Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1988.
Iþróttir
Ásgeir er að ná sér af meiðslunum:
Einhver smuga að
við komumst til Ítalíu
- segir Asgeir Sigurvinsson í viðtali við DV
„Ég vonast til aö geta leikið um
helgina, ég mætti á æfmgu í dag og
þetta gekk allt tiltölulega vel,“ sagði
landsliðsmaðurinn Ásgeir Sigur-
vinsson, í samtali við DV í gær, en
hann hefur átt við meiðsl að stríða
síðustu dagana. Stuttgart á efiðan
leik fyrir höndum um helgina, liðið
mætir Hamborg á heimavelli og því
er mikilvægt aö það tefli fram sínum
sterkustu mönnum. Stuttgart er í
toppbaráttunni sem stendur og er
ljóst aö þjálfarinn, Ari Haan, er að
móta heUsteypt lið í Stórgarði:
„Ég á alveg eins von á því að við
verðum áfram í efri kantinum en það
er langt í frá að menn séu farnir að
spá í meistaratitilinn," sagöi Ásgeir.
„Það kemur ekki í Ijós fyrr en í sum-
ar hveijir verða meistarar. Við erum
með tiltölulega gott lið og veitum
toppliðunum líklega harða keppni.
Það er hins vegar ekki reiknað með
því i okkar herbúöum að við vinnum
meistaratitilinn. Við tökum einn leik
fyrir í einu og ef möguleikinn er fyr-
ir hendi þá grípum viö hann,“ sagði
Ásgeir.
I spjallinu við blaðið var Asgeir
beðinn að skýra þann vanda sem
framherjar Stuttgartliðsðins, þeir
Jurgen Klinsmann og Fritz Walter,
hafa átt við að stríða í síðustu leikj-
um og jafnhliða því hvort eitthvað
væri hæft í áhuga spánska liðsins
Atletico Madrid á þeim fyrrtalda:
„Ég þekki þessi mál varðandi
spánska liðið ákaflega lítið,“ sagði
Ásgeir, „en Klinsmann hefur sjálfur
tekið þá ákvörðun að ræða þetta ekki
fyrr en í apríl á næsta ári. „Það er
rétt,“ hélt hann áfram, „ að hvorki
hann né Fritz Walter hafa skorað
jafn mikið og á síðasta ári en við
höfum samt staðið okkar vel í deild-
inni. Þaö má því ætla að það styrki
liðiö enn meir ef þeir tveir fara að
setja mörk á svipaðan hátt og í
fyrra."
- Nú náði íslenska knattspymu-
landsliðið góðri byijun í forkeppni
heimsmeistaramótsins, hvemig lítur
þú á framhaldið?
„Það er mjög erfitt að spá fyrir um
framhaldið eins og málin standa
núna. Það er vitanlega einhver
smuga að við komumst til Ítalíu en
þó ósennilegt að við náum öðm sæt-
inu. Ef við leggjum Austur Þjóðveija,
Tyrki, og Austurríkismenn heima þá
em möguleikamir þó til staöar og
jafnvel góðir.
- Nú hafa ýmsir legið íslenska
landsliðinu á hálsi fyrir að liggja of
aftur og nýta ekki þau sóknarfæri
sem gefast. Hvað viltu segja um þá
fullyrðingu?
„Það hefur sýnt sig á síðastliðnum
árum að þaö er hægt að vinna leiki
með því aö spila ömggan og góðan
varnarleik og svara með skyndisókn-
um. Ef það tekst þá em allir ham-
ingjusamir en ef það gengur ekki upp
þá líta menn allt öðrum augum á
hlutina. Það hefur ekki gerst mjög
oft í landsleik gegn stórþjóð eins og
Sovétmönnum að íslendingar hafi átt
fimm dauðafæri.“
Ásgeir var í framhaldi af þessu
spurður hvort hann teldi að aukin
áhersla á starf unglingalandsliða
gæti bætt knattspymuna í heild á
Islandi:
„Ég þekki ekki nægjanlega vel með
hvaða hætti unglingastarfið er heima
á íslandi til að geta svarað þessari
spurningu. Hér í V-Þýskalandi er
undirbúningur fyrir unglingalands-
liðin nánast jafn því sem gerist með
a-liðið. Þau eru jafnmikið í æfinga-
búðum og a-landsliðið. Þar fá ungir
leikmenn tækifæri til að æfa leik-
kerfi og annað sem þörf er á varð-
andi þá leiki sem fyrir Uggja. Tíminn
sem fer í unglingaliðin er því mjög
mikill hér í V-Þýskalandi, þá á ég
við þau lið sem skipuð em leikmönn-
um yngri en 21 árs, yngri en 18 ára
og yngri en 16 ára. Sumum fmnst
þetta jafnvel of mikið álag á unglinga
og að of mikill tími þeirra fari í að
iðka knattspymu. Sumra álit er að
bókleg menntun eöa almenn skóla-
ganga megi jafnvel í sumum tilfellum
víkja fyrir knattspyrnunni. Eftir því
sem ég þekki best þá hefur mönnum
hér ekki reynst erfitt aö finna tíma
til að sinna yngri liðunum en þau em
gjaman sett í æfingabúðir samhliða
því sem a-liðiö fer í æfingabúðir
vegna sinna leikja,“ sagði Ásgeir við
DV.
