Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988. 46 Iitlu fjórburastúlkumar rólegar og góðar: Kvíðum ekki svefn- lausum nóttum - segja þau Margrét Þóra Baldursdóttir og Guðjón S. Valgeirsson „Ég get ekki neitað því að ég var orðin mjög þreytt. Allar hreyfmgar voru erfiðar og ég þurfti á hjálp að halda til að snúa mér við í rúminu. Síðustu daga hélt ég litlu niðri og átti erfitt með svefn nema með hjálp svefntafla," sagði Margrét Þóra Bald- ursdóttir, 34ra ára, nýorðin fjórbura- móðir, í spjalli við helgarblað DV. Hún var þá nýkomin af vökudeild- inni þar sem hún fylgdist með dætr- unum fjórum. „Þetta er alveg yndis- legt, því er ekki að neita. Ég á ekki orö tíl aö lýsa þessu.“ Margrét Þóra var í helgarviðtali við DV í vor en vildi þá ekki láta nafns síns getið enda komin tæpa þrjá mánuði á leið. „Allir sem þekkja okkur höfðu samband eftir viðtalið. Einn þekkti arininn, annar tók eftir mynd af syni okkar á veggnum og einhver þekkti hendurnar á mér. Viðtaliö olli okkur þó á engan hátt neinum óþægindum. Við fundum helst fyrir því hversu áhugi á tækni- frjóvgun óx til muna. Mjög margir höfðu samband viö okkur og báðu um leiðbeiningar og það var helst aö heyra á fólki að það hefði ekki trúað, fyrr en viðtaliö birtist, hversu auö- veldlega væri hægt aö komast í þessa aðgerö,“ sagði Margrét enn fremur. Aukning í tækni- frjóvgunum Eiginmaður hennar, Guðjón S. Val- geirsson, tók í sama streng. „Þaö virtist nánast um holskeflu að ræða svo margir fóru út í sumar. Til dæm- is ein vinkona okkar sem býr í Mos- fellsbæ, sem bað um að fá lánaðan sloppinn hennar Margrétar sem hún var í úti, gengur með tvíbura núna. Það gekk í fyrstu tilraun hjá henni. Þegar hún var úti voru tíu íslensk hjón sem biðu eftir að komast í að- gerð og fjöldi hér heima á biðlista." Guðjón sagði að enginn talaði um glasabörn við þau eftir að telpurnar fæddust. „Við höfum reyndar aldrei heyrt minnst á það. Enda er þetta ekki eins og það hljómar. í raun er þetta aðeins lítil aðstoð, það er ekki verið að búa til neitt. Það er ekki eins og það sé verið að hrista einhverju saman í glösum, langt því frá,“ segir hann. Auðólfur Gunnarsson læknir hafði strax samband við Bourn Hall Clinic þegar fæðingin var afstaöin en þetta er í annað skipti í heiminum sem glasafjórburar fæðast. „Þeir láta sér víst nægja að setja þrjú egg í konuna núna eftir að eggin fjögur frjóvguð- ust öll hjá okkur. Hins vegar er það mjög algengt að aðgerðin misheppn- ist. Þegar við fórum út í annað sinn var okkur sagt að líkurnar væru þrjátíu prósent á að frjóvgun tæk- ist.“ Þyngdíst um tæp sex kíló Guðjón segir gott að þetta skuli allt afstaðið og stúlkurnar allar heil- brigðar og vel skapaöar. „Margrét Þóra er búin að vera hér á fæðingar- deild Landspítalans síöan í júlí. Hún fékk þó alltaf helgarfrí. Undir það síðasta fékk hún samt ekki að sofa heima, þeir vOdu fylgjast með henni. Þetta var líka orðið svo erfitt. Hún var orðin svo þung á sér.