Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1989, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1989, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1988. Fréttir_______________________________________________pv Þriðja einvígisskákin í Seattle: Jóhann lék af sér og Karpov gaf engin grið - sigraði auðveldlega í 32 leikjum Jóhann Hjartarson tapaði annarri skák sinni i röð fyrir Karpov. Jón L. Ámason, DV, Seattle íslendingarnir voru vonsviknir er þeir hurfu á braut að lokinni þriðju einvígisskák Jóhanns Hjartarsonar og Anatoly Karpov í Lakeside skól- anum í Seattle. Jóhann tefldi skákina langt undir getu eftir að hafa fengiö frambærilega stöðu úr byijunar- leikjunum. Eftir afdrifarík mistök fór smám saman aö halla undan fæti uns mát blasti við eftir 32 leiki. Þá varö Jóhann að gefast upp. Mesti bylur og fannfergi í yfir þrjá- tíu ár setti mark sitt á bæjarbraginn í Seattle í gær. Frí var gefið í skólum og vandræði sköpuðust vegna van- búinna bifreiða á hraðbrautunum. „Við pöntuðum þetta veður fyrir þig,“ var í tvígang sagt við Jóhann er hann kom á mótsstaðinn en greinilegt er að hann er á bandi heimamanna. Einn þeirra laumaði út úr sér orðunum „áfram, Jóhann“ fyrir skákina, rétt áður en Karpov gekk í salinn. Allt kom þó fyrir ekki. Skák Jón L. Árnason Við upphaf skákarinnar stóð bandaríski stórmeistarinn Henley við sýningarborðið uppi á sviöi en hann hefur oftar en einu sinni sést í fylgd með sovésku sendinefndinni. Margeir Pétursson, aðalaðstoöar- maður Jóhanns, brá við skjótt og kvartaði við skákstjóra, sem sendi Henley rakleiðis í sæti sitt að nýju. í stað hans færöi Don Schulz, forseti bandaríska skáksambandsins, leiki á sýningarborðinu en átti greinilega í vandræðum með mannganginn. Þrá- inn Guömundsson, forseti Skáksam- bands íslands, bjargaði honum ein- hveiju sinni með því að teygja sig upp á borðið og laga stöðuna. Með sigrinum í nótt hefur Karpov unnið tvær skákir í röð og hefur nú hlotið 2,5 vinninga gegn hálfum vinn- ingi Jóhanns. Karpov nægir einn vinningur til viðbótar til að sigra í einvíginu. Fjórðu einvígisskákina heQa þeir kl. 1 aðfaranótt laugar- dags, að íslenskum tíma. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rffi 5. (M) Be7 6. Hel Jóhann breytir út af 1. skákinni er hann skipti upp á biskup fyrir ridd- ara. 6. - b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 He8 Upphafsleikur Zaitsev-afbrigðisins svonefnda en hugmyndasmiður þess hefur verið einn helsti aðstoðarmað- ur Karpovs í mörg ár. Hann er í liði Karpovs í Seattle en sumir segja að hann sé í stofufangelsi því að hann hefur aldrei sést á skákstað. Senni- lega hefur hann legið yfir afbrigði sínu í Ameríkuferðinni. Karpov hef- ur ævinlega haldið tryggð við þessa leiö, sem varla hefur komið Jóhanni á óvart. 10. d4 Bb7 11. Rbd2 Bffi 12. a3 h6 13. Bc2 Rb8 14. b4 Rbd7 15. Bb2 a5!? Þetta er afrakstur heimarannsókn- anna og árangurinn kom strax í ljós - Jóhann notaði mikinn tíma á næstu leiki. Ef ég man rétt lék Jóhann sjálf- ur 15. - g6 gegn Timman í Tilburg en lenti fljótlega í ógöngum. Vitan- lega hefur Karpov kynnt sér þetta. 16. Bd3 c6 17 Rb3 Kostir hvíts eru margir. Jóhann velur eðlilegt framhald en nú hafði hann notað fimmtíu mínútur á leiki sína en Karpov aðeins tíu mínútur. 17. - axb4 18. cxb4 Opnar homalínuna fyrir biskup- inn og undirbýr að þrýsta eftir c- línunni. Á móti kemur að a-peð hvíts situr eftir í skotfæri. 18. - exd4 19. Rxd4 Aftur hugsaði Jóhann lengi. Eftir þennan leik hans nær Karpov að losa um sig og jafna taflið. Freistandi var 19. Ra5 en vafalítiö hefur Jóhann ótt- ast skiptamunsfóm á a5 sem hefði leitt til dálítið varasamrar stööu á hvítt. 