Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 2
2
FÖSTUDAGÚR 4. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Söluaðilar á Haustmarkaðinum, Bíldshöfða:
Reyna að svindla á sölu-
skatti með Visanótum
„Stúlkan sem afgreiddi mig kvaöst
ekki renna vélinni nema einu sinni
yfir Visakortið og þar með kæmist
fyrirtækið hjá að greiða söluskatt af
vörunni," sagði Sigurlaug Sigurðar-
dóttir sem varð fyrir allsérstæðu at-
viki í Haustmarkaðinum á BOds-
höfða.
Sigurlaug keypti sér frakka á 3900
krónur í einum af sölubásum Haust-
markaðarins. Þar eru seldar vörur
frá Bót, Faco, Sautján og fleiri versl-
unum. Hafa aðflamir, sem versla
þarna, keypt vörur af verslununum
og selja sjálflr á Haustmarkaðinum.
Sigurlaug greiddi frakkann með
Visa-korti. Hún tók eftir þvi að af-
greiöslustúlkan renndi vélinni að-
eins einu sinni yfir kortið þannig að
reiturinn fyrir nafn seljanda var auð-
ur. „Ég vakti athygli stúlkunnar á
þessu og þá svaraði hún því til að
þetta væri gert tfl að koma fyrirtæk-
1501 HOOÖ OOOp Idg'í 05 08b2Slt
< ■
Z
cc <
O *
* UJ
3 -J
J.D
gXL
..Í-f/SB
SiAyRllúC
11 I 8 *SÖQ i - jsAM
m
§L VtSA j
i|l SSBSi HFIMll OARNOMgR
Autftoraahon no.
n5«ULYSlNö/Oí (scnption UPPHÆO t Amourl
!
I : VORUR 5 MATVÓRUR ' * - \
n HÓTELIRESTAURHNT
i P BIUCEK3AICAR RENTAL
UndlraAffit! Signalure
* | SAMTALS _
totalkr.
^SÖLUNÓTA
YFiHLVSfcto KOBTHAFA
É2 ******in herjneð Þá t
tur*au*i t*sém,- tókrtxu Eq >rto fcl aú andur eútomtna la pa> trw amoun-. ttwwn m TOTAL SALESSU P
tMOM ' apanaj* mwjrr, uppmrfKw nw* propar p»w«nta>or i profTMW m p«y such
reat-rr wr un TOTAI itoQ*sv»f «ny omar chanjes th*
»',C toAMnr.aE.«Rl,ai..nilUl^________________
Þannig litur hún út Visanótan sem á að koma fyrirtækinu hjá að greiða
söluskatt af vörunni. Eins og sjá má er reiturinn, sem ætlaöur er undir
nafn seljanda, auður. Hins vegar er nafn greiðandans, Sigurlaugar Siguröar-
dóttir, prentað vel og greinilega á nótuna.
inu hjá þvi að greiða söluskatt. Þetta
væri alltaf gert öðru hvoru, einn dag
í senn. Hún leiðrétti ekki seðilinn
þrátt fyrir ábendingu mína,“ sagði
Sigurlaug.
„Mér kæmi ekki á óvart þótt allir
þeir aðilar sem selja hér gerðu
þetta,“ sagði afgreiðslustúlka í sölu-
bás þeim þar sem Sigurlaug keypti
frakkann. Elín kvaðst hún heita en
vildi ekki gefa upp fóðumafn sitt.
Stúlkunni virtist ekki koma það á
óvart þegar blaðamaður DV bar und-
ir hana hvort verslunareigendur
væm að reyna að koma sér undan
söluskatti með því að prenta ekki
nafn verslunarinnar á Visanótumar.
En hún vildi ekki tjá sig mikiö um
þetta, sagði aöeins: „Það getur vel
verið að það sé gert eitthvað af þessu
hér. Ég hef nú samt alltaf rennt
tvisvar yfirVisanótumar í dag.“JSS
Hann er æðislega góður
en alveg ferlega Ijótur
- sögðu danssveittir unglingamir
Rúmlega þúsund grunnskólanem-
ar, víðs vegar af landinu, vom mætt-
ir á fyrstu tónleika Kims Larsen og
Bellami á Hótel íslandi seinnipartinn
í gær. Blaðamaöur mætti á staðinn í
lok tónleikanna og hafði þá verið
spilað stanslaust í hálfan annan
tíma. Dansgólfið var sneisafullt af
dansandi unglingum og virtist tónlist
þeirra Dananna fara afar vel í mann-
skapinn.
„Það er ofsagaman en við vitum
ekki hvort við verðum duglegri að
læra dönsku eftir tónleikana. Húr.
er ekki sérlega skemmtileg... hann
er alveg ferlega ljótur þannig að ég
hlusta bara á hann en horfi ekki,“
sögðu stelpur úr gagnfræðaskólan-
um í Keflavík, móðar og másandi
eftir dansinn. Þær sögðust kunna
mörg lögin utan að og fíla vinsælustu
lögin best.
