Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Side 6
6 MANUDAGUR 2. JANUAR 1989. Fréttir Sandkom ífj Mörg rúðubrot 1 Reykjavík á nýársnótt: Unglingar brutu allar rúðurnar í KRON-verslun - tjón vegna rúðubrota nema hundruðum þúsunda Mikið var um rúðubrot í Reykjavík á nýársnótt. Var lögreglan alls kölluð ellefu sinnum út vegna rúðubrota. Verst var ástandið við Eddufell í Breiðholti en þar höfðu unglingar Akranes: Mjög góð áramót „Þetta voru mjög góð áramót. Það urðu engin slys á mönnum og fáir gistu fangageymslur. Það var töluvert af fólki á ferli fram eftir morgni en dansað var á tveimur stöðum í bænum. Þaö gekk slysalaust fyrir sig og örfáir gistu fangageymslur/' sagöi lög- reglan á Akranesi við DV og bætti því við að enginn hefði verið tek- inn vegna ölvunar við akstur. „Það er alveg sérstakt um ára- mót.“ -hlh Borgames: Róleg áramót Áramótin í Borgarnesi fóru vel fram að sögn lögreglu. Var tölu- verður mannfjöldi við hóteliö þar sem dansað var og fór allt frið- samlega fram. Var lögreglan stöðugt með tvo bíla í gangi og þurfti ekki að skipta sér af ára- mótaglöðum Borgnesingum. ' -hlh ísafjörður: Þægileg áramót Að sögn lögreglunnar á ísafirði voru þetta hin þægilegustu ára- mót og þurfti ekki að hafa telj- andi afskipti af fólkL Var ágætis veður á ísafirði og ástandið á fólki eins og um helgi nema þaö var lengur að en venjulega. Voru margir að skeramta sér fram und- ir klukkan níu á nýársdagsmorg- un. -hlh Akureyri: Fríðsæl áramót „Áramótin voru róleg og hugguleg hér," sagði varðstjóri lögreglunnar á Akureyri er DV ræddi við hann eftir áramóta- helgina. Að sjálfsögðu voru þó Akur- eyringar á ferðinni á gamlárs- kvöld og í Sjallanum kom t.d. til ryskinga og einu og einu kjafts- höggi var útdeilt. En þegar á heildina er litiö voru áramótin á Akureyri friðsamleg og bæjarbú- um til sóma. Sauðárkrókur: Eins og venjuleg helgi „Hér fór allt friðsamlega fram. Þetta var eins og venjuleg helgi," sagði lögreglan á Sauðárkróki við DV. Brenna var á Sauöárkróki og sótti hana mikill mannfjöldi. Var töluveröur erill fram eftir nóttu hjá lögreglunni en ekki meiri en um flestar helgar. -hlh brotið allar rúðurnar í KRON-versl- un. Víðs vegar um borgina voru rúð- ur brotnar en um helmingur rúðu- brota var í miðbænum. Ekki er vitað hve margar rúðurnar Vestmannaeyjar: Mikið skotið Aramótin voru róleg og fóru vel fram að sögn lögreglu í Vestmanna- eyjum. Líkti lögreglan áramótunum í Eyjum við rólega helgi. Var einhver erill en engin stórvægileg atvik þrátt fyrir ölvun. Var miklu af flugeldum skotið í loft upp og fór það slysalaust fram. -hlh Neskaupstaður: Áramót fóru vel fram „Áramótin fóru vel fram. Hér voru tvær brennur og mikið skotið. Tölu- verður erill var fram á morgun en engin stórvægileg tíðindi af fólki að skemmta sér," sagði lögreglan í Nes- kaupstað. Aðeins einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur. -hlh PatreksQörður: Áramótin fóru vel fram Áramótin á Patreksfirði og í ná- grenni fóru vel fram. Var miklu af flugeldum skotið en engin ðhöpp urðu. Var venjulegur erill hjá lög- reglunni vegna skemmtana fólks fram eftir nóttu án þess að nokkuð stórvægilegt kæmi upp á. -hlh eru í allt eða hversu