Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 14
14. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. aaw Frjáist.óháÖ dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELiAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, S.lMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð í lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Olísmálið Ríkissjónvarpið flutti eitt kvöldið heilmikla frétt um það að Landsbankinn hefði krafist þess að Óli Kr. Sig- urðsson seldi hlutabréf sín í Olís en Óli er aðaleigandi fyrirtækisins. Sjónvarpið byggði þess frétt á áreiðanleg- um heimildum að sögn fréttamannsins og orsökin var sögð erfið íjárhagsstaða Olís gagnvart bankanum. Eftirleikurinn hefur verið sá að Óli Kr. Sigurðsson hefur þrætt fyrir þessa frétt og telur hana hafa skaðað fyrirtækið og hann sjálfan. Ámóti hefur fréttastofa Sjón- varpsins sýnt bréf sem staðfestir að bankinn hefur sett Óla skilyrði fyrir áframhaldandi viðskiptum og að því leyti sannað að fréttin um flárhagsvanda Olís er rétt. Hins vegar hefur það ekki komið fram að Óla hafi verið gert að selja hlut sinn í fyrirtækinu og þar hefur frétta- maður skotið yfir markið, að minnsta kosti eins og sak- ir standa. En með leyfi að spyrja: Eru það fréttir að bankar setji fyrirtækjum úrslitakosti? Er það eitthvert eins- dæmi að Landsbankinn sendi Olís bréf? Kemur það ein- hverjum á óvart að greiðsluerfiðleikar séu hjá Olís eða fyrirtækjum yfirleitt? Það þóttu tíðindi þegar Óli Kr. Sigurðsson keypti einn og óstuddur meirihlutann í þessu gamalgróna fyrir- tæki. Ástæðan var sú að fyrri eigendur höfðu ekki bol- magn til að reka fyrirtækið vegna slæmrar íjárhags- stöðu. Ekki eru nema nokkur misseri síðan og það þarf enginn að vera hissa á því þótt nýr eigandi sé enn með hala á eftir sér. Hvort Óla Kr. Sigurðssyni tekst að standa í skilum hefur þetta blað enga hugmynd um. Hitt gefur auðvitað augaleið að það hlýtur að vera stórskaðlegt fyrir Olís, sem og önnur fyrirtæki, þegar flennifréttir eru sagðar af íj árhagserfiðleikum og hótun- um viðskiptabanka þar að lútandi. Satt að segja er erf- itt að sjá hvernig það getur verið fréttamatur þótt bréfa- skipti eigi sér stað milli fyrirtækja og banka þegar ástandið í þjóðfélaginu er eins og það er. Hvert sem litið er, í sjávarútvegi, iðnaði eða verslun, eru íjöldamörg fyrirtæki á vonarvöl. Eigendur og stjórn- endur þessara fyrirtækja berjast meira af vilja en mætti við að halda rekstrinum gangandi. Ekki er ólíklegt að viðskiptabankarnir sendi þessum fyrirtækjum tugi ef ekki hundruð bréfa þar sem bankinn tilkynnir að harín geti hvorki né vilji veitt áframhaldandi fyrirgreiðslu nema rekstur og íjárhagur lagist. Annað væri ábyrgðar- hluti hjá bankastofnunum og það hlýtur að vera skylda bankanna að setja þeim fyrirtækjum stólinn fyrir dyrn- ar þegar lán og skuldir eru komin langt upp fyrir ábyrgð- ir og eignir sem að baki lánunum standa. í rauninni má halda því fram að bankarnir beri nokkra sök á því fjárfestingarfylliríi sem nú er að fara með atvinnureksturinn í landinu norður og niður. Þeir eiga að hafa vit fyrir mönnum sem ana út í slíkar íjár- festingar án þess að hafa nokkra möguleika til að standa undir afborgunum og vöxtum af því íjármagni sem fer í íjárfestingarnar og eyðsluna. Olís er ekki eitt á báti í þessum efnum. íslenskur at- vinnurekstur á í gífurlegum erfiðleikum um þessar mundir. Sjálfsagt tórir hann enn í skjóli lánastofnana. Ef bankarnir settu öllum fyrirtækjum, sem nú standa upp fyrir haus í skuldum, úrslitakosti, lifðu fáir af. Það er af þessum ástæðum sem vafasamt verður að teljast að Sjónvarpið og raunar aðrir íjölmiðlar leggi Olís í einelti eða telji það tíðindi þótt Landsbankinn vilji kippa þar í taumana. Hundruð