Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. Til og með 16. desember næstkomandi getur þú lagt inn á Afmælisreikning I Landsbankans O 1 °g fengið 7,25% ársvexti umfram verð- tryggingu næstu 15 mánuðina. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Fréttir Flateyri: Reynir Traustason, DV, Eateyri: Á Flateyri ríkir nú algert ófremd- arástand í málum íbúðaeigenda við Hjallaveg 9 og Hjallaveg 14-20. Þarna er um að ræða 12 íbúðir sem byggðar voru samkvæmt lögum um leigu- og söluíbúðir á árunum 1979-1983. Allir þeir sem fluttu inn í þessar íbúðir nýjar eru nú fluttir út og eru ýmist fluttir af staðnum eða í annað hús- næði. Eigendur íbúöanna eru þó þeir sömu í dag í öllum tilvikum nema hvað Veðdeild Landsbanka íslands er búin að taka tvær á nauðungar- uppboði og ein sala hefur farið fram. Níu íbúðir eru fastar í kerfinu, nauð- ungarsölu á hluta þeirra hefur hvað eftir annað verið frestaö og fimm þessara íbúða standa tómar á meðan eftirspurn er eftir húsnæði á staðn- Hjallavegur 9 á Flateyri þar sem íbúðir eru fastar í kerfinu og nauðungar- sölu á hluta þeirra hefur hvað eftir annað verið í fresfað.DV-mynd Reynir Ellefu íbúðir á nauðungaruppboð? - íbúðimar byggðar samkvæmt lögum um leigu- og söluíbúðir Húsin við Hjallaveg 14-20 og þar er sama saga. DV-mynd Reynir Upphaf málsins Upphaf þessa máls er 1984 þegar fyrstu tveir eigendurnir fóru þess á leit við Flateyrarhrepp að hann inn- leysti íbúðir þeirra. Hreppurinn hef- ur samkvæmt lögum þessum for- kaupsrétt og samkvæmt mati sumra eigendanna kaupskyldu að íbúðun- um. Eftir langt þóf, þar sem þáver- andi hreppsnefnd hafnaði að vísu forkaupsrétti en gaf þó ákveðin fyrir- heit um lausn málsins, urðu lyktir þær að íbúðirnar voru báðar seldar nauðungarsölu eða í maí 1987. Þá höfðu bæst í hópinn fleiri eig- endur sem gerðu þá kröfu á Flateyr- arhrepp að hann innleysti íbúöir þeirra. Hreppsnefndarmenn höfn- uðu sem fyrr forkaupsrétti á íbúðun- um og báru við erfiðri fjárhagsstöðu sveitarfélagsins en gáfu þó eins og áður fyrirheit um lausnir í samráði við Húsnæðisstofnun. Var þar helst horft til þess að íbúðirnar yrðu inn- leystar í verkamannabústaðakerfið. I mars 1987 óskaði svo Stjórn verkamannabústaða eftir þvi að Húsnæðisstofnun sendi fulltrúa sinn til Flateyrar til viðræðna. Þessu var ekki sinnt fyrr en í október sama ár og þá í framhaldi af umfiöllun DV um máhð. Eftir þann fund þótti mönnum einsýnt að mál væru far- sællega leyst þar sem fulltrúar Hús- næðisstofnunar, þau Percy Stefáns- son og Jóhanna Eyfiörð, gáfu ádrátt um fyrirgreiðslu til Flateyrarhrepps til kaupa á umræddum íbúðum inn í verkamannabústaðakerfið. Kúvending hreppsnefndar Formleg afgreiðsla Húsnæðisstofn- unnar barst svo Flateyrarhreppi 23. mars 1988 þar sem lánveiting var samþykkt til 3-5 ára. Þá verður sú kúvending á afstöðu hreppsnefndar að kaupleiguíbúðakerfið er talinn betri kostur og Byggingarsjóði ríkis- ins skrifað bréf þar að lútandi 27. júlí sl. Við þeirri málaleitan hefur enn ekki borist svar. Rök hreppsnefndarmanna fyrir þeirri umsókn eru þau að hreppur- inn hafi ekki fiárhagslegt bolmagn til að innleysa íbúðirnar í verka- mannabústaðakerfið þar sem greiða þarf 10% af verði hverrar íbúðar óafturkræft til Byggingarsjóðs ríkis- ins. Einnig bera þeir hreppsnefndar- menn því við að tekjumörk í því kerfi séu alltof lág og íbúðimar þarafleið- andi óseljanlegar. Á meðan á öllu þessu gengur hlað- ast upp vanskilavextir hjá þeim eig- endum sem enn hafa ekki misst sínar íbúðir á nauðungaruppboð. Það síð- asta sem gerðist í málunum er bréf sveitarstjóra og formanns Stjórnar verkamannabústaða til Sigurðar E. Guðmundssonar, framkvæmda- stjóra Húsnæðisstofnunar, þar sem þeirri skoðun er lýst að eflausn fáist ekki frá stofnuninni muni allar íbúð- irnar lenda á nauöungaruppboði. „Boltinn alfarið hjá Húsnæðis- stofnun“ - segir Guðmundur Jónas Kristjánsson Reymr Traustason, DV, Flateyri: „Boltinn er alfarið hjá Húsnæðis- stofnun," segir Guömundur Jónas Kristjánsson, hreppsnefndarmaður og formaður stjórnar verkamanna- bústaða á Flateyri. „Lánveiting stofnunarinnar ' til Flateyrarhrepps er til alltof skamms tíms. Máhð er mjög einfalt, við getum ekki tekið lán sem nemur ‘A af heild- arskuldum sveitarfélagsins. Tekj- umar í dag duga varla fyrir dagleg- um rekstri. Ég trúi ekki öðru en stofnunin komi til móts við okkur og leysi málin á farsælan hátt fyrir alla aðila,“ sagði Guðmundur Jónas. Guðmundur Jónas fyrir framan Hjallaveg 14-20 á Flateyri. DV-mynd Reynir „Óþolandi ástand“ Reynir Traustason, DV, Flateyri Rögnvaldur Guðmundsson er einn ibúðareigenda og hann sagði í samtali við DV að hreppsnefnd- armenn hefðu ekki verið betur að sér varðandi verkamannabú- staðákerfið en svo að þeir hefðu ekki gert sér grein fyrir þeim kostnaði sem sveitarfélagið lenti í aö greiða ef íbúðirnar yrðu inn- leystar í það kerfi. „Ég get ekki séð að sökin sé ein- göngu hjá Húsnæðisstofnun heldur er líka um að ræöa þekk- ingarleysi sveitarsfiómarmanna. Ástandið er algerlega óþolandi þar sem engin leið er fyrir okkur að skipuleggja fiármál fram í tím- ann,“ sagði Rögnvaldur og aörir íbúöareigendur, sem DV ræddi við, tóku 1 sama streng.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.