Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Side 26
26
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Sérstæð sakamál__pv
Óvenjulegt
leigumorð
Vince Pasquale.
Árla morguns var Vince Pasquale
skotinn til bana viö hús sitt. Eina
vitnið aö morðinu var sautján ára
gömul dóttir hans, Coleen. Tíu mári-
uðum áður hafði kona hans farið frá
honrnn og því vöknuðu grunsemdir
um að hún kynni að bera ábyrgðina.
Vince Pasquale
bjó í Royal Oak sem er ein útborga
Detroit í Bandaríkjunum. Hús hans
stóð við Bosville Road og klukkan
var fimmtán mínútur gengin í átta
að morgni þriðjudagsins 21. janúar
1986 er skot heyrðust fyrir framan
húsið.
Meðal fyrstu lögreglumanna sem á
staðinn komu voru Frank Ottman
og Joseph Carraro frá morðdeild
Detroitlögreglunnar. Þá lá Mk Vinces
Pasquale, sem varð þijátíu og átta
ára, við húsið þar sem hann var van-
ur að geyma bíl sinn. Á bílnum voru
mörg skotgöt en tvær af kúlunum
höfðu lent í bakinu á honum. Pas-
quale var kvæntur maður en kona
hans hafði farið frá honum tíu mán-
uðum áður og bjó hann nú með dætr-
um sínum tveimur.
Löghlýðinn borgari
Frank Ottman rannsóknarlög-
reglumaður yfirheyrði eldri dóttur
Pasquales, Coleen, sem var sautján
ára. Hún skýrði svo frá að faðir
hennar hefði farið út úr húsinu rétt
eftir klukkan sjö um morguninn þeg-
ar hún hefði verið að búa sig undir
að fara í skólann. Skyndilega hefði
hún heyrt skothríð og fariö að
glugganum. Hefði hún þá séö rauðan
Mustangbíl aka hratt frá húsinu. Er
hún hefði gengið út fyrir hefði hún
komið að fóður sínum liggjandi á
jöröinni og hringt á lögregluna.
Nágrannar yfirheyrðir
Það næsta sem rannsóknarlög-
reglumennimir gerðu var að yfir-
heyra fólk í næstu húsum. Þá kom í
ljós að enginn nágrannanna hafði séð
rauða Mustangbílinn. Alva Mathis,
fertug kona sem bjó nokkuð frá húsi
Pasquales, skýrði hins vegar svo frá
að hún hefði séð hvítan ChevroletbO
aka að húsi myrta mannsins er hún
hefði farið út á tröppur til þess að
sækja fréttablaðiö. Nokkrum mínút-
um síðar hefði hún heyrt skothríð.
Morðið á Pasquale
virtist hafa verið framið af fag-
manni. Ljóst sýndist að einhver hefði
viljað hann feigan og viðkomandi
hefði greitt leigumorðingja fyrir að
ráða hann af dögum. Grunur vakn-
aði því um að Pasquale hefði verið í
glæpasamtökum en hann rak leik-
tækjasal í Detroit. Rannsókn leiddi
hins vegar í ljós að hann var sagður
löghlýöinn maður og kom ekkert í
ljós sem benti til annars.
Lifði eins og „munkur“
Er rannsóknarlögreglumennirnir
töldu sig hafa gengið úr skugga um
að enginn af þeim sem Pasquale hafði
viðskipti við hefði viljað hann feigan
hófst rannsókn á einkalífi hans. Þvi
var Coleen tekin til yfirheyrslu á ný
og var hún þá meðal annars spurð
að því hvar móðir hennar, Debbie,
héldi sig. Kom þá fram að hún hafði
farið að heiman í mars 1985. Er Cole-
en var spurð um ástæðuna til þess
að hún fór að heiman sagði hún for-
eldra sína oft hafa rifist og hefði
móðir sín farið eftir rifrildi. Þótti frá-
sögnin af sambandi foreldranna, þótt
ófriðsamlegt hefði verið, þó ekki
benda til þess aö Debbie Pasquale
væri sú sem bæri ábyrgö á dauða
manns síns og frekari ransókn benti
ekki til þess að svo væri.
Um einkalíf Vinces Pasquale var
hins vegar það að segja að hann hafði
engar vinkonur átt, svo vitað væri,
síðan kona hans fór frá honum og
sagði einn þeirra sem um hann var
spurður að hann hefði lifað „eins og
munkur“.
Hávaðasöm veisla
Nokkru seinna ætluðu þeir Ottman
og Carraro að ræða við Coleen á
nýjan leik. Ætluöu þeir þá að spyrja
hana að þvi hvort hún hefði tekið
eftir nokkru sérstöku við rauða
Mustangbíhnn sem hún hefði séð
morguninn sem faöir hennar var
skotinn. Áður en þeir gátu haldið
heim til hennar bárust hins vegar
boð til lögreglunnar um mjög háv-
aðasama veislu í húsi Pasquales. Var
það klukkan að ganga ellefu laugar-
dagskvöldið 25. janúar og var það
Alva Mathis sem hringdi til lögregl-
unnar. Sagði hún marga bíla við
húsið og skýrði jafnframt svo frá að
Coleen Pasquale hefði svarað sér á
óviðeigandi hátt er hún hefði kvartað
undan hávaðanum við hana. Jafn-
framt lét Alva að því hggja að senni-
lega neyttu einhver ungmennanna
sem í húsinu væru fíkniefna.
Fjórir lögreglumenn
héldu til hússins. Þeir hringdu ár-
angurslaust á dyrabjöhuna en gengu
síöan að bakhhð hússins. Sáu þeir
að opiö var út í garð en var þó kalt
Coleen og Patti.