fyrirtækja sitja á sama bekk. Ellert B. Schram Innantómur sigur eftir ömurlega kosningabaráttu? í átta ár hefur Ronald Reagan, meö gerðum sínum jafnt og aðgeröa- leysi, fært Bandaríkin á barm fyrsta alvarlega hnignunarskeiðs í sögu landsins. Og þegar að því kemur að velja eftirmann hans snýst kosningabaráttan síst af öllu um úrræði við aðsteðjandi vanda. Tilraunir til að vekja athygli á af- leiðingum átta ára óráðsíu í fjár- málum og breyttri og versnandi stöðu Bandaríkjanna á heims- markaði fá engan hljómgrunn. í stað þess aö æskja umboðs til að fást við það viðfangsefni hyggst George Bush varaforseti sigra Mic- hael Dukakis, keppinaut sinn um forsetaembættið, með rógi og rang- færslum í sjónvarpsauglýsingum. Kosningabarátta repúblikana árið 1988 hefur fest nafn Willie Hortons óafmáanlega í stjórnmála- sögu Bandaríkjanna. Horton er svertingi og sat í fangelsi í Massac- husetts fyrh- morð. í fylkisstjóratíð Dukakis þar í fylki notfærði hann sér helgarleyfi úr fangelsi til að strjúka og náðist ekki aftur fyrr en hann hafði gerst sekur um nauðg- un og líkamsmeiðingar á hvítri konu suður í Maryland. Wilhe Horton er orðinn máttug- asti liðsmaður George Bush í barát- tunni um forsetatign í Bandaríkj- unum. Kosningastjórn varaforset- ans hefur gert mál hans að uppi- stöðu í helstu sjónvarpsauglýsingu sinni. í auglýsingunni er logið blák- alt. Talað er um „forskrift Dukakis að leyfum úr fangelsi". í Massac- husetts voru leyfi fanga úr fangels- um tekin upp 1972, í fylkisstjóratíð repúblikanans Franks Sargents. Þulur segir Dukakis fylkisstjóra hafa „veitt fyrstu gráðu morðingj- um helgarleyfi" og um leið birtist á skjánum textinn: „268 sluppu." Samileikurinn er sá að Dukakis kom aldrei nærri vah fanga í helg- arleyfi og af 268, sem struku eða skhuðu sér of seint úr helgarleyfi á síðustu tíu árum, voru fjórir dæmdir fyrir morð. Ófrægingarherferð á vegum Bush gegn Dukakis var ákveöin nær samstundis og sýnt varð að þeir yrðu keppinautar stóru, bandarísku stjómmálaflokkanna um forsetaembættið. Fréttamenn Washington Post, þeir Paul Taylor og David S. Broder, hafa komist að raun um hvemig það gerðist. í maílok, að forkosningum flokk- anna í fylkjunum afstöðnum, komst kosningastjórn Bush að raun um að skoðanakannanir gáfu Dukakis 16 hundraðshluta vinning umfram varaforsetann. Og það sem verra var, fimm af hverjum sex aðspurðra höfðu jákvæða afstöðu fylkisstjórans frá Massachusetts en aðeins öðmm hverjum gast að Bush. Nú voru góð ráð dýr. Áróðurs- stjórarnir gripu til þess að safna saman í Paramus í New Jersey tveim 15 manna tilraunahópum demókrata, sem höföu kosið Reag- an 1984 en hölluöust nú á sveif með Dukakis. Yfir hópunum var þulið það sem kosningastjórn Bush hafði safnað í sarpinn tii að klekkja á Dukakis, svo sem fangaleyfafyrir- komulagið og glæpir Willie Hort- ons. Lee Atwater, áróðursstjóri Erlendtídindi Magnús Torfi Ólafsson Þ886-Bush, Roger Ailes fjölmiðla- ráðunautur og fleiri úr kosninga- stjórninni fylgdust með viðbrögð- um tilraunadýranna um gagnsæis- spegil. Að lestrinum loknum var helmingur af hópnum orðinn Duk- akis andvígur. Þar með var maíkaðskönnun lokiö og tónninn í kosningabaráttu varaforseta Bandaríkjanna ákveð- inn. Atwater telur sig sérfræðing í auglýsingaherferðum til að rakka niður samkeppnisaðilann. Hann á hálffrágengna doktorsritgerð um þá hst. Dukakis og hans menn gerðu þá skyssu að bregðast seint við per- sóriuníði andstæðinganna og þeim gengur iha að reka af sér slyðru- orðið. Ekki hrín á kjósendum að glæpatíðni í Massachusetts reynist síðustu fimm ár hafa lækkað meira en í nokkru öðru þéttbýhsfylki Bandaríkjanna og morð eru þar þrjú á ári á hverja 100.000 íbúa, meira en helmingi fátíðari en um landið aUt. Lítt reynist einnig