mikið tjón er. Þó mun það skipta hundruðum þús- unda en aö sögn eiganda verslunar- innar Bjarkar í Bankastræti, þar sem rúða var brotin og kveikjurum og Selfoss: Sex ölvaðir undir stýri „Áramótin fóru vel fram. Það er helst að nefna að sex voru teknir grunaðir um ölvun við akstur og það þykir okkur slæm byxjun á árinu. Annars urðu eng- in teljandi óhöpp eða slys á fólki en erillinn var eins og á anna- samri helgi," sagöi lögreglan á Selfossi við DV. -hlh Ólafsvík: Eins og w ■■ i sogu „Áramótin gengu eins og í sögu. Það voru böll í Ólafsvík og á Hell- issandi og viö verðum að segja að þetta voru meiriháttar flott áramót Við þurflum akkúrat engin afskipti að hafa af fólki, hvorki á böllum né annars staö- ar. Þó var slæöingur af fólki á ferli fram eftir morgni. Miðað við 1 fyrra, en þá voru róstusöm ára- mót, var j>etta hátiö," sagði lög- reglan í Olafsvík við DV. Aramótabrennur voru í Ólafsvík, á Hellissandi og í Rifi og var líf í tuskunumáöllumstöðunum. -hlh fleiru stolið úr glugganum, kostar ný rúða um 40 þúsund krónur með ísetningu. -hlh Keflavík: Góð áramót „Þetta voru góð áramót. Það var talsverð ölvun og erill vegna hennar fram undir morgun en engin slys eða óhöpp sem segjandi er frá. Við slupp- um alveg við rúðubrot í þetta skipt- ið,“ sagði lögreglan í Keflavík við DV. Átta brennur voru á Reykjanes- skaganum og gekk vel við þær allar. -hlh Stykkishólmur: Eins og um helgi Áramótin í Stykkishólmi fóru vel fram og að sögn lögreglu var ekki meira að gera en um venjulega helgi. Brenna var í Stykkishólnmi en hana sóttu ekki mjög margir þar sem veð- ur þótti frekar leiðinlegt, rigning og strekkingur. Mikið var skotið á mið- nætti og skemmti fólk sér fram eftir nóttu. -hlh Hvolsvöllur: Ekkert vesen „Það var ekkert vesen á fólki hér á Hvolsvelli eða á Hellu og Rauða- læk. Það voru brennur á þessum þremur stöðum og tókust þær vel. Eins og gengur var fólk að til að verða 10 á nýársdagsmorgun en við höfum ekki þurft að hafa afskipti af neinum vegna þessara áramóta," sagði lögreglan á Hvolsvelli við DV. -hlh Húsavlk: Rólegt og gott Áramótin á Húsavík voru að sögn lögreglu þar róleg og góð. Tvær brennur voru í bænum og töluvert af fólki viö þær. Margt fólk var á ferli alla nýársnótt en afskipti lögreglu af því voru nær engin. Enginn var tekinn vegna ölvunar við akstur. -hlh Hööi: Góð áramót Á Höfn í Hornafirði voru áramótin góð að sögn lögreglu. „Fólk skemmti sér eins og gengur um áramót en það var enginn settur inn eöa tekinn full- ur undir stýri." Brenna var á Höfn og safnaöist nokkur mannfjöldi að henni. Snjólaust er á þessum slóðum og engin hálka á vegum. -hlh Blönduós: Allt fór vel fram Það fór allt vel og friðsamlega fram á Blönduósi um áramótin. „Hér var dansleikur og venjulegt áramóta- glens hjá fólki," sagði lögreglan á Blönduósi. Lögreglan þar gegnir líka löggæslu á Hvammstanga og þar var sömu söguað segja: Allt fór friðsam- lega fram. -hlh Vont mál Þáhafa íþróttafrétta- menn kunn- gjörtvalsittá Jþróttamanni ársins 1988“ og máteljavístað þaðvalhafi vakið mikla athy gli og eigi eftir að veröa mikið til umræðu. Margir voru á þ ví að það væri formsatriði að veita fatlaða íþróttamanninum Hauki Gunnarssyni