Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Blaðsíða 46
46
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988.
■
Skreyttu bílinn fyrir jólin. !
Vorum að taka upp mikið úrval af skraut- L
röndum á bíla. Setjum þær á meðan beðið .
er. A
Bifreióaverkstæöi Tangcuhðföa 8-12
/ml^Arna Gíslasonar hf sSS«
HEILDVERSLJJN VIDGERDIR BILALEIGA og (91) 685504
Verðið er hreint ótrúlegt!
Stóll með skammeli,
aðeins kr. 26.500,- (stgr.)
NYFÖRM
Húsgagnaverslun
Reykjavíkurvegi 66. Hafnarfirði, sími 54100
MYND UÓSMYNDASTOFA Cfj 54207
LEÐUR-
HVÍLDARSTÓLAR
Lénsherrar og
strengjabrúður
Umræða um byggingu ráðhúss í
Reykjavíkurtjöm og þingsályktun-
artillögu mína þar að lútandi hefur
orðið mikil, bæði innan þings og
utan. Lénsherramir hér í borginni
urðu óttaslegnir og settu strengja-
brúðurnar sínar í gang. Brúðurnar
sem vita fullvel að framavon þeirra
byggist á því að þær láti að stjóm,
eins og ég mun rökstyðja hér síðar.
Eitt kom mér þó á óvart. Það var
ræða háítvirts þingmanns, Þor-
valds Garðars Kristjánssonar,
fyrrv. forseta. Sameinaðs Alþingis.
Eg átti satt að segja ekki von á því
að hann mundi falla í sömu gryfju
og háttvirtur þingmaður Guð-
mundur H. Garðarsson og Geir H.
Haarde.
TU marks um flumbruháttinn og
skelfinguna sem virtist hafa gagn-
tekið sumt af þessu fólki, segir
Guðmundur H. Garðarsson, háttv-
irtur þingmaður, í Morgunblaðinu
29. október sl. þar sem hann talar
um tillögu mina: „Tillagan felur í
sér þvilíka skerðingu á lýðræðis-
legum réttindum Reykvíkinga til
athafna í eigin málum að því verð-
ur ekki unað. EM hennar er í
stuttu máli það að Stefán Valgeirs-
son vill með nýrri lagasetningu
stöðva framkvæmdir við byggingu
ráðhúss Reykjavíkur sem efnt hef-
ur verið til á grundvelh laga og
reglna.“
Hvar í þessari tillögu er gert ráð
fyrir nýrri lagasetningu til lausnar
þessu máh? Las þessi háttvirti
þingmaður ekki tillöguna áður en
hann skrifaði þessa endemis grein?
Var það einhver annar sem sagði
honum að skrifa svona til þess að
villa um fyrir landsmönnum hvað
snertir það hvað í raun og veru
felst í tillögunni?
í tillögunni segir: „Alþingi álykt-
ar að kanna skuh sem ítarlegast
öll lagaleg atriði sem tengjast ráð-
gerðri byggingu ráðhúss Reykja-
víkurborgar í Reykjavíkurtjöm
með tilliti til eignarréttar og
grenndarréttar húseigna Alþingis
við noröurenda Tjamarinnar. Skal
forsetum Alþingis falið að'fá þrjá
trausta lögfræðinga til að kanna
lagaleg atriði málsins og gefa sér-
álit og einnig að fá könnun og sér-
álit þriggja manna sérfróðra um
skipulags- og byggingarmál á mál-
um sem tengjast ráðhúsbygging-
unni.“ Háttvirtur þingmaður Þor-
valdur Garðar Kristjánsson segir í
umræðunni um tillöguna að tillag-
an sé ekki þinglega flutt og raunar
ekki umræðuhæf. Þetta leyfir
háttvirtur þingmaður sér aö segja
án þess að rökstyðja slík ummæli
sín á nokkum hátt. Slíkur mál-
flutningur hæfir ekki háttvirtum
þingmanni sem er fyrrv. forseti
Sameinaðs Alþingis. í þessum um-
mælum felst raunar aðdróttun að
háttvirtum forseta Sameinaðs Al-
þingis því ef tillagan var ekki þing-
leg átti forseti að benda fluMngs-
manni á það og sjá til þess að hún
yrði sett í þinglegt form eða að öör-
um kosti að vísa henni frá.
