Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Síða 9
LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1988.
klipptur styttra. Hann er mjög
breytilegur eins og flokkurinn. Ég á
kannski ekki að segja það en mér
finnst eins og hann sé oft ógreiddur.
Auk þess þarf að snyrta augabrún-
irnar,“ sagði Ari.
„Þá er það Guðmundur Bjarnason.
Ég breyti honum minnst þyí ég er
nokkuð ánægður með hann eins og
hann er. Ég er nokkuð ánægöur líka
með Jón Sigurðsson. Reyndar finnst
mér hann myndarlegastur af þeim.
Það er erfitt að breyta honum því
hárið er mjög þykkt og hann greiðir
það mikið fram á ennið. Ég prófa að
setja á hann krataskegg og ég held
að það fari honum ágætlega."
Ari A. Magnússon við vinnu sina.
Púkaleg ríkisstjórn
Ari var samt ekki fyllilega ánægð-
ur með ríkisstjómina í heild eins og
hún lítur út. „Mér finnst þau öll
mega vera smartari. Ólafur Ragnar
ætti að fá sér nýtískulegri gleraugu
og þaö eitt myndi breyta honum tals-
vert. Klæðnaður ráðherranna finnst
mér að mætti vera meira eftir nýj-
ustu tísku. Friðrik Sophusson var
alltaf óaðfmnanlegur og mættu þeir
margir taka hann sér til fyrirmynd-
ar. Jóhanna, sem eini kvenráðherr-
ann, hugsar alls ekki nógu mikið um
úflit sitt. Hún mætti taka konur eins
og Beru Nordal og Mörtu Bjarnadótt-
ur í Gallerí sér til fyrirmyndar.“
Fyrir lýtalækningar og lög-
reglumenn
Tölvan, sem notuð er í breyting-
amar, er sömu tegundar og lýta-
læknar nota við störf sín og lögreglan
notar til að finna útht sakamanna.
„Lögreglan safnar forritum með
nefjum, augum og munnum á meðaij
við söfnum hárgreiðslum,“ sagði Ari.
Hann sagði að með tölvunni væri
hægt að breyta fólki. „Við getum
breytt nefi, höku eða öðrum líkams-
hlutum. Hægt er að fjarlægja ör,
hrukkur og bólur. Líkami Rambó
gæti auðveldlega verið settur yfir á
Steingrím eða hkami Birgittu Niel-
sen á Jóhönnu Sigurðardóttur. Ef
tekin væri mynd af Steingrími í
sundi og tölvan breytti hkama hans
væri auðveldlega hægt að falsa
myndina og það væri vitaskuld
hættuleg misnotkun.
Tölvan, sem Hár og snyrting notar,
er eina sinnar tegundar hér á landi.
Magnús Axelsson, eiginmaður Báru
Kemp, eiganda stofunnar, keypti
hana í Bandaríkjunum. „Við áttum
ahs ekki von á að fólk hefði jafn-
mikinn áhuga fyrir tölvunni og raun-
in hefur orðið. Hún kemur sér mjög
vel þegar fólk er óákveðið með breyt-
ingar á hárgreiðslu. Ef konu með sítt
hár langar til að khppa sig sýnir tölv-
an henni hvernig klippingin klæðir
hana. Sama er að segja með hárlitun,
permanent eða hvað það er sem við-
komandi vill gera við hár sitt.
Misskilin tölva
Margir sem hafa komið hingað
hafa misskihð tölvuna og haldið að
hún segi hvernig klipping fari best á
þeirri manneskju sem sest fyrir
frarnan hana. Tölvan gerir það ahs
ekki. Hún sýnir einungis fram á
hvemig manneskjan htur út eftir
ákveðna breytingu en dæmir ekki,“
sagði Ari.
Það getur tekiö upp í heha klukku-
stund að breyta einni manneskju og
hafði Ari því nóg að gera við breyt-
ingar á heilh ríkisstjórn. Hann ákvað
strax að breyta þeim eins og honum
fannst eðlilegt að gera. „Ég vh ekki
láta þá líta hlæghega út heldur gera
breytingu sem er raunveruleg. Ég
vonast th aö tekið verði mark á mér.“
Ari tók starf sitt fullkomlega alvar-
lega og tók ekki í mál að breyta
mönnum þannig að þeir yrðu óþekkj-
anlegir. „Mér finnst að þeir eigi að
halda úthti sínu þó hárgreiðslan
breytist, hrukkumar aðeins mildað-
ar og skeggið sé snyrt," sagði hann.
Dæmi nú hver og einn um árangur-
inn. -ELA
Gefðu barninu aðeins
það besta! Beiz/iaa
camasíðjtf
cipenoOet
Innkaupastjórar!
Nýkomin jólaleikföng i miklu
úrvali. - Pantið timanlega i
sima 91-37710.
Ingvar
Helgason hf.
heildverslun
Vonarlandi v/Sogaveg - sími 37710