Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. 21 Kvikmyndir Hvaða Sherlock? Michael Caine leikur Reginald Kincaid, hér dulbúinn sem Sherlock Holmes, og Ben Kingsley leikur Watson lækni. Ný kvikmynd um konung leyni- lögreglumannanna, Without a Clue, gerir ráö fyrir að Watson sé snillingurinn en Sherlock aðeins dulbúinn atvinnulaus leikari Fyrsta kvikmyndin um hinn ódauðlega Sherlock Holmes var gerð árið 1900. Síðan hafa verið gerðar um það bil 200 kvikmyndir um konung leynilögreglumann- anna og er hann þar með mest kvikmyndaða sögupersónan. Aldrei hefur verið erfltt að fá leik- ara til að leika í kvikmynd um Holmes. Laurence Ohvier, sem lék prófessor Moriarty í The Seven- Per-Cent Solution 1976, sagðist ekki vilja ljúka leikferh sínum án þess að komast í einhverja snertingu við Holmes. Þær kvikmyndir er gerðar hafa verið eftir hinum 56 stuttu sögum og fjórum skáldsögum sem Arthur Conan Doyle skrifaði um Sherlock Holmes hafa yfirleitt fylgt sögu- þræðinum vel eftir. Aftur á móti hafa verið gerðar kvikmyndir sem skáldaðar hafa verið upp af seinni tíma mönnum, kvikmyndir á borð við The Private Life of Sherlock Holmes, The Seven-Per-Cent Sol- ution og Young Sherlock Holmes, þar sem karakterbreytingar eiga sér stað á söguhetjunni. Samt hefur ahtaf fylgt honum sú einstaka snilligáfa sem hefur orðið samn- efnari fyrir úrlausn flókinna saka- mála. Without A Clue aörbreytir ímyndinni. Þar er gert ráð fyrir að Sherlock Holmes hafi í raun aldrei verið til. Watson er snihingurinn sem leysir flóknar gátur og hann notar einskis nýtan leikara, Regin- ald Kincaid, sem framhlið þegar á þarf að halda. í myndinni veit Hol- mes aldrei hvað um er að vera fyrr en Watson segir honum það. Þegar Without A Clue hefst er Watson búinn að fá nóg af leikaran- um Kincaid og hefur sagt honum upp störfum. En þegar upp á borð- iö kemur stórmál og beiðni um að Kvíkinyndir Hilmar Karlsson Holmes leysi málið þarf Watson á leikaranum að halda á ný. Horfinn er hr. Ghes hjá konung- legu myntgerðinni og með honum mótin af peningaseðlum Englands. Kincaid í gervi Holmes er engin hetja og verður hræddur og vill hlaupast á brott þegar Watson upp- götvar að þaö er sjálfur prófessor Moriarty sem stendur á bak við ránið á peningamótunum. Það er Michael Caine er leikur Reginald Kincaid og Ben Kingsley leikur Watson. „Ég hefði aldrei get- að leikið alvarlegan Holmes," segir Caine. „Reginald Kincaid er mikih kvennamaður en um leið blankur, atvinnulaus og drekkur mikið. Mjög ólíkur því sem hinn eini sanni Sherlock Holmes á að vera.“ Kings- ley segir um Watson: „Hann er mjög gáfaöur með ríkt ímyndunar- afl og samband hans við leikarann Kincaid er heimatilbúin vand- ræði.“ Leikstjóri Without A Clue er Thom Eberhardt. Hann er ekki þekktur leikstjóri, enda hefur starf hans aðallega legið í gerð heimilda- mynda fyrir sjónvarp og handrits- skrifum fyrir kvikmyndir. Einni mynd hefur hann þó leikstýrt, Night Of The Comet, ódýrri mynd um tvær stúlkur sem lifa heims- endi. Mynd sem vakti nokkra at- hygh vestanhafs. Handritshöfundarnir Larry Strawther og Gary Murphy sátu yfir kafiiboha eitt sinn þegar öðr- um þeirra datt í hug hugmyndin að Without A Clue. Þeir segja að um leið og persónan Reginald Kin- caid hafi orðiö til hafi þeir orðið sammála um að