stoða að benda á að fjögur af hverjum fimm fylkjum Bandaríkjanna og alríkisstjórnin sjálf tíðka að veita föngum leyfi úr innilokun. Það bar svo sannarlega við meðan Ronald Reagan var fylkisstjóri í Kaliforníu aö fangar þar struku úr leyfi og frömdu ofbeldisverk á flóttanum. Og meðan George Bush átti að hafa yfirumsjón með baráttunni gegn fíkniefnabölinu af hálfu Banda- ríkjastjórnar gerðist það að heróín- sali í leyfi úr fangelsi alríkisstjóm- arinnar strauk og nauðgaði þung- aðri tveggja barna móður og myrti hana. Þegar út í þessa sálma er komið eru það fyrstu áhrifin sém sitja fóst í meðalsjónvarpsneytandanum og móta viðhorf hans. Þau em á þá leið að Michael Dukakis taki með silkihönskum á stórglæpamönnum og sér í lagi á svertingjum sem ráð- ast á hvítar konur. Þama er komið út í skírskotun til kynþáttafordóma og kynþáttahaturs. Sums staðar hafa repúbhkanar upp á síðkastið gengið lengra í rógsherferðinni en kosningastjórn Bush vill við kannast. Fylkisstjórn flokksins í IlUnois segir í flugriti: „Allir morðingjar og nauðgarar og þeir sem svívirða börn í Massac- husetts kjósa Michael Dukakis. Við í Illinois getum greitt atkvæði á móti honum.“ Neikvæð kosningabarátta vekur neikvæðar kenndir hjá kjósendum. í skoöanakönnun New York Times og sjónvarpskeðjunnar CBS sögð- ust næstum tveir af hverjum þrem aðspuröra óska eftir að frambjóð- endur væru aðrir og geðfelldari. Meirihlutinn taldi kosningabarátt- una ómerkilega og hvomgur fram- bjóðandi ræddi þau mál sem mestu varðaði. Og óánægjan bitnar eink- um á Dukakis. Skoðanakannanir á landsmælikvarða gefa Bush yfir- burði á biUnu þrettán til sjö af hundraði þegar vika er til kjör- dags, þriðjudagsins 8. nóvember. Hausateljarar í kosningastjórn- unum báðum telja þó að Dukakis hafi bætt hlut sinn upp á síðkastið. Miða þeir við sérkannanir sínar í fjölmennustu fylkjunum sem flest- um kjörmönnum skUa. Samkvæmt því ráðast úrslitin af því hvort Dukakis tekst að vinna fimm fylki. Þau eru Kalifornía, Michigan, 111- inois, Ohio og Pennsylvania. Með New York fengi hann þarna 175 kjörmenn, en 270 þarf tíl sigurs. Bush er talinn hafa óhaggandi yflr- burði í fylkjum með 200 kjörmenn. Sýnt þykir að stefni í aumustu kosningaþátttöku í manna minn- um, innan við helmingur kosninga- bærra Bandaríkjamanna skili sér á kjörstað. Taylor og Broder, sem áður var vitnað til, hafa eftir Greg Markus, stjómmálafræðingi við Michiganháskóla, að eins og komið er geti sigur reynst George Bush innantómur. Kosningabarátta, sem snýst um persónuníð en ekki mál- efni, veitir sigurvegara ekkert marktækt umboð frá þjóðinni. Hún kemur klofin út úr kosningum og þingmeirihluti andsnúinn forseta kemur til starfa í hefndarhug. Mestu skiptir þó að nýi forsetinn tekur við afleiðingunum af kæru- leysisstjórn Reagans. Honum hefur á átta árum tekist að nær þrefalda ríkisskuldir Bandaríkjanna, koma þeim úr 26% af þjóðarframleiðslu í 43%. Bandaríkin hafa í stjórnartíð Reagans breyst úr öflugasta lánar- drottni í skuldugasta ríki veraldar. Skuldastaða þeirra út á við verður nettó um 500 milljaröar dollara daginn sem Reagan yfirgefur Hvíta húsið. Skuldugt ríki er orðið háð lánar- drottnum sínum. Raunveralegur máttuf*Bandaríkjanna til áhrifa í heiminum hefur því þorrið í stjórn- artíð Reagans. Sú þróun hefur ágerst við kjarnorkuhervæðingu fyrir lánsfé. í heimi samtímans er það ekki hernaðarmáttur heldur afkastamikið atvinnulíf og heil- brigður efnahagur sem gildir. Dukakis á framboðsfundi í Philadeiphiu, höfuðstað Pennsylvaníufylkis. Frambjóðandanum á hægri hönd er séra Jesse Jackson, keppinautar hans úr forkosningunum vinstri hönd hefur hann annan svertingja, Wil- son Goode borgarstjóra í Philadelpíu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.