Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. Persónuleikapróf Einkennist líf þitt af tilfinningasemi? Litur þú á grát sem merki um veikleika? Margir óttast aö of mikil tilfmn- ingasemi hái þeim bæði í einkalíf- inu og í starfi. í mörgum störfum getur það valdið vandræðum ef menn láta tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur. Slíkt getur haft óæskileg áhrif á dómgreind manna og gert þeim óbærilegt að sinna til- teknum störfum. Aðrir óttast kaldlyndi að sama skapi og telja að vanmáttur til að setja sig í spor annarra hái þeim. Svo eru líka þeir sem ekki hika við að kom fram eins og þeir eru kiæddir og óttast ekki að láta til- finningar sínar í ljós. í þessu prófi eru settar fram þrjá- tíu spurningar er allar lúta að við- brögðum við aðstæðum sem kalla á sterkar tilfinningar. Þú getur svarað þessum spurningum játandi eða neitandi eftir því hvað á viö þig. Þegar þú hefur svaraö getur þú gefið þér stig eftir því sem gefið er upp í töflunni hér fyrir neðan. 1. Finnur þú til sektarkenndar ef þú kemst við eða grætur þegar aðr- ir sjá til? (...) 2. Lítur þú á grát sem merki um veikleika? (...) 3. Telur þú að karlmenn eigi aldrei að gráta svo aðrir viti til? (...) 4. Verður þú skömmustuleg(ur) ef þú grætur við aö horfa á kvikmynd eða lesa bók? (...) 5. Foröast þú að gráta við jarðarfar- ir? (•..) 6. Vantreystir þú stjórmálamanni sem brestur í grát á almannafæri? (...) 7. Lítur þú á grát sem óþarfa útrás fyrir tilfinningar? (...) 8. Gefur þú þeim sem kemur að þér grátandi færi á að hugga þig? (...) 9. Verður þú vandræðaleg(ur) ef þú sér fullorðinn mann gráta? (...) 10. Lætur þú sem þú hafir fengið eitthvað í augun ef komiö er að þér grátandi? (...) 11. Reynir þú alltaf að dylja reiði þína? (...) 12. Reynir þú alltaf að leyna von- brigðum? (...) 13. Kemur það fyrir að þú missir stjórn á skapi þínu? (...) 14. Hefur skap þitt einhvern tíma valdið þér vandræðum? (...) 15. Telur þú æskilegt að fá útrás fyrir reiöina af og til? (...) 16. Talar þú oft um það sem veldur þér reiði? (...) 17. Reiðist þú mjög auðveldlega? (...) 18. Snertir þú daglega einhvern sem þú elskar? (...) 19. Nýtur þú þess að finna fyrir sterkum tilfinningum? (...) 20. Verður þú viðkvæm(ur) þegar þú sérð lítil börn? (...) 21. Heldur þú óhikað í höndina á þeim sem þú elskar þótt það sé á almannafæri? (...) 22. Finnst þér gott að láta nudda þig? (• • •) 23. Hikar þú við að segja þeim sem þú elskar frá því hvernig þér líður? (...) 24. Hefur þér einhvern tíma þótt mjög vænt um gæludýr? (...) 25. Nýtur þú þess að vera kysst(ur) afþeim/þeirrisemþúelskar?(...) 26. Hlærð þú einhvern tíma taum- laust að fyndnum atriðum í kvik- myndum eða sjónvarpi? (...) 27. Slærð þú oft taktinn með fótun- um þegar þú hlustar á tónlist? (...) 28. Klappar þú oft manna lengst á íþróttaleikjum, tónleikum eða öðr- um slíkum samkomum? (...) 29. Hvetur þú oft ósjálfrátt iþrótta- menn eða aðrar stjörnur sem þú sérð í sjónvarpi? (...) 