“ Þrátt fyrir að Margrét væri þung á sér, sem vonlegt er með fjögur börn, þyngdist hún ekki nema á bilinu 5-6 kíló allan meðgöngutímann. Það þýðir að hún hefur sjálf lést talsvert. „Ætli ég verði ekki bara fín þegar legiö er gengið saman," segir Mar- grét. Af skiljanlegum ástæðum er mikil áreynsla fyrir líkamann að bera þennan þunga og Margrét sagði okkur áð henni finndist hún vera með gapandi sár innan í sér. „Ég var mjög þreytt eftir fæðinguna og spennt. Það var eins og uppsöfnuð þreyta undanfarinna mánaða hefði komið fram. Nú finn ég dagamun á mér,“ segir Margrét sem gekk með hjólastólinn á undan sér á fimmtu- dagskvöldið þegar viðtaliö var tekið þótt aðeins væru liðnir tveir sólar- hringar frá uppskurði. Blóm frá fjórburamóður Hún segist ætla að reyna að hafa börnin á brjósti en margir hafa sjálf- sagt velt fyrir sér hvort slíkt sé ekki óframkvæmanlegt. „Ég vona að mér takist það. Ennþá hef ég ekki getað gefið þeim brjóst, mjólkin kemur ekki eins fljótt þegar börn fæðast fyrir tímann og við keisaraskurð eins og í eðlilegum fæðingum. Þær eru byrjaðar að fá mjólkurduft og eru mjög duglegar," segir Margrét enn fremur. Á fæðingardeildina hafa borist hundruð rósa- og blómvanda af öll- um gerðum og stærðum. Á stofu Margrétar er blómahaf á hverju borði. Þau segjast hafa fengið kveðj- ur frá ótrúlega mörgum. Sérstaklega þótti þeim vænt um að fá blómvönd frá fjórburamóöur. Hún fæddi fjór- burana 31. október 1957 en aðeins einum degi munaði að fjórburafæð- ing hefði aftur orðið á þeim degi. Guðjón segist hafa fundið það á sér aö þetta yrðu tveir strákar og tvær stelpur. „Mér fannst það lógískt að svo yrði. Við vissum það fyrir mán- uði síðan að það væru að minnsta kosti tvær stelpur. Það kom fram í sónar. Spumingin var þá með hin tvö. Fólk sem við þekkjum var alltaf að dreyma fyrir hvaða kyn kæmu 1 heiminn, bæði ömmur og aðrir, en engan hafði dreymt fjórar stúlkur. Það kom okkur því nokkuð á óvart,“ segir Guðjón og Margrét bætir því við að kominn sé tími til að kven- menn fái yfirráðin á heimilinu. „Ég er búin að vera svo lengi ein með þeim tveimur.“ Sonurinn, Jóhannes Baldur, telur að stjórnsemi móður sinnar hafi komið í stað nokkurra kvenmanna hingað til. Fjölskyldan er létt í skapi og lætur sig ekki muna um að gantast með nýju fjölskyldu- meðlimina. Tvö barnarúm fyrst um sinn Guðjón segist hingað til ekki hafa verið neinn sérstakur barnakarl en ætli það breytist ekki núna. „Ég kvíði því að minnsta kosti ekki að ég fái lítinn svefnfrið. Þær eru svo rólegar og maður verður þá bara að taka því eins og hverju öðru.“ Margrét segist ekki kvíða neinu þar sem hún eigi bæði eiginmann og fjórtán ára strák sem munu hjálpa henni. „Jóhannes er sérstök barnagæla." Þegar við veltum því fyrir okkur hvernig verður við matarborðið þeg- ar mata þarf fjóra munna er Margrét fljót til svars: „Við erum þrjú og svo reynum við alltaf aö hafa einn gest til að mata þá fjórðu.“ Barnarúmin verða fyrst um sinn tvö því ráðlagt er að hafa tvö börn saman í rúmi meðan þau eru ung. „Þetta verður ekkert vandamál," segir Margrét. „Hér á Landspítalanum fær maður bækling sem segir hvað á að kaupa handa einu nýfæddu barni og við margfoldum það bara meö fjórum." Þurrkari frá karlakór Margir velta því sjálfsagt fyrir sér hvort ekki verði kostnaðarsamt að klæða og fæða fjögur kornabörn. „Við erum sem betur fer búin að koma okkur ágætlega fyrir og komin úr mesta baslinu sem margir jafn- aldrar okkar eru í,“ segir Guðjón. „Maður verður bara að vinna og vinna. Ættingjar hafa verið að færa