Auðvitað em þetta bábiljur einar.
Hitt er annað mál að umræða um
þetta mál er langt frá því að vera
þægileg fyrir meirihluta borgar-
stjómar Reykjavíkur. Æth það sé
ekki skýringin á þessum viðbrögð-
um?
En hvað segja fulltrúar flokk-
anna sem em í minnihluta í borg-
arstjóm Reykjavíkur? í Pressunni
27. okt. sl. segir Alfreð Þorsteins-
son: „Margir æðstu embættismenn
borgarinnar lúta í einu og öllu vilja
borgarstjórans.“ Bjami P. Magnús-
son segir: „Þama era menn sem
eiga erfitt með að draga mörkin
KjaUarinn
Stefán Valgeirsson
alþingismaður fyrir Samtök um
jafnrétti og félagshyggju
milli hlutlausrar embættisfærslu
og Sjálfstæðisflokksins." Guðrún
Ágústsdóttir segir: „Ég þarf að leita
út í bæ til þess aö fá lögfræðilegt
álit í borgarmálefnum. Mér Mnst
ég ekki eiga aðgang að lögfræðing-
um borgarinnar." Og Össur Skarp-
héðinsson segir: „Embættismenn-
imir í kringum Davíð eru eins og
mýs undir fjalaketti."
Síðan segir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í októberblaði Veru:
„Ráðhúsið sýnir í hnotskurn hvað
ég á við. í því máh heM maður
mátt horfa upp á embættismennina
líta á andstaeðinga ráðhúsbygging-
arinnar sem sína andstæðinga, sem
auðvitað er fráleitt. En hvemig
vinna þeir svo sem póhtískir emb-
ættismenn og margir hverjir taka
m.a.s. að sér að vinna ýMs verk
sem meirihlutinn ætti með réttu
að sjá sjálfur um? Þeir em tilbúnir
til þess að tefla þá refskák sem
flokkurinn þarf á að halda. Ég er
þá að tala um pöntuð bréf, alls kon-
ar pantaðar yfirlýsingar og sjónar-
Mð sem meirihlutann vantar.
Þannig öðlast þessi sjónarmið fag-
legan stimpil."
Og enn segir Ingibjörg Sólrún:
„Skipulagsmálin sýna þetta best,
en ég held að í þeim málaflokki sé
meirihlutinn kominn lengra í þvi
að útrýma lýðræðislegum vinnu-
brögðum og það með dyggilegri
aðstoð ýMssa embættismanna.
Það er hrikalegt að horfa upp á
hvað réttur hins almenna borg-
arbúa er fótum troðinn í þessum
málum."
Fleira væri hægt að vitna í þaö
sem Ingibjörg Sólrún segir í þessu
viðtali.
Á fundi skipulagsnefndar borgar-
innar sem haldinn var 29. febr. 1987
gerir Alfreð Þorsteinsson borgar-
fúlltrúi miklar bókanir. Ég vil vitna
í hluta af þeim:
„Hins vegar er ljóst að staösetn-
ing ráðhúss viö norövesturenda
Tjamarinnar er umdeilanleg og
ýmsum annmörkum háð. Með til-
liti til þess hversu lítil lóð er, er
húsið í stærra lagi miðað við lóð.