30. Manstu hvenær þú skemmtir þér reglulega vel seinast? (...) Niðurstaða Gefðu þér eitt stig ef svar þitt er það sama og gefið er upp i töílunni hér fyrir neðan. Ef svarið er ekki það sama færðu ekkert stig. Að lok- um leggur þú stigin saman og sérö af niðurstööunni hvar þú stendur samkvæmt greiningunni. Greining Ef stigin eru frá 17 til 30 Viðhorf þín til tilfinningamála eru mjög eðlileg og heilbrigð. Þú skammast þín ekkert fyrir að láta tilfinningar þínar í ljós af og til. Fyrir vikið líður þér vel og þú ert laus við spennu sem oft fylgir mik- illi bælingu. Ef stigin eru frá 8 til 16 Þú getur látið tilfinningar þínar í ljós en finnst erfitt að gera það eins oft og æskilegt væri. Þú ættir að láta smátilfinningasemi eftir þér oftar. Hikaðu ekki viö að gráta ef þig langar til þess. Reyndu heldur ekki alltaf að bæla reiði niður og láttu þig hafa það að skella upp úr þegar þú skemmtir þér vel. Þetta gerir þér gott bæði andlega og lík- amlega. Ef stigin eru 7 eða færri Þú ert mjög bæld(ur). Þú þarft nauðsynlega að sýna tilfmningar þínar af og til. Það er ekkert rangt við það hvernig þér líður, hvort sem þú kætist eða reiðist. Ef þú gefur þér ekki lausan tauminn er líklegt að það skaði heilsu þína. 1. já 0 nei 1 7. já 0 nei 1 13. já 1 nei 0 19. já 1 nei 0 25. já 1 nei 0 2. já 0 nei 1 8. já 1 nei 0 14. já 1 nei 0 20. já 1 nei 0 26. já 1 nei 0 3. já 0 nei 1 9. já 0 nei 1 15. já 1 nei 0 21. já 1 nei 0 27. já 1 nei 0 4. já 0 nei 1 10. já 0 nei 1 16. já 0 nei 1 22. já 1 nei 0 28. já 1 nei 0 5. já 0 nei 1 11. já 0 nei 1 17. já 1 nei 0 23. já 1 nei 0 29. já 1 nei 0 6. já 0 nei 1 12. já 0 nei 1 18. já 1 nei 0 24. já 1 nei 0 30. já 1 nei 0 ERÞAÐ 1 E»AX eða 2 27 A Bíræfnir menn stálu nú í vikunni lögreglubíl. Þeir komust þó ekki langt vegna þess að bíllinn... '1: fórekkiígang X: varbilaöur ' 2: óksjálfurheim B í vikunni fæddust íj órburar á fæðingardeild Landspítal- ans. Líkurnar á fjórburafæðingum er taldar vera: 1: einn á móti milljón X: sömuogílottóinu 2: einnámótifimmhundruðþúsund C Fy rirtæki í Reykj avík notar þetta sem ein- kunnarorð fyrir þjónustu sem það selur. Þjónustan er: I: tryggingar X: geymsla skartgripa 2: gullhúðun D Sovétmenn hafa búið til farartæki sem sagt er að sé stæl- ing á öðru bandarísku. Farartækið er: 1: reiðhjól X: geimfeija 2: hestakerra E Par nokkurt á nú í stríði við réttvísina í Bandaríkjunum. Þau heita: 1: BonnyogClyde X: JohnnyBGoodogMissBHaven 2: Ferdinand og Imelda Marcos F Raddir eru nú uppi um að dýrum í Reykjavík sé mismun- að. Dýrin sem hallað er á eru: I: hundar X: höfuðlýs 2: endur G íslensk áfengistegund er í öðru sæti á vinsældalista íslend- inga þegar þeir velja sér áfengi. Hún heitir: 1: kogari X: smyglaðurbjór 2: Eldurís H Af 32 knattspyrnuþjóðum í Evrópu eru íslendingar taldir vera í: 1: 29. sæti X: 5. sæti 2: 10. sæti Sendandi Heimili _____________________________________________________________ Rétt svar: A □ B □ C □ D □ ! E □ F □ G □ H □ Hér eru átta spurningar og hverri þeirra fylgja þrír mögu- leikar á réttu svari. Þó er aðeins eitt svar rétt við hverri spurn- ingu. Skráið réttar lausnir og sendið ókkur þær á svarseðlin- um. Skilafrestur er 10 dagar. Að þeim tíma liðnum drögum við úr réttum lausnum og veit- um þrenn verðlaun, öll frá póst- versluninni Primu í Hafnar- íirði. Þau eru: 1. Fjölskylduteppi að verðmæti kr. 5.430,-. 2. Fjölskyldutrimmtæki að verðmæti kr. 2.750,- 3. Skærasett að verðmæti 1.560,- í öðru helgarblaði héðan í frá birtast nöfn hinna heppnu en nýjar spurningar koma í næsta helgarblaði. Merkið umslagið 1 eða X eða 2, c/oDV,pósthólf 5380,125 Reykjavík. Vinningshafar fyrir 1 eða X eða 2 í tuttugustu og fimmtu get- raun reyndust vera: Bergljót Friðþjófsdóttir, Höfðabraut 7, 300 Akranes (hitateppi); Margr- ét Bárðardóttir, Úthlíð 12,105 Reykjavík (trimmtæki); Helga Eðvaldsdóttir, Aðalgötu 33,625 Ólafsfirði (skærasett). Vinningarnir verða sendir heim. Rétt lausn var: 2-1-X-1-2-X-X-2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.