Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. Fréttir Fiskiþing og Efnahagsbandalagið: Fiskveiðar útlendinga koma ekki til greina - opna verður okkur tollöjálsa leið að mörkuðmn bandalagsins „Ekki kemur til álita að lofa er- lendum aðilum að veiða innan ís- lenskrar fiskveiðilögsögu en ljóst er að leita verður leiða sem báðir aðilar (Efnahagsbandalagið og íslendingar) geta sætt sig við.“ Svo segir í ályktun fiskiþings um samskipti íslendinga og Efnahags- bandalags Evrópu. Þá segir ennfrem- ur að íslendingar séru ábyrgir þátt- takendur í samstarfi vestrænna þjóða og að til þess að svo geti verið áfram þurfi efnahagslíf okkar að standa fóstum fótum. Til þess að svo verði sé þaö áríöandi að sjávarútveg- ur íslendinga hafi fijálsan aðgang að mörkuðum. Þetta beri að hafa í huga þegar viðræöur hefjast um framtíð- arviðskiptin. Samningar íslendinga við Efna- hagsbandalagið verði að opna okkur tollfrjálsa leið að mörkuðum Evrópu samhliða auknu fijálsræði á fiár- magnsmarkaði og nánari tengingu á sviði gjaldmiðla. Jafnframt segir í ályktuninni að þegar íslenskt þjóð- félag nálgist hina evrópsku framtíð sé hollt að stiga skrefin hægt. í umræðum um þessa tillögu var spurt hvað það þýddi þegar sagt væri „að leita verði leiða sem báðir aðilar gætu sætt sig við.“ Hvað annað en fiskveiðar hefðum við upp á að bjóða? Spurt var hvort menn ættu hér við veru okkar í Atlantshafs- bandalaginu og kom jákvætt svar við því utan úr sal. Var greinilegt að þetta mál var hið viðkvæmasta en eigi að síður var nauösynlegt fyrir fiskiþing að álykta um það vegna þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað hér á landi að undanfomu um samskipti okkar og Efnahagsbanda- lagsins. -S.dór Fiskiþing: Einu deilurnar urðu um ferskfiskkvótann - samþykkt var að mæla með að útflutningskvóti yrði hlutfafl af aflakvóta Fiskiþingi lauk í gær. Síöasta til- lagan sem lögö var fram á þinginu var sú eina sem einhver átök urðu um. Þetta var tillaga þess efnis að til greina kæmi að útflutningur á ferskfiski yröi kvótaskiptur í hlut- falh viö aflakvóta skipa meðan kvótakerfið væri við lýði. Þá felur tillagan líka í sér aö úthlutun leyfa verði í höndum fiögurra manna nefndar sem skipuð verði fulltrú- um frá LÍÚ, Sjómannasambandinu, Farmanna- og fiskimannasam- bandinu og frá utanríkisráðuneyt- inu. Hugmyndin að þessari kvótatil- lögu er komin frá Vestfirðingum og um hana urðu, sem fyrr segir, harðar deilur. Hún var þó að lokum samþykkt með 18 atkvæðum gegn 11. Breytingartillaga frá Ágústi Einarssyni um óbreytt ástand í þessum málum var felld. Á það var bent af andstæðingum tillögunnar að hún gæti skapað glundroða. Bent var á að minni fiskiskipin hlytu að fara út í versl- un á sínum hlut, sem ef til vill væri nokkur tonn. Þeir sem hlynntir eru tillögunni segja óréttlæti ríkja í þessum mál- um nú og að þetta sé eina lausnin til þess að ná fram réttlæti í málun- um. Að sjálfsögðu veröa þaö sjávarút- vegsráðuneytið og utanríkisráöu- neytið sem eiga síöasta orðið í þessu máli en ályktanir fiskiþings vega þungt og að jafnaði er fullt tillit til þeirra tekið. -S.dór Fiskiþlng: Stuðningur við Halldór í hvalamálinu Fulltrúar á fiskiþingi lýstu yfir stuðningi við stefnu Halldórs Ás- grímssonar sjávarútvegsráðherra í hvalveiðimálinu. Þeir segjast treysta honum til að framfylgja þeirri stefnu sem fylgt hefur verið í hvalveiðimál- unum til þessa. Þá var ályktað á þann veg að ekki yrði hjá því komist að draga úr þorskveiðum á næsta ári, einnig að áfram skyldi veiðikvóti fylgja fiski- skipi, þrátt fyrir þá undantekningu sem gildir um skelfiskbáta. Þá vildu fulltrúar á fiskiþingi að humarkvóti fylgdi bátum við sölu en svo er ekki nú. Ein af ályktununum á þinginu var á þá leið að ekki yrði lagt sérstakt álag á loðnu sem landað er erlendis, ennfremur aö fellt yrði