í veðri. Er þeir gengu inn fyrir fundu
þeir megna hasslykt í húsinu og rétt
á eftir handtóku þeir nokkra af gest-
unum.
Þeir báðu síðan um aö fá að ræða
við húseiganda og birtist Coleen Pas-
quale þá. Einum lögreglumannanna,
Tom McCray, fannst afar einkenni-
legt og í raun ógeðfellt að efnt skyldi
til slíkrar veislu í húsinu svo
skömmu eftir morð Pasquales. Baö
hann Coleen að koma með þeim á
lögreglustöðina og þar fóru Carraro
og Ottman að yfirheyra hana á ný.
Coleen
dró ekki dul á undrun sína yfir því
að hafa verið látin koma á lögreglu-
stöðina en þar var hún meðal annars
spurð aö því hvort dauði foður henn-
ar heföi komið Ula við hana.
' „Nei,“ svaraði hún þá. „Ekki sér-
staklega."
Er hún var beðin um að gera frek-
ari grein fyrir svari sínu sagði hún
að faðir hennar hefði oft lagt á hana
hendur og því væri henni það í raun
léttir aö hann skyldi ekki lengur vera
á lífi.
Breytt saga
Er hér var komið í yfirheyrslunni
var Coleen beðin um að gera á ný
grein fyrir því sem gerst hefði morð-
daginn. Hún sagði nú dáhtiö aðra
sögu en þá sem hún hafði sagt í
fyrstu. Áður hafði hún sagst hafa séð
rauða Mustangbílinn efdr að hún
hefði heyrt skothríöina en nú sagði
hún að þegar hún hefði htið út um
gluggann hefði hún séð mann sem
beint hefði skammbyssu að föður
hennar. Hefði hún æpt aðvörunarorð
tíl hans en hann ekki heyrt til henn-
ar. Síðan hefði hann verið skotinn
tíl bana.
Nýjar upplýsingar
fékk lögreglan svo skömmu eftir
þetta. Næsta mánudag héldu Ottman
og Carraro í menntaskólann í Royal
Oak en í hann gekk Coleen. Þar
ræddu þeir við skólasystkini hennar
og var sagt að það væri þar á margra
vitorði að Vince Pasquale hefði lagt
hendur á Coleen því hún hefði oft
komið blá og marin í skólann.
Mesta athygU vakti þó sú fuUyrðing
að í desember 1985 hefði Coleen boð-
ið jafnvirði um fimmtán þúsimd
króna hverjum þeim sem ráða vUdi
föður hennar af dögum!
Lausnin í sjónmáli
Ottman og Carraro komust svo
brátt að því að Patti Hirsch, vinkona
Coleen, hafði fengið þessa upphæð
greidda frá Coleen tveimur dögum
eftir morðið. Má segja að þá hafi
lausnin veriö fengin.
Patti Hirsch viðurkenndi aö hún
hefði tekið Smith & Wesson skamm-
byssu fóður sins að morgni morð-
dagsins og haldið til heimihs Coleen
í hvítum ChevroletbU. Þar hefði hún
svo skotiö Vince Pasquale. Rauði
Mustangbíllinn hafði aldrei verið tíl,
hann hafði aðeins verið hluti þeirrar
tílbúnu sögu sem Coleen hafði sagt.
Patti og Coleen
voru nú handteknar og færðar í
aðalstöðvar lögreglunnar í Detroit.
Þar skýrði Coleen frá því aö faðir
hennar hefði beitt hana ofbeldi árum
saman og eftir að móðir hennar hefði
farið að heiman hefði hann farið að
misnota hana kynferðislega.
Er Patti var yfirheyrð kom fram
hjá henni að í jólaleyfinu 1985 hefði
Coleen boðið henni að vera heima
hjá sér. Nokkru eftir að hún hefði
komið í húsið hefði Vince Pasquale
reynt að komast yfir hana.
Patti sagðist svo hafa fallist á að
skjóta Pasquale er Coleen hefði beðið
sig um það og boðið sér jafnvirði
fimmtán þúsund króna. Hún hefði
haft andstyggð á manninum og viljað
hann feigan, bæði vinkonu sinnar og
sjálfrar sín vegna.
Ákæran
Mál þetta hefur að sjálfsögðu vakið
verulega athygh vestan hafs því hluti
þess er vandi sem æ irieira hefur
verið tU umfjöllunar á hðnum árum,
kynferðisleg misnotkun foreldra og
annarra ftUlorðinna á bömum.
Báðar stúlkumar, Patti og Coleen
hafa verið sakaðar um morð.
í ljós hefur komið við athugun sál-
fræðinga og frekari yfirheyrslur að
Coleen var vel gefin stúlka og í góðu
andlegu jafhvægi þrátt fyrir ósam-
komulag foreldra hennar aUt fram
tíl þess tíma er móðir hennar fór að
heiman og faðir hennar fór að mis-
bjóða henni.
Patti Hirch blandaðist svo inn í
þessa atburði á heimilinu og mun
hafa fyUst mikilh andúð á Vince Pas-
quale og þykir víst að þaö, ekki pen-
ingamir, hafi ráðið því að hún tók
að sér aö skjóta hann tU bana þennan
janúarmorgun þótt sjálf hafi hún
orðað játningu sína svo í upphafi að
hún hafi falhst á að myrða Pasquale
er Coleen hafi boöið henni greiðslu.
Ljóst þykir hins vegar aö greiðslan
verði ekki tU þess að létta dóminn
yfir henni.
Sá sem af mörgum er hins vegar
tahnn bera meginábyrgðina í máh
þessu, Vince Pasquale, þarf hins veg-
ar af augljósum ástæðum ekki að
svara til saka.
Debbie Pasquale.