Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Qupperneq 11
poor r7^<TT,#rcr\rAT/r ■a t ÍTQ h rVTÍ • "*
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Breidsíðan
Söngvari í þijátíu ár:
,, Ég var rekinn úr Hljómiim"
- segir Einar Júlíusson en hann var fyrsti söngvari þeirrar hljómsveitar
Einar Júlíusson söngvari heldur
upp á þrjátíu ára söngafmæli sitt á
þessu ári. Margir telja að hann hafi
aldrei sungið betur en einmitt núna.
Einar syngur í sýningunni Rokkskór
og bítlahár á Hótel íslandi um þessar
mundir þar sem hann hefur slegið í
gegn. Þar tekur hann gömlu söngvar-
ana Fats Domino, Paul Anka, Frank
Sinatra og fleiri eins og ekkert sé.
„Þessi tónhst á sterk ítök í mér,“
segir hann.
Þótt Einar hafi sungið sem at-
vinnumaður í þrjátíu ár þá er lengra
síðan hann byrjaöi að syngja. Hann
minnist þess að strax í barnaskóla
hafi hann verið látinn syngja einsöng
í söngtímum og á barnaskemmtun-
um. „Þegar ég var á fiórtánda ári baö
gagnfræðaskólahljómsveitín mig að
syngja lagið Diana á skólabalh. Ég
söng það þrettán sinnum," segir
hann.
„Missti röddina"
„Nokkru síðar var ég beöinn að
syngja með hljómsveit Karls Jónat-
anssonar á Keflavíkurvökunni. Það
gekk vel og mér var síðan boðið að
syngja með hljómsveit Harðar Jón-
assonar. Síðan kom hljómsveit Guð-
mundar Ingólfssonar en út úr henni
komu Hljómar árið 1963. Ég var fyrstí
söngvari Hljórna," segir Einar.
Hann var síðan rekinn úr Hljómum
með lúalegum hætti. „Ég þurfti að
leggjast inn á sjúkrahús og láta taka
úr mér hálskirtlana og útvegaði Karl
Hermannsson í minn staö. Á meðan
ég lá á sjúkrahúsinu barst hingað
Bítíaæðið frá Bretlandi. Þegar ég var
tílbúinn að mæta til leiks að nýju
vildu Hljómamir að ég tæki prufu á
nýju Bítialagi. Það kom mér undar-
lega fyrir sjónir aö eftír að ég flutti
lagið sögðu þeir mér að haft yrði
samband en daginn eftir frétti ég af
atkvæðagreiðslu í hljómsveitinni.
Þeir vildu meina að ég heföi misst
röddina við kirtlatökuna og greiddu
Einar á yngri árum. Þessi mynd var
i myndasafni DV.
því atkvæði um hvort ég ætti að vera
áfram eða Karl. Atkvæðin féhu
þannig að ég fékk eitt en Karl þrjú
og hann hélt áfram. Ég var mjög sár
yfir þessu,“ viðurkennir Einar.
Pónik í tuttugu ár
Skömmu síðar var ég á dansleik í
Krossinum, sem var vinsæll
skemmtístaður hér suður frá á sín-
um tíma, er trommuleikarinn í Pónik
kom að máh við mig og spurði hvort
ég gæti hugsað mér samstarf við þá.
Ég hafði aldrei hugsaö mér aö syngja
með hljómsveit úr Reykjavík og bjóst
við að það yrði einhverjum erfiðleik-
um háð vegna færðar á mihi. Ég var
ráðinn í hljómsveitina, færðin var
ekkert vandamál og saman störfuð-
um við í tuttugu ár,“ segir Einar.
Þrátt fyrir ágætis samstarf á þeim
tuttugu árum var Einar tvívegis rek-
inn úr hljómsveitinni. í fyrra skiptið
vegna Sigmars í Sigtúxú. „Við lékum
um þriggja ára skeið í Sigtúni og
Sigmar vhdi fá einhverja breytingu
í bandið. Þeir sögðu mér upp en það
leið ekki á löngu uns þeir báðu mig
að koma aftur. Þá voru einnig í Pón-
ik Ingibjörg Guðmundsdóttir og Ari
Jónsson þannig aö söngvararair
voru þrír á þeim tíma. Þeir sögðu
mér aftur upp fyrir tveimur árum
síðan en þá var ástæðan sögð sam-
skiptaörðugleikar, sem mér þykir
hálf undarleg ástæða eftir þetta langt
samstarf," segir Einar en félagar
hans héldu áfram sem tríó.
