Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1989. Fréttir Skipulagsbreytingamar á Sambandinu: Mörgum spurningum er w m w enn ósvarað í málinu - segir Þröstur Ólafsson sem sat hjá við afgreiðslu tOIagnanna í skipulagsneöidinni „Eg er ekki alls kostar ánægður með þessar tillögur meirihluta skipulagsnefndar og sat því hjá viö atkvæöagreiöslu um þær. Eg tel hins vegar að þær séu ekki alvond- ar en það þarf aö mínum dómi að gefa sér mun meiri tíma til að skoða þetta mál og reyna að gera sér grein fyrir afleiðingunum. Ég tel mörg- ura spurningum ósvaraö og vil því fá svör við þeim áður en ákvaröan- ir eru teknar,“ sagði Þröstur Ólafs- son, framkvæmdastjóri KRON og Miklagarös, um skipulagsbreyting- arnar hjá Sambandinu en Þröstur á sæti í skipulagsnefhdinni. Þröstur benti á að þarna væri veriö að gera deildir Sambandsins að sjálfstæöum einingum og eftir stæði spurningin um eignarhiut Sambandsins. Það væri ekki gert ráð fyrir sameiginlegri yfirstjórn yfir þeim eins og komiö hefiir fram. Þá nefhdi hann spumingu sem ekki hefði verið svaraö en það væri um rekstrarhæfhi þessara eininga. Allt hefði þetta verið í einum potti hjá Sambandinu og hér væri um afar viðamikla starfsemi að ræöa sem spannar yfir allt þjóðlifið. Eins væri þeirri spurningu ósvarað hver viðbrögöin yrðu hér og þar vegna þessa. Hvaö segja lánar- drottnar Sambandsins? Svona væri áfram hægt að telja upp spumingar sem þyrfti að fá svör við að sögn Þrastar Ólafssonar. Samkvæmt heimildum DV er ta- lið öruggt aö Valur Amþórsson stjórnarformaður, sem er hlynntur þessum skipulagsbreytingum, hafi meirihluta í stjóm Sambandsins til aö koma þeim í gegn. Guðjón B. Ólafsson forstjóri er andvígur skipulagsbreytingunum og kunn- ugir fullyrða aö þetta mál sé liöur í uppgjöri milii þeirra Vals og Guð- jóns en samkomulag þeirra hefur ekki veriö sem best. Nái skipulags- breytingarnar fram að ganga er valdsviö Guöjóns B. Ólafssonar skert svo mjög að það verður ekki svipur hjá sjón miðað viö það sem nú er. Boðaöur hefur verið stjómar- fundur hjá Sambandinu 9. eða 10. janúar næstkomandi þar sem skipulagsbreytingarnar verða að- almálið. -S.dór Friða Á. Sigurðardóttir tekur við styrk Rithöfundasjóðs Rikisútvarpsins úr hendi Jónasar Kristjánssonar, formanns sjóðsstjórnar. DV-mynd BG Styrkur Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins: „Eins og yndis- leg jólagiöf“ - segir Fríða Á. „Það hvarflaði ekki að mér að ég fengi styrkinn," segir Fríða Á. Sig- urðardóttir rithöfundur, ánægð eftir aö hafa verið úthlutað 300 þúsund krónum úr Rithöfundasjóði Ríkisút- varpsins á gamlársdag. „Jónas Kristjánsson, formaður sjóðsins, varð að segja mér fréttina mörgum sinnum áður en ég trúði henni,“ segir Fríða sem fékk aö vita um styrkinn á aðfangadag. „Þetta er eins og að fá yndislega jólagjöf." Fríða segist ekki þurfa að hafa áhyggjur af brauðstriti næstu mán- uðina og geta einbeitt sér aö skáld- sögu sem hún hefur verið með í smíð- um í 2 ár, með hléum. Eins og flestir rithöfundar getur Fríða ekki alla- Sigurðardóttir jafna framfleytt sér með ritstörfum einum saman. „Ég gríp í ýmislegt, hef starfað við þýðingar og prófarka- lestur samhliða." „Núna er ég á kafi í nýju skáldsög- unni og geri ráð fyrir að þurfa eins og eitt ár í viðbót áöur en ég lýk henni.