okkur fót á þær litlu svo þetta bjarg- ast allt saman,“ segir Guðjón og Margrét bætir því við að félagar Guðjóns í karlakórnum Stefni hafi fært þeim þurrkara þennan sama dag. „Það kom sér vel því ég var búin að ákveða að kaupa mér einn slíkan. Bleiuframleiðendur hafa líka haft samband," segir Margrét og brosir en hún lýsti því yfir í viðtali við DV í vor að hún myndi eingöngu nota bréfbleiur til að spara sér enda- lausa þvotta. Ennþá hafa þau ekki keypt neitt handa litlu dætrunum en þær verða á spítalanum fram í desember að öll- um líkindum. „Þegar ég verð orðin hress forum við af stað aö versla," segir Margrét. „Við heyrðum á Stöð 2 að hægt væri að fá fjórburavagn en við þurfum auðvitaö að kaupa flögur burðarrúm," segja þau. Guð- jón segist fremur búast við að kaupa tvo tvíburavagna þar sem í móður- kviði fylgdust alltaf tvær og tvær saman og voru tvær um hvora fylgj- una. „Ætli við leyfum þeim ekki að fylgjast að eins og þá.“ Sónarinn gaf góðar vonir Á meðgöngunni fylgdust þeir Guð- jón og Jóhannes vel með öllu. Guðjón segir að hann hafi getáð fundið spörkin vel og Margrét bætir við að hún hafi fundið mjög mikið fyrir öll- um hreyfingum og spörkum. „Það reyndi mikið á öll líffæri,“ segir hún. Guðjón fór alltaf með Margréti þegar hún fór í sónar. „Maður gat fylgst vel með fjórburunum. Læknarnir voru alltaf svo ánægðir og það gaf manni góðar vonir. Þeir voru undr- andi á hvað allt gekk í rauninni vel því þeir voru hræddir um að legið myndi opna sig.“ Óll fjölskylda Margrétar býr í kringum þau í Mosfellsbæ og þau sögðust vonast til að fá hjálp þaðan. Guðjón er úr Skagafirðinum og þar býr fjölskylda hans. Segja má aö ætt- ir þeirra hafi stækkað um nokkur prósent á einum degi. Jóhannes Baldur hefur fengið mik- il viðbrögð í skólanum og stöðugt er verið að spytja hann um systurnar. Nokkrir skólafélagar færðu móður hans blómvönd. Hann segist hlakka til að fá stelpurnar heim og sé stað- ráðinn í að verða yfirskiptari. Jó- hannes var búinn að ákveða að þetta yrðu þrír drengir og ein stúlka. Þó voru engin veðmál í gangi. Þegar Guðjón er spurður hvort stoltið hafi ekki blossað upp er hann fékk fjórar heilbrigðar dætur segir hann það svo sannarlega hafa verið. „Sennilega verður það enn meira þegar við fáum að hafa þær meira. Enn sem komið er höfum við lítið fengið aö halda á þeim.“ Guðjóni finnst þær ekkert svo litlar, segist heldur velta því mikið fyrir sér hvernig þær komust allar fyrir í móðurkviði. „Það er alveg merki- legt.“ Nöfnin ekki ákveðin Margrét segist núna fyrst vera að gera sér grein fyrir þessu öllu. „Þetta er eitthvað svo ótrúlegt,“ segir hún. Þau segjast ekki alveg vera búin að finna nöfn á stelpurnar en það sé nú allt að koma. „Ég er búin að ákveða Fjölskyldan skoðar barnaföt sem litlu stúlkurnar hafa fengið. Þau hlakka öll til að takast á við að ala upp fjórar prinsessur. Mikið blómahaf hefur borist, m.a. frá fjórburamóður. DV-mynd GVA tvö,“ segir Margrét og Guðjón bætir viö að hann hafi verið búinn að ákveða tvö strákanöfn. „Ætli við skiptum þessu ekki á milli okkar,“ segja þau en lítill tími hefur gefist til að velta nöfnum fyrir sér. En Guðjón segir stoltur að þrjár dætranna líkist honum. „Ég sé vel minn svip í þeim,“ segir hann. Ekkert sumarfrí var