Slíkt ætti þó ekki að koma að sök
ef ekki kæM fleira til. Er þar átt
viö væntanlegar nýbyggingar Al-
þingis sem ráðgert er að rísi í
Kirkjustræti, Tjamargötu og Von-
arstræti. Ef Alþingi stendur fast við
þau byggingaráform er ljóst að
hagsmunaárekstrar verða milli
Alþingis og borgaryfirvalda, þar
sem þetta svæði rúmar ekki bæði
ráðhús og nýbyggingar Alþingis
með allri þeirri starfseM sem þess-
um stofnunum fylgja. Hefur fækk-
un bílastæða í kjallara ráðhússins
aukið enn á þann vanda. Þetta þýð-
ir m.ö.o. að haldi borgaryfirvöld
sínu striki um ráðhúsbyggingu viö
norðvesturenda Tiarnarinnar
verður það á kostnað Alþingis sem
ekki fær nægilegt svigrúm fyrir
framtíðarbyggingar sínar sam-
kvæmt þeim hugmyndum sem nú
em uppi.“
Þetta segir Alfreð Þorsteinsson
borgarfulltrúi. En síðast en ekki
síst vil ég vitna hér í virðulegan
forseta Sameinaðs Alþingis, Guð-
rúnu Helgadóttur. Hún segir í Dag-
blaðinu 15. okt. sl.:
„Ráðhúsið breytir auðvitað öllu í
sambandi við byggingu Alþingis-
húss. Það er t.d. engin leið að gera
sér grein fyrir hvernig umferðin
verður í kringum húsiö eða næsta
nágrenni. Því veit enginn hvort
pláss verður fyrir stækkun Al-
þingishúss. Þegar hún var áformuð
var ekki farið að ræða um ráðhús
á þessum stað,“ segir Guðrún
Helgadóttir.
Og svo em surair þingmenn Sjálf-
stásðisflokksins undrandi yfir því
að sú tillaga sem hér er til umræðu
sé flutt þó aö margir borgarfulltrú-
ar séu í vafa um þaö hvort Alþingi
geti haldið hér áfram starfseM
sinni.
Það hefur ýmislegt komið fram í
blöðum og í ræðum manna. Menn
tala t.d. um fomeskju og forsjár-
hyggju Mna og tala í fyrirhtning-
artón um fyrirgreiðslu sem ég og
ýmsir aðrir reynum gagnvart þeim
sem hafa orðið undir í kerfinu, þar
sem kúgun, okur, valdbeiting og
klíkuskapur veður uppi. Hvað seg-
ir þessi málflutningur um þá sjálfa
sem þannig hugsa og tala? Þeir
nota upphrópanir, sleggjudóma,
dylgjur og jafnvel rógburð án þess
að færa nokkur málefnaleg rök fyr-
ir máii sínu. Þeir nota vald sitt og
samtryggingu til þess aö vaða yfir
skoðanir og rétt annarra í nafni
lýðræðis, frelsis eða nútímalegra
vinnubragða.
Á hvað Mnnir þetta? Minnir
þetta ekki óhugnanlega á léns-
skipulag miðalda þar sem hinir
eðalbomu gátu leyft sér næstum
hvaö sem var í skjóli auðs og valds
og boðuðu öðrum hina réttu skoð-
un, hina réttu trú? Hver er munur-
inn? Þetta er mikil og hættuleg sið-
blinda og elur af sér kerfi þar sem
misrétti og ofbeldi þrifst í ýmiss
konar myndum og kemur hvað
harðast niður þar sem síst skyldi,
t.d. á börnum þessa lands.
Við skulum Mnnast þess aö við
sem sitjum í umboöi þjóöarinnar á
Alþingi íslendinga berum mikla
ábyrgð. Og ef við glötum dóm-
greind okkar og siðgæðisvitund og
fomrn ekki eftir settum reglum í
hvívetna, hvemig fer þá fyrir okk-
ar þjóö?
Stefán Valgeirsson
„Þeir nota upphrópanir, sleggjudóma,
dylgjur og jafnvel rógburö, án þess aö
færa nokkur málefnaleg rök fyrir máli
sínu.“