Michael Caine' væri rétti leikarinn til að leika hann. Þeir ásamt framleiðendum voru ekki eins vissir um að Ben Kingsley væri rétti maðurinn í hlutverk Watsons, enda er Without A Clue gamansöm kvikmynd. Kingsley hefur nær eingöngu leikið alvarleg hlutverk í kvikmyndum. Á sviði hefur hann leikið mörg gaman- hlutverkin. Það var loks Michael Caine sem sannfærði þá um að Kingsley væri rétti maðurinn. Without A Clue verður örugglega ekki síðasta kvikmyndin sem gerö verður um Sherlock Holmes. Þessi frægasta skáldsögupersóna bók- menntanna er rík í hugum manna. Hann fær bréf daglega send á heim- ilsfangið í Baker Street. Og þótt ekki komi fram jafn byltingar- kenndar hugmyndir um Holmes eins og sú sem við kynnumst í Without A Clue, má búast við að rannsóknir á eiturlyfjaneyslu hans eða kynhneigð, svo eitthvaö sé nefnt, gefi tilefni til nýrrar kvik- myndar. Þegar hausta tekur kólnar í veðri, sumariö erbúiðogþáer gott að geta sest inn f hlýtt kvikmyndahús og séð góða kvikmynd. Þetta er allavega sjónarmiö markaösstjóra kvikmyndafyrirtækjanna vestan hafs. Rjóminn af framleiðslu ársins er yfirleitt settur á markaðlnn síöustu þijá mánuði ársins. Hér á eftir verða kynntar nokkrar nýjar og effirtektarverðar kvikmyndir sem þegar eru hafnar sýningar á eða væntanlegar eru fram aö jólum í Bandaríkjunum. DEAD RINGER er nýjasta kvikmynd David Cronenbergs og er talið nær öruggt aö hún sé ein af mögnuðustu myndum þessa árs. Jeremy Irons leikur tvibura sem smátt og smátt verða brjálaöir, sérstaklega þegar leikkona ein veröur ástíangin af öðrum þeirra. Dead Ringer er lauslega by ggö á ævi t víburanna Cyril og Stewart Marcus sem voru læknar en frömdu saman sjálfsmorö. RUNNING ON EMPTY er sögð besta kvikmynd Sidney Lumets í lang- an tiraa og er þó af nógu aö taka. Fjallar myndin um hjón sem hafa veriö i felum í firamtán ár vegna hryöjuverks sem þau frömdu. Nú vill sonur þeirra fara í háskóla. Aðalhlutverk leika Christine Lathi, Judd Hirsch og River Phoenix. PUNCHLINE fjallar um gamanleikarann Steven Gold sem gerir aUt til að áhorfendurnir hlæi að honum eða þangaö til hann hittir húsmóð- ur sem biður hann um að kenna sér að segja brandara. Tom Hanks þykir sýna snilldarleik og með Punchhne og Big er hann kominn i hóp þeirra stóru. SaUy Field er meðleikari hans. LeUístjóri David Seltz- er. THE ACCUSED fjallar um unga konu sem nauögað er af fjórum ung- mennum og baráttu hennar og lögfræöings fyrir réttlæti. Fyrst eru nauðgaramir leiddir fyrir rétt og síðan þeir sem horfðu á og gerðu ekkert tíl aö hjálpa fómarlarabinu. Aðalhlutverkin leika Jodie Foster og KeUy McGiUis. LeUcstjóri er Jonathan Kaplan. ANOTHER WOMAN er nýjasta kvikraynd Woody AUen og er hér ekki um gamanmynd að raeöa, heldur þykir hann fara á mið uppá- haldsleUcstjóra síns, Ingraar Bergman, og hefur gert eftirminnilega kvUcmynd. Gena Rowlands leUcur háskólakennara sem leigir sér íbúð við hlið sálfræöings. Hún heyrir hvað honum og sjúklingum hans fer á mUIi og vekur einn sjúkhngurinn raikinn áhuga hennar. Aörir leUc- arar eru Mia Farrow, Gene Hackman og John Houseman. HEARTBREAK HOTEL er eins og margir vita nafn á einu þekktasta lagi Elvis Presley og þetta er kvikmynd um Presley. Ekki eins og menn eiga að vervjast, heldur er skálduð upp saga af unglingsdreng sem fær