hjá fjölskyld- unni í sumar en Guðjón segir það ekki skipta máli því þau hafi aldrei tekið sumarfrí. „Ég lauk námi í tann- lækningum árið 1984 og síðan hefur ekki gefist tími til að taka sumarfrí. Það skiptir mig engu máli,“ segir hann. Fjórburafæðingin á íslandi var til góðs fyrir fæðingardeildina því hún rak á eftir að ný vökudeild yrði tekin í notkun með nýjum hitakössum. „Núna sér maður hvað félög eins og kvenfélagið Hringurinn skila miklu starfi,“ segir Margrét. „Það hefði get- að skapast ófremdarástand ef nýja deildin hefði ekki verið tilbúin. Auk þess hefði þríburafæðingin um dag- inn og fjórburafæðingin núna getað rekist saman og þá hefði orðið þröngt á gömlu deildinni. Gömlu hitakass- arnir voru ekki lengur nógu góðir.“ Mikill fjölmiðlaatgangur varð að þeim hjónum er fjórburarnir komu í heiminn enda einstæður atburður. Þau voru búin að gera sér grein fyrir því að svo yrði og viðurkenna að þótt þau hafi verið orðin þreytt þá væri líka skemmtilegt að kynnast þessu. „Ég hélt að það væri miklu meiri fyrirferð í sjónvarpsupptöku," segir Guðjón. „Maður hefur verið að velta þessu fyrir sér og ég sé það núna að fjórburafæðingin er náttúr- lega góða fréttin mitt í öllu þessu hræðilega þjóðfélagsástandi." Sérstaklega rólegar í viðtalinu viö DV í vor sagði Margrét að ef þetta yrðu fjórar stelp- ur eða fjórir strákar gæti hún alveg hugsað sér að eiga fleiri börn. „Já, ég gæti þaö sjálfsagt," segir hún núna. „Ég get samt ekki hugsað mér það í dag eða næstu mánuði," segir hún enn fremur og hlær. Guðjón segir að þau hafi séð fram á að styttast færi í að Jóhannes Bald- ur færi að heiman og þá yrðu þau hjónin tvö ein á besta aldri. „Hann er farinn að vera mikið aö heiman eins og gengur með unglinga. Senni- lega fær hann þó nóg að gera á næst- unni með prinsessurnar.“ „Það verður ægilega gaman að fara með þær heim," segir Margrét dreymandi. „Ég var að fylgjast með þegar verið var að baða þær. Ein var ekkert sérstaklega ánægð þegar ver- iö var að losa slöngurnar en hinar vöknuðu ekki einu sinni. Ég trúi því að þær verði rólegar. Þegar ég hélt á tveimur áðan var ég að velta því fyr- ir mér hvernig þær fjórar hefðu rúm- ast inni í mér. En ég tók eftir því þegar ég hélt á þeim hversu vel þeim leið bara 'við að snerta hvor aðra,“ sagði Margrét Þóra. Hún starfaði áður í Verslunarbankanum og segir að sennilega sé ávöxtunin svona góð í þeim banka. En víst er að Margrét Þóra fer ekki út á vinnumarkaðinn í bráð. Ljóst er að mikið starf er fram- undan á heimili þeirra í Mosfells- baenum. í þetta skiptið fengum við ekki að mynda foreldrana með litlu prinsess- unum vegna sjúkra barna á vöku- deildinni. En víst er að þjóðin mun fylgjast með litlu fjórburunum áfram. Til gamans fyrir kvenréttindakon- ur má geta þess að kvenþjóðin virð- ist valdamikil þessa dagana ef miða á við fjölbura. Þríburarnir sem fædd- ust fyrir þremur vikum voru allir kvenkyns og nú bætast fjórar kyn- systur við. Karlarnir mega líklegast fara að vara sig. -ELA Helgarblað DV var meö viðtal við Margréti Þóru í vor sem vakti mikla at- hygli. Viðtaliö jók til muna áhuga á tæknifrjóvgun og fóru mörg hjón í sum- ar utan i sams konar aðgerð og Margrét og Guðjón. !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.