Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Page 7
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
7
Fréttir
Gámaútflutmngurmn:
Eftirlitið
verður hert
- segir Stefán Guimlaugsson
„Viö ætlum aö herða eftirlitiö með
gámaútflutningnum í ljósi þess sem
gerðist um síöustu helgi. Viö munum
reyna aö virkja tollgæslumenn á hin-
um ýmsu stöðum viö þetta eftirlit,“
sagði Stefán Gunnlaugsson hjá utan-
ríkisráðuneytinu.
Þetta herta eftirlit kemur í kjölfar
þess að um síðustu helgi fóru 200 lest-
ir af þorski og ýsu, umfram það sem
leyft hafði verið að flytja til Eng-
•lands, út með gámum. Afleiðingin
varð verðfall á mörkuðunum alla
þessa viku.
Stefán Gunnlaugsson sagði að í gær
hefði verið úthlutað 822 tonnum af
þorski og ýsu í gámum til Englands
og 600 tonnum til skipa sem sigla
með aflann. Til Þýskalands og
Frakklands má flytja 100 lestir með
gámum og 600 lestir með skipum sem
sigla með afla.
Verði eftirhtið hert með þessum
flutningum er ljóst að margir sjó-
menn lenda í erfiðleikum með að
losna við afla sinn vegna þess að fisk-
vinnslan tekur við minna magni eri
nokkru sinni. -S.dór
Skipan prestakalla:
Vísað heim
„Lagafrumvarp um skipun presta-
kalla, sem var til umfjöllunar á
kirkjuþingi og felur í sér fækkun
prestakalla á landsbyggðinni, var
ekki afgreitt á þinginu. Frumvarpinu
var vísað heim í héruðin þar sem
umsagnar sóknarnefnda og sóknar-
fólks er leitað. Verður frumvarpið
tekið til afgreiðslu á kirkjuþingi á
næsta ári.
Séra Árni Sigurðsson, prestur á
Blönduósi, kvaðst ánægður með
þessa lyktan mála. Hann hafði samið
athugasemd undirskrifaða af fjórum
kirkjuþingsmönnum þar sem lýst er
ánægju með aðlögun prestakalla-
skipan að nútímanum, þar sem
prestaköllum er fjölgað í þéttbýlinu
suðvestanlands, en um leið lýst yfir
megnri óánægju með fyriraétlanir
um fækkun prestakalla á lands-
byggðinni.
„Þykir mönnum það koma úr hörð-
ustu átt að kirkjan sjálf skuli hafa
frumkvæði að þeirri firru að veikja
stöðu sína í sveitum landsins á sama
tíma og þessum sóknum er meiri
þörf á andlegum styrk og trúarlegum
bakhjarli en nokkru sinni fyrr þar
sem að þeim er vegið bæði félagslega
og efnahagslega,1' segir meðal annars
í athugasemdum landsbyggðar-
manna. -hlh
Útdeiling sakramentis:
Ógeðfellt að bergja
af sama bikar
Kirkjuþing samþykkti samhljóöa
tillögu til þingsályktunar um útdeil-
ingu sakramentis við altarisgöngu.
Kirkjuþing beinir því til biskups að
hann láti kanna hvort heimilt sé að
útdeiling altarissakramentis fari
þannig fram að oblátunni sé dýft í
vínið og hún síðan lögð í munn þess
sem neyta skal eöa afhent honum.
í greinargerð með tillögunni segir
að sá siður að allir bergi af sama bik-
ar við altarisgöngur sæti æ meiri
andstöðu með hverju árinu. Sérstak-
lega verði þess vart við fermingar á
vorin. Borið er við smithættu og ekki
síður að fólki fmnist ógeðfellt ef ekki
ósiðlegt aö allir drekki af sama bik-
ar. Komið hafi fram hugmyndir um
að hafa sér bikar fyrir hvern en það
muni það minna um of á veisluhöld
og eigi því ekki heima í krikju. Fylgi
því einnig umstang og skarkali í fiöl-
menni sem trufli athöfnina. Muni sú
aðferö að dýfa oblátunni í vínið vera
einfaldasta lausnin.
Lagið ykkar eigið öl og vín
og sigrið kreppuna.
Verð á ölflöskum frá 12 kr.
Verð á vínflöskum frá 50 kr.
HEIGAR það besta frá Danmörku
UNICAN það besta frá Englandi. Armúla 40-símí 35320
l/'erslunin
Fæst einnig i helstu verslunum landsins.
A1ARKI
HRESSIÐ UPPÁTILVERUNA
Suzuki Swift ’88
á 365 þúsund
Verðsviptingarnar á bílamarkaðnum halda áfram
og nú seljum við síðustu Suzuki Swift bilana af
árgerð 1988 á verði, sem vart á sér hliðstæðu.
■ Suzuki Swift CA kr. 365.000,-,
áður kr. 423.000,-.
■ Suzuki Swift GTI Twin Cam 16
kr. 595.000,-, áður kr. 709.000,-.
Einstakt tækifæri til að eignast hinn sívinsæla
■ Suzuki Swift á frábæru verði.
Opíðfrakl. 10:00-17:00.
Verð miðast við gengi 1. 1 1. 1988.
SVIPTINGAR
Á BÍIAMARKAÐNUM
$ SUZUKI
■' .
SVEINN EGILSSON HF. FRAMTlÐ VIÐ SKEIFUNA
SlMAR: 685100, 689622
-hlh