Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Síða 46
46 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. ■ Skreyttu bílinn fyrir jólin. ! Vorum að taka upp mikið úrval af skraut- L röndum á bíla. Setjum þær á meðan beðið . er. A Bifreióaverkstæöi Tangcuhðföa 8-12 /ml^Arna Gíslasonar hf sSS« HEILDVERSLJJN VIDGERDIR BILALEIGA og (91) 685504 Verðið er hreint ótrúlegt! Stóll með skammeli, aðeins kr. 26.500,- (stgr.) NYFÖRM Húsgagnaverslun Reykjavíkurvegi 66. Hafnarfirði, sími 54100 MYND UÓSMYNDASTOFA Cfj 54207 LEÐUR- HVÍLDARSTÓLAR Lénsherrar og strengjabrúður Umræða um byggingu ráðhúss í Reykjavíkurtjöm og þingsályktun- artillögu mína þar að lútandi hefur orðið mikil, bæði innan þings og utan. Lénsherramir hér í borginni urðu óttaslegnir og settu strengja- brúðurnar sínar í gang. Brúðurnar sem vita fullvel að framavon þeirra byggist á því að þær láti að stjóm, eins og ég mun rökstyðja hér síðar. Eitt kom mér þó á óvart. Það var ræða háítvirts þingmanns, Þor- valds Garðars Kristjánssonar, fyrrv. forseta. Sameinaðs Alþingis. Eg átti satt að segja ekki von á því að hann mundi falla í sömu gryfju og háttvirtur þingmaður Guð- mundur H. Garðarsson og Geir H. Haarde. TU marks um flumbruháttinn og skelfinguna sem virtist hafa gagn- tekið sumt af þessu fólki, segir Guðmundur H. Garðarsson, háttv- irtur þingmaður, í Morgunblaðinu 29. október sl. þar sem hann talar um tillögu mina: „Tillagan felur í sér þvilíka skerðingu á lýðræðis- legum réttindum Reykvíkinga til athafna í eigin málum að því verð- ur ekki unað. EM hennar er í stuttu máli það að Stefán Valgeirs- son vill með nýrri lagasetningu stöðva framkvæmdir við byggingu ráðhúss Reykjavíkur sem efnt hef- ur verið til á grundvelh laga og reglna.“ Hvar í þessari tillögu er gert ráð fyrir nýrri lagasetningu til lausnar þessu máh? Las þessi háttvirti þingmaður ekki tillöguna áður en hann skrifaði þessa endemis grein? Var það einhver annar sem sagði honum að skrifa svona til þess að villa um fyrir landsmönnum hvað snertir það hvað í raun og veru felst í tillögunni? í tillögunni segir: „Alþingi álykt- ar að kanna skuh sem ítarlegast öll lagaleg atriði sem tengjast ráð- gerðri byggingu ráðhúss Reykja- víkurborgar í Reykjavíkurtjöm með tilliti til eignarréttar og grenndarréttar húseigna Alþingis við noröurenda Tjamarinnar. Skal forsetum Alþingis falið að'fá þrjá trausta lögfræðinga til að kanna lagaleg atriði málsins og gefa sér- álit og einnig að fá könnun og sér- álit þriggja manna sérfróðra um skipulags- og byggingarmál á mál- um sem tengjast ráðhúsbygging- unni.“ Háttvirtur þingmaður Þor- valdur Garðar Kristjánsson segir í umræðunni um tillöguna að tillag- an sé ekki þinglega flutt og raunar ekki umræðuhæf. Þetta leyfir háttvirtur þingmaður sér aö segja án þess að rökstyðja slík ummæli sín á nokkum hátt. Slíkur mál- flutningur hæfir ekki háttvirtum þingmanni sem er fyrrv. forseti Sameinaðs Alþingis. í þessum um- mælum felst raunar aðdróttun að háttvirtum forseta Sameinaðs Al- þingis því ef tillagan var ekki þing- leg átti forseti að benda fluMngs- manni á það og sjá til þess að hún yrði sett í þinglegt form eða að öör- um kosti að vísa henni frá. Auðvitað em þetta bábiljur einar. Hitt er annað mál að umræða um þetta mál er langt frá því að vera þægileg fyrir meirihluta borgar- stjómar Reykjavíkur. Æth það sé ekki skýringin á þessum viðbrögð- um? En hvað segja fulltrúar flokk- anna sem em í minnihluta í borg- arstjóm Reykjavíkur? í Pressunni 27. okt. sl. segir Alfreð Þorsteins- son: „Margir æðstu embættismenn borgarinnar lúta í einu og öllu vilja borgarstjórans.“ Bjami P. Magnús- son segir: „Þama era menn sem eiga erfitt með að draga mörkin KjaUarinn Stefán Valgeirsson alþingismaður fyrir Samtök um jafnrétti og félagshyggju milli hlutlausrar embættisfærslu og Sjálfstæðisflokksins." Guðrún Ágústsdóttir segir: „Ég þarf að leita út í bæ til þess aö fá lögfræðilegt álit í borgarmálefnum. Mér Mnst ég ekki eiga aðgang að lögfræðing- um borgarinnar." Og Össur Skarp- héðinsson segir: „Embættismenn- imir í kringum Davíð eru eins og mýs undir fjalaketti." Síðan segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir í októberblaði Veru: „Ráðhúsið sýnir í hnotskurn hvað ég á við. í því máh heM maður mátt horfa