Presley tU aö hjálpa fjölskyldu sinni út úr vandræðum. David Keit leikur kónginn. LeUcstjóri er Cris Columbus. THE ACCIDENTAL TOURIST er nýjasta kvikmynd Lawrence Kash- dan. Þar leiðir hann saman stjömumar úr fyrstu kvikraynd sinni Body Heat, WUliam Hurt og Kathleen Turaer, í kvikmynd um rithöf- und sem missir son sinn um leið og eiginkonan fer frá honum. GUILTY BY SUSPICION hefur Meryl Streep í aðalhlutverki. Byggö á sönnum atburði og fjallar um Lyndy Chamberlain sem var dæmd fyrir morð á ungu bami sínu sem hún sagði að hundar hefðu haft á brott með sér. Myndin er að öUu leyti tekin í Ástralíu og leikstjóri erFredSchepisi. ALDEN NATION er nýbúið aö fmmsýna og rakar inn peningum þessa dagana. James Caan leikur lögregluþjón i nánustu framtíð. Hann og félagi hans leita uppi verur utan úr heimi sem hafa brotlent á geim- skipi sínu á jörðinni. Ekki er hægt að sjá raun á mennskum og geim- verunum. MeöleUcarar Caan eru Mandy Patinkin og Terence Stamp. Leikstjóri er Graham Parker. EVERYBODY’S ALL AMERICAN gerist á tuttugu og fimm ára tíma- bUi og fjaUar um vinskap sem hófst í skóla. Persónumar þijár voru allar vinsælar og miklum hæfileUcum búnar og spáö miklum frama. ÚrvalsleUcaramir Jessica Lange, Dennis Quaid og Timothy Hutton leUca aöalhlutverkin og Taylor Hackford er leUcstjóri. HIGH SPERITS er fyrsta kvikmynd NeU Jordan í HoUywood. TU að auka ferðamannastrauminn til sín segist kastalaeigandi einn eiga mesta draugakastala á írlandi Hann ræður til sín töframenn tU aö framleiöa óhugnaðinn. Hlutirnir taka aðra stefnu en áætlað var þegar ekta draugur gerir vart viö sig. Peter O’Toole leikur kastalaeigand- ann. Aörir leikarar era DaryU Hannah og Steve Guttenberg. TALK RADIO er nýjasta kvikmynd OUver Stone. Mun minni umsvifs en Platoon og WaU Street FjaUar um þáttageröarmann sem veröur skotmark hægri sinnaðra öfgamanna. Myndin er byggð á samnefndu leUcriti eftir Eric Bogosian og bók eftir Stephen Singular TaUced To Death: The Life And Murder Of Alan Berg. Og leikur Eric Bogosian aðalhlutverkið ásamt Alec Baldwin og EUen Greene. TWINS fiaUar eins og nafnið bendir til um tvibura og það eru engir venjulegir tvíburar. Þeir era nefnUega leUcnir af Amold Schwarzen- egger og Danny De Vito. Og varla er hægt að hugsa sér ólíkari menn. LeUcstjóri er Ivan Reidman. JACKNIFE hefur Robert de Niro í aðalhlutverki ásamt Ed Harris og Kathy Baker. Myndin fiallai- um tvofyrrverandi hermenn i Vietnam. Þeir veröa ástfangnir af sy stur hvors annars og hefur það áhrif á vin- áttu þeirra. „Þetta er ekki mynd um Vietnam stríðið heldur um áhrif mikUs álags á einstaklinga,” segir leikstjórinn David Jones. WORKING GIRL er leikstýrt af Mike Nichols og í aöalhlutverkum era Harrison Ford, Sigoumey Weaver og Melanie Griffith. Þetta er ein dýrasta myndin sem frumsýnd veröur á þessu ári. Fjallar myndin um fólk á uppleið í viðskiptaheimi New York borgar, samkeppni þess á milli og tilfirmingalif. TEQUILA SUNRISE er um tvo skólafélaga sem halda vinskap þrátt fyrir ólíkt lifemi. Mel Gibson leikur fyrrverandi eiturlyfjasala og Kurt Russell lögreglu sera fær þaö verkefiU aö koraa eiturlyfjasaianum i fangelsi. MicheUe Pfeifier leUcur konuna sem báðir eru ástfangnir af. Leiksfjóri er Robert Towne.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.