Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1988, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krón- þá f síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað f DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Símí 27022 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1988. Kirkjuþingi lokiö: Biskupsskipti á miðju næsta ári ’ ^ „Ég mun láta af störfum á miöju næsta ári og tel eðlilegt að biskups- skipti verði á prestastefnusagði Pétur Sigurgeirsson biskup þegar hann sleit 19. kirkjuþingi í Bústaða- kirkju í gær. Eins og DV hefur skýrt frá var búist við þessari tilkynningu biskups í lok kirkjuþings og hafa nokkrir prestar þegar tilkynnt að þeir muni gefa kost á sér í biskupskjöri sem verður í febrúar eða mars á næsta ári. Biskup flutti stutta þakkarræðu og eftir tilkynningu um starfslok sín sagði hann: „... undarlegt aö standa hér á þessum tímamótum“. í lokin tókust alhr kirkuþingsmenn T hendur og sungu Son guðs ertu með sanni. -hlh Biskupskjörið: Björn Björnsson gefur ekki kost á sér „Ég gaf yfirlýsingu á prestastefnu í vor þess efnis að ég gæfi ekki kost á mér í biskupskjöri og hef ekki skipt um skoðun síðan þá,“ sagði Björn Björnsson guðfræðiprófessor. Nokkrir viðmælendur DV höfðu orðað Björn við framboð en hann vísar slíkum fyrirætlunum á bug. Það eru því þremenningarnir Ólafur Skúlason dómprófastur, Heimir Steinsson, prestur á Þingvöllum, og Sigurður Sigurðarson, prestur á Sel- fossi og formaður Prestafélags ís- lands, sem samkvæmt vitneskju DV hafa gefið kost á sér í væntanlegu biskupskjöri enn sem komið er. -hlh ^ Þrír á sjúkrahús Þrennt var flutt til Reykjavíkur eft- ir árekstur fólksbíls og dráttarvélar í Landeyjum í gærkvöldi. Fólksbíln- um var ekið aftan á dráttarvélina með þeim afleiðingum að þrennt sem var í bílnum slasaöist og var flutt á sjúkrahús í Reykjavík. -sme Bílstjórarnir aðstoða 25050 senDiBíLfíSTöÐin LOKI Nýja formanninum verður fagnað með hrossahlátri! Kári Amórsson í kjöri til formanns Landssambands hestamanna: Kári er potturinn og pannan í öllum illindum - segir formaður Léttis á Akureyri „Þetta er eins og að kasta bensini á eld. Kári hefur verið potturinn og pannan í öllum illindum innan Landssambands hestamanna. Lik- lega hefði samkomulag tekist ef Kári hefði ekki átt sæti í stjórn L.H. Hann er því ekki álitlegur sáfla- maður. Kári er uppdubbaður fall- kandidat enda tapaði hann fyrir Leif Jóhannessyni í síðasta kjöri,“ sagði Jón Ólafur Sigfússon, for'- maöur Léttis á Akureyri. „Ég geri ekki ráð fyrir storma- sömu þingi. Deilur um staðarval fyrir landsmót hafa sett mikinn svip á síðasta kjörtímabil. Ég vona að Eyfirðingar koml aftur til hðs við okkur. Eg vil hafa sem fæst orö um þetta í fjölmiðlum - það er búið að spilla nóg fyrir með fjölmiðla- umræðum," sagði Kári Amórsson skólastjóri. Landsþing Landssambands hestamannafélaga hófst á Hótel Sögu í morgun. Þingið mun standa þar til síðdegis á laugardag. Leifur K. Jóhannesson, núverandi for- maður, gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Leifúr er búinn að vera í forystu L.H. í fjögur ár, formaðm- síðustu tvö ár og varaformaðuí tvö ár þar á undan. Ekki hefur frést af neinum öðrum frambjóðanda til formanns L.H. en Kára Amórssyni. Kári sagði að það yrði verkefni nýrrar stjómar að reyna að koma á sáttum við Eyfirð- inga sem sögðu sig úr L.H. fyrr á þessu ári. „Helstu mál þingsins verða um- ferð og reiðleiðir hestamanna í þéttbýh. Víða er svo komið að hestamenn eiga í erfiðleikum með aö komast að og frá þeim stöðum þar sem þeir eru meö sín hross,“ sagði Kári Amórsson. Kári er ritari í núverandi stjórn L.H. Hann tók sæti í varastjórn 1985 og í aðalstjórn 1987. -sme/gk Danski popparinn Kim Larsen hélt sína fyrstu tónleika á íslandi í gær. Grunnskólanemar fjölmenntu til að læra dönskuna af vörum Larsens, enda sjaldgæft að fá svona fjöruga kennslu. DV-mynd GVA - sjá nánar á bls. 2 Veðrið á morgun: Hlýnar vestan- lands Vaxandi suðaustanátt og hlýn- andi veður um vestanvert landið og minnkandi norðvestanátt um landið austanvert með vægu frosti fram eftir degi, en síöan hlýnar. Rigning á Suður- og Vesturlandi upp úr hádegi. Hitinri á morgun vetður -2-+3 stig. Stefnuræða Steingríms: Gjaldþrot aukast í stefnuræðu Steingríms Her- mannssonar forsætisráöherra á Al- þingi í gærkvöldi dró hann upp held- ur dökka mynd af horfum í efnahags- málum. Hann vitnaði til spár Þjóð- hagsstofnunar um að þjóðartekjur mundu dragast saman um 5-6% á yfirstandandi ári og því næsta. Það þýddi óhjákvæmilega mikla kaup- máttarrýrnun. Sagðist ráðherra óttast aö „gjald- þrotum vegna afar óskynsamlegrar fjárfestingar og ofneyslu í nafni frjálshyggjunnar" ætti eftir að fjölga. Þar væri farin af stað keðjuverkun sem sæi ekki fyrir endann á. Þá sagði forsætisráðherra að við íslendingar hefðum nú verið nær miklu atvinnuleysi en nokkru sinni fyrr frá því fyrir síðustu heimsstyij- öld. Forsætisráðherra ræddi einnig um erfiðleikana í íslensku efnahagslífi og hvað hefði farið úrskeiðis. Einnig vék hann að stjórnarmynduninni í september og viðskilnaði síðustu stjórnar. Þá rakti hann til hvaða ráð- stafana hefði verið gripið. Sagöi hann að nú hefði félagshyggja tekið við af frjálshyggju. -SMJ Liöhlaupinn: „Tala ekki við neinn“ „Ég vil ekki tala við neinn," var það eina sem liðhlaupinn úr banda- ríska hernum sagöi þegar DV fór til hans í gær. Hann gistir á heimili móður sinnar í Reykjavík. Maðurinn er ásakaður um líkams- árás. Rannsókn kærumálsins hggur niðri þar sem rannsóknaraðilar ná ekki til hans. Viðmælandi DV, sem þekkir vel til innan Varnarhðsins, segir að hð- hlaupinn sé óvinsæh meðal her- manna. Varnarliðsmenn eru nyög óánægðir með að mega ekki vera utan vaharsvæðisins eftir klukkan hálf tólf á kvöldin. Þar sem maðurinn er íslendingur hafa þeir látið óánægju sína bitna á honum. Leyniþjónusta Varnarhðsins hefur verið að svipast um eftir hðhlaupan- um í miðbæ Reykjavíkur. Ekki hefur verið krafist framsals. Hann hefur verið á íslandi mikinn hluta ævi sinnarogtalaríslensku. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.