upp á embættismennina líta á andstaeðinga ráðhúsbygging- arinnar sem sína andstæðinga, sem auðvitað er fráleitt. En hvemig vinna þeir svo sem póhtískir emb- ættismenn og margir hverjir taka m.a.s. að sér að vinna ýMs verk sem meirihlutinn ætti með réttu að sjá sjálfur um? Þeir em tilbúnir til þess að tefla þá refskák sem flokkurinn þarf á að halda. Ég er þá að tala um pöntuð bréf, alls kon- ar pantaðar yfirlýsingar og sjónar- Mð sem meirihlutann vantar. Þannig öðlast þessi sjónarmið fag- legan stimpil." Og enn segir Ingibjörg Sólrún: „Skipulagsmálin sýna þetta best, en ég held að í þeim málaflokki sé meirihlutinn kominn lengra í þvi að útrýma lýðræðislegum vinnu- brögðum og það með dyggilegri aðstoð ýMssa embættismanna. Það er hrikalegt að horfa upp á hvað réttur hins almenna borg- arbúa er fótum troðinn í þessum málum." Fleira væri hægt að vitna í þaö sem Ingibjörg Sólrún segir í þessu viðtali. Á fundi skipulagsnefndar borgar- innar sem haldinn var 29. febr. 1987 gerir Alfreð Þorsteinsson borgar- fúlltrúi miklar bókanir. Ég vil vitna í hluta af þeim: „Hins vegar er ljóst að staösetn- ing ráðhúss viö norövesturenda Tjamarinnar er umdeilanleg og ýmsum annmörkum háð. Með til- liti til þess hversu lítil lóð er, er húsið í stærra lagi miðað við lóð. Slíkt ætti þó ekki að koma að sök ef ekki kæM fleira til. Er þar átt viö væntanlegar nýbyggingar Al- þingis sem ráðgert er að rísi í Kirkjustræti, Tjamargötu og Von- arstræti. Ef Alþingi stendur fast við þau byggingaráform er ljóst að hagsmunaárekstrar verða milli Alþingis og borgaryfirvalda, þar sem þetta svæði rúmar ekki bæði ráðhús og nýbyggingar Alþingis með allri þeirri starfseM sem þess- um stofnunum fylgja. Hefur fækk- un bílastæða í kjallara ráðhússins aukið enn á þann vanda. Þetta þýð- ir m.ö.o. að haldi borgaryfirvöld sínu striki um ráðhúsbyggingu viö norðvesturenda Tiarnarinnar verður það á kostnað Alþingis sem ekki fær nægilegt svigrúm fyrir framtíðarbyggingar sínar sam- kvæmt þeim hugmyndum sem nú em uppi.“ Þetta segir Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi. En síðast en ekki síst vil ég vitna hér í virðulegan forseta Sameinaðs Alþingis, Guð- rúnu Helgadóttur. Hún segir í Dag- blaðinu 15. okt. sl.: „Ráðhúsið breytir auðvitað öllu í sambandi við byggingu Alþingis- húss. Það er t.d. engin leið að gera sér grein fyrir hvernig umferðin verður í kringum húsiö eða næsta nágrenni. Því veit enginn hvort pláss verður fyrir stækkun Al- þingishúss. Þegar hún var áformuð var ekki farið að ræða um ráðhús á þessum stað,“ segir Guðrún Helgadóttir. Og svo em surair þingmenn Sjálf- stásðisflokksins undrandi yfir því að sú tillaga sem hér er til umræðu sé flutt þó aö margir borgarfulltrú- ar séu í vafa um þaö hvort Alþingi geti haldið hér áfram starfseM sinni. Það hefur ýmislegt komið fram í blöðum og í ræðum manna. Menn tala t.d. um fomeskju og forsjár- hyggju Mna og tala í fyrirhtning- artón um fyrirgreiðslu sem ég og ýmsir aðrir reynum gagnvart þeim sem hafa orðið undir í kerfinu, þar sem kúgun, okur, valdbeiting og klíkuskapur veður uppi. Hvað seg- ir þessi málflutningur um þá sjálfa sem þannig hugsa og tala? Þeir nota upphrópanir, sleggjudóma, dylgjur og jafnvel rógburð án þess að færa nokkur málefnaleg rök fyr- ir máii sínu. Þeir nota vald sitt og samtryggingu til þess aö vaða yfir skoðanir og rétt annarra í nafni lýðræðis, frelsis eða nútímalegra vinnubragða. Á hvað Mnnir þetta? Minnir þetta ekki óhugnanlega á léns- skipulag miðalda þar sem hinir eðalbomu gátu leyft sér næstum hvaö sem var í skjóli auðs og valds og boðuðu öðrum hina réttu skoð- un, hina réttu trú? Hver er munur- inn? Þetta er mikil og hættuleg sið- blinda og elur af sér kerfi þar sem misrétti og ofbeldi þrifst í ýmiss konar myndum og kemur hvað harðast niður þar sem síst skyldi, t.d. á börnum þessa lands. Við skulum Mnnast þess aö við sem sitjum í umboöi þjóöarinnar á Alþingi íslendinga berum mikla ábyrgð. Og ef við glötum dóm- greind okkar og siðgæðisvitund og fomrn ekki eftir settum reglum í hvívetna, hvemig fer þá fyrir okk- ar þjóö? Stefán Valgeirsson „Þeir nota upphrópanir, sleggjudóma, dylgjur og jafnvel rógburö, án þess aö færa nokkur málefnaleg rök fyrir máli sínu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.