Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
27
Hinhliðin
Með þvi skemmtilegra setn Arni Þórður Jónsson gerir er að þvælast í fréttaleiðöngrum. DV-mynd EJ
Glas af góðu
öli gerir
mönnum gott
- segir Árni Þórður Jónsson fréttamaöur
Arni Þórður Jónsson hóf sinni Og fara svör hans Denis Quade einna bestur um þess
núna í vikunni umsjón hér á eftir:
með seinni fréttum Sjón-
varpsins. Þser koma nú Puiit nafn: Ámi Þóröiu- Jónsson.
aftur á dagskrá í vetrar- Fæðingardagur og ár: 19. apríl árið
byrjun eftir nokkurt hlé. 1956-
Síðar í mánuðinum verð-
ur ár liðið frá því Ami
Þórður hóf störf hjá Sjón-
varpinu eftir að hafa
komið víða við á fjölmiðl-
um síðustu árin.
Enn er hann lausráðinn
hjá Sjónvarpinu. „Það er
allt í lausu lofti hjá göl-
miðlunum,“ segir Árni
Þórður. „Ég ætla mér
heldur ekki að setjast ein-
hvers staðar að fyrir fullt
og fast. Það er sama og
dauði.“
Ámi Þórður hóf fjöl-
miðlamennsku sína sem
sumarafleysingamaður á
Þjóðviljanura. Þaðan lá
leiðin á NT, hið skraut-
lega millispil í útgáfusögu
Tímans. „Eg kom mér út
þaðan áður en blaðinu
var á ný breytt í Tím-
ann,“ segir Árni Þórður.
Eftir þetta tóku við sum-
arafleysingar á frétta-
stofu útvarpsins og þaðan
fór hann á fféttastofú
Bylgjunnar. Á railli þess-
ara starfa komu náms-
ferðir til Noregs og
Bandaríkjanna.
Árni Þóröur sýnir á sér'
hina hliðina aö þessu
Maki: Ókvæntur.
Bifreið: Ek um á lánsbifreiö af gerð-
inni Peugeot, árgerð 1983.
Starf: Fréttamaöur hjá Sjónvarp-
inu.
Laun: Samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna. Þau eru ekki
til aö hrópa húrra yfir.
Áhugamál: Ferðalög og vinnan.
Hún er ákveðið áhugamál.
Hvaö hefur þú fengiö margar tölur
réttar í lottóinu? Tvær. Þetta er
greinilega ekki mikill gróðavegur.
Hvaö finnst þér skemmtilegast að
gera? Með því skemratilegra sem
ég geri er að þvælast í fréttaleið-
öngrum og liggja í feröalögum.
Hvaö finnst þér leiðinlegast að
gera? Bíða.
Uppáhaldsmatur: Hreindýrakjöt
með öllu tilheyrandi, þar á meðal
hrútaberjahláupi.
Uppáhaldsdrykkur: Afþakka sjald-
an gott koníak.
Hvaöa íþróttamaður stendur
fremstur i dag? Jón Páll Sigmars-
soa Ég hef gaman að honum.
Uppáhaldstímarit: Ég glugga í þessi
helstu íslensku en ekkert þeirra
sker sig úr nema helst Þjóðlíf.
Fallegasta kona sem þú hefur séð:
Þær eru svo margar.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjóm-
inni: Opinberlega reyni ég að vera
óháður.
Hvaða persónu langar þig mest aö
hitta? Ég ætti að nefna Gorbatsjov
eða einhvern slíkan stórlax. Það
væri Uka'gaman að hitta vini sína
oftar.
Uppáhaldsleikari: Mér hefur alltaf
fundist Arnar Jónsson góður. Af
erlendum leikurum finnst mér
ar mundir.
Uppáhaldsleikkona: Tinna Gunn-
laugsdóttir hefur staöið sig vel í
siöustu verkum.
Uppáhaldssöngvari: Ég hef gaman
af Bubba og Megasi og lauraast líka
til að hlusta á Kristján Jóhannsson
og Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálaraaður: Eng-
inn sérstakur.
Hlynntur eða andvígur hvalveið-
um íslendinga: Tilfiningar mínar í
því máli em blendnar.
Hlynntur eða andvigur bjómum:
Hlynntur. Glas af góðu öli gerir
mönnum gott.
Hlynntur eða andvígur vem vam-
arliðsins hér á landi: Einhvern
tíma sjá menn vonandi fram á her-
laust land.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best: Ég hlusta á fréttir RÚV og rás
2 en hef frá fyrri tíö sterkar taugar
til Bylgjunnar.
