum, lést á heimili sínu 24.
september.
Ágúst Einarsson andaðist 12. septem-
ber sl. á sjúkraheimili í Skælskör.
Ingibjörg Betúelsdóttir andaðist á
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
25. september.
Baldvina Brynjólfsdóttir varð
bráðkvödd á heimili sínu laugardag-
inn 24. september.
Magnús Hallsson frá Gríshóli, Háa-
leitisbraut 44, andaðist í Borgarspít-
alanum 24. þ.m.
Jarðarfarir
Hilmar Magnússon, Logafold 50,
Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Langholtskirkju fimmtudaginn 29.
september kl. 10.30. Jarðsett veröur
í Selfosskirkjugarði.
Guðmundur E. Einarsson, fyrrver-
andi bifreiöarstjóri, Meðalholti 3,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 28. september
kl. 10.30.
Sveinn Hallgrímsson, Hörgshlíð 8,
Reykjavik, verður jarðsunginn frá
Dómiúrkjunni miðvikudaginn 28.
september kl. 13.30.
Bjarni Helgason frá Holti, Garði,
varð bráðkvaddur þriðjudaginn 20.
september. Útförin fer fram frá Út-
skálum, Garði, miðvikudaginn 28.
september kl. 14.
Svavar Erlendsson, Iðufelli 10, sem
lést 18. september sl., verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju miðviku-
daginn 28. september kl. 15.
Kristin Ólafsdóttir, Hátúni 12, lést í
Borgarspítalanum sunnudaginn 11.
september. Útför hefur farið fram.
Hlynur Ingi Búason lést af slysfórum
16. september sl. Hann fæddist 16.
júní 1973, sonur Búa Steins Jóhanns-
sonar og Hallberu Eiríksdóttur. Út-
for hans verður gerð frá Fossvogs-
kirkju í dag kl. 15.
Ti3kynningar
Hallgrímskirkja - starf aldr-
aðra
Fyrirhuguö er haustlitaferð til Þingvalla
nk. miövikudag, fimmtudag eöa fóstudag,
eftir veöri. Lagt verður af staö kl. 13.30
frá Hallgrímskirkju. Nánari upplýsingar
gefur Dómhildur Jónsdóttir í dag í síma
kirkjunnar, 10745 eða heima í síma 39965.
Fundir hjá ITC Melkorku
ITC Melkorka er hópur kvenna sem hitt-
ast tvisar í mánuði, annan og fjórða mið-
vikudag hvers mánaðar kl. 20 í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi. ITC er
skammstöfun sem stendur fyrir Intem-
ational Training in Communication.
Þetta eru samtök kvenna, 50 ára gömul,
starfandi um allan heim, en upphaflega
stofnuö í Bandaríkjunum og em höfuð-
stöðvamar þar. Ef þú vilt auka sjálfs-
traustið eða verða fær um aö tala skamm-
laust á mannamótum ertu velkomin á
fundi í vetur.
Jóhanna Guðfinna Guðmundsdóttir
lést 16. september sl. Hún fæddist í
Reykjavík 24. júní árið 1900. Foreldr-
ar hennar voru Guðmundur Berg-
þórsson og Stefanía Gísladóttir. Eft-
irlifandi eiginmaður hennar er
Kjartan Pétursson. Þau hjónin eign-
uöust tvær dætur. Útfór Jóhönnu
verður gerð frá Dómkirkjunni í dag
kl. 13.30.
Matthías Þ. Guðmundsson lést 16.
september. Hann fæddist í Viðey 10.
september 1921, sonur hjónanna
Guðmundar Júþussonar og Jóhönnu
Bjarnadóttur. Matthías stundaði sjó-
mennsku til ársins 1953 er hann hóf
störf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur,
lengst af sem verkstjóri. Hann var
þar til ársins 1984. Magnús var tví-
kvæntur og átti tvö börn með fyrri
konu sinni. Seinni kona hans er Sig-
urveig Einarsdóttir. Þau ólu upp fóst-
urdóttur.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Hverfisgata 82, 1. hæð, eldra hús,
þingl. eig. Jón Guðvarðarson, fer fram
á eigninni sjálfri fimmtud. 29. sept. ’88
kl. 17.00. Uppboðsbeiðandi er Útvegs-
banki íslands hf.
Hverfisgata 82,2. hæð, tafinn eig. Jón
Þ. Waltersson, fer fram á eigninni
sjálfri fimmtud. 29. sept. ’88 kl. 16.45.
Úppboðsbeiðandi er Útvegsbanki ís-
lands hf.
Skipholt 55, kjallari, talinn eig. Jón
Guðm. Ámason, fer fiam á eigninni
sjálfri fimmtud. 29. sept. ’88 kl. 15.15.
Úppboðsbeiðendur eru Ólaftir Gú-
stafeson hrl., Veðdeild Landsbanka
íslands og Gjaldheimtan í Reykjavík.
Stórholt 47, hluti, þmgl. eig. Bryndís
Þráinsdóttir, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 29. sept. ’88 kl. 16.00. Upp-
boðsbeiðendur eru Ásdís J. Raihar
hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Ólafur
Axelsson hrl., Skúli J. Pálmason hrl.,
Othar Öm Petersen hrl., Ásgeir Thor-
oddsen hdl., Lúðvík Kaaber hdl.,
Landsbanki íslands, Hallgrímur B.
Geirsson hrl., Magnús Norðdahl hdl.,
Jón Ólaísson hrl., Ingólfúr Friðjóns-
son hdl., Sveinn H. Valdimarsson hrl.,
Sigurður G. Guðjónsson hdl., tollstjór-
inn í Reykjavík, Ásgeir Thoroddsen
hdl., Friðjón Öm Friðjónsson hdl.,
Ólafur Gústafsson hrl., Þórunn Guð-
mundsdóttir hrl., Ámi Einarsson hdl.,
Ólafúr Axelsson hrl. og Sigmundur
Hannesson hdl.
