Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Page 20
20 MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvaemdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrqj, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJOLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 800 kr. Verð i lausasölu virka daga 75 kr. - Helgarblað 90 kr. Vafasöm tillaga Óþarfi er að tíunda rétt einu sinni hið alvarlega ástand sem blasir við útflutningsatvinnuvegunum. Reyndar kemur fram í nýjustu skýrslu Þjóðhagsstofn- unar að allur atvinnurekstur í hinum hefðbundnu greinum er rekinn með tapi. Samdráttur er sömuleiðis fyrirsjáanlegur á næsta ári ef atvinnureksturinn verður þá ekki orðinn gjaldþrota eða hefur stöðvast vegna greiðsluerfiðleika. Undanfarna daga hafa ýmsir aðilar lagt fram skýrslur sínar og útreikninga um ástandið: Seðlabankinn, Þjóð- hagsstofnun og efnhagsráðgjafar á vegum ríkisstjórnar- innar og á föstudaginn hélt forsætisráðherra blaða- mannafund þar sem enn og aftur var dregin upp dökk mynd. Athyglisvert er að allir þessir aðilar eru sam- mála um að gengið sé of hátt skráð. Þá greinir að vísu á um stærðina en auðvitað er kominn tími til að menn horfist í augu við þá staðreynd að þjóðarbúið og atvinnu- vegirnir koma aldrei með að lifa það af að genginu er haldið föstu eða of háu, ef reksturinn á að vera réttu megin við strikið. Að því leyti hefur Skúli Alexandersson, þingmaður Alþýðubandalagsins, rétt fyrir sér þegar hann segir að gengið þurfi að fella. Millifærslur, atvinnutryggingar- sjóðir og skuldbreytingar jafngilda því að pissa í skóinn sinn og gera lítið annað en að fela vandann um skamm- an tíma. Þá er tjaldað til einnar nætur því það einfalda lögmál gildir í framleiðslustarfsemi að fyrirtækið verður að fá meira fyrir vöruna heldur en það kostar að fram- leiða hana. Skúh fellur hins vegar í þá gryfju að bæta því við gengisfellingarkröfu sína að búa þurfi til gengismunar- sjóð til að afstýra því að fyrirtækin þurfi að taka á sig hækkunina á erlendu lánunum sem hlýst af lækkuðu gengi. Skúli er með þessu að segja að hann vilji tvöfalt gengi: eitt út á við, annað inn á við. Þegar hann er síðan spurður hver eigi að greiða 1 gengismunarsjóðinn vísar hann óljóst til þeirra sem eiga að hafa grætt á undan- fórnum árum, breiðu bökin sem hafa makað krókinn í hallæri hinna. Á sínum tíma þóttu svona feluleikir með gengið vera góð hagfræði. Frægastur er bátagjaldeyririnn en einnig tíðkaðist að selja gjaldeyri á mismunandi gengi, eftir því hver keypti. Annar eins spihingar- og brasktími hefur ekki þekkst 1 landinu eins og einmitt þegar menn héldu margs konar gengi við lýði. Guð forði okkur frá endurreisn þess svínarís. Millifærslurnar og bjargráðin í dag eru hátíð miðað við þann ósóma, fyrir utan þá fjar- stæðu að halda að hægt sé að sækja einhvern falinn gróða út í bæ og láta hann borga brúsann. Því miður finnast engir einstaklingar, engin fyrirtæki og engir atvinnuvegir sem hafa fitnað eða hagnast á undanförn- um mánuðum. Skýrslur Þjóðhagsstofnunar tala þar skýrustu máh, gjaldþrotin og uppboðin. Ekki þarf að efast um að Skúli Alexandersson setur fram tiUögu sína af góðum hug. Hann veit hvað hann syngur, hann Skúli, og hann veit að gengið verður að vera rétt skráð ef vit á að komast í atvinnureksturinn. En hann verður að skilja, eins og aðrir stjórnmálamenn verða Uka að fara að læra, að patentlausnir eins og tvö- falt gengi koma að engu gagni þegar tU lengdar lætur. Þær gabba kannski almenning og koma vel út á pappír meðan þær eru ekki framkvæmdar. En þær eru tU einsk- is þegar til alvörunnar kemur. Ellert B. Schram Á íslandi er mikil útgáfustarfsemi. - „... er veigamikill þáttur i lýdræðislegu landnámi...“ segir í greininni. Fjölmiðlar hafa ekki völd Á sínum tíma þurfti ég að ræða erfitt mál við kunnan, sænskan hagfræðing. Við vorum staddir á bandarísku hóteli og völdum okkur stað þar víðast var til veggja, lengst á milh horða, marmari á gólfi og himinn og loft í gleri. Þetta voru okkar fyrstu samræð- ur og allt stefndi í einvígi. Sá sænski byrjaði á því að setja mig á pláss og sagði: „You Icelanders are opinionated.“ (Þið íslendingar eruð barmafullir af skoðunum á öllum málum). „Af hverju segiö þér það?