Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. Fréttir Stálvík leitar samninga í Egyptalandi: Yrði stórkostlegt mál fyrir allt þjóðfélagið - segir Júlíus Sólnes, stjómaiformaður Stálvíkur „Við höfum haldið áfram markaðs- athugimum okkar í Arabalöndun- um. Þetta er það stór markaður að ef við náum einhverri fótfestu þama þá er það stórkostlegt mál fyrir þjóð- félagið í heild sinni. Þeir eru aö heim- sækja skipasmíðastöð í Egyptalandi. Það fyrirtæki hefur á sér mjög gott orö og við munum hugsanlega leita eftir samstarfi viö þaö fyrirtæki. Ef við náum einhverjum verkefnum þar gæti vel farið svo að við létum smið- ina fara fram þar að verulegu leyti. Það gæti verið mjög jákvætt gagn- vart þessum markaði," sagði Júlíus Sólnes, stjómarformaður Stálvíkur. Um þessar mundir em Jón Gauti Jónsson, forstjóri Stálvíkur, og Jón Sveinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Stálvíkur og núver- andi stjómarmaður, í Egyptalandi þar sem þeir leita eftir samningum um verkefni fyrir Stálvík. Höfum fært Norðmönnum þekkingu á silfurfati „Það sem ég vil er að við stjómum því með hvaða hætti við látum í té þessa þekkingu okkar. Það er alveg hrikalegt að við höfum mokað á silf- urfati allri okkar kunnáttu, reynslu og þekkingu til Norðmanna fyrir ekki neitt. Þeir hafa hagnast á því en við stöndum eftir eins og fífl. Ef einhver von er að sama komi ekki fyrir í þessu þá er það vel. Til þess er leikurinn gerður. Það em góðar horfur á því að allsherjarsamstarf geti tekist viö þessa aðila og þá mun- um við stýra allri framleiðslu og tækniundirbúningi. Það er meira aö segja til í dæminu að með flóknari verk - svo sem niðursetningu á fisk- vinnslubúnaði og öðm slíku - að við sendum mannskap og tæki þangað. Það gæti farið svo að við yrðum með tíu til tuttugu manns í Egyptalandi.“ Erum eins og hálfvitar „Fyrr í haust sem leið var farið í leiðangur til furstadæmanna og komið við í Egyptalandi. Það var hreinn könnunarleiðangur. Það má segja að þetta hafi helst komið út úr honum sem raunhæfur möguleiki. Það er líka atyglisvert að Arabalönd- in vilja bjóða fiskveiðiheimildir í stómm stíl. Við erum eins og háff- vitar - íslendingar - við emm svo einangraðir og við virðumst ekkert vilja líta í kringum okkur. Við gætum hugsanlega farið með um 30 prósent af fiskveiðiflotanum og mokveitt á Indlandshafi og undan vesturströnd Afríku. Ástandið hjá þeim er öfugt við ókkar. - Þeir hafa nógan fisk en vantar skip. Við höfum aftur á móti nóg af skipum en okkur vantar fisk.“ Hér er allt í rúst - Á Stáivík ekki í verulegum erfið- leikum með lausafjárstöðu? „Hún er erfið og við eram jafnilla settir og allir aðrir. Hér er allt í rúst. Þess vegna höfum við verið að reyna að verða okkur úti um ný verkefni með óhefðbundnum hætti. Það er ljóst að það verða engin skip smíðuð hér á landi fyrir innlenda aðila - og þau fáu skip sem hugsanlega verða smíðuð fyrir íslendinga verða eflaust smíðuð í Noregi. Hitt virðist vera raunhæfur möguleiki að við leggjum fyrst og fremst til tækniþekkingu og kunnáttu en smíðum sem allra minnst." - Er Stálvík ekki það illa sett fyrir- tæki að rekstrarstöðvun og jafnvel gjaldþrot sé framundan? „Nei, nei, við emm álíka settir og önnur fyrirtæki í málmiðnaði. Við sjáum ekki fram á nein verkefni sem gagn er af í fyrirsjáanlegri framtíð og þar af leiðandi verðum við að draga saman seglin. Hitt er alveg rétt aö við höfum átt viö mikinn lausafjárvanda að glíma - eins og önnur fyrirtæki. Það er engin laun- ung,“ sagði Júlíus Sólnes. -sme Hrygnan hringar sig móðurlega um hrognaklasann. DV-mynd Ómar Steinbítur hrygnir í fiskasafninu í Eyjum - ekki vitað hvort hængur hefur náð að frjóvga hrognin Ómar Garðaisson, DV, Vestmannaeyjum: „Þetta er í annað skipti sem þetta gerist hér, að steinbítur nær að hrygna," sagði Kristján Egilsson, forstöðumaður fiskasafnsins í Vest- mannaeyjum, en fyrir nokkmm dög- um hrygndi steinbítur í safninu. Fyrra skiptið var fyrir tveimur árum en þá átu steinbítamir, sem vom í búrinu meö hrygnunni, hrognin. Það var á miðvikudag fyrir viku sem þetta gerðist og þá voru sex steinbítar í búrinu. Kristján segir að það sé ómögulegt að þekkja í sundur hæng og hrygnu og hann greip því til þess ráðs að taka hina steinbítana úr búrinu, nema einn, sem strax réðst á hrognin. Varð hann því að taka hann líka og láta hrygnuna vera eina eftir og nú hringar hún sig um stóran klasa af hrognum og er hin mömmulegasta í alla staði. Hvort hængur hefur náð að fijóvga hrognin með svili er ekki vitað en tíminn mun leiða í ljós hvort þau klekjast