Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1989, Side 7
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1989. Viðskipti Arið 1988 var erf itt ferðaár Feröaskrifstofurnar spá erfiöu ferðaári fram undan. Samdráttur er líklegur og verða ferðaskrifstofurnar að draga eins mikið úr kostnaði og mögulegt er til að ná fr&m hagnaði. „Árið 1988 var á ýmsan hátt erfitt ferðaár. Fjöldi farþega var svipaður og í fyrra en vegna gengisfellinga á árinu hækkaði tilkostnaður meira en tekjur. Enda ganga allar áætlanir ferðaskrifstofa núna út á að ekkert svigrúm sé til aukins framboðs í leiguflugi á næsta ári heldur þurfi frekar að huga aö einhveijum sam- drætti,“ segir Knútur Óskarsson, stjómarmaður í Félagi íslenskra ferðaskrifstofa og forstjóri Úrvals. Að sögn Knúts var árið nokkuð gott fráman af en með miklu kreppu- tali í haust hafi eftirspum eftir ferð- um greinilega minnkað. „Haustið brást alveg til Kanaríeyja, sérstaklega í nóvember og byrjun desember, en mikfil kippur kom í jólaferðimar og var þá fullbókað. Útlitið er mjög gott í janúar og febrú- ar tfi Kanaríeyja og virðist betur bókað í janúarferðir en undanfarin ár,“ segir Knútur. Helgi Jóhannsson, forstjóri Sam- vinnuferða-Landsýnar, segir að haustið hafi greinilega orðið þyngra í sölu eftir mjög gott vor og sumar. „Niðurstaða ársins er sú að flestar ferðaskrifstofurnar telja sig eflaust ánægðar ef endar ná saman eftir árið,“ segir Helgi. Að sögn Helga eru ferðaskrifstof- umar allar núna mjög varkárar í spám sínum fyrir næsta ár. „Spáð hefur verið minnkun í ferðalögum síðustu tvö árin en það hefur ekki gengið eftir heldur öfugt. Þess vegna held ég að það verði enginn sam- dráttur í ferðaþjónustunni í heild sinni á næsta ári þó margir spái því. Ég held að ferðalög séu einfaldlega komin ofar í þarfapýramídann en áður hjá fólki,“ segir Helgi. Að sögn Helga telur hann um áber- andi samdrátt að ræða í skíðaferöum á næstu mánuðum. „Það hefur vant- að snjóinn hér heima til að kveikja áhugann hjá fólki. Núna er að vísu byrjað að fnjóa og hver veit nema að salan aukist í skíðaferöirnar," segir Helgi Jóhannsson. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 2-4 Lb Sparireikningar 3jamán. uppsögn 2-4,5 Lb 6mán. uppsógn 2-4,5 Sb 12 mán. uppsögn 3,5-5 Lb 18mán. uppsögn 8 lb Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Vb Sértékkareikningar 0,5-4,0 Ab Innlán verotryggo Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsógn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb Innlán með sérkjörum 3,5-7 Lb Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7,5-8.5 Úb.Bb,- Vb Sterlingspund 11-12,25 Úb Vestur-þýsk mörk 3.75-4.5 Vb.Sp,- Úb.Bb Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Sb ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 11-12 Lb Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 11,75-12,5 Vb Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr) 14,5-17 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 8-8,75 Vb Útlántilframleiðslu Isl.krónur 12-12,5 Lb.Sb,- Bb.Úb SDR 9.5 Allir Bandarikjadalir 11-11,5 Úb Sterlingspund 14,50- allir 14,75 nema Úb Vestur-þýsk mörk 7,25-7.5 allir nema Úb Húsnæðislán 3.5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 27,6 2.3 á mán. MEÐALVEXTIR överðtr. des. 88 17.9 Verðtr. des. 88 8,7 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala des. 2274 stig Byggingavisitala des. 399,2 stig Byggingavisitalades. 