Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1988, Qupperneq 53
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1988.
Sviðsljós
Yoko Ono með nýja
bók og kvikmynd
,',John langaöi að eignast annaö
barn. Hann langaði í dóttur. Ég var
bara ekki tilbúin," segir Yoko Ono í
viðtali sem birtist nýlega við hana í
bresku blaði. Hún og sonur hennar,
Sean, hafa flutt frá New York til
Evrópu. Sean vildi fara í skóla í Lon-
don en Yoko taldi betra fyrir hann
að fara í skóla í Sviss þar sem hann
er nú. Yoko býr í London og segir
að sonur hennar heimsæki hana um
helgar.
Um miðjan október kom út bókin
Imagine eftir Yoko Ono og fjallar hún
um John Lennon. Einnig hefur verið
gerð eftir bókinni kvikmynd sem var
frumsýnd fyrir nokkrum dögum.
Myndin er heimildarkvikmynd en
Yoko Ono átti í fórum sínum ýmis-
legt efni sem hún notaði í myndina.
Nýlega kom út önnur bók um John
Lennon eftir Albert Goldman sem
einnig skrifaði bók um Elvis Presley.
Albert Goldman segir í bókinni að
John Lennon hafi verið hommi.
Hann dregur hann niður í svaðið,
ekki ósvipað því sem hann gerði við
Elvis Presley í bókinni um hann.
Hins vegar hafa nú komið fram sann-
anir fyrir því að bók Alberts Gold-
mans sé uppspuni. Viðtölum við fólk
var breytt og hefur einn viðmælandi
hans komið með segulbandsspólu því
til sönnunar. Yoko Ono segir einnig
að bókin sé ein lygaþvæla og það var
einmitt ástæða fyrir því að hún skrif-
aöi sjálf bók.
Margir hafa gert dauöa Johns
„Ég hef lært að lifa með lyginni"
Lennon að féþúfu. Yoko segir að hún
vonist til að fólk sjái rétta mynd af
honum og lifi hans er þaö les bók
hennar eða sér myndina. „Það hefur
alltaf verið logið um okkur og ég hef
lært að lifa með þeirri lygi og læt
hana ekki hafa áhrif á mig. Sonur
okkar, Sean, vill hins vegar berjast.
Hann er sterkur persónuleiki og vill
að hið sanna komi fram.
„Við vorum eðlileg fjölskylda og
lifðum eðlilegu fjölskyldulífi, rétt
eins og annað fólk. John fór oft í
gönguferðir með Sean og öft fór ég
með líka.“
Yoko Ono vísar á bug öllum full-
yrðingum þess efnis að John Lennon
hafi verið hommi. „Við áttum mjög
sterkt kynferðislegt samband strax
frá byijun. Af hveiju heldurðu aö
við höfum legið í rúminu í heila viku?
Þannig vorum við. Samband okkar
byrjaði í rúminu. Eins og allt fólk á
sjöunda áratugnum hugsuðum viö
um „bisexuality" en við komumst aö
þeirri niðurstöðu að þaö passaði ekki
okkur.
Þó við vildum halda syni okkar
fyrir utan sviðsljósið var þaö ekki
svo auðvelt. Nöfn okkar eru og hafa
verið söluvara. Nú vil ég aö sannleik-
urinn komi í ljós og því er ég aö gefa
út bókina og hef látiö gera kvik-
myndina. Ég vona bara að það komi
til meö að varpa nýju ljósi á okkur.
Að við vorum ekkert öðruvisi en
aðrir.“
Þau þóttu allsérstætt par og höfðu óneitanlega áhrlf I heimlnum. Nú kemur
sannleikurinn fram um þau John Lennon og Yoko Ono i nýrri bók eftir
hana sjálfa sem nefnlst Imagine.
Kyntáknið George Michael:
Hræddur við eyðni
Lee Radziville, litla systir Jackie
Kennedy, ásamt nýja manninum
Herbert Ross.
litla systir
Jackie Kennedy
í hjónaband
Lee Radziville, yngri systir Jackie
Kennedy, gekk í það heilaga á dögun-
um. Eiginmaðurinn er Herbert Ross,
balletthöfundur og kvikmyndaleik-
stjóri, sem er mjög vel þekktur innan
bandaríska dansheimsins. Hann var
áður kvæntur einni frægustu ballett-
stjörnu í Ameríku, Noru Kaye, sem
lést fyrir ári síðan.
Lee Radzivflle sem er 54 ára, flmm
árum yngri en Jackie, er sögð hafa
geislað af gleði við brúðkaupið sem
fram fór í íbúð hennar á 72. götu í
New York. Aðeins tveir menn voru
viðstaddir vígsluna, dansarinn Ru-
dolf Nurejev og Johan Taras sem er
leikstjóri í American Ballet Theatres.