út. Hrygningartími steinbíts er frá nóvember fram til áramóta og vonast Kristján til að fleiri hrygni. Ætlar hann þá að reyna að kreista einn hænginn yfir hrognin í von um að þau nái að klekjast út og nota þá útilokunaraðferðina til að þekkja hæng. Á hrygningartímanum er steinbíturinn lystarlaus og missir flestar tennur. Að honum loknum eykst lystin og nýjar tennur vaxa og eru þeir fljótir að braggast. Stein- bítamir í fiskasafninu eru biinir að vera þar í 15-16 ár og segir Kristján þá geta orðið 20 ára. í dag mælir Dagfari Fyrir tveimur eða þremur menntamálaráðherrum sat Sverrir Hermannsson í því ráðuneyti. Munurinn á Sverri og öðmm menntamálaráðherrum var sá að meðan aðrir gátu sér orö fyrir að ráða menn þá varð hann frægur af því að reka menn. Heimsfrægur varð brottreksturinn á Sturlu Krisljánssyni, fræðslustjóra í NorðurlandsKjördæmi eystra, en Sverrir rak hann umsvifalaust úr embætti fyir afglöp og óhlýðni og fjáraustur langt umfram fjárveit- ingar. Spunnust af þessum brott- rekstri mikil blaöaskrif og póhtí- skar deilur, sem endaði allt með málaferlum af hálfú Sturlu. . Niðurstaða í héraðsdómi varð sú, að Sturla var fundinn sekur fyrir að eyða skattpeningum frá hinu opinbera svo milljónum skipti án nokkurrar heimildar. Þeim dómi var áfrýjað til Hæstaréttar og þannig stóðu mál þegar ný ríkis- sfjóm tók við með enn einn menntamálaráðherra og splunk- unýjan fjármálaráöherra. Hinir nýju herrar í ráðuneytun- um hafa hins vegar aðrar hug- myndir um rekstur ríkisins en Sverrir Hermannsson. Þeir vilja ekki vera vondir við kerfiskarla, Sturiunga hin nýja sem hafa verið reknir fyrir óráðsíu, heldur er stefnan sú að eyða sem mestu og helst fram úr áætlunum og láta svo þjóðina borga brúsann. Það hefur og farið eftir. Nýi fjár- málararáðherrann hefur verið ið- inn við skattlagninguna. Af þessum sökum hefur íjármála- ráðherra, og þá væntanlega í sam- ráði við nýja menntamálaráðher- rann, ákveðiö aö falla frá frekari málaferlum gegn fræðslustjóran- um sem Sverrir rak á sínum tíma fyrir að fara illa með fé ríkisins. Og ekki nóg meö það. Ráðherrann hefur ákveðið að verðlauna Sturlu fyrir bruðhð með því að greiða honum milljónir úr ríkissjóði og bjóða honum ókeypis til útlanda í tvö ár! Þessi óvæntu málalok hafa því miður falhð nokkuð í skuggann út af því fárviðri að hæstaréttardóm- ari hefur leyft sér að kaupa brenni- vín á innkaupsverði fyrir sína eigin peninga. Þjóðin hefur tryllst í hneykslan sinni yfir þessari sví- virðu hvernig virðulegur og vammlaus dómari leyfir sér að ráð- stafa sínu eigin fé. Nýi fjármálaráð- herrann hefur tekið þátt í þeim elt- ingaleik með því að eyða tíma sín- um í að grafa uppi aðra skúrka sem hugsanlega hafa gert það sama ein- hvern tímann í fyrndinni. Það hefur hins vegar alveg farið framhjá fjölmiðlunum og ráðher- ranum að útskýra það frekar hvemig standi á þessari sérkenni- legu verðlaunaafhendingu til fræðslustjórans fyrrverandi. Verð- ur málatilbúnaöur ráðherrans raunar ekki skihnn öðru vísi en svo að það sé glæpsamlegt ef hæsta- réttadómari fer í ríkið til að kaupa áfengi sem honum er heimilt. Ef hins vegar einhver smákóngur í kerfmu rífur nógu mikinn kjaft og eyðir milljónum króna úr ríkissjóði án þess að virða áminningar og aðvaranir ríkisstjómar og ráð- herra þá sé það svo lofsvert fram- tak að sjálfsagt er að bjóða honum til tveggja ára dvalar erlendis! Þetta hlýtur að verða öðrum sam- viskusömum embættismönnum til eftirbreytni. Hvers vegna skyldu ekki fræðslustjórar ahra kjör- dæma, forstjórar og deildarstjórar og hvað þær nú allar heita silkihúf- urnar hjá ríkinu, hefjast handa í samræmi við hina nýju stefnu íjár- málaráðherrans og spreða pening- um í allar áttir og gera eins og þeim sýnist. Þeir sjá allir fram á tveggja ára sumarleyfi í verðlaunaskyni. Sturla Kistjánsson getur varla ver- ið eini embættismaðurinn sem nýt- ur þeirra launa. Vandamál ríkissjóðs liggja greinilega ekki í því að opinberar stofnanir og skrifstofur eyði um- fram heimiidir. Þvert á móti eiga þeir að hafa erkibiskupsboðskap að engu. Þeir sjá hvað Sturla hafði gott upp úr því. Vandamál ríkis- sjóðs er sennilega það að embættis- menn hafa ekki verið nógu iðnir við að brúka kjaft og fara sínu fram. Þeir þurfa að eyða meiru til að fjármálaráðherrann geti rétt- lætt það að leggja nýja skatta á þjóöina. Nú verður áreiðanlega kátt í hölhnni þegar Sturlustefnan hefur komist á skrið og smákón- garnir í kerfinu hafa áttað sig á því að þeim er óhætt. Þeir verða verð- launaðir í staðinn. Dagfari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.