124.9 stig Húsaleiguvisitala Engin hækkun 1. okt. Veröstoðvun VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóóa Einingabréf 1 3,403 Einingabréf 2 1,931 Einingabréf 3 2,219 Fjölþjóðabréf 1,268 Gengisbréf 1,586 Kjarabréf 3,401 Lifeyrisbréf 1.711 Skammtimabréf 1.186 Markbréf 1,804 Skyndibréf 1,041 Sjóðsbréf 1 1,644 Sjóðsbréf 2 1,381 Sjóðsbréf 3 1,168 Tekjubréf 1,583 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 118 kr. Eimskip 346 kr. Flugleiðir 273 kr. Hampiðjan 130 kr. Iðnaðarbankinn 172 kr. Skagstrendingur hf. 160 kr. Verslunarbankinn 134 kr. Tollvörugeymslan hf. 100 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þríðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt- um og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánarl upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. England: lceland valið fyrirtæki ársins Breska fyrirtækið Iceland Froz- en Foods, sem er nálægt bænum Chester í Englandi, var á dögunum valið fyrirtæki ársins í Bretlandi. Fyrirtækið þykir mjög vel rekið og stefnir í að verða stærsta fyrirtæki með frosnar matvörur í Bretlandi. Iceland er með 3.500 manns í vinnu og starfrækir um 186 versl- anir, aðallega í Norður-Englandi. Það var stofnað fyrir 20 árum af Malcolm Walker og Peter Hinch- cliffe. Þeir eru nú báðir margmillj- ónarar. Á siðusu fjórum árum hefúr sal- an þrefaldast og hagnaðurinn fjór- faldast. Salan er núna 154 mflljónir punda á ári og hagnaöurinn 7,2 milljónir sterlingspunda. ' -JGH » Sameiginlegt beinlínu- kerfi Visa og Eurocard? Einar S. Einarsson, forstjóri Visa ísland, segir að Visa hafi boðið Eurocard a íslandi samstarf vegna umræðna um að Visa ísland og Kred- itkort taki í notkun beinlínu kerfi við verslanir. Einar telur að þetta kerfi verði hugsanlega komið á eftir nokkra mánuði. Samstarf Visa og Eurocard virðist vera að aukast. Financial Times birti á dögunum frétt um að kortafyrir- tækin tvö hefðu ákveðið að grafa stríðsöxina og heimfla viðskipta- mönnum sínum að nota sér banka- þjónustu beggja fyrirtækjanna og hiraðbanka eftir mitt árið 1990. Fyrirtækin eru með hátt á annað hundrað þúsund afgreiðslur í Evr- ópu og þúsundir hraðbanka. Þetta þýðir aö á árinu 1990 geta Eurocard korthafar á íslandi ferðast um Evrópu og leyst út gjaldeyri í Visa afgreiðslum sem og Visa hrað- bönkum. Þetta gildir líka öfugt. Visa korthafar geta nýtt sér Eurocard af- greiðslur og Eurocard hraöbanka. -JGH Enska er okkar mál JOSEPHINE FLYNN SKÓLASTJÓRI JULIE INGHAM SKÓLASTJÓRI JAYNE O'GRADY ENSKUKENNARI JUNE McGREGOR ENSKUKENNARI EVERETT ENSKUKENNARI NAMSKEIÐIN HEFJAST 16.JANÚAR INNRITUN STENDUR YFIR F Y R I R FUtLORÐNA 7 VIKNA ENSKUNÁMSKEIÐ TVISVAR í VIKU, TVO TÍMA í SENN ÍO VIKNA VIÐSKIPTAENSKA í HÁDEGINU, TVISVAR í VIKU 12 VIKNA FRAMHALDSNAMSKEIÐ SAMTALSTÍMAR Á FÖSTUDÖGUM 12 VIKNA SKRIFLEG ENSKA Á FÖSTUDÖGUM 12 VIKNA ÍSLENSKUNÁMSKEIÐ FYRIR ÚTLENDINGA FYRIR BÖRN 4—6 ÁRA LEIKSKÓLI Á MORGNANA 8—12 ÁRA 12 VIKNA NÁMSKEIÐ 13—15 ÁRA UNGLINGANÁMSKEIÐ UNDIRBÚNINGUR FYRIR SAMRÆMD PRÖF N Ý T T UNDIRBÚNINGUR FYRIR T.O.E.F.L. PRÓF BOKMENNTANAMSKEIÐ UMRÆÐUTÍMAR - LESTUR MORGUNSPJALL LÉTTAR UMRÆÐUR Á ENSKU YFIR KAFFIBOLLA LEIKSKOLI FYRIR 4-6 ÁRA BÖRN ÁMORGNANA Ensku Skólinn TUNGATA 5, 101 REYKJAVÍK HRINGDU I SIMA 25330 / 25900 OG KANNAÐU MÁLIÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.