19. - c5! 20. bxc5(?) Eftir á að hyggja er þetta e.t.v. slæmur leikur. Eftir 20. Rxb5 cxb4 21. axb4 Hxal 22. Bxal Bxe4 á hvitur áreiðanlega ekki lakara tafl. 20. - dxc5 21. Rxb5 Rxe4 Karpov hugsaði í um hálfa klukku- stund áður en hann lék þennan leik. Þetta er skarpari möguleiki en 21. - Bxe4 sem einnig kom til greina. 22. Dc2 Rdffi I flAs £ L k 4l A m ÉL & * ■ 2 db ABCDEFGH í blaðamannaherberginu var búist við 23. a4, eða 23. He3, sem svartur svarar með 23. - Db6 í báðum tilvik- um - drottningin stefnir á c6, þar sem hún stendur vel. Mörgum fannst Jó- hann standa betur að vígi en senni- lega er staða hans ekki eins góð og hún virðist vera. Næsti leikur hans er hins vegar afar slæmur. 23. Rc3? Rg5! Skyndilega hafa vopnin snúist í höndum hvíts. Menn Karpovs stefna yfir á kóngsvænginn en menn Jó- hanns eru í hnapp drottningarmegin og standa illa til varnar. 24. Bb5 Hxel-t- 25. Hxel Dc7 26. Bfl Ömurlegur leikur en svartur hót- aði 26. - Bxg2! og að rífa upp kóngs- stöðuna. 26. - Dc6 Karpov átti 25 mínútur eftir á klukkunni, Jóhann 15 mínútur og tími hans fór versnandi. Gott svar við 26. - Df4 var 27a. 28. - Re6 29. Rdl Rg4 30. Hxe6 Vonast eftir 29. - fxe6 30. Dg6 með einhveijum gagnfærum. Jóhann á ekkert skárra en að vona. 30. - Bh2+! 31. Khl Dxe6 32. ffi Eftir 32. Rxc5 Del 33. De2 Dxdl! vinnur svartur létt en 32. - De7! með mátsókn er enn sterkara. 32. - Del Og Jóhann gaf. Ef 33. fxg4 Dxh4 er hann óveijandi mát, t.d. 34. Rf2 Bg3 + 35. Rh3 Dxh3 + og mát í næsta leik. -JLÁ Dómur í fógetarétti um launakröfur Björgólfs Guðmundssonar: Krafðist fimm milljóna en var gert að greiða tvær Fallinn er í fógetarétti úrskurður í máli sem Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Hafskips, höfð- aöi gegn þrotabúi félagsins. Björgólf- ur krafðist að fá greiddar 5,2 milljón- ir, auk vaxta, vegna viðbótarlauna samkvæmt starfskjarasamningi vegna bættrar rekstrarafkomu Haf- skips. Fógetaréttur hafnaði kröfu Björgólfs og dæmi hann til að greiöa þrotabúinu 2,2 milljónir vegna oftek- inna launa. Ragnar Kjartansson og Björgólfur höfðu áður fengið greiddar háar fjár- hæðir vegna þessa starfskjarasamn- ings. Mat réttarins var að Björgólfur hafði tekið sér hærri fjárhæð enn hann með réttu átti. Hjá Hæstarétti er mál Ragnars Kíartanssonar sem hann áfrýjaöi eftir að fógetaréttur komst að sömu niðurstöðu og í máli Björgólfs. „Þetta kemur mér ekki á óvart, sömu dómarar dæmdu á síðastliðnu ári í sams konar máli félaga mins, Ragnars Kjartanssonar, en það mál er nú fyrir Hæstarétti. Það var ekki hægt að ætlast til að þeir kæmu með annan dóm miðað við sömu forsend- ur án þess að gera þann ómerkan, en það skiptir auðvitað máli fyrir dómarana persónulega. Þama er tek- ist á um túlkun á starfskjarasamn- ingi stjómar Hafskips við mig eins og hann var framkvæmdur, sam- þykktur og bókaður í fundargerðar- bók félagsins gegnum árin. Valdimar Guönason, endurskoöandi þrotabús- ins, tók síðan upp hjá sjálfum sér, löngu seinna, nýja útreikningsaðferð á starfskjarasamnignum. Ef hans aðferð gildir þá get ég með sams kon- ar aðferðum sýnt fram á að ég hafi verið launalaus í þau átta ár, sem ég starfaði hjá Hafskip, fyrir utan alls konar fjármálalegt misferli, sem af þessu ætti að leiða, og geta þá marg- ir verið ánægðir. Varla mundu Valdimar Guðnason, endurskoðandi búsins, bústjórar né Jónatan Þórmundsson, sérstakur saksóknari í málum, sætta sig við þau kjör en þaö er auðvitað annað mál. Sá einn er sekur sem tapar en máhnu verður auðvitað áfrýjað til Hæstaréttar íslands," sagði Björgólf- ur Guðmundsson. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.