“ - Hvert er efni skáldsögunnar? „Ef ég gæti sagt þér það í einni setn- ingu þyrfti ég ekki að skrifa sög- una,“ svarar Fríða að bragði. Hún lét það samt uppi að sögusviö- ið væri nútíminn og sögumaöur er kona. „Annars spannar sagan vitt svið í tíma og rúmi,“ segir Fríða. -pv í dag mælir Dagfari Fatlaðir eru ómark íþróttafréttaritarar tilkynntu í síðustu viku að þeir hefðu kjörið Einar Vilhjálmsson spjótkastara íþróttamann ársins. Ymsir hafa orðiö til að gagnrýna þessi úrslit og telja að fatlaöur íþróttamaður hefði verið betur aö þessum heiðri kominn. íþróttafréttaritarar hafa svaraö þessari gagnrýni fullum hálsi, enda má segja með réttu að þeir séu réttbornir og réttkjömir til að hafa skoðanir á því hverjir standi sig og hverjir standi sig ekki í íþróttum. Maöur les það í blöðun- um og heyrir það í sjónvarpinu dag hvem áriö út og árið inn hvað ís- lenskir íþróttamenn séu afarsnjall- ir og raunar ósigrandi, nema þegar dómarar, veðurfar eða aðstæður koma í veg fyrir glæsta sigra okkar manna. Ef það er ekki dómarinn, veðrið eða aðstaðan þá em það bannsettir andstæðingarnir sem koma okkar mönnum á óvart. Aldrei hefur Dagfari heyrt um nokkum íslenskan íþróttamann sem hefur tapað fyrir útlenskum, nema vegna þess að þar er ein- hverju öðm um að kenna heldur en að andstæðingarnir séu betri. Nú em einhveijir utanaðkom- andi besser visserar aö halda því fram að fatlaöir íþróttamenn séu betri heldur en ófatlaðir. Þetta er auðvitað í hæsta máta ósanngjarnt því að fatlaðir íþróttamenn njóta þeirra forréttinda aö vera fatlaðir og geta því náð betri árangri fyrir vikið. Haukur Gunnarsson er til aö mynda fatlaöur og stendur því betur að vígi heldur en Einar Vil- hjálmsson að vinna gull á ólympíu- leikum og þetta verða menn að hafa í huga þegar greidd era at- kvæði um íþróttamann ársins. Dagfari tekur undir það með íþróttafréttamönnum að það er ólíku saman að jafna að vera fatlað- ur þegar íþróttir era annars vegar. Þeir hafa það forskot að vera fatlað- ir og eiga því auðveldara með að ná árangri. Þetta þýðir auðvitaö að það er ekki hægt að kjósa fatlaða sem íþróttamenn ársins. Þeir eru minnihlutahópur og þurfa aðeins að keppa við aðra fatlaða. Sigrar þeirra eru því ekki eins stórir og ósigrar hinna ófótluöu. Það er miklu meira afrek að tapa ófatlað- ur heldur en að sigra fatlaður! Ef ófatlaðir gætu keppt við fatlaða eða fatlaöir við ófatlaða þá væri saman- burðurinn kominn og þá mundi hinir ófótluðu geta sýnt það og sannað að þeir væru miklu betri heldur en hinir fötluðu. Þetta hljóta alhr að viðurkenna sem vit hafa á íþróttum. Af þessu má sjá að íþróttafrétta- ritarar geta ekki látið fatlaða og ófatlaða sitja við sama borð. Sigur hins fatlaöa er ekki sama íþróttaaf- rekið og tapið hjá hinum ófatlaða. Fatlaður maöur verður að sætta sig við að vera fatlaður minnihluta- hópur meðan spjótkastarar og júdókappar era ófatlaður meiri- hlutahópur. íþróttafréttaritarar, sem sjá betur en aðrir hvenær ís- lenskir íþróttamenn standa sig og hvenær þeir standa sig ekki, vita vel að þegar íslenskur og ófatlaður íþróttamaður tapar í keppni þá er þaö vegna þess misréttis aö hann etur kappi viö ófatlaða menn. Það telst ekki fötlun þótt menn missi meðvitund þegar þeir henda spjóti og það telst heldur ekki fötlun þótt hlauparar og sundmenn verði svo þreyttir að þeir komi síðastir í mark. Ósigur þeirra stafar af því aö vatnið er of blautt eða þeir hafa verið óheppnir og lent á móti of sterkum andstæðingum. Þeir gera samt miklu betur en fatlaðir og þess vegna eru þeir fyrmefndu miklu betri en fatlaða fólkið, sem hefur þau forréttindi að vera fatlað og þarf ekki að keppa gegn öðrum en fötluðu fólki. Þeir sem era að gagnrýna íþrótta- fréttamenn verða að hafa í huga að sigrar eru ekki allt í íþróttum. Þaö er þátttakan sem skiptir máli. íþróttamenn okkar eru ósparir á að taka þátt, þótt þeir viti fyrirfram að dómarinn sé á móti þeim eða andstæðingarnir séu betri. Hug- sjón íþróttanna er að yera með. Fremstu íþróttamenn íslendinga eru alltaf með þótt þeir séu alltaf aö tapa og fyrir það eiga þeir skilið að vera kosnir íþróttamenn ársins. Fatlaðir íþróttamenn hafa tekið upp á því að vera með til að sigra. Og þeim hefur tekist það. Það er ómark vegna þess að það eru for- réttindi að vera fatlaður í íþróttum. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.