„Að sumu leyti er ég feginn, þó að
á vissan hátt sakni ég þess að vera
ekki í hljómsveit. Á hitt er að líta að
starfið getur verið erfitt fyrir fjöl-
skyldumenn þar sem vinnan er á
kvöldin, um helgar og á hátíðum
þegar aðrir eru í frh. Söngurinn hef-
ur ahtaf verið aukavinna hjá mér,“
segir Einar. Þess má geta að hann
er kvæntur Ólöfu Hafdísi Ragnars-
dóttur og eiga þau fiórar dætur á
aldrinum frá þrettán ára upp í 21
árs. Dæturnar syngja ahar en sú
yngsta er sú eina sem hefur komið
fram opinberlega.
María Markan vildi kenna
honum
Um margra ára skeið var Einar
verslúnarstjóri hjá Áma Samúels-
syni í Víkurbæ og þegar mágur hans
keypti verslunina hélt hann áfram.
Undanfarin þijú ár hefur hann starf-
að hjá Varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelh. „Ég er á skrifstofu vörulag-
ersins og eiginlega erum við alltaf í
vörutalningu svo starfið er ekki
ósvipað verslunarstarfinu,“ segir
hann.
Einar hefur aldrei lært að syngja
en eitt sinn stóð það honum th boða.
„Ég naga mig enn í handarbökin að
hafa ekki þegiö það,“ segir hann og
á við er María Markan söngkona
bauð honum ókeypis söngkennslu
eftir að hafa heyrt hann syngja á
róluvehi. „Ég var fimmtán ára og
hafði þann sið ef ég reiddist að fara
út og syngja fuhum hálsi. Eitt kvöld-
ið í skínandi veðri og kvöldkyrrö sat
ég í rólu og söng kröftuglega. Þá gekk
María Markan, sem þá var búsett í
Keflavík, fram hjá, kom til min og
bauð mér að koma th sín í ókeypis
söngtíma. Ég þáði það því miður
ekki,“ segir Einar. Hann segir að vel
komi th greina að hann taki sér söng-
tíma nú þótt seint sé einungis fyrir
sjálfan sig og þá ánægjunnar vegna.
Enginn plata enn
Margt söngfólk er í ætt hans og
segir hann að afi sinn, sem er 98 ára,
hafi aha tíð verið mikih söngmaður
og taki enn lagið. Helena Eyjólfs-
dóttir og Einar eru systkinabörn.
Þótt Einar Júhusson hafi sungið í öll
þessi ár hefur hann aldrei gefið út
eigin plötu þó að hann hafi sungið
inn á ahmargar með öðrum. „Ég veit
ekki hvort ég á að segja það en mér
er hla við að heyra í sjálfum mér,“
viðurkennir hann. Það er ein aöal-
ástæðan fyrir að ég hef aldrei hug-
leitt að gefa út plötu.“
Söngvarinn segist ekki ætla að
halda upp á starfsafmæhð. „Ég hef
aö minnsta kosti ekki hugleitt það,“
segir hann. Mihi þess sem hann
vinnur fyrir Varnarhðið og syngur
gömlu meistarana á Hótel íslandi
tekur hann lagiö í kirkjunni fyrir
brúðhjón. „Ég hef sungið við fiöl-
mörg brúökaup og hef ahtaf jafngam-
an af því. Þar syng ég annars konar
tónhst sem einnig er í uppáhaldi,"
segir hann. Ekki sagðist Einar vita
hvað tæki við að loknum sýningum
á Rokkskóm og bítlahári. „Það er
ekkert ákveðið ennþá,“ segir hann.
„Hver veit nema ég skehi mér í
söngnám."
-ELA
Einar Júlíusson syngur hér með önnu Vilhjálms. Þau hafa mikið sungið
saman á undaförnum tveimur árum.