B0RGARFÓGETAEMBÆTT1Ð í REYKJAVÍK
Meiming
Norræn vefnaðarsýning
á Borgundarhólmi
- fær góða dóma hjá Dönum.
Norræn farandsýning á textílverk-
um sem hóf göngu sína á íslandi á
Kjarvalsstöðum í mars og fór héðan
í Listaskálann í Þórshöfn í Færeyjum
er nú komin til Borgundarhólms.
Þaðan fer hún til Álandseyja og end-
ar loks á eyjunni Gotlandi því sýn-
ingin heitir SaariUa, sem er finnska
og þýðir eyja eða eyjur, og helst á
hvergi að setja hana upp nema á
eyjum. Hún var þó lánuð á kvenna-
hátíðina miklu í Osló í sumar eins
og fram kom í fréttum þaðan.
Það voru tíu textíllistamenn frá
hinum ýmsu Norðurlöndum sem
lögðu saman í sýninguna og eru þær
Sigurlaug Jóhannesdóttir og Anna
Þóra Karlsdóttir fulltrúar Islands.
Verk beggja fá góða dóma hjá gagn-
rýnanda Politiken sem telur vel þess
virði fyrir Kaupmannahafnarbúa að
skreppa til Borgundarhólms að sjá
sýninguna.
Þangað er umfimm stunda sigling. Níu fjörusteinar með hrosshári eru verk Sigurlaugar Jóhannesdóttur en
-nb/ihh teppin tvö á veggnum eru eftir Nönnu Hertoft, einn þekktasta iistvefara Dana.
Dansað af fullum krafti við tónlist frá hinni vinsælu unglingahljómsveit, Kvass. DV-mynd Róbert Jörgensen
Fyrsti skóladans-
leikur vetrarins
Róbert Jörgensen, DV, Stylddshólmi:
Félagslíf Grunnskólans í Stykkis-
hólmi er komið í fullan gang eftir
sumarlanga hvíld. Síðastliðinn laug-
ardag var fyrsti skóladansleikurinn
haldinn. Níundu-bekkingar sáu um
hann, enda var hann liður í fjáröflun
Björgunarskóli LHS
Björgunarskóli Landssambands hjálpar-
sveita skáta (LHS) er að hefja sitt tólfta
starfsár undir kjörorðunum: „Aukin
kunnátta - bætt þjálfun - betri árang-
ur.“ Dagskrá skólans er fjölbreytt að að
vanda. I nýútkominni vetraráætlun skól-
ans eru tímasett ýmis framhaldsnám-
skeið og leiðbeinendanámskeið fyrir
björgtmarsveitamenn og aðra sem tengj-
ast björgunarstörfum. Björgunarskóli
LHS býður upp á fjölda námskeiða og er
lýsing á þeim í námsskrá skólans. í vetur
verða emnig haldin námskeið í ferða-
mennsku fyrir almenning, eins og verið
hefur undanfarin ár' á vegum hjálpar-
sveitanna.
Perlukvöld fyrir sælkera
Hótel ísland mun á næstunni taka upp
þá nýbreytni að bjóða margrómuðum
listakokkum að sjá um sérstök sælkera-
kvöld í Norðursal hótelsins. Hljómsveitin
Kaskó spilar dinnermúsík undir boröum
bekkjarins vegna vorferðalags. Allir
nemendur skólans máttu koma (6-16
ára) en fóru heim á mismunandi tím-
um eftir aldri.
Þetta var hin mesta skemmtun,
diskótek og lifandi tónhst þar sem
hin vinsæla unglingahljómsveit
Kvass lék fyrir dansi og hélt uppi
og leikur einnig fyrir dansi í Norðursaln-
um eftir borðhaldið. Gestum er velkomið
að yfirgefa Norðursalinn eftir borðhaldið
og ganga í aðalsal á dansleikinn þar.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 19. september sl. hófst
starfsemi félagsins að nýju, eftir sum-
ardvalann, með eins kvölds tvímenningi.
16 pör skráðu sig til leiks og voru spiluð
30 spil.
Úrslit urðu þessi:
1. Bjöm-Guðlaugur 268
2. Njáll-Marinó 238
3. Ólafur-Sverrir 231
4. Ami-Guðjón 229
5.-6. Andrés-Stígur 227
5.-6. Magnús-Hörður 227
Meðalskor 210
Næsta mánudagskvöld verður aftur
spilaður eins kvölds tvímenningur, en
miklu fjöri til klukkan 22.00. Segja
má að frá miðnætti hafi nemendur
varla farið af dansgólfinu.
Dansleikurinn fór fram í Félags-
miöstöð Stykkishólmsbæjar en hún
var tekin í gagnið á síðasta ári eftir
gagngerar endurbætur.
þar á eftir verður spilaður tveggja kvölda
Mitchell-tvímenningur. Spilað er sem
fyrr í íþróttahúsinu við Strandgötu (uppi)
og hefst spilamennskan kl. 19.30.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur um notkun
myndbanda í kennslu
erlendra mála
Á morgun, miðvikudaginn 28. september
mun Erik Poulsen, kennari við Kennara-
háskólann í Kaupmannahöfn, halda fyr-
irlestur um notkun myndbanda í kennslu
erlendra mála á grunnskólastigi. Erik
Poulsen hefur mikla reynslu á þessu
sviöi, hann hefur um árabil bæöi kennt
starfandi kennurum notkun myndbanda
í kennslu og sjálfur notað myndbönd í
kennslu sinni á grunnskólastigi. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í KHÍ í stofu
B-201 kl. 16.30-18.30. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.