Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Page 19
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
19
Vísnaþáttur
Kolbeinn í
Kollafirði
Kolbeinn Högnason, 1889-1949,
bóndi í Kollafirði, var meöal kunnari
og smekkvíf ari hagyrðinga landins á
fyrri hluta þessarar aldar og einn
þeirra sem Margeir Jónsson, hinn
skagfirski fræðimaður, skipaði í
vísnasafn sitt, Stuðlamál, sem út
kom i þremur heftum á árunum rétt
fyrir heimskreppuna miklu. En bæk-
ur Kolbeins komu ekki út fyrr en
áratugum síðar, þrjú ljóðakver og
eitt smásagnasafn. Þá var hann fyrir
löngu hættur búskap og ævi senn
lokið. Seinast var hann við afgreiðslu
og skrifstofustörf í Reykjavík. Þá
kynntist ég honum. Kolbeinn orti um
allt milli himins og jarðar, valdi hann
sér hætti eftir því sem honum þótt
efni hæfa, en flestum mun hafa þót
hann bestur þegar ferskeyttar glettn
isvísur sýndu hug hans og skap. Sýn
ishorn úr „Dagsetri":
Er fiarar daginn, falla störf
og fölna ljós um svið,
ég yrki ljóð af innri þörf
við aftanlognsins frið.
Ég þekki handtök húmsins vel
pg harðan skapadóm.
í kuldum þess mörg kólu í hel
mín kærstu draumablóm.
Átta vísur
Nú merki ég með tölustöfum vísur
úr ýmsum áttum og um hin ólíkleg-
ustu efni, teknar úr öllum ljóðabók-
um Kolbeins.
1.
Illa settir eru menn,
sem ala meinið dulda.
Gekk fyrir illa og gengur enn
greiðsla þeirra skulda.
Útúrskot á æviferð
eigi þrot á minnir.
Þin eru brot til þroska gerð,
þú ef nota kynnir.
3.
Undur og feikn er á þig lagt,
illa í leiknum stóðstu á vakt,
hláleg teikn að holdsins makt,
og holdið reiknar stundum
skakkt.
4.
Illt aö hafa ekki grun
um örlagareglur stríðar,
að sérhver breytni mannsins
mun
mæta honum síðar.
5.
Freisting oft er fjandi hörð
fála í stóöi aö hemja.
Hún er afl um alla jörð
sem illt er að beisla og tqmja.
Leikur við taum, þó lund sé æst,
lyftist Straumur framan.
Reiðar glaums hjá fáki fæst
fyllra naumast gaman.
Flestir slasast í umferðinni á sumrin. Þá er
enn meiri þörf á að halda athyglinni vak-
andi en ella. Látum ekki of hraðan akstur
eða kæruleysi spilla sumarleyfinu.
Tökum aldiei áhættul
Vísnaþáttur
7.
Jökla þolug, þung á brún,
þjölum holar, rífur.
Landsins molar harðan hún
hamrabol og klýfur.
8.
Kvölds er glæður kveðja vang,
kyljur glæðast nætur.
Þrífur Glæðir þeysigang,
þeyta glæðum fætur.
Stökursex
í einu ljóðakveri Kolbeins er
þriggja érinda kvæði sem heitir í
skuggann:
Eg held í skuggann,
það hæfir mér.
Þú guðar á gluggann,
þar gleðin er.
Að lifa og njóta
er löngun þín.
Að stríða og brjóta
er stefna mín.
En þung er töfin
og þreytir mig.
Er opnast gröfm,
allt jafnar sig.
Og:
Morgunvarans höndin hlý
hrærir á mararfulli.
Sólarfarið silfurský
sveipar á skarir gulli.
Fögur blunda byggð og ver
brúnum undir tignum.
Öllum stundum uni ég mér
út með sundum lygnum.
Gleði manns er gleymið sprund,
glöpin yfir breiðir.
Sorgin hljóð og hörð í lund
hann til þroska leiðir.
Aö lokum
Undarleg reynsla er það að rekast
á fjörutíu ára gamla glettnisvísu, sem
maður hefur ort ungur, í ljóöakveri
löngu látins manns. Á stríðsárunum
bjuggum við fjögur systkin um tíma
í bakhúsi við Grettisgötuna. Ég kom
heim frá vinnu á matmálstímum og
varð þá pft litið út um eldhús-
gluggann. í húsinu nær götunni áttu
heima ágæt hjón og á gluggapóst
gegnt okkur var spegill hengdur.
Þarna áttu hka heima börn þeirra á
okkar reki og þótti mér gaman að
horfa á ungar heimasætur sem tíð-
förult varð að sínum glugga þar sem
spegilhnn var. Frá viðbrögðum segir
einmitt í þeirri vísu sem senn kem-
ur. Stúlkan mun hafa unnið á sama
stað og Kolbeinn í Kollafirði. Ég hafði
sent þennan stutta spöl vísukorn og
nú leitaði unga stúlkan til hans, fékk
hjá honum vísu. En hún mun hafa.
þótt vafasöm og var því aldrei send.
En Kolbeinn hélt báðum vísunum til
haga og birti í bók. Mín er svona:
Skýst minn hugur skamman veg.
- Skyldi hún ekkert hugsa um
mig?
Ó, hvað hún er yndisleg,
ungfrúin, sem grettir sig.
Jón úr Vör
Fannborg 7
Kópavogi
SÓLBAÐSSTOFAN ÁNANAUSTUM
Vetrartilboð!!!
AEROBIC
Erum að fara af stað með hörku
púltíma á mánudaginn.
Innritun hafin.
Ánanaustum 15 — Reykjavlk — Slmi 12815
FATAFELLUGLÖS
Þegar ís er settur í glösin afklæðast stúlkurnar, sem glösin prýða, öllum
til mikillar ánægju. Þegar ísinn bráðnar fara þær aftur í fötin. Ómissandi
á gleðistundum.
ATH. Þvoið glösin ur volgu vatni en ekki heitu.
Aðeins kr.
1.190,-
settið.
Bæði settin
aðeins kr.
1.900,-
Póstverslimin Príma
Pöntunarsími 62-35-35. Símapantanir alla daga
vikunnar kl. 9.00-22.00.
S VISA^ S EUROCARD
Fótóhúsið - Príma
- Ijósmynda- og gjafavöruverslun,
Bankastrœti, sími 21556.
Ufi.!
habit
LAUGAVEGI 13, REYKJAVÍK,
Vönduð og falleg
gjafavara í eldhúsið.
Hringið og pantið
vörulista Habitat 1988.
Póstversiun
um land aiit.
»91-625870
ii
ý w K / IV
r\/ *
VISA
EUROCARD
Vínglös - kristall, verö frá kr. 150. Teflonálpönnur, verö frá kr. 680.
Ofnpottur, leir, f/kjúklinga o.fl., kr. 585. Sósuhitari, leir, kr. 695. BARTON matar-og
24 stk. hnífapör m/upphengi, kr. 1.960. kaffistell. Dæmi: 6 manna (30 stk.), kr. 9.306.