niður útflutn- ingsálag á ferskfiskútflutning annan en þorks og karfa. Ef raforkuverð til fiskvinnslunnar verður lækkað vilja fulltrúar á fiski- þingi að eitt verði látið yfir alla ganga í fiskvinnslunni í þeim verðlækkun- um. Loks er að geta ályktunar sem sam- þykkt var þess efnis að reglur um dragnótaveiðar yrðu teknar til gagn- gerrar endurskoðunar og aö sem fyrst yrði framkvæmd rannsókn á áhrifum dragnótaveiða á lífríki sjáv- ar. -S.dór „Brýnast að skapa hér kjölfestuverkefni“ - segir Sigurður G. Ringsted, nýráðinn forstjóri Sflppstöðvarinnar á Akureyri þess að viðgerða- og viðhaldsverk- efni, sem við vinnum mikið við, eru mjög árstíðabundin verkefni. Ný- smíði er þar að sjálfsögðu efst á óska- listanum en aðrir hlutir koma einnig til greina til að skapa hér rekstrarör- yggí-“ Sigurður er fæddur á Akureyri árið 1949. Hann lauk fyrrihluta verk- fræðiprófs frá Háskóla íslands 1972 og prófi í skipaverkfræði í Danmörku árið 1975. Síðan þá hefur hann starf- að hjá Shppstöðinni og verið yfir- verkfræðingur þar síðan 1980. Sigurður G. Ringsted, nýráðinn (or- stjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, á skrifstofu sinni í gær. DV-mynd gk Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn; „Starfið leggst vel í mig,“ segir Sig- urður G. Ringsted sem í gær var ráð- inn forstjóri Slippstöövarinnar á Akureyri og tekur við því starfi um næstu áramót. „Það eru vissulega erfiðir tímar fram undan, ekki bara hér í þessu fyrirtæki heldur viða í þjóðfélag- inu,“ sagði Sigurður. En hvað telur hann brýnast aö leysa varðandi rekstur Shppstöðvarinnar? „Brýnast er að hafa hér kjölfestu- verkefni sem við köhum svo, vegna Alexandre do Nascimento, kardínáli í Angólu, kom hingað til lands í gær. Alfreð Joison Reykjavíkurbiskup tók á móti honum. Kardínálinn hélt fund í gær með nokkrum íslendingum til að kanna grundvöll fyrir stofnun íslands- deildar Caritas sem er þekkt hjálparstofnun. DV-mynd Brynjar Gauti Fyrsta loðnan til Reykjavíkur - fengu tvo hnúfubaka í nótina Fyrsta loðnan á þessari vertíð Norðmenn bjóða um 5800 kr. fyrir kom til Reykjavíkur í gær þegar tonnið. Um þijá sólarhringa tekur Hilmir „stóri“ lagðist að í Sunda- að sigla til Noregs með afla. höfii. Fullfermi var en skipið lan- Skipveijar á Hilmi sögöu aö daði 1100 tonnum af loðnu. Um leið geysilega mikiö væri af hvölum á stóð til aö taka frystibúnaö úr lest- veiðisvæðunum og truflaði þaö um skipsins svo aö þaö gæti tekiö jafiivel veiöamar. Þeir fengu tvo meiri afla. Hilmir hefur farið í tvær hnúfubaka í nótina 1 eitt skipti en söluferöir með loðnu til Noregs að hvölunum tókst að rífa sig lausa. undanfömu enda segjast skipveij- Skipstjóri á Hilmi er Eggert Þorf- ar fá mun meira fyrir aflann þar - innsson. aht að helmingi hærra verð, en _SMJ Harður árekstur við Akranes Harður árekstur varð í svokall- aðri Skorholtsbrekku rétt norðan við Akranesafleggjarann um (jögurleytið í gær. Fólksbíll og jeppi rákust saman er þeir mætt- ust í beygju þar sem snjókrap var á veginum. Ökumennimir, sem vom einir í bílunum, slösuöust töluvert og voru báðir fluttir á sjúkrahús á Akranesi. Stuttu siö- ar var annar mannanna fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Borgarspítalann. Ekki er vitað um hðan hans. Bílamir era gjöró- nýtir. -hlh Bátur í erf iðleik- um eftir brotsji Báturinn Þorsteinn frá Keflavík, sem er 50 lesta eikarbátur, lenti í brotsjó út af Garðskaga í gær. Varð báturinn sambandslaus og var neyð- arblys þá sent á loft. Komu tveir bát- ar, Jóhannes Jónsson frá Keflavík og Sandvík frá Grindavík, til hjálpar og fylgdu Þorsteini til hafnar. Að sögn manna hjá tilkynninga- skyldunni var aht of mikið um smá- báta á sjó í gær miðað við veður og vora menn því sérstaklega á verði fram eftir kvöldi. -hlh
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.