títilinn að þessu sinni, enda lágu eftir hann á árinu heims- met, gullverðlaun á heimsleikum fatlaði-a f Seoul auk fleiri verðlauna þar, svo aö eitthvað sé nefht. Reyndar var við þ vi að búast að ekki yrði ein- ing um að velj a Hauk íþróttamann ársins og var þ ví borið við aö erfitt væri að, ,meta' ‘ afrek hans við hlið aireka ófatlaðra íþróttamanna. Haukur viröist hins vegar hafa verið gjaldgengur i kjörinu vegna þess að hann hlaut 3. sætið en fatlaöur íþróttamaður þarf greinilega að vinna til veglegri verölauna tfl að ná títlinum í þessu kjori þótt erfitt sé að sjá hvernig það á að gerast. Bubbi ruglaður? Eiríkur Jóns- son.fiéttastjóri Stjörnunnar, segiraö Buhhi Morthenssé orðinnendan- !ega ruglaður ogerástæða þessara ummæla sú að Bubbi mun hafa sagt að lög af plötu hans og Megasar hafa ekki fengist leikin á Stjörnunni og á Bylgjunni og væru rey ndar á bannlista þar. Þessu mót- mælirfréttastjórinn harölegaoglék reyndar bút úr einu lagi plötunnar Bláir draumar í fréttatima stöðvar- innar til að sanna mál sitt. Hitt mun vera rétt að lög af þessari plötu fengu ekki mikla „spilun" h)á Stjörnunni og senniiega hefur það farið fyrir brjóstið á Bubba. Hefúr ýmsum fund- ist tími til kominn að „einokun" Bubba og Megasar á fiósvakamiðlun- um létti. Arðvænlegter það Jólabóka- kauplands- manna munu okkihafaverið neittáðráöi i minnifyrirjól-: innúnaenhin síöustu ár þrátt fyrir allt tal um kreppu. Þær bækur, sem voru í flokki þeírra söluhæstu, seldust í miklu magni og er þóst að höfundar þeirra hafa haft fyrir kostn- aði og vel þaö. Fyrrverandi frétta- stjóri Sjónvarpsins, sem áttí bók í flokki söluhæstu bóka, mun t.d. hafa gert það gott en sögusagnir segja að hann hafi haft 5-6 milljónir króna í sinn hlut fyrir Og þá flaug Hrafninn. Eins og fram kemur i bókinni réö það ekki hvað sist úrshtum á þeim tíma er hann tók að sér starfið að hann vann stóra vmninginn í happdrætti og hafði því efni á því sporti sem það er að vera opínber starfsmaður. En eftir hvellinn sem varö erhann lét 'af störfum settist karlinn niður, skrif- aði, ,söguna alla“, palladóma og fleira og sló í gegn eins og svo oft áður. Og ekki var það lakara að hann skrifaði bókina á fullum launum hjá Sjón- varpinu! Albert með völd- in? Borgara- tlokkurinn kemurmikiö viðsöguhjá „völvu“ Vik- unnarsemspá- irtyrirumat- huröi ársins 1989. Segir hún að þótt Albert fari tíl Prakklands sjái hún ekki betur en að hann búi svo um hnútana áður að hann haldi áfram um stjómar- taumana í flokknum þótt formlega séu þeir látnir í hendurnar á öðrum mönnum tíi bráðabirgða. Þá segir hún að Júlíusi Sólnes bjóðist hálaun- að embættí gegn því að hann láti laust sæti sitt á Reykjanesi en hann þiggi ekki boðið. Ekld minnist völvan á Aðalheiði sem nú hefur klofið Borg- araflokkinn ef marka má orð Alberts Guömundssonar að undanfórnu. Umsjón: Gylli Krlstjánsson Bjarni Holm, til hægri á myndinni, og sonur hans unnu við að skera brotn- ar rúöur úr gluggum i Reykjavík í nótt og voru að talsvert fram yfir há- degi. Þarna eru þeir við verslunina Japis í Brautarholti og orðnir þreyttir enda haft ærinn starfa þessa fyrstu nótt ársins. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.