“ spurði ég. Hann svaraði að bragði: „Þið gefið út alltof mörg dagblöð." Bismarck sagði reyndar svipað við Jón Stefánsson í British Muse- um. Hann sagði að íslendingum nægði þá eitt blað. Skapandi fjölbreytni Við erum sjálfir ekki sömu skoð- unar og bjóðum upp á tímarit, fjöl- breytt að efni, rekum tvær sjón- varpsstöövar, eigum tvö dagblöð með hlutfallslega mikla útbreiðslu og styrkjum önnur, rekum fjöl- miðla fyrir einstaka landshluta, atvinnugreinar og áhugamál, að ógleymdum félagsblöðum og sér- fræðiritum. Allt ber þetta vott um samskipta- þörf manna, fróðleiksfýsn, nýj- ungagimi og sköpunarkraft meðal íslendinga og er veigamikill þáttur í lýðræðislegu landnámi og því hagkerfi áhugans og ákafans sem við höfum skapað okkur og skapast af, þjóð sem á allt sitt undir sól og regni en leitast eins og aðrar þjóðir við að sigrast á náttúranni eða í það minnsta að gera náttúruna sér handgengna. Hliðstæðan er til í bandaríska landnáminu, einkum í ákaflega fjölskrúðugri útgáfu tímarita um allt milli himins og jaröar. Segja má að um tímaritin renni hinn lýð- ræðislegi straumur bandarísks þjóðlífs. Þau er vettvangur ákafra skoðanaskipta og farvegur ótrúleg- ustu hugmynda um lífið og tilver- una. íslensk menntakona, með andúö á auglýsingum, sagði einu sinni í samtali um þetta efni: „Er þetta nú gott?“ Fjölmiðlar eru farvegur Þórarinn Björnsson skólameist- ari sagöi í einni af frægum ræöum: Viö höfum of margar skoðanir og KjáHarinn Ásmundur Einarsson útgáfustjóri of fáar hugsjónir. Ef til vill endurspegla fjölmiðl- amir á Vesturlöndum að einhveriu leyti sannleiksgildi þessa viðhorfs, fjöldi þeirra, fjölbreytni og út- breiösla. En það gerir fjölmiðlana ekki þýðingarminni, nema síður sé, a.m.k. meðan við treystum á lýð- ræði og trúum á hægfara þróun sem skilar árangri í stökkum. Renni hinir mörgu straumar á Vesturlöndum síðar í færri farvegi verður það gegnum fjölmiðla og eru bækur þá auðvitað ekki undan- skildar. En þetta gerir fjölmiðlana ekki að valdaafli. Hugsanleg völd þeirra hverfa í fjölbreytninni á Vestur- löndum. í einræðisríkjunum eru fjölmiðlamir notaðir af valdakerf- inu en eigin völd þeirra eru engin og áhrif þeirra takmarkast af vMd- kerfinu. Þetta leyfi ég mér að benda á vegna þess að á nýlegri ráðstefnu Blaðamannafélags íslands var oft- sinnis talað um „völd“ íslenskra fjölmiðla, einkum dagblaða og sjónvarps, að vísu óskilgreint. í þessu sambandi er talað um póli- tísk áhrif og til að sleppa við inn- lend dæmi tek ég Gary Hart-málið. Hver eyðilagði Hart? Sagt er að fjölmiðlarnir hafi eyði- lagt Hart en ekkert er fjær sanni. Hann gerði það sjálfur. Fjölmiðl- amir tóku að sér að miðla því. Átök um siögæðishugmyndir era þó nokkuð hörð um þessar mundir og það sem var leyfilegt á Kennedy- árum er ekki sjálfsagt mál í dag. Hart virtist fulltrúi „frjálslyndis" sem hvorki demókratar né repú- blikanar reyna að verja lengur þó að þeir hafi gert það áður, misjafn- lega mikið. Fjölskylduástúð varð síðan að kosningamáli í baráttu Bush og Dukakis og fjölmiölarnir sáu um að miðla því. Sjónvarp, dagblöð og tímarit hafa litlu ráðið um stefnu þessara mála. Þeir birta heldur ekki stríðsfréttir vegna þess að þær séu vinsælt efni heldur vegna þess að stríð eru í eðli sínu tilraun til úrslitaátaka. En þeir stjóma ekki stríðunum. Ríkisstyrkir velja fjölmiðla Að þessu sögðu er að mínu mati meiri ástæða fyrir fjölmiðlamenn til að tala um hættuna á misnotkun fjölmiöla fremur en völd þeirra. Áhrif fjölmiðla verða aldrei meiri en áhrif þess efnis sem þeir miðla úr umhverfi sínu og inn í það aftur og styrkleiki áhrifanna fer eftir því hve tiltekið efni snertir marga. Við fáum hins vegar hvorki betri umræðu né lýðræðislegri umræðu með ríkisstyrktum blöðum. Og kjör blaðamanna verða að öllum líkind- um þeim mun verri sem ríkisstyrk- irnir verða meiri og ríkisfjölmiðl- arnir stærri hluti fjölmiðlageirans, einfaldlega vegna þess að tekjur fjölmiðlanna þynnast út og rekst- urinn miðast ekki við arðsemi sem skilar góðum launum og þroskandi vinnuaðstöðu. Um þessi atriði mætti síðan fjalla sérstaklega og kannski leyfi ég mér það við tækifæri. Ásmundur Einarsson „En þetta gerir fjölmiölana ekki að valdaafli. Hugsanleg völd þeirra hverfa í fjölbreytninni á Vesturlöndum.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.