Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Page 5
FÖSTUDÁGUR 4. NÓVEMBER 1988. 5 Fréttir Japanir vilja kaupa þorsksvil tilbúmr að kaupa 350 kíló á dag yfir hrygningartímann Japanskir aðilar hafa leitað eftir því við íslenskt útflutningsfyrir- tæki að fá héðan keypt þorsksvil á næstu vertíð. Þeir lýsa sig tilbúna að kaupa 350 kíló á dag meðan hrygningartíminn stendur sem er nærri 3 mánuðir. Japanir vilja fá svilin send með flugi og bjóða vel á annaö hundrað krónur fyrir kíló- ið sem skilaverð. íslenska útflutningsfyrirtækið, sem fékk þessa beiðni, hefur leitað til fiskvinnslumanna og spurst fyr- ir um hvort mögulegt sé að fá þorsksvil yfir hrygningartímann og er svariö jákvætt. Segja þeir ekki meira mál að taka svil en að gella fiskinn. Hér er um alveg nýja útflutnings- grein aö ræða ef af verður. Það er að koma æ betur í ljós eftir því sem viöskipti meö fisk og fiskafurðir við Japan aukast að Japanir borða næstum a'Jt af fiskinum. Fyrir svo utan það aö þeir borða ýmsar fisk- tegundir sem við íslendingar myndum seint leggja okkur til munns. Forráðamenn íslenska fyrirtæk- isins, sem hér um ræðir, vilja ekki að nafn þess komi fram af ótta viö aö margir aðilar rjúki til og fari að reyna fyrir sér með svilsölu og eyðileggi þar meö fyrir þeim sölu- möguleikana. -S.dór BETEA BOÐ FBÁSAMSUNG Samsung örbylgjuofnarnir eru traustir og öruggir. Þeir hafa reynst framúrskarandi vel og auðveldað mörgum eldamennskuna. Getum nú úoðið takmarkað magn af EE-553 á sérstöku tilboðsverði. RE-553 býður upp á: 17 lítra innanmál - 500 wött - snúningsdisk - 5 hitastillingar. Fáanlegur í hvítum eða brúnum lit. Verð 14.950,- stgr. JAPISS ■ BRAUTARHOLT 2 ■ KRINGLAN ■ ■ Sl'MI 27133 ■ ■ AKUREYRI ■ SKIPAGATA 1 ■ ■ SÍMI 96-25611 ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.