í lok samtalsins var Ásgeir síðan
spurður hvor erkiféndanna hann
héldi að hefði betur í baráttunni um
sæti í HM 1990, Hollendingar eöa
V-I>jóðverjar:
„Eg held að bæði Hollendingar. og
Þjóðveijar eigi eftir að gefa frá sér
stig í baráttunni. Ég held jafnvel að
þaö liö sem liggur fyrir Wales á úti-
velli, en sú þjóð leikur i sama riðli,
sitji eftir og þaö er synd að þessar
tvær knattspymuþjóðir, Hollending-
ar og Þjóðveijar, skuli ekki báðar
fara til Italíu," sagði Ásgeir.
-JÖG
Ásgeir Sigurvinsson, fyrirliði Stuttgart, rekur hér knöttinn með þeim hœtti
sem honum einum er lagið.
Fimmta viðureignin
Leikur FH-inga á sunnudagskvöld gegn
norska liðinu Fredensborg/Ski verður fimmta
viðureign liðanna. Árið 1965 lék FH gegn
Fredensborg sem þá hafði ekki sameinast
Ski. FH-ingar sigmðu í báðum leikjunum sem
fram fóm í nýbyggðri Laugardalshöll. Fyrri
leikinn vann FH 19-15 og þann síðari 16-13.
Árið áöur hafði liðið komið í keppnisferð til
íslands og lék þá gegn FH sem sigraði með
yfirburðum, 32-18. -SK
• Þorgila Ottar Mathiesen, fyrirliðí FH, sýnir sigurmerkið en hann er þokki
þess þarf FH-liðið að vinna upp 5 marka forskot Fredensborg/Ski og Þorgils Ótt
llAttO PflQ
jjrvllCI 106
stuðningi í
Segir Þorgils Ottar. FH mætir Fred
„Eg tel aö viö eigum góða mögu-
leika á að komast í 2. umferð. Við
lékura ekki af eðlilegri getu í fyrri
leiknum í Noregi og eigum að geta
bætt okkur vemlega í síðari ieikn-
um,“ sagði Þorgils Óttar Mathiesen,
fyrírliði FH-inga í handknattleik, í
samtalf við DV í gær.
FH-íngar leika síðari leik sinn gegn
norska liðinu Fredensborg/Ski í Evr-
ópukeppninni í handknattleik í
íþróttahúsi Hafnarfjaröar á sunnu-
dagskvöld klukkan 20.30. Norðmenn
sigmðu sem kunnugt er f fyrrl Jeikn-
um meö 30 mörkum gegn 25. FH-
ingar þurfa því að vinna upp fimm
marka forskot Fredensborg/Ski.
„Fyrri leikurinn var lélegur af okk-
ÞRÓTTARAR
Styðjum íþrótt
og Heim
Félagsn
Mætið i getr
laugardögum
ulýðsstarf í Voga-
14 á
um v/Hoitaveg.
Fréttastúfar
Manchester Utd. úr leik
15 leikir fóru fram í 3. umferð ensku deild-
arbikarkeppninnar í knattspymu. Úrslit
leikjanna urðu sem hér segir: Aston Villa
Miliwall, 3-1, Bradford-Scunthorpe, 1-1,
Leeds-Luton, 0-2, Leicester-Norwich, 2-0,
Liverpool-Arsenal, 1-1, Manchester City-
Sheffield Utd., 4-2, Nottingham Forest-
Coventry, 3-2, QPR-Charlton, 2-1, Scar-
borough-Southampton, 2-2, Wimbledon-
Manchester Utd., 2-1, West Ham-Derby,
5-0, Tottenham-Blackbum, 0-0, Bristol
City-Crystal Palace, 4-1, Ipswich-Orient,
2-0, Tranmere-Blackpool, 1-0.
PSV tapaði óvænt
HoUenska félagiö PSV Eindhoven tapaði
óvænt fyrir Ha-
arlem, 0-2, í hol-
lensku 1. deUdar
keppninni í
knattspyrnu í
fyrrakvöld. Þetta
var fyrsta tap
liðsins í deildar-
keppninni í rúm-
lega heilt ár.
Þrátt fyrir tap er liðiö enn efst í deUdinni
með 19 stig eftir tólf leiki, FC Twente og
Roda em meö 15 stig eftir eUefu leiki.
Platini lofar franska stílnum
Michel Platini, sem tók við franska lands-
liðinu í knatt-
spymu í vik-
unni, sagði á
blaðamanna-
fundi, sem hald-
inn var í París í
gær, að hann
ætlaði sér að rífa
franska knatt-
spyrnu upp til
vegs og virðing- • Michel Platini, til
ar á nýjan leik. vinstri.
Hann ætlar að láta franska liðið leika þá
knattspymu sem ríkti á blómaskeiöinu fyr-
ir nokkrum ámm. Nokkmm nýjum leik-
mönnum verður bætt við og í þeim hópi
verður enginn annar en Jean Tigana en
hann hætti að leika með franska landsUð-
inu í fyrra.
Real Madrid sigraði Rangers
Real Madrid sigraði Glasgow Rangers með
116 stigum gegn 89 í Evrópukeppni meist-