„Danskan er alltaf jafnleiðinleg.
Við höfum sungið lögin hans einu
sinni í tíma og það var gaman. Við
lesum hann ekki eins og kvæði, það
væri ekki hægt,“ sögðu krakkar úr
Æfingaskólanum þegar Kim Larsen
lauk við seinna aukalagið við mikfl
fagnaðarlæti.
Fyrir utan biðu tvær stelpur frá
Neskaupstað. Þaðan hafði full rúta
ekið á 12 tímum til Reykjavíkur og á
leiðinni fékk hljóðsnælda með Kim
Larsen aö snúast linnulaust. „Þetta
var æðislegt. Þaö var vel þess virði
að keyra í 12 tíma til að sjá Kim Lars-
en,“ sögðu þær að austan og skimuöu
í kring um sig í von um eiginhand-
aráritun. Það bólaði ekkert á herra
Larsen sem varla hefur getað verið
annað en ánægður með fyrstu mót-
tökurnar á íslandi.
-hlh
Kim Larsen og Bellami á blaðamannafimdi:
Nýjungagirnin ekki góð fyrir tónlistina
Frá blaöamannafundi Kims Larsen og Bellami á Hótel íslandi. Þar var að
venju blandaö saman gamni og alvöru. DV-mynd Brynjar Gauti
„Þaö væri eins rangt að segja að
ég væri pólitískur tónlistarmaður og
að segja að ég væri það ekki. Ég segi
frekar sögur í mínum textum en að
vera með skflaboð. Það er stórt mál
að hafa alltaf skilaboð á takteinum,"
sagði Kim Larsen meðal annars á
blaðamannafundi á Hótel íslandi í
gær.
Hann sat ásamt hljómsveitarmeð-
limum Bellami fyrir svörum og var
rætt vítt og breitt um tónlistarlegar
rætúr hans, fyrirmyndir, peninga,
og ýmislegt fleira.
„Mér finnst nýjungagimi fara flla
með tónlistarbransann. Fólk heimtar
alltaf eitthvaö nýtt og það er erfltt
að standa undir þeim kröfum. Lag
er vinsælt í dag en gleymt og hallær-
islegt á morgun. Þetta á ekki aðeins
við um tónlistina heldur líka bíla,
hús og aðrar neysluvörur. Gamlir
meistarar bókmenntanna voru ekki
uppteknir af þvi að koma í sífellu
með eitthvað nýtt. Þeir vfldu bara
skrifa góöa sögu „en fed historie“,“
sagði Kim meðal annars í framhaldi
af spurningu um tónlist hans. Kim
sagðist vera undir áhrifum frá Bítl-
unum, Litle Richard og Elvis og af
heimamönnum nefndi hann sérstak-
lega gömlu Steppuúlfana eða „Step-
penwolf*.
Þeir félagar neituðu því ekki að
þeir þyrftu ekki að hafa miklar
áhyggjur af peingum og þá sérstak-
lega ekki Kimen það hefði ekki haft
nein afgerandi áhrif á þá. Þeir heíðu
allir reynt fátækt en þrátt fyrir pen-
inga héldu þeir alveg jarðsambandi
og væri einmitt tónlistin aðaljarð-
tengillinn.
-hlh
Misræmi
Emil Thorarensen, DV, Eskifirói:
Á sjöunda tímanum í gærkvöldi
var réttarhöldunum vegna meintra
ólöglegra veiöa Kambarastar SU 200
frá Stöðvarfirði frestað um óákveð-
inn tíma. Ríkissaksóknari, Bragi
Steinarsson, mun nú fara yfir gögn
málsins. Skuttogarinn Kambaröst
var sem kunnugt er færöur til hafnar
á Eskifirði sl. þriðjudag af varðskip-
inu Óðni og ákæra lögð fram um að
togarinn væri með of litla möskva í
Möskvamál Kambarastar a Eskifíröi:
í mælingum og málið til dómara
poka trollsins.
Dómkvaddir mælingamenn á Eski-
firði komust hins vegar að þeirri nið-
urstöðu að pokinn uppfyllti gfldandi
reglur hvaö möskvastærð varðaði og
fór þá málið í hnút.
Höskuldur Skarphéðinsson, skip-
herra á Óöni, sagði í samtali við DV
í gærmorgun að þeir væru búnir aö
mæla möskvana aftur og hann
kvaðst ekkert geta sagt úm málið á
þessú stigi. Hann sagði að málið
væri í höndum dómara. Höskuldur
viðurkenndi þó að um misræmi væri
að ræða í mælingum skipsmanna
annars vegar og hinna dómkvöddu
manna á Eskifirði hins vegar.
