Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1988, Qupperneq 47
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 1988. 47 Meiming Prakkarasögur afapastrák Mál og menning gefur út aö venju nokkrar vandaðar bama- og ungl- ingabækur. Meðal þeirra eru tvær gullfallegar litmyndabækur, handa litlu börnunum, um apann Friðþjóf forvitna og koátuleg uppátæki hans. Bækurnar em eftir amerísk- an þöfund H. A. Rey en hann samdi, ásamt konu sinni Margréti, fjölda vinsælla myndabóka sem hafa verið þýddar á mörg tungu- mál. H. A. Rey fæddist í Hamborg 1898. Það voru erfiðir tímar í Þýskalandi á þriðja áratugnum. Hann neyddist til að hætta námi vegna fjárskorts, þá freistaði hann gæfunnar í Bras- ilíu. Þar kynntist hann Margréti sem líka var þýskur innflytjandi. Þau giftust og fóru aftur til Evrópu. Þar kom fyrsta bókin þeirra út. Hann teiknaði myndirnar en hún skrifaði textann. Þegar seinni heimsstyijöldin braust út flúðu þau til New York og árið 1946 fengu þau amerískan ríkisborgararétt. Friðþjófur forvitni er apastrákur sem átti heima í frumskóginum í Afríku. Maður með gulan hatt náði honum og flutti hann með sér yflr hafið til stórrar borgar og kom hon- um fyrir í dýragarði. Þar undi Frið- þjófur sér hiö besta. Seinni bókin segir frá Friðþjófi og manninum með gula hattinn sem nú gefur apanum hjól. Frið- þjófur verður fljótlega mjög snjall og fær að lokum að leika listir sín- ar í sirkusi. Friðþjófur hagar sér eins og krakki, gerir það sem honum dett- ur í hug á stundinni og gleymir því sem hann átti að gera. Auðvitað lendir hann í alls konar vandræð- um en samt rætist úr öllu í lokin. Litlu börnin sjá sjálf sig í uppátækj- um Friðþjófs, en geta líka hneyksl- ast á honum, hann er þó aldrei nema api, þau eru aftur á móti svo hlýðin og góð að vita mæta vel hvaö má og hvað má ekki. Þetta gerir ævintýri Friðþjófs spennandi. Þýðing Þórarins Eldjárns er vel unnin. Það er úthugsað að kalla apann Friðþjóf forvitna, hann heit- ir Curious George á frummálinu, vissulega er friðurinn úti hvar sem Friðþjófur kemur, en ósköp er erf- itt fyrir litla krakka að segja það, trúlega verður nafnið stytt. Þá kann ég ekki við að hann er oftast kallaður apaköttur. Þetta er rófu- laus api, augsýnilega stílfærð teikning af simpansa. Kannske er Bamabækur Viiborg Dagbjartsdóttir þetta barnakennaraleg smásmygli, apaköttur getur líka þýtt prakkari, en það er ofnotað hérna. Letrið er stórt og gott. Pappírinn þykkur og áferðarfallegur. Mynd- irnar í hreinum og skærum litum. Bækurnar eiga sjálfsagt eftir að gleðja margt barnið um jólin. Höfundur: H. A. Rey. Þýöandi: Þórarinn Eldjárn. Mál og menning 1988. Friöþjófur forvitni á hjóli. VERÐ FRA KR. 750.600,- JOFUR HF Nýbýlavegi 2 • Sími 42600 Opið virka daga 9-18 Laugardaga 13-17 BROSUMI og R allt gengur betur • GERÐU JÓLALEGT í GARÐINUM ÞÍNUM 40 LJÓSA keðja á aðeins kr. 1.680.- 80 LJÓSA KEÐJAÁ AÐEINS KR. 2.500. (24 V straumbreytir fylgir.) Þessi keðja er viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins. Opið laugardag frá 10-18. Gunnar Ásgeirsson hf. Suðurlandsbraut 16, s. 68 07 80. ÞRJÁR FALLEGAR SÖGUBÆKUR FYRIR BÖRNIN BRÁÐUM KOMA BLESSUÐ JÓLIN Einstaklega falleg og vönduð bók með sögum um jólaundirbúning, tilhlökkun, jólahald og fleira sem tengist jólunum. í bókinni eru ennfremur fjölmargar jólavísur, leikir og skemmtanir. Bók sem iðar af sannkallaðri jólagleði. Stefán Júlíusson þýddi, valdi og endursagði efnið. TVftR HEIDU-BÆKUR Bækurnar um Heiðu eru líklega með þekktustu barnasögum, sem komið hafa út. Bækurnar tvær sem hér um ræðir heita HEIÐ A FER AÐ HEIMAN og HEIÐA HEIMSÆKIR AFA og eru þær endursagðar á góðu máli með skýru letri. Fallegar, litprentaðar bækur í þýðingu Óskars Ingimarssonar. SETBERG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.