Enginn hafði látið sér detta í hug
að Lee myndi giftast aftur. Eftir að
hún skildi við eiginmann sinn, furst-
ann Stanislaw Radziville, hefur hún
eingöngu hugsað um eigin frama sem
hótelarkitekt í lúxusflokki. Hún var
um tíma í ástarsambandi við hótel-
kónginn Newton Hope en upp úr því
shtnaði fljótlega. Reyndar hljópst
hún á brott frá honum klukkustundu
áður en þau ætluðu sér að ganga í
það heilaga þannig að ekki varð af
brúðkaupi í það skiptiö. Nú er litla
systir Jackie sem sagt komin í það
heilaga.
Poppstjarnan George Michael, 25
ára, segir að það sé minnsta mál fyr-
ir sig að viðurkenna að hann vilji
ekki fara í rúmið með hverri sem er
lengur. Og ástæðan er sú að hann
er hræddur við að fá eyðni. George
segir að þessi ímynd hans sem kyn-
tröll sé bara rugl.
- Ég hef engan áhuga á að taka
áhættu eingöngu til að sýnast vera
töffari. Fyrir nokkrum árum skipti
fjöldi þeirra stúlkna, sem maður
hafði sængað hjá, miklu máli en nú
getur eitt shkt ævintýri kostað
dauðadóm, segir George.
Við félagarnir vorum mikhr
kvennamenn hér á árum áður en nú
er allt slíkt búið. Ég er hálfhissa á
að engir af okkur hafi fengið sjúk-
dóminn. Allir þeir sem lifa í lauslæti
verða að gera sér grein fyrir áhætt-
unni.
George Michael, sem best er þekkt-
ur sem kyntákn, söng sig inn í hjörtu
kvenna um allan heim er hann söng
„Wake me up before you go-go“.
Hann hefur ekki ennþá sungið um
eyðni.
í tvö ár hefur poppstjarnan verið
með Kathy Jeung sem starfar við
förðun. Hann segir að hann hafi sérs-
taklega tekið eftir henni fyrst er þau
hittust vegna þess að henni líkuöu
ekki lögin hans. Það var tilbreyting
frá öllum vinsældunum, segir hann.
George segir þó að gifting sé ekki á
næsta leiti.
Hann byijaði að vera með stelpum
18 ára, um sama leyti og Wham urðu
vinsæhr. - Það var mikil upplifun
og það skemmtilegasta sem ég haföi
kynnst, segir hann. Frægðinni fylgdi
heill kvennafans og samkvæmislífið
var viht. Ég hef breyst og slíkt höföar
ekki til mín í dag, segir kyntáknið
George Michael.
George Michael þegar hann djammaði villt og óð i kvenfólki. Nú segist hann aðeins vilja hafa efna fasta því
hann tekur enga áhættu.
Ólyginn
sagði...
Mamma
Jackson
Nú þegar Micheal Jackson virðist
ætla aö ná miklum vinsældum
með bók sinni „Moonwalk" hefur
móöir hans, Katherina, tekið sér
penna í hönd og ætlar að skrifa
„The Jacksons: A Mothers
Story". Margir útgefendur í New
York hafa sýnt bókinni áhuga og
er rifist um útgáfuréttinn. Ljóst
þykir að bókin verður metsölu-
bók og skilar því af sér miklum
peningum.
Áhugamál
leikaranna
Það er undarlegt en mjog margir
þekktir leikarar í Hollywood eiga
sér sama áhugamálið. Nei, það
er ekki leikhstin heldur hrað-
skreiöir bílar. Goldie Hawn og
eiginmaðurinn Kurt Russel safna
bílum og helst þurfa þeir að vera
hraðskreiðir. Don Johnson veit
ekkert skemmtilegra en að aka
hratt, bæði bílum og bátum. Hef-
ur hann nú fengið úrslitakosti -
að hætta þessum ofsaakstri elleg-
ar segja skilið við framann. Þá
er leikkonan Jaquehne Bisset
enn einn bílaaðdáandinn og vill
helst ekki bíla undir 350 hestöfl-
um.
Ame Treholt
Norski njósnarinn Arne Treholt
hefur gefist upp í baráttunni við
fyrrverandi eiginkonu sína Kari
Storækre um að fá rétt til að
umgangast son þeirra Thorstein,
sem er ellefu ára. Síðan Treholt
var settur inn árið 1984 hefur
hann aðeins einu sinni fengið að
sjá drenginn. Lögfræðingur Kari
segir að mál Arne Treholts hafi
skaöaö drenginn mikið ekki síður
en móður hans. „Hann hefur
hlotið ólæknandi sár.“