Höskuldur kvaöst að lokum viss
um að báðir aðilar hefðu unnið sitt
verk af samviskusemi þrátt fyrir
mismunandi niðurstööur mælinga.
Kambaröst hélt frá Eskifirði um
níuleytið í gærkvöldi og fór til Fá-
skrúösfjaröar þar sem aflanum var
landað í morgun. Togarinn heldur
svo til veiða á ný í kvöld og á söludag
í Þýskalandi 21. nóvember eftir aö
hafa orðið fyrir rúmlega tveggja sól-
arhringa töf vegna þessa máls.
Aðspurður kvaðst Steinar Guð-
mundsson, útgerðarstjóri Kamba-
rastar, ekki eiga von á því að útgerð-
in mundi aöhafast neitt gagnvart
Landhelgisgæslunni vegna óþæg-
inda og tafa frá veiöum. Það er mál
lögfræðings okkar, Sigurðar Georgs-
sonar, að svara því.
Þórður S. Gunnarsson:
Óli sá bréfið
samdægurs
„Sannleikurinn í þessu máli er
sá að umrætt bréf frá Lands-
bankanum barst mér í hendur
klukkan þrjú þann 21. október.
Óli var kallaður þennan sama
dag á fund bankans þar sem hon-
um varð gerö grein fyrir efni
bréfsins. Síöar sama dag afhenti
ég Óla ljósrit af bréfinu. í fram-
haldi af þessu ræddum viö báðir
við bankann úm efni bréfsins.
Vegna þessara viðrseðna opnaði
bankinn fyrir ábyrgðir vegna
bensínfarms sem var að koma en
rekstur félagsins hefði stöðvast
hefði ábyrgðin ekki fengist. Þess
vegna skil ég ekki hvers vegna
Óli fer með ósannindi um mig og
segir að ég hafi ekki látið hann
vita um bréfiö,“ sagði Þórður S.
Gunnarsson, fyrrum stjómar-
formaður Olís, viö DV í morgun
en hann er í fríi í London ásamt
fjölskyldu sinni.
„Ég get ekki gefið upp ástæðuna
fyrir því að viö Símon Gunnars-
son sögðum okkur úr sfjóm fyrir-
tækisins. Hins vegar var Óla
strax gerö grein fyrir því munn-
lega,“ segir Þórður.
ðli sagði á blaðamannafundin-
um sem hann hélt að hann hefði
ekki hugmynd um það hvers
vegna Þórður og Símon hefðu
hætt. -JGH
Nýr flokkur:
Býður fram
í Kópavogi
„Þeir hefðu nú stundum veriö
kátir í Alþýðuflokknum ef þeir
hefðu jafnmarga raenn og við,“
sagði Pálmi Steingrimsson sem
er í forsvari fyrir undirbúnings-
nefnd um stofnun nýs sfjóm-
málaflokks í Kópavogi. Flokkur-
inn ber nafnið Samtök jafnaðar-
manna og saravinnumanna og
var stofnaöur í gær. Hefur þegar
veriö send inn beiðni til bæjar-
yfirvalda um að fá sömu aðstoð
og aðrir flokkar við útgáfú bæjar-
blaðs.
Að sögn Pálma mun flokkurinn
einbeita sér aö bæjarmálum í
Kópavogi sem Pálmi telur i mesta
ólestri. Ætlunin er að bjóða fram
í næstu bæjarstjómarkosningum
en ekki verður boðið fram til al-
þingis.
Pálmi sagöi aö fyrsta starf
flokksins yrði að upplýsa bæj-
arbúa um ástandið í bæjarmál-
um. -SMJ
Suöumesjabakarí:
Starfsmenn
eiga 2,5
milljónir inni
Ægir Már Kárasan, DV, Kefiavik:
„Næsta skref okkar er aö senda
launakröfur fyrir 44 starfsmenn
Suðurnesjabakarís til Tryggva
Viggóssonar, lögfræðings Björg-
vins Víglundssonar, aöaleiganda.
Starfsmennirnir eiga inni laun
fyrir októbermánuö, samtals 2,5
milljónir," sagði Guðrún Ara-
dóttir, formaður starfsmanna
Suðurnesjabakarís, í samtali viö
DV eftir fund starfsmanna í gær.
„Fáist launin ekki greidd mun-
um yið fara fram á gjaldþrota-
skipti á fyrirtækinu, en það getur
tekið nokkum tíma þannig aö
fólkiö verður líklega að bíða eitt-
hvað eftir því aö fá launin sín
greidd úr ríkissjóði, sem ber
ábyrgð á vinnulaunum gjald-
þrpta fyrirtækja.“
Á fundinum í gær kom fram aö
Sparisjóðurinn í Keflavík or til-
búinn að lána starfsfólkinu pen-
inga á meðan það bíður þess að
fá launin. Ekki fylgir sögunni á
hvaða kjömm bankinn vill lána.