Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1988, Síða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 2.000
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hveri viku greið-
ast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988.
Faxamarkaður:
Metsala á
skötusel
- gott verð á öðrum tegundum
Metsala varð á skötusel á Faxa-
markaði í morgun þegar 154 kíló
seldust á 360 kr. kílóið.
Að sögn Bjarna Thors hjá Faxa-
markaði hefur skötuselurinn aldrei
selst á verði nálægt þessu áður. Hæst
hefur hann áður farið á 230 til 240
kr. Taldi Bjarni að skötuselurinn
færi í flugið.
Þá var ágæt sala á öðrum fiski. 7,8
tonn af hlýra fóru á 27 kr. kílóið.
28,6 tonn af karfa seldust á 25 kr. sem
er prýðisverð. 1,5 tonn af löngu seld-
ust á 30 kr. kílóið. Þá voru seld 13,6
tonn af ufsa á 6 kr. og 118 kg af ýsu
á 67 kr. kílóið. Enginn þorskur var
seldur.
-SMJ
Albert Guðmundsson:
Afstaða Alþýðu-
bandalagsins er
þjóðarskömm
„Mitt fólk hefur sagt mér að það
i hafi verið leitað til þeirra um stuðn-
ing við þessa stjórn. Ég á hins vegar
ekki von á því að það hlaupist undan
merkjum," sagði Albert Guðmunds-
son, formaður Borgaraflokks.
Þingmenn Borgaraflokksins hafa
margsinnis verið nefndir sem hugs-
anlegir stuðningsmenn ríkisstjórnar
Stéingríms Hermannssonar. Sér-
staklega hafa Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir og Óli Þ. Guðbjartsson verið
talin líkleg.
„Það er þjóðarskömm að Alþýðu-
bandalagið skuli standa í vegi fyrir
því að hér skuli mynduð meirihluta-
stjórn. Þessi flokkur, sem hefur ekki
nema átta þingmenn, neitar að ræða
við okkur, sem höfum þó sjö þing-
menn. Það er því enginn munur á
þingstyrk þessara flokka. Þetta
gerðu þeir þó að málefnaleg sam-
staða væri fyrir hendi svo að hér
mætti setjast að völdum meirihluta-
stjórn," sagði Albert. -gse
EINANGRUNAR
GLER
LOKI
Mér skilst að Albert sé að
segja eins og refurinn
forðum: „Berin eru súr."
AUir þingmenn Alþýðubandalagsins styðja stjóm Steingríms:
Enn vantar einn þing
mann upp a meirihluta
- víöa leitað fanga þar sem Stefán Valgeirsson gerir kröfu
Eftir að þingflokkur Alþýðu- Hermannsson.
bandaiagsins samþykkti að standa En þó Stefán geti ráðið úrslitum
heill og óskiptur að þátttöku í um hvort Steingrími tekst að berja
stjórn Steingríms Hermannssonar saman stjóm hefur verið leitað til
um ráðherrastól
virðist Stefán Valgeirsson vera
kominn í lykilaðstöðu í þessum
stjórnarmyndunarviðræðum.
Hann gerir hins vegar skýjausa
kröfu um að fá saragönguráðuneyt-
ið. Það eiga hinir flokkarnir erfitt
með að sætta sig við.
„Það þarf að ræða aftur við Stef-
án. Ég vil segja það að það er erfitt
að taka við slíkum kröfum. Vana-
lega eru ráðherraembætti ekki
rædd fyrr en samstaða er komin
um málefni,“ sagði Steingrímur
fleiri um hugsanlegan stuðning víð
stjórnina. Eins og fram kemur í
DV í dag er Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir nú að velta slíkum stuðningi
fyrir sér.
Sá málefnasamningur sem flokk-
arnir þrír hafa komið sér saman
ura er svo til óbreyttur frá því sem
ákveðið var á laugardaginn áður
en upp úr viðræðum flokkanna
slitnaði.
„Alþýðubandalagið kom og lagði
fram nokkrar spurningar sem við
ræddum. Það kom í ljós að þeir
hafa breytt um afstöðu. Þeir vilja
ganga til þessa stjórnarsamstarfs á
þeim grundvelli sem vár orðinn
ákveðinn bæði með fyrstu aðgerðir
og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar,“
sagði Stemgrímur í gær eftir að
þingmenn Alþýðubandalagsins
sneru aftur til viðræðnanna.
í þessu samkomulagi felst að
launafrysting gildir til 15. febrúar
og verðstöðvun út þann mánuð. Þá
munu Alþýðubandalagsmenn
einnig hafa fallið frá neitunarvaldi
sínu um byggingu nýs álvers í
Straumsvík.
En þó samstaða hafi náöst milli
þessara þriggja flokka er enn óvíst
um hvort þeir geti tryggt sér stuðn-
ing meirihluta þings.
„Ef allir þingmenn Alþýðubanda-
lagsins ganga til þessa samstarfs
þá erum við ekki nema þrjátíu og
einn en þurfum aö vera þrjátíu og
tveir. Það þarf meiri stuðning,“
sagði Steingrímur.
Plokkarnir þrír hafa boðað mið-
stjórnir sínar og flokksráð til fund-
ar síðdegis í dag og í kvöld. Þá verð-
ur endanlega gengið frá stjórninni
ef þrítugasti og annar þingmaður-
inn fæst. Ef það gengur eftir mun
stjórnin taka við i fyrramálið.
-gse
Stefnir í að laun
hækki um 2,5%
1. október
hækkunin ekki afturvirk
Laun munu hækka um 2,5% 1.
október en þá renna bráðabirgðalög
ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar,
frá því í ágúst, úr gildi. Þau lög frystu
þá launahækkun sem átti aö vera 1.
september.
Nokkuð hefur verið um það að fólk
hafl verið að velta fyrir sér hvort
hækkun launa, ef af verður, verði
afturvirk. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum sem fengust hjá Vinnuveit-
endasambandinu og Alþýðusam-
bandinu þá er ekki sá skilningur
lagður í lögin að þau geti verið aftur-
virk. Hjá VSÍ var okkur sagt að það
væri ótvírætt að þessum lögum heföi
verið frestaö og þau yrðu ekki aftur-
virk. Hefur t.d. ekki veriö gert ráð
fyrir þeim möguleika í sambandi við
útselda vinnu. -SMJ
Annir hjá lögreglu:
20 árekstrar í gær
Gamli maðurinn sem lýst var eftir í nótt fannst á gangi á Reykjanesbraut, gegnt Blesugróf, um sjöleytiö í morg-
un. Hafði maðurinn farið að heiman í nótt, en þar sem hann er haldinn hrörnunarveiki átti hann i erfiðleikum með
að rata heim aftur. Var það strætisvagnabílstjóri sem sá manninn á gangi og gerði lögreglunni viðvart. Var mann-
inum ekið heim til sín og var hann hress miðað við aðstæður. ' DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Afram
norðanátt
Á morgun verður norðanátt á
landinu, nokkuð hvöss á Austur-
landi. Á Norðaustur- og Austur-
landi verður slydda eða éljagangur
og dálítil él á annesjum norðan-
lands en bjart að mestu á Suður-
og Vesturlandi. Hitinn á landinu
verður 0-6 stig.
20 árekstrar urðu í Reykjavík í
gær, þar af 5 þar sem kranabíll þurfti
aö draga annan eða báða bíla af
staðnum. Tvö slys urðu, ekið var á
unga konu og barn en hvorugt slas-
aðist að ráði.
Að sögn lögreglunnar eru árekstr-
ar aö færast í aukana og eru 20
árekstrar á dag ekki óvanalegt. Að-
eins einn bíll er í slysarannsókn all-
an sólarhringinn og mikið álag á
honum. Er mikið um að lögregla sé
beðin að taka skýrslu þar sem fólk
getur hæglega bjargað því sjálft.
-hlh
Húsavik:
19kindurdrápust
í árekstri
Ekið var inn í kindahóp við bæinn
Torfunes í Kinn, ekki langt frá Húsa-
vík, í nótt. Drápust 19 kindur viö
áreksturinn. Það snjóaöi á þessum
slóðum í nótt og því einhver hálka
og slæmt skyggni. -hlh
r
i
i
:
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
i