Uppáhaldsútvarpsmaöur: Ég hef
alltaf haft gaman af Haligrími
Thorsteinsson. Illugi Jökulsson er
líka góöur. Og Anna Þorláks spilar
tónlist að mínu skapi.
Hvort horfir þú meira á Stöö 2 eða
Sjónvarpiö? Ég reyni aö horfa á
báðar stöðvar jöfnum höndum og
þá einkum á fréttir.
Uppáhaldssjónvarpsmaöur: Þeir
em margir góðir en ég nefni engin
nöfii.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég á
það til að skreppa í Þjóðleikhú-
skjallarann.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ég er
ófélagsbundinn en laumast til að
halda með Frömurum.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
ft-amtíöinni? Jú, að komast sæmi-
lega frá mínu og hafa þaö sem
skemmtilegast.
Hvaö gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór til Lundúna og skoðaði mig ura
þar. -GK
FELAG ISLENSKRA RAFVIRKJA
HELDUR RÁÐSTEFNU UM STÖÐU
RAFVIRKJANS í DAG
Fjallað verður um hvort nám rafvirkja falli að þeim
störfum sem þeir vinna í dag og hvaða breytingar
menn telji að verði á næstu árum.
Frummælendur verða frá Félagi íslenskra rafvirkja,
Landssambandi íslenskra rafverktaka, Sambandi ís-
lenskra rafveitna, Tæknifræðingafélaginu og Raf-
magnseftirliti ríkisins.
Ráðstefnan verður haldin laugardaginn 12. nóvemb-
er kl. 13.30 í Félagsmiðstöð rafiðnaðarmanna að
Háaleitisbraut 68 og er öllum opin.
Stjórn Félags íslenskra rafvirkja
Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur
Kirkjusandur -
Laugarnes - Klettur
Tillaga að deiliskipulagi svæðis, sem afmarkast að
sunnan af lóðarmörkum SÍS og SVR á Kirkjusandi,
að austan við austanverðan Laugarnesveg, af Klepps-
vegi sunnanverðum og norðaustast austan við lóð
Stálumbúða við Sundagarða, auglýsist hér með sam-
kvæmt gr. 4.4 í skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
Tillagan er samstarfsverkefni Borgarskipulags, Borg-
arverkfræðings og Reykjavíkurhafnar.
Skipulagstillagan verðurtil sýnis hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 4. hæð frá kl. 8.30 til
16.00 alla virka daga frá 7. nóvember til 7. desember.
Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar eru,
skal skila skriflega til Borgarskipulags innan auglýsts
kynningartíma.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúni 3,
105 Reykjavík.
/ 111 \
sia
w
óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem
verða til sýnis þriðjudaginn 8. nóvember
1988 kl. 13-16 í porti bak við skrifstofu vora
að Borgartúni 7, Reykjavík, og víðar.
Tegund Árg.
1 stk. Subaru 1800 (skemmdur eftir veltu) 1987
3 stk. Subaru 1800 station 1983
1 stk. Subaru pickup 1983
1 stk. Lada 1500 station 1986
2 stk. Ford Econoline E150 1980-82
1 stk. Dodge Van sendibifr. 1982
1 stk. Dodge Van B-200 fólksfl. 1979
1 stk. Mazda E-2200 Double Cab pickup 1987
1 stk. Volkswagen Double Cab fólks/vörub. 1984
1 stk. Volkswagen Double Cab fólks/vörub., dísil 1983
1 stk. Chevrolet 4x4 pickup dísil m/húsi 1982
2 stk. Chevrolet 4x4 pickup bensín m/húsi 1979-80
1 stk. GMC 4x4 pickup bensín m/húsi 1981
1 stk. UAZ-452 4x4 bensín 1985
1 stk. Mitsubishi L-300 Minibus 4x4 1984
2 stk. Mitsubishi Pajero dísil 4x4 ' 1983
2 stk. Isuzu Trooper dísil 4x4 1982
1 stk. MMC L-200 pickup 4x4 1982
3 stk. Lada Sport 2121-5 4x4 1982-88
Til sýnis hjá birgðastöð Pósts og síma, Jörfa:
1 stk. Lada Sþort 4x4 (skemmdur eftir umfóh.) 1987
1 stk. Fiat 127 GL (skemmdur eftir umfóh.) 1985
Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, Akureyri:
1 stk. Subaru 1800 station 4x4 1983
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30
að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskil-
inn til að hafna tilboðum sem ekki teljast
viðunandi.
Il\Il\lKAUPAST0Fl\lUl\l RÍKISIIMS